Dagur - 27.04.1996, Blaðsíða 3

Dagur - 27.04.1996, Blaðsíða 3
rlOP t- líinR TP innRhiRniiR I — IDAH — Q Laugardagur 27. apríl 1996 - DAGUR - 3 FRETTIR Frystihúsið á Grenivík: Rekstrarstoðvun frestað um mánuð Stjórn Útgerðarfélags Akureyr- inga samþykkti á fundi sínum í vikunni að halda áfram vinnu í frystihúsi félagsins á Grenivík út næsta mánuð, en áður hafði ver- ið ákveðið að vinnsla myndi leggjast niður nú um mánaða- mótin. Jafnframt mun starfsfólk á Grenivík eiga kost á afleysing- um í frystihúsi ÚA á Akureyri í sumar. Gunnar Aspar, framleiðslu- stjóri ÚA, tilkynnti starfsfólki á Grenivík í gær að rekstrarstöðvun verði frestað til mafloka. „Við er- um að vonast til að geta útvegað nægjanlegt hráefni og að við get- um hagrætt þannig innan fyrirtæk- isins að við getum haldið vinnslu á báðum stöðum. Við reiknum með að það geti komið einn og einn dagur sem við höfum ekki hráefni, en þetta er gert til þess að slá á þetta ástand á Grenivík, sem við teljum mjög alvarlegt," sagði Gunnar. Sem fyrr segir var starfs- fólki jafnframt boðið að koma í afleysingar á Akureyri mánuðina júní til ágúst. „Á þessu tímabili verður unnið að því að kanna alla Málverkauppboð í Sjallanum annað kvöld: Akureyrarmynd frá 1892 boðin upp Merkileg mynd verður boðin upp á uppboði Gallerís Borgar og Listhússins Þings í Sjallanum á Akureyri annað kvöld, sunnu- dagskvöld, kl. 20.30. Þetta er Akureyrarmynd eftir danska listamanninn Johan Neumann, sem mun hafa verið máluð 1892 og sýnir byggðina á Akureyri séð af Pollinum. Fleiri athyglisverð verk verða boðin upp í Sjallanum. Þar má nefna verk eftir listamennina Jó- hannes Kjarval, Ásgrím Jónsson, Gunnlaug Blöndal, Kristínu Jóns- dóttur, Nínu Tryggvadóttur, Jón Stefánsson, Gunnlaug Scheving, Jón Engilberts, Eyjólf J. Eyfells, Tryggva Ólafsson, Alfreð Flóka, Karólínu Lárusdóttur, Tolla og Sigurbjöm Jónsson. Þá verða einnig boðin upp ekta handunnin persnesk teppi. Uppboðsverkin verða sýnd í Mánasal Sjallans í dag, laugardag, kl. 16-19 og á morgun kl. 14-18. við opnunina í dag og eru allir Boðið verður upp á léttar veitingar velkomnir. óþh Þessi mynd eftir danska listamanninn Johan Neumann verður boðin upp í Sjallanum annað kvöld. Utflutningsskóiinn á Sauðárkróki Skólahald hefst í júní Starfsemi Útflutningsskólans á Sauðárkróki hefst þann 10. júní næstkomandi, þegar fer af stað sex vikna sumarnámskeið í út- flutningsfræðum. Öflug fyrir- tæki á Norðurlandi vestra og nokkur helstu og stærstu út- flutningsfyrirtæki í samstarfi við danska útflutningsskólann Den Danske Eksportskola standa að skólahaldinu og verður kennt í húsi Fjölbrautaskóla Norður- lands vestra, þar í bæ. I frétt frá aðstandendum skól- ans kemur fram að námið byggist upp á sjálfstæðum nokkurra daga námskeiðum. 1 hverri viku verður ákveðið efni tekið fyrir og náminu skipt í nokkra flokka. í fyrstu námsviku verður fjallað um ár- angur í sölu- og markaðsmálum, í annarri viku um aukna skilvirkni og hagkvæmni í sölu, í þriðju viku um markaðssetningu á alþjóðleg- Góður vetur að baki Eins og flestir hafa scnnilega orðið varir við hefur veturinn verið landsmönnum hagstæð- ur, þ.e. öllum nema þeim sem vilja hafa meiri snjó. Þetta staðfesta meðaltalstölur frá Veðurstofu íslands yflr mestu vetrarmánuðina, þ.e. desem- ber, janúar, febrúar og mars. Á Akureyri var meðalhitinn á þessu úmabili -0,3 gráður sem er 2,3 gráðum yfir meðallagi og úrkoman mældist 107 milimetr- ar sem er aðeins rúmlega helm- ingur þess sem venja er. Þá var óvenju sólríkt því skólskins- stundir voru ails 200 talsins sem er 80 fleiri en í meðalárferði. I Reykjavík var meðalhitinn 1 gráða, sem er rúmri einni gráðu yfir meðallagi og úrkoma mældist jrriðjungi meiri en vant er eða 408 mm. Sólskinsstundir voru heldur l'ærri en vanalega eða 195. Vetumir 1990-91 og 