Dagur - 23.04.1996, Síða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 23. apríl 1996
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ
Staða verkefnis-
stjóra CAFF
Staða verkefnisstjóra (Programme coordinator) fyrir
samstarfi átta þjóða (Bandaríkjanna, Kanada, Rúss-
lands og Norðurlandanna fimm) um vernd lífríkis á
norðurslóðum (Conservation of Arctic Flora and
Fauna, CAFF) er laus til umsóknar. Samstarf þetta er
hluti víðtækara samstarfs um umhverfisvernd á Norð-
urslóðum (Arctic Environment Protection Strategy,
AEPS). Skrifstofa samstarfsins er staðsett á Akureyri.
Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirtalin skilyrði:
• Hafa stjórnunarreynslu og geta unnið sjálfstætt.
• Hafa reynslu af alþjóðasamstarfi á sviði vísinda.
• Hafa almenna þekkingu á málefnum norðurslóða, einkum
umhverfismálum með sérstakri áherslu á gróður og dýralíf.
• Hafa gott vald á ensku.
Verkefnisstjóri verður í fyrstu ráðinn til eins árs og þarf
að geta hafið störf sem fyrst. Staðan verður auglýst á
ný á árinu 1997 í öllum aðildarlöndum samstarfsins.
Frekari upplýsingar veita Þórður H. Ólafsson, skrif-
stofustjóri í umhverfisráðuneytinu, Vonarstræti 4, 150
Reykjavík, sími 560 9600, bréfsími 562 4566, eða
Ævar Petersen, forstöðumaður Reykjavíkurseturs
Náttúrufræðistofnunar íslands, Hlemmi 3, Reykjavík,
sími 562 9822, bréfsími 562 0815.
Umsóknir skulu berast umhverfisráðuneytinu fyrir 15.
maí nk.
Umsækjendur skulu greina frá menntun, reynslu og
hæfni með skírskotun til áðurgreindra skilyrða.
Hvammstangi
LAUS STÖRF
Á Hvammstanga eru eftirtalin störf laus til um-
sóknar.
Framkvæmdadeild Hvammstangahrepps
VERKSTJÓRI ÁHALDAHÚSS
Æskilegt er að viðkomandi hafi vélvirkjamenntun eða tilsvar-
andi menntun og starfsreynslu, sé skipulagður, geti unnið
sjálfstætt og hafi góða verkstjórnareiginleika. Umsóknarfrest-
urertil 5. maí nk.
GARÐYRKJUMAÐUR
í starfinu felst m.a. skipulag, umsjón og umhirða opinna
svæða, stofnanalóða og skógræktarsvæða, svo og umsjón
með vinnuskóla. Leitað er að starfsmanni með menntun frá
skrúðgarðyrkjubraut Garðyrkjuskóla ríkisins, skógfræðingi
eða tilsvarandi menntun og starfsreynslu. Umsóknarfrestur
er til 5. maí nk.
Upplýsingar veita tæknifræðingur og sveitarstjóri í síma
451 2353.
Grunnskóli Hvammstanga
SKÓLASTJÓRI
Umsóknarfrestur er til 12. maí nk.
GRUNNSKÓLAKENNARAR
Almenn kennsla, danska, enska, myndmennt, heimilisfræði
og kennsla yngri barna. Umsóknarfrestur er til 12. maí nk.
Upplýsingar veita skólastjóri í síma 451 2417 og sveitarstjóri
í síma 451 2353.
Leikskólinn Ásgarður
LEIKSKÓLAKENNARAR
eða starfsmenn með sambærilega menntun. Umsóknarfrest-
ur er til 15. maí nk. Upplýsingar veita leikskólastjóri í síma
451 2343 og sveitarstjóri í síma 451 2353.
Umsóknir um ofangreind störf skal senda skrifstofu
Hvammstangahrepps, Klapparstíg 4, 530 Hvammstanga.
Hvammstangi er vaxandi bær miðsvæðis milli Reykjavíkur og Akur-
eyrar. Á síðasta ári var fjölgun íbúa 2,2%, mest þéttbýlisstaða á
Norðurlandi vestra. Hvammstangi er ekki á jarðskjálftahættusvæði
og ekki á snjófióðahættusvæði. Á Hvammstanga er mjög fjölbreytt
þjónusta, atvinnulíf og félagslíf.
