Dagur - 23.04.1996, Blaðsíða 16
wmm,
Akureyri, þriðjudagur 23. aprfl 1996
Já, þetta eru óneitanlega
ágætlega vöðvastæltar kon-
ur! Þær heita Ericca Kern
og Melissa Coates og koma
báðar frá Norður-Ameríku.
Ericca er líkamsræktar-
meistari N-Ameríku og
Melissa áhugameistari Kan-
ada í líkamsrækt. Þær stöll-
urnar komu til Akureyrar
sl. laugardag ásamt ljós-
myndaranum Bill Dobbins,
sem eins og kunnugt er sýn-
ir um þessa mundir ljós-
myndir af vöðvastælum
konum í Listasafninu á Ak-
ureyri. Efnt var til rabb-
fundar í Deiglunni á Akur-
eyri vegna sýningarinnar og
þar fengu viðstaddir að sjá
þær Ericcu og Melissu í
léttri vöðvasveiflu, eins og
meðfylgjandi mynd sýnir.
óþh/Mynd: BG
Birgðavandi
lambakjöts
að leysast?
Að sögn Ragnars Þorsteins-
sonar, formanns Búnaðar-
sambands Suður-Þingeyinga,
eru sterkar líkur á að í haust
verði um lítinn birgðavanda
lambakjöts að ræða. Er það
mikil breyting frá því sem verið
hefur.
Stafar þetta af því að tekist hef-
ur að flytja út umtalsvert magn af
kjöti, m.a. náðust samningar á
dögunum um að selja 1000 tonn
af kjöti til Túnis, þó verðið sé
reyndar mjög lágt. „Það má segja
að í dag vantar okkur meira af
umframkjötinu inn í þau sláturhús
sem hafa útflutningsleyfí til þess
að geta flutt meira á dýrari mark-
aði. Hefðu menn verið duglegri
við að koma með þetta kjöt í út-
flutningshúsin hefði e.t.v. verið
hægt að selja meira af þessu kjöti
á ESB markað eða til Bandaríkj-
anna. Þetta á t.d. við um sláturhús-
ið á Húsavík. Okkur vantar í raun
meira magn til að ná aukinni hag-
kvæmni," sagði Ragnar, en slátur-
hús KÞ er annað tveggja slátur-
húsa sem mega slátra fyrir Evr-
ópumarkað. HA
Akureyri:
Stolnum bíl
ekiö inn í
húsagarð
Ibúi hússins að Borgarhlíð 2 á
Akureyri vaknaði við mikinn
hávaða og læti um kl. hálfþrjú
aðfaranótt sl. laugardags. í ljós
kom að bfl hafði verið ekið inn í
húsagarðinn, hann skollið á úti-
dyrahurðinni og brotið hana.
Ökumaður bifreiðarinnar, sem
grunaður er um að hafa verið ölv-
aður, komst óséður í burtu og í
gær hafði lögreglan á Akureyri
ekki vitneskju um hver þarna var
á ferðinni. Lögreglan biður alla þá
sem kynnu að hafa upplýsingar
um þennan atburð að láta sig vita.
Maðurinn hafði stolið bifreið-
inni, sem var opin með lykilinn í, í
Sunnuhlíð. Hún er töluvert mikið
skemmd. óþh
Stálkonur
sýna vöðvana
Ljósmyndaljósritun >iit á emurn Stsi6 Ljósmyndaútprentun 4
► Venjuleg Ijósritun Ljósmyndavinnsla 4
Litljósritun ^Feátomyn áir^ Skipagata 16 - 600 Akureyri - Slmi 462 3520 Skönnun
> Tölvuútprentun CSi. CD skrifun
Átak gert í fráveitumálum á Blönduósi:
Stefnt a „grænan" stimpil 2005
Blönduósbær hefur gengið til
samninga við verkfræðistof-
una Ölfu hf. í Reykjavík um
áætlun, hönnun á hreinsimann-
virkjum og síðar framkvæmd á
nýbyggingu og breytingum á
fráveitukerfí bæjarins. Samn-
ingsupphæðin er 2,3 milljónir
króna. Guðbjartur Á. Ólafsson,
bæjartæknifræðingur, segir að
það sé krafa nútímans að til
staðar sé úttekt á holræsakerf-
um auk þess sem gera þurfí úr-
bætur við útrásir.
Vinnu verkfræðistofunnar á að
vera lokið á komandi hausti og
lýkur með sérstökum kynningar-
fundi laugardaginn 14. september
nk. fyrir bæjarstjóm þar sem
lausnirnar verða lagðar fram auk
staðfestinga yfírvalda á því að
lausnirnar uppfylli sett skilyrði
um hreinsibúnað og útrásir. Ríkis-
sjóður styrkir framkvæmdir við
svokölluð sniðræsi um 20%, sem
em til þess að safna saman eldri
ræsum. Segja má að ástand
fráveitumála í mörgum sveitarfé-
lögum, þ.á.m. á Blönduósi, sé alls
© VEÐRIÐ
Vindur hefur nú snúist til
suðlægrar áttar og henni
fylgir hlýnandi veður. í gær
var hlýjast á Akureyri, 7
gráðu hiti. í dag er búist við
aust- eða suðaustlægri átt
og björtu veðri norðan heiða.
