Dagur


Dagur - 08.05.1996, Qupperneq 2

Dagur - 08.05.1996, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 8. maí 1996 FRÉTTIR Jeppi og fólksbifreið rákust saman á brúnni yfir Norðurá Kaldbaksmenn gefa hjálma Félagar í Kiwanisklúbbnum Kaldbaki á Akureyri afhentu sl. laugardag öllum börnum á Akureyri, sem fædd eru árið 1989, reiðhjólahjálma og veifur á hjól. Afhendingin fór fram í versl- unarmiðstöðinni Sunnuhlíð. Börnin sem fengu hjálmana og veifurnar eru um 250 og samanlagt verðmæti gjafanna er um 800 þús. kr. Þess fjár öfluðu Kiwanismenn með ýmsum hætti, meðal annars með framlögum frá fyrirtækjum á Akureyri. Á þessari mynd sést Stefán Jónsson, formaður hjálmanefndar Kalbaks, afhenda Sigurbjörgu Auðbjörnsdóttur, sjö ára Akur- eyrarsnót, smekklegan reiðhjólahjálm. Mynd: Sigurður Bogi Vísnavinir í S-Þing. stofnuðu .,Kveðandi“ Jeppi og fólksbifreið rákust saman á sunnudag á brúnni yfir Norðurá í Skagafírði og voru Leiðrétting I grein um miðbæjarskipulagAk- ureyrar í blaðinu í gær var rang- lega sagt að frestur til að gera at- hugasemdir væri næstu mánuðir. Hið rétta er að hann er aðeins til 28. þessa mánaðar. Er beðist vel- virðingar á þessari missögn. báðar óökufærar á eftir; stýris- gangur jeppans úr sambandi og fólksbifreiðin mikið skemmd að framan. Báðar bifreiðarnar þurfti að fjarlægja af árekstrar- stað með aðstoð dráttarbíls. Tveir ljósastaurar voru brotnir á Akureyri um helgina. í fyrra til- fellinu var verið að flytja yfir- byggingu af ferjunni Sæfara frá geymslustað í Tollvörugeymsl- unni og í hinu tilfellinu var verið að flytja bát úr Sandgerðisbót þeg- ar báturinn kræktist í staurinn. GG Stofnað hefur verið á Húsavík nýtt félag, Kveðandi, vísnafélag Þingeyinga. Á stofnfundinn mættu 15 manns og síðan þá hafa nokkrir félagar bæst í hóp- inn og enn er tækifæri til að ger- ast stofnfélagi. Kveðandi er félagsskapur bæði þeirra sem fást við að yrkja og einnig þeirra sem hafa áhuga á hefðbundnum kveðskap og bera hag stökunnar fyrir brjósti. Að sögn Hreiðars Karlssonar er megin markmiðið með stofnun félagsins að skapa vettvang fyrir þá sem hafa áhuga á vísnagerð og gaman af hefðbundnum kveðskap og að stuðla að viðgangi hefð- bundins kveðskapar og íslenskrar tungu samhliða því. Formaður félagsins er Jóhanna Steingrímsdóttir í Ámesi í Aðal- dal; með henni í stjóm sitja Þor- finnur Jónsson á Ingveldarstöðum í Kelduhverfi og Hreiðar Karlsson á Húsavík. Allir þeir sem áhuga hafa er hvattir til að hafa samband við einhvern stjómarmanna og skrá sig í félagið, það skal ítrekað að félagið er ekki aðeins fyrir þá sem hagmæltir em heldur líka þá sem hafa gaman af stökum og áhuga á hefðbundnum kveðskap. Hreiðar sagði að á stofnfundin- um hefðu nokkrar vísur orðið til, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Kaupfélags Eyfirðinga, útilokar ekki að rétt sé fyrir félagið að selja Hótel KEÁ. Hann nefndi þetta á opn- um fundi um ferðamál, sem Framsóknarflokkurinn hélt á Akureyri í síðustu viku. Jóhann- es kveðst þó ekki hafa talað