Velkomin til Hvammstanga.
BELTIN
(hd/7^6
ÚUMFERÐAR
RÁÐ
Vortónleikar
Mánakórsins
Fimmtudaginn 18. apríl efndi
Mánakórinn til vortónleika
sinna í Laugarborg í Eyjafjarðar-
sveit. Stjórnandi kórsins er Michael
Jón Clarke, en undirleikari á píanó
Richard Simm.
Samkvæmt söngskrá er Mána-
kórinn skipaður tuttugu og einum
söngmanni. Þar af eru karlar ein-
ungis sjö og af þeim þrír í bassa.
Hlutfall karla og kvenna er því
nokkuð óhagstætt og gætti þess all-
víða í flutningi kórsins, að karla-
raddir voru heldur dauflegar og
þróttlitlar. Þó áttu karlar góða hluti,
svo sem í lögunum Dögun eftir A.
Balascs við ljóð eftir Ingólf Jóns-
son frá Prestbakka, Blessaðir vinir
eftir Bellman í skemmtilegri út-
setningu eftir Gordon Jack og Káti
jámsmiðurinn eftir G. F. Handel,
sem sungið var á hljóðatkvæða-
setningu eftir Michael Jón Clarke.
Best nutu karlar sín í laginu í dag
eftir Sigfús Halldórsson við ljóð
Sigurðar Sigurðssonar.
Sópran Mánakórsins telur níu
söngvara. Þar er greinilega að finna
góðar raddir, sem ráða almennt vel
við sitt hlutverk. Þannig var röddin
vel björt í laginu Smalastúlkan eftir
Skúla Halldórsson við ljóð Jóns
Thoroddsens og átti góða hluti víð-
ar. Rétt brá fyrir þvingun í tóni hjá
sópran, svo sem í Við tvö og Blóm-
ið eftir Sigfús Halldórsson við ljóð
eftir Vilhjálm frá Skáholti og Söng
förusveinsins, sem er þýskt þjóðlag
við ljóð eftir Ólaf Guðmundsson.
Altinn telur fimm konur. Hann
hefur þéttan tón, sem fellur vel í
hljóminn og gerði víða vel, svo
sem í laginu Við tvö og Blómið eft-
TÓNLIST
HAUKUR ÁÚÚ5TSSON
SKRIFAR
ir Sigfús Halldórsson við ljóð eftir
Vilhjálm frá Skáholti.
í heild er Mánakórinn agaður og
vel æfður kór. Innkomur er jafnan
góðar sem og afslættir. Breytingar í
styrk og önnur túlkunaratriði eru
einnig almennt í góðu lagi. Þessi
atriði nutu sín vel í til dæmis lög-
unum Fyrr var oft í koti kátt eftir
Fririk Bjamason við ljóð eftir Þor-
stein Erlingsson, Hljóða nótt eftir
L. van Beethoven við ljóð eftir
Þórð Kristleifsson, sem kórinn
söng með fallegri lyftingu og Söng
förusveinsins, sem var vel jafnt og
skemmtilega fjörlegt.
I nokkur skipti brá út af, svo
sem í Ástardraumi eftir Franz Liszt
við ljóð eftir Davíð Guðmundsson,
Vakna Dísa eftir Christiani við ljóð
eftir Friðrik A. Friðriksson, Kata
gamla eftir Magnús Ingimarsson
við Ijóð Davíðs Stefánssonar og
Þín hvíta mynd eftir Sigfús Hall-
dórsson við Ijóð eftir Tómas Guð-
mundsson. I þessum lögum og
nokkru víðar var órói í röddum og
á stundum ekki alls kostar hreint
sungið. Ingunn Aradóttir söng tvö
lög við undirleik Richards Simms.
Þau voru Haustþankar og Vöggu-
vísa. Bæði lögin eru effir Pálma Þ.
Eyjólfsson og ljóðin eftir Stefán A
Jónsson. Einnig söng Ingunn yfir-
rödd í laginu Dögun. Ingunn hefur
verulega rödd, þvingunarlausa og
vel breiða. Tónninn er líltils háttar
hvass.