Á morgun, fimmtudag, föstu-
dag og laugardag er spáð
austlægri átt, björtu veðri
nyrðra en fremur svölu. Á
sunnudag verður áfram bjart
og hlýnandi veður.
óviðunandi og eitt af forgangs-
verkefnum í þessu sambandi sé að
sameina útrásir. Fyrst er gerð út-
tekt á kerfinu eins og það er í dag
og það sett í tölvutækt form og
keyrt í fráveituforritum og þannig
fundnir út „flöskuhálsar" í kerf-
inu. Síðan er sett upp tillaga til úr-
bóta, sem væntanlega felur í sér
eina til þrjár útrásir, en útrásirnar
frá Blönduósbæ em um 20 talsins
í dag. Líklegt er að á Blönduósi
verði útrásirnar tvær, sitt hvoru
megin Blöndu. Þar næst er gerð
tillaga um hreinsun og hvernig
skolpinu verður sleppt út í við-
taka, sem er sjór, á, vatn o.s.frv.
Strangar kröfur eru um hreinsun
og þarf tillaga þar að lútandi að
hljóta samþykki yfirvalda eins og
að framan greinir.
Guðbjartur Á. Ólafsson, bæjar-
tæknifræðingur Blönduósbæjar,
segir að sveitarfélög þurfi að vera
komin með „grænan" eða „vist-
vænan“ stimpil árið 2005. Það sé
mjög mikilvægt fyrir þau sveitar-
félög þar sem matvælaiðnaður
skipar stóran sess í atvinnulífinu. í
nágrannalöndunum verða sveitar-
félög sem ætla að verða með mat-
vælaframleiðslu inn á t.d. Evrópu-
markað að vera með þennan
græna stimpil, sem er staðfesting
á því að holræsamál viðkomandi
sveitarfélags séu í lagi. Það sé
krafa Evrópusambandsins og það
verði íslendingar einnig að beygja
sig undir ætli þeir að flytja út mat-
væli á næstu áratugum. Krafa er-
lendra kaupenda er einnig vaxandi
að þessu leyti. GG
Lögreglan á Akureyri:
Meö klippurnar á lofti
Lögreglan á Akureyri er þessa
dagana með klippurnar á
lofti.
Að sögn varðstjóra hafa að
undanförnu verið klippt númer af
þónokkuð mörgum bifreiðum í
bænum sem trassað hefur verið að
færa til endurskoðunar. Næstu
daga verður farið í að klippa af
þeim bifreiðum sem átti að færa
til skoðunar í janúar sl„ en
skoðunarskyldu ekki ennþá verið
sinnt. Frestur til að færa þessar
bifreiðar til skoðunar rann út um
síðustu mánaðamót. Varðstjóri hjá
lögreglunni á Akureyri vildi
hvetja bifreiðaeigendur, sem hafa
ekki sinnt skoðunarskyldu á rétt-
um tíma, að drífa sig nú af stað og
komast hjá óþægindum sem af að-
gerðum lögreglunnar hljótast. óþh
Vegarlagning um Markhraun og Kálfastrandarvoga:
„Er þetta mannslífa virði?"
- spyr Jón Árni Sigfússon í Mývatnssveit
Akvörðun sveitarstjórnar Skútustaðahrepps að
samþykkja tillögur Skipulagsstjóra ríkisins
um vegarstæði um Markhraun og Kálfastrandar-
voga segir Jón Árni Sigfússon, bifreiðastjóri, vera
ranga en hann kærði úrskurð Skipulagsstjóra og
segir það alrangt eins og oddviti hreppsins, Leifur
Hallgrímsson, haldi fram að tillögur hans mundu
valda óbætanlegu tjóni á ásýnd og ímynd svæðis-
ins.
Jón Árni segir að mun minni jarðvegsspjöll muni
hljótast af því að leggja veginn beint framhjá Óhapps-
tjörn og Geitatjöm, þegar hafi verið unnin þar veruleg
umhverfisspjöll í núverandi vegarstæði og þau muni
aukast ef farið verði í frekari vegarframkvæmdir um
núverandi vegarstæði framhjá tjömunum. Enn fremur
leggur hann til að tekinn verði af hlykkur á veginum
frá afleggjara að Haganesi suður yfir Kráká, sem auk
þess mundi stytta hann verulega.
„Það hafa oft orðið bflveltur á veginum þar sem
hann kreppir um Óhapppatjöm, slys á fólki og mikið
eignatjón. Það mun ekki draga úr því ef vegurinn
verður lagður þar áfram og þá kunna að verða þar al-
varlegri slys. Eg spyr því, er þetta mannslífa virði?“
sagði Jón Árni Sigfússon. GG