á neinn hátt í umboði stjórnar fé- lagsins á þessum fundi. „Þetta voru ummæli sem áttu sinn stað og sinn tíma. Sveinn Jónsson í Kálfskinni var næstur á mælendaskrá á undan mér á þess- um fundi - og í tölu sinni snupraði Sveinn Flugleiðamenn fyrir að halda ferðamönnum sem mest á Reykjavíkursvæðinu, í stað þess að beina þeim til dæmis norður. Þetta væri gert af ásettu ráði. Flugleiðamenn ættu nokkur af stærstu hótelunum í Reykjavík og vildu þar af leiðandi sem mest halda ferðamönnum syðra, á sín- um eigin hótelum, enda högnuðust þeir mest á því. Eðlilegt væri að þeir ættu einnig hótel á Norður- landi. Eg tók Svein á orðinu og Kristbjörg Steingrímsdóttir í Hrauni í Aðaldal hefði haft á orði á fundinum að henni þætti lítill hlutur kvenna í vísnagerð, að minnst kosti upphátt, og í fram- haldi af því hefði hún farið með þessa hvatningu: KLJ Kátt og öflugt karlaveldi kveður liðugt stökurnar eg vil draga undanfeldi allar konur hagmæltar. Síldin komin til Þórshafnar Færeyski síldarbáturinn Krist- ján í Grjótinu landaði 1109 tonnum af síld hjá Hraðfrysti- stöð Þórshafnar hf. sl. föstudag og er það fyrsta sfldin sem berst þangað á þessu ári. Annar færeyskur bátur landaði á föstudag á Eskifirði en fyrir nokkru landaði færeyskur bátur á Seyðisfirði. Kristján í Grjótinu var 22 tíma að sigla til Þórshafnar en sfldin veiddist um 80 mflur norður af Færeyjum. Mun styttra, eða um 9 tíma sigling er til sfldarverk- smiðjunnar í Fuglafirði í Færeyj- um, en þar hefur verið löndunar- stopp. Síldarbátar tínast nú út einn af öðrum, þ.á.m. Júpíter ÞH og Júlli Dan GK frá Þórshöfn. GG sagði að ef Flugleiðamenn hefðu áhuga þá skyldi ég beita mér fyrir því innan KEA að selja þeim hótelið," sagði Jóhannes Geir í samtali við Dag. Rekstur Hótels KEA hefur ver- ið þungur síðustu ár og það verið rekið með nokkru tapi, þótt reynt hafi verið að bregaðast við því á hverjum _ tíma með margvíslegu móti. Ymsir möguleikar um breytta eignaraðild hafa verið ræddir og skoðaðir á síðustu ár- um, en engir af þeim hafa orðið að veruleika. Jóhannes Geir Sigurgeirsson segir að fyrir ferðaþjónustu á Eyjafjarðarsvæðinu sé lífsnauð- synlegt að þar sé eitt stórt hótel í fyrsta klassa - eins og til dæmis Hótel KEA. Hverjir eigi hótelið skipti ekki öllu máli. Ef til vill standi það mörgum nær en kaup- félaginu, til að mynda þeim aðil- um sem eru í fylkingarbrjósti ferðaþjónustu hér á landi, að reka stórt hótel á Akureyri eins og til dæmis Flugleiðum, enda sé þetta fjölfarnasti áfangastaðurinn í inn- anlandsflugi félagsins. -sbs. Akureyri: Bæjarmála- punktar Gjaldskylda felld niður Á fundi bygginganefndar 19. apríl sl. var tekið fyrir bréf frá Guðmundi Árnasyni, hótel- stjóra á Hótel Hörpu, þar sem óskað er eftir að gjaldskylda verði felld niður á stæðum framan við hótelið og að 30 mínútna hámarksstöðutími gildi. Skipulagsnefnd sam- þykkti til bráðabirgða að gjald- skylda verði á tveim stæðum framan við Hafnarstræti nr. 83- 85 felld niður. Á sama stað verði leyfður hámarksstöðutími bifreiða 