1991-92 voru álíka hagstæðir. Ivið hlýrra var þá bæði á Akureyri og í Reykjavík en í ár var mun minni úrkoma og sólríkara en þá. HA hugsanlega möguleika á að hefja rekstur á Grenivík aftur í septem- ber,“ sagði Gunnar. Hátt á þriðja hundrað umsóknir bárust um afleysingar hjá ÚA í sumar, sem er sambærilegt við undanfarin ár. Send voru jákvæð svör til 80 manns og eru staðfest- ingar á þeim að berast fyrirtækinu þessa dagna, þ.e. hversu margir þiggja vinnuna. Starfsfólk á Grenivík þarf að svara fyrir mán- aðamótin hvort það vill koma í af- leysingar inn á Akureyri þannig að fljótlega í næsta mánuði mun nánar skýrast um laus störf í af- leysingum. HA Búnaðarsamband Norður-Þingeyinga: Ráðunautur hættir Benedikt Björgvinsson, ráðu- nautur hjá Búnaðarsam- bandi Norður-Þingeyinga, mun láta af því starfí á næst- unni, en hann hefur verið ráðinn í fullt starf sem starfs- maður Öxarfjarðarhrepps. Síðasta árið hefur Benedikt rneðal annars verið hitaveitu- stjóri Hitaveitu Öxfirðinga, samhliða starfi ráðunauts, en fer nú alfarið í fyrranefnda starfið og til viðbótar koma ýmis fleiri verkefni á vegum Öxarfjarðarhrepps. Að sögn Karls Sigurðar Bjömssonar, bónda í Hafra- fellstungu, fonnanns Búnaðar- sambands Norður-Þingeyinga, mun starf ráðunauts sambands- ins verða auglýst laust til um- sóknar á næstunni og er stefnt að því að ráða nýjan starfs- mann í stað Benedikts. -sbs. um vettvangi, alþjóðavæðing verður umfjöllunarefni í fjórðu viku, í fimmtu viku verður fjallað um ný markaðssvæði og ný tæki- færi og í sjöttu viku verða áhrif menningareinkenna í alþjóðavið- skiptum tekin fyrir. Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér verklegan þátt í út- flutningsstarfi og jafnframt mikið lagt uppúr tengslum veruleikans við slíkt starf. Sérstaklega verður hugað að útflutningi sjávarafurða og þátta er tengjast sjávarútvegi. „Markmið Útflutningsskólans er að veita bestu menntun og þjálfun í alþjóðlegri markaðssetn- ingu sem völ er á hérlendis. Þess- um markmiðum hyggst skólinn ná með því að leggja áherslu á verk- lega menntun, alþjóðleg tengsl og fyrirlestra - auk náinna tengsla nemenda og atvinnufyrirtækja,“ segir í fréttatilkynningu. Fimmtán nemendur verða tekn- ir inn nú fyrsta árið. Skólakostn- aður er 260 þús. kr. og í því er fal- in kennsla, kennslugögn og hús- næði. Skilyrði fyrir inntöku í skól- ann er að nemendur hafi stúdents- próf, góða enskukunnáttu og hafi starfsreynslu í útflutningsstarfi. -sbs. Svnins háskóunn «■* AAKUREYRI C/ C 7 á tillögum arkitekta í samkeppni um hönnun og skipulag Háskólans á Akureyri er opin í húsakynnum á Sólborg frá og með 27. apríl til og með 5. maí 1996 sem hér segir: 27.-28. aprfl 29.-30. aprfl 1. maí ..... 2. -3. maí .... 4.-5. maí .... Allir velkomnir. HÁSKÓLINN Á AKUREYRI. .. kl. 14-17. .. kl. 17-22. .. kl. 14-17. .. kl. 17-22. .. kl. 14-17. AO H'OJLAVATNI I FORELDRAR!FORELDRAR! Innritun er hafin í sumarbúðirnar að Hólavatni. Dvalarflokkar sumarsins fyrir börn 8 ára og eldri verða: Drengir Tímabil Dagar Verð 1.fl. 7.-14. júní 7 dagar 13.800,- 2. fl. 18.-25. júní 7 dagar 13.800,- Stúlkur 3. fl. 27. júní-4. júlí 7 dagar 13.800,- 4. fl. 5. júlí-12. júlí 7 dagar 13.800- 5. fl. 16. júlí-23. júlí 7 dagar 13.800,- Unglingaflokkur 12-15 ára, blandaður: 6. fl. 25. júlí-1. ágúst 7 dagar 13.800,- Rútugjald er innifalið í dvalargjaldinu. Innritunargjald er kr. 3.000,- og er óafturkraeft en dregst frá dvalargjaldinu. Innritun fer fram í félagsheimili KFUM og K, Sunnuhlíð 12, mánudaga og miðvikudaga kl. 17.30-18.30 i síma 462 6330 og utan skrifstofutíma f síma 462 3929 hjá Önnu, 462 2066 hjá Addý og 462 3939 hjá Hönnu sem einnig veita allar nán- ari upplýsingar. Sumarbúðirnar Hólavatni. RAUTT L/ÓS RAUTT ii ÓS J ýugERMR J X

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.