Dagur


Dagur - 23.04.1996, Qupperneq 4

Dagur - 23.04.1996, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Þriöjudagur 23. apríl 1996 LEIÐARI------------------------- Samtrygging olíufélaganna ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, SIGURÐUR BOGISÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (fþróttir), BLAÐAMAÐUR HÚSAVÍK- SÍMIÁ SKRIFSTOFU 464 1585, FAX 464 2285. HEIMASÍMI BLAÐAMANNS 464 3521 LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 462 7639 SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087 Hækkun á bensíni fyrir helgina vekur grun- semdir um að sú samkeppni sem olíufélögin halda fram að sé til staðar á eldsneytismark- aðnum á ekki við rök að styðjast. Það er vita- skuld fullkomlega óeðlilegt að þrjú stóru olíu- félögin, Skeljungur, Olís og Esso, hækka bensínið nákvæmlega jafn mikið á nánast sömu mínútunni. Neytendur horfa upp á þetta og geta ekkert gert nema yppt öxlum og í mesta falli hneykslast á greinilegu samráði olíufélaganna um verðlagningu. Því hvaða virka samkeppni er það að reyna ekki með verðlagningu að ná til sín kúnnum? Augljóst er að olíufélögin hafa komið sér saman um að skipta með sér kökunni á bróðurlegan hátt og hámarka þannig ágóðann. Með öðrum orðum er greinilega ríkjandi þegjandi samkomulag milli olíufélaganna að voga sér ekki í verðlækkanir og undirboð. Olíufélögin hagnast sem aldrei fyrr en bifreiðaeigendur standa eft- ir og sjá á eftir æ fleiri krónum renna til kaupa á eldsneyti. Svona er nú ástandið á þessum fákeppnismarkaði og verður ekki öllu lengur við unað. Það er hárrétt hjá formanni Neyt- endasamtakanna að tími er til kominn að sam- keppnisyfirvöld fari nú að skoða ofan í kjölinn hvernig háttað er samkeppni, eða öllu heldur hvernig ekki er háttað samkeppni á eldsneyt- ismarkaðnum. Flest bendir til þess að nú verði farið ofan í saumana á verðmyndun olíuvara, enda er almenningur í landinu búinn að fá nóg af vinnubrögðum olíufélaganna. Greinilegt samráð um verðhækkanir fyrir helgina fyllti mælinn. Olíufélögin fengu tímabært spark þegar spurðist út að Irwing Oil hefði hug á að nema land hér á landi. Smá jarðhræringar gerðu vart við sig á forstjórakontórum olíufélaganna og viðbrögðin voru m.a. þau að stofna til Orkunn- ar, sem selur á eilítið lægra verði en gengur og gerist. Síðan hefur það gerst að Irwingarnir virðast hafa misst áhugann á íslandi og þar með fara olíufélögin í gömlu hjólförin og halda uppteknum hætti, bifreiðaeigendum og al- menningi öllum til armæðu. Eldsneytishækk- unin á dögunum er til marks um það. íslandsbanki á Húsavík: Endurbætt húsnæði í notkun í síðustu viku var húsnæði ís- landsbanka á Húsavík formlega tekið í notkun eftir gagngerar endurbætur. Byggt var við hús- ið og eldri hluti þess endurnýj- aður frá grunni. Að sögn Láru Júlíu Kristjáns- dóttur, þjónustustjóra útibúsins á Húsavík, batnar öll aðstaða mjög við þessar breytingar. A það við bæði viðskiptavini og starfsfólk. Viðbyggingin og endurbætumar voru að stærstum hluta unnar af verktakafyrirtækinu Vík hf. á Húsavík. I tilefni opnunarinnar afhenti Örn Björnsson, útibússtjóri (t.v.), Jóni Kjart- anssyni, formanni björgunarsveitarinnar Garðars á Húsavík, fjárframlag til endurnýjunar á talstöðvuni björgunarsveitarinnar. Myndir: JS Fyrsti viskiptavinur