30 mínútur á ttmabilinu 10-17.30 alla virka daga. Samið við KEA Hafnarstjórn hefur heimilað, í framhaldi af þeirri ákvörðun að rífa núverandi áhaldahús hafn- arinnar (Atlahús), að ganga til samninga við Kaupfélag Ey- firðinga um leigu á 200 fer- metra húsnæði fyrir starfsemina að Óseyri 16 til eins árs. Framlenging Laufásgötu Á fundi hafnarstjómar voru lögð fram drög að samkoniulagi milli Akureyrarhafnar og Út- gerðarfélags Akureyringa hf. um eftirgjöf ÚA á lóð vestan bflastæða ÚA milli Fiskitanga og Ióðar Valgarðs Stefánssonar heildverslun, alls um 11 þúsund fermetrar. Lóðin er ætluð að hluta undir framlengingu Lauf- ásgötu til norðurs að gatnamót- um við Grenivelli. Hafnarstjórn fól hafnarstjóra að ganga end- anlega frá samkomulaginu. Þá fól hafnarstjórn hafnarstjóra að ganga frá formlegu samkomu- lagi við aðra hagsmunaaðila á svæðinu á grundvelli samkomu- Tagssem erfyrir hendi. Steinefni til malbikunar Framkvæmdanefnd hefur sam- þykkt að taka tilboði Amarfells vegna kaupa Akureyrarbæjar á steinefni til malbikunar. Arnar- fell bauð steinefnið fyrir rúmar 4 milljónir en Möl og sandur bauð rúmar 5,8 milljónir króna. Göngbrú á Glerárstíflu í bókun framkvæmdanefndar 15. apríl sl. segir að þar sem gerð og bygging göngubrúar yf- ir Glerárstíflu tengist mjög Raf- veitu Akureyrar, sem eiganda og umsjónaraðila stíflumann- virkis, beini framkvæmdanefnd þeim tilmælum til veitustjómar að Rafveitan taki þátt í kostnaði við brúargerðina og sjái um hönnun og byggingu brúarinnar yfir stíflumannvirkið í samráði við hlutaðeigandi deildir tækni- og umhverfissviðs. „Göngubrú yfir Glerárstífluna er þýðingar- mikill hlekkur í göngustígakerfi bæjarins og mun tengja meg- ingöngustíg sem gerður hefur verið frá Gerðahverfi um Klettaborgir að Sólborg, göngu- stígum í Hlíðarhverfi norðan Glerárstíflunnar," segir orðrétt í bókun framkvæmdanefndar. RAFIÐNADARSAMBAND ÍSLANDS Rafiðnaðarmenn Norðurlandi Heilsumæling verður föstudaginn 10. maí nk. í hús- næði sambandsins, Skipagötu 14, Akureyri. Mælingin hefst kl. 10 og stendur til kl. 17. Tímapantanir í síma 568 1433. Rafiðnaðarsamband Islands. TONLISTARSKOLINN A AKUREYRI Tónlistarskólinn á Akureyri heldur ókeypis fjögurra tíma námskeið til að kynna forskólanám Námskeiðið verður 13.-17. maí Forskóladeild Tónlistarskólans á Akureyri er ætluð börnum frá aldrinum 5-8 ára og fer kennslan fram á þann hátt sem hæfir aldri barnsins. Kennt er í hópum allt að 8 börnum í senn, tvær kennslustundir í viku. Kennt er með leikjum, söng, hlustun (m.a. með myndböndum) og hljóðfæraleik. í forskólanum er lagður grunnur að ákveðnum sjálfsaga sem fylgir tónlistarnámi og skilar sér oft í betri árangri nemenda í öðru námi. Skráning á kynningarnámskeiðið fer fram á skrifstofu Tónlistarskólans í Hafnarstræti 81 í síma 462 1788 næstu daga og þar eru veittar nánari upplýsingar. Skólastjóri. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður KEA: Ekki útilokað að selja Hótel KEA

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.