Haukur Steinbergsson söng
einnig tvö lög við undirleik
Richards Simms. Þau voru Þú ert
eftir Þórarinn Gumundsson við ljóð
Gests og Mánaskin eftir Eyþór
Stefánsson við ljóð Helga Konráðs-
sonar. Hauki tókst allvel einkum í
síðara laginu.
Tónleikar Mánakórsins í Laug-
arborg vom óverðuglega illa sóttir.
Kórinn er vel þess virði að sækja
hann og hlýða á söng hans. Áf
flutningi hans er ljóst, að unnið er
af vandvirkni og metnaði. Því voru
tónleikarnir í Laugarborg ánægju-
legir. Þar má ekki láta ógetið undir-
leikarans, Richards Simms, sem
studdi vel í undirleik sínum og
veitti af snilld sinni það sem unnt
var á píanó hússins í flutningi Ást-
ardraums Liszts.
Á efnisskránni eru m.a. ný
sönglög eftir Hróðmar Sigur-
bjömsson og Atla Heimi Sveins-
son, ýmsar nýstárlegar útsetningar
á þekktum íslenskum söng- og
dægurlögum, skandinavísk þjóð-
lög og margt fleira. '
Tjarnarkvartettinn hefur starfað
saman í 7 ár og á þeim tíma haldið
fjölda tónleika innan lands og ut-
an, sungið í útvarp og sjónvarp og
Dagur bókarinnar
Tjarnarkvartettinn í söngferð
Tjarnarkvartettinn er að leggja
upp í stutta söngferð austur á
land fyrstu helgi í sumri. Kvart-
ettinn heldur tónleika í Húsa-
víkurkirkju að kvöldi sumar-
dagsins fyrsta, nk. fimmtudag,
kl. 20.30. Síðan verður haldið
austur á bóginn. Tónleikar
verða í Egilsstaðakirkju föstu-
dagskvöldið 26. apríl kl. 20.30, í
Seyðisíjarðarkirkju iaugardag-
inn 27. aprfl kl. 16 og í safnaðar-
heimilinu á Neskaupstað sunnu-
daginn 28. kl. 14.
gefið út tvo geisladiska. Kvartett-
inn skipa þau Rósa Kristín Bald-
ursdóttir, sópran, Kristjana Arn-
grímsdóttir, alt, Hjörleifur Hjartar-
son, tenór, og Kristján Hjartarson,
bassi.
VINNINGSTOLUR
LAUGARDAGINN
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
1 B 5 af 5 0 11.663.852
2. XH? W~T~ 801.660
3.4a'5 125 11.060
4. 3af5 4.307 740
Samtals: 17.035.192
Upplýsingar um vinningstölur fást einnig I símsvara
568-1511 eða Grænu númeri 800-6511 og I toxtavarpi
á slðu 451.
Dagur bókarinnar verður haldinn há-
tíðlegur í Deiglunni á Akureyri í
kvöld kl 20.30. Þar munu rithöfund-
amir Helga Ágústsdóttir, Heiðdís
Norðfjörð og Lárus Hinriksson lesa
úr verkum sínum, sem og Kristján
Kristjánsson, heimspekingur og Jón
Hjaltason, sagnfræðingur.
Auk þessa verður lesið úr bók
Vígfúsar Björnssonar og úr verð-
launabókinni „Sossu Iitlu“ eftir
Magneu frá Kleifum.
Að dagskránni standa Amtsbóka-
safnið á Akureyri, Rithöfundasam-
band fslands, Hagþenkir og Café
Karólína. Allir em velkomnir.
(Fréttatilkynning)
Bókasafh í KÞ
í dag er alþjóðlegur dagur bókarinn-
ar og af því tilefni ætla starfsmenn
bókasafns Suður-Þingeyinga á
Húsavík að opna útibú í húsi Kaup-
félags Þingeyinga á Húsavík.
Þar verður hægt að fá bækur að
láni á venjubundinn hátt og sérstakt
tilboð verður fyrir nýja lánþega. Þeir
sem ekki eiga lánsskírteini bóka-
safnsins og fá fimm bækur eða fleiri
að láni geta fengið ársskírteini
ókeypis í dag.
Þeir sem ætla að skila bókum
ættu hinsvegar frekar að leggja leið
sína í Safnahúsið á Húsavík, þar sem
bókasafnið er til húsa, því að þar
verður sektarlaus dagur í dag. KLJ