bankans á mánudaginn var Kjartan Kristbjörnsson. Afhenti Lára Júlía Kjartansdóttir, þjón ustustjóri, honurn blóm af því tilefni. Búist við aukningu í haust Þorsleinn Pálsson, sjávarútvegs- ráðherra, hefur ákveðið að ekki verði aukið við þorskkvótann á yfírstandandi fískveiðiári þrátt fyrir að stofninn sé á uppleið. Sjávarútvegsráherra sagði að rökstuðningur fyrir ákvörðun- inni væri fyrst og fremst sá að ákvörðun um heildarafla fyrir fískveiðiár gilti allt það tímabil og það þyrfti sérstakar aðstæður til að breyta því á miðju fisk- veiðiári. Endurmat á stofninum sem Hafrannsóknastofnun hefur fram- kvæmt með svokölluðu togararalli, sem fram fór 6.-22. mars sl„ sýnir að stofninn er að styrkjast og sú ákvörðun sem tekin var í fyrra varðandi „gólf‘ í aflaregluna stenst fullkomlega, þ.e. að veiða eigi meira en 25% af meðalveiði- stofni, þó eigi minna en 155 þús- und tonn eins og nú er. Hitastig sjávar við botn reyndist með hæsta móti, fyrir Norðurlandi hækkaði hitastigið um 3 gráður og um 2 gráður fyrir Norðvesturlandi. Lengdardreifing þorsks síðustu 3 ár sýnir að árgangurinn frá 1993 er yfirgnæfandi í uppvaxandi hluta stofnsins en yngri áragangar mjög slakir. Vaxandi fjöldi fiska yfír 60 cm gefur til kynna jákvæð við- brögð stofnsins við minnkandi sókn sl. 2 ár. Vísitala veiðistofns þorsks virðist nú vera á uppleið eftir nokkurra ára lægð. Nýliðun í stofninum er þó áfram slök og byggist hækkun stofnvísitölunnar því einkum á minnkandi sókn síð- ustu 2 ár, en ekki betri viðkomu stofnsins. Varanleg uppbygging þorskstofnsins er því enn nokkurri óvissu háð, en fiskamir eru að þyngjast en ekki að sama skapi aukin viðkoma í stofninum. Viðbúið er að þorskveiðikvót- inn verði aukinn milli fiskveiðiára, en ljóst er að sú viðbót sem hugs- anlega hefði verið leyft að veiða nú yrði ekki veidd á næsta fisk- veiðiári. Stærstu hagsmunasamtök útvegsmanna og sjómanna hafa lýst þeirri skoðun sinni að ekki bera að auka þorskvótann á þessu fiskveiðiári. Það er athyglisvert að í umræðum á Alþingi nýlega áttu skoðanir sjávarútvegsráðherra mun meira fylgi meðal stjómar- andstæðinga en stjómarsinna. GG 6000 5000 4000 3000 2000 1000 Vísitölur tveggja ára þorsks litkik 83 84 85 86 87 88 89 90 91 92 93 94 Árgangar Vísitölur þriggja ára þorsks 12000 10000 8000 6000 4000 2000-4 n tftmlfl 82 83 84 85 86 87 88 89 90 91 92 93 Árgangar Þjóðminjasafnið: Þjóðhátta- deild óskar upplýsinga um vegavinnu Þjóðháttadeild Þjóðminjasafns ís- lands hefur nýlega sent frá sér spumingaskrá um vegavinnu í samvinnu við Vegagerðina. I skránni er leitað eftir fróðleik um vinnu við vegagerð áður fyrr. Spurt er um vinnutíma, aðbúnað, verkhætti og vélvæðingu, neyslu- hætti, skemmtanir, samskipti í vinnunni, dularfull fyrirbæri sem hentu við vegalagnir og fleira. Ljósmyndir, gripir, sögur eða ann- að sem efninu viðkemur er vel þegið. Ef menn vilja leggja þessari söfnun lið eða vita um einhverja sem kynnu að vera fróðir um ofan- greind efni eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við þjóðháttadeild (Hallgerði Gísla- dóttur) í síma 5528888. Jafnframt er alltaf þörf fyrir fólk sem er reiðubúið að vera á skrá hjá deild- inni og svara reglulega spuming- um um ýmislegt varðandi eldri tíð. (Fréttatilkynning)

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.