Dagur - 08.05.1996, Blaðsíða 3

Dagur - 08.05.1996, Blaðsíða 3
r^OO h iom P. -ti tnchi i'diwAilV/l — Pl IPAn — C FRÉTTIR Sauðárkrókur: Bæjarmála- punktar Fundað með stjórn Vöku hf. A fund bæjarráðs nýverið mætti stjórn Vöku hf. ásamt framkvæmdastjóra. Gerð var grein fyrir stöðu mála en erfið- leikar eru f rekstri svo sem verið hefur undanfarin ár. Fráveitumál Á fundi bæjarráðs 2. maí sl. var lagt fram bréf frá starfs- hópi um fráveitumál sveitarfé- laga varðandi erlenda verk- fræðiráðgjöf á sviði fráveitu- mála. Sauðárkróksbæ býðst þátttaka í verkefninu ásamt Rangárvallahreppi. Heildar- kostnaður er 3,5 milljónir króna og hlutdeild sveitarfé- laganna tveggja er samtals 350 þúsund krónur. Bæjarráð sam- þykkti þátttöku Sauðárkróks- bæjar í verkefninu. Skýli yfir fiskeldisker Bygginganefnd hefur sam- þykkt erindi Máka hf. um leyfi til að byggja þrjú skýli yfir þrjú fiskeldisker á lóð fyrir- tækisins við Freyjugötu 9. Skýlið verði byggt áfast við austurhlið fyrrverandi véla- verkstæðis Kaupfélags Skag- firðinga. Fyrir liggur samþykki KS og einnig samþykki Sauð- árkróksbæjar. Umsókn um byggingarlóð Trésmiðjan Eik sf. hefur sótt um byggingarlóð við Faxatorg vestan Búnaðarbanka. Bygg-. inganefnd frestaði afgreiðslu máisins. Leikskólapláss Á fundi leikskólanefndar ný- verið var samþykkt að auglýsa þau pláss sem laus eru fyrir hádegi á leikskólum bæjarins. Ef svo fer að umrædd pláss verði ekki nýtt að fullu, vill fé- lagsmálaráð að athugað verði að bjóða þessi pláss fyrir há- degi. Frágangurlóða Á sama fundi félagsmálaráðs var rætt um lok á frágangi lóða við leikskólana. Félagsmálaráð tekur undir þær óskir leik- skólastjóranna að ráðinn verði landslagsarkitekt til þess að skipuleggja frágang lóðanna við leikskólana og það verði haft í huga við gerð næstu fjár- hagsáætlunar. Endurráðningar Fram kom í máli Páls Kol- beinssonar á fundi íþrótta- og æskulýðsráðs að gengið hafi verið til samninga við starfs- menn við íþróttamannvirki bæjarins og allir verði endur- ráðnir. Hreinsunardagar Fram kom á fundi umhverfis- og gróðurverndamefndar að hreinsunardagar verði helgina 17.-19. maí og verði útbúinn bæklingur um sorplosun á Sauðárkróki og bréf sem dreift verði ásamt ruslapoka í hvert og eitt hús í bænum. Miðvikudagur 8. maí 1996 - DAGUR - 3 Akureyri: Rafveitan tengi saman svæði KA og Þórs Á fundi bæjarstjórnar Akureyr- ar í gær var vel tekið í þau til- mæli frá framkvæmdanefnd að Rafveita Akureyrar taki þátt í kostnaði við byggingu göngu- brúar yfir Glerárstíflu „og sjái um hönnun og byggingu brúar- innar yfir stíflumannvirkið í samráði við hlutaðeigandi deild- ir tækni- og umhverfissviðs,“ eins og það er orðað. ur Gísli Bragi Hjartarson, formað- framkvæmdanefndar, sagði brúargerðina mikilvægan hlekk í göngustígakerfi bæjarihs og mun hún tengja megingöngustíg, sem gerður hefur verið frá Gerðahverfi um Klettaborgir að Sólborg, við göngustíga í Hlíðarhverfi norðan Glerárstíflunnar. Orðaði Gísli Bragi það svo að með þessu væri verið að tengja KA- og Þórssvæð- in betur saman. Sigríður Stefánsdóttir (G) fagn- aði þessum hugmyndum. Hún Skagaströnd: Alla leið hf. leitar nauða- samnings Vöruflutningafyrirtækinu Alla leið hf. á Skagaströnd hefur ver- ið veitt heimild til þess að leita nauðasamninga. Héraðsdómur Norðurlands vestra úrskurðaði um það þann 11. aprfl sl. Fundur verður haldinn með lánardrottnum, sem eiga atkvæðis- rétt um samningsfrumvarpið, í Reykjavík þann 10. júní nk. Um- sjónarmaður með nauðasamningn- um er Jón Sigfús Sigurjónsson, héraðsdómslögmaður í Reykjavík. óþh sagði tillöguna sýna þann mismun sem er á fjárhagsstöðu bæjarsjóðs annars vegar og ýmissa stofnana bæjarins hins vegar. Með þessari hugmynd væri komin fram a.m.k. hluti af tillögu sem hún fiutti við gerð fjárhagsáætlunar á síðasta ári þess efnis að Rafveitan greiði af- gjald í bæjarsjóð. Guðmundur Stefánsson (B) tók einnig vel í hugmyndina. Sagði svæðið sem slíkt afar áhugavert til útivistar en nauðsynlegt sé að hreinsa til ofan í gilinu, lagfæra leifar af mannvirkjum sem þar eru og bæta stíg sem liggur ofan í gil- ið. HA Bæjarstjóm Akureyrar: Reikningar afgreiddir Reikningar Akureyrarbæjar fyrir árið 1995 voru teknir til síðari umræðu og afgreiddir á fundi bæjarstjómar Akureyrar í gær. Tekjur ársins voru nokkru hærri en áætlun gerði ráð fyrir sem skýrist af hærra framlagi frá jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Jakob Björnsson rakti í grófum dráttum skýrslu frá endurskoð- anda og ýmsar ábendingar sem þar koma fram. Meðal þess var að færa áætlanagerð nær end- anlegri gerð ársreiknings til þess að gera samanburð raun- hæfari. Jakob sagði reikningana sýna að hagur bæjarsjós væri að væn- kast, rekstur málaflokka sem hlutfall af tekjum færi lækkandi og peningaleg staða batnaði. Þá vék hann að því að skuldir Hita- veitu Akureyrar eru allar í er- elndri mynt og því getur fylgt áhætta ef óróleiki verður í geng- ismálum. Oddvitar minnihlutafiokkana í bæjarstjóm sögðu að í rauninni væri lítið við reikningana sem slíka að athuga. Vissulega væm menn ekki sammála uni hvemig fjármunum hafi verið eytt en það væri mál sem snerti gerð fjár- hagsáætlunar en ekki uppgjör reikninga. Sigurður J. Sigurðsson (D) vék að ábendingu frá endur- skoðanda sem snertir stöðu inn- heimtumála hjá bænum, þ.e. bent er á að ganga þurfi betur eftir að innheimta útistandandi kröfur. Sagði Sigurður ljóst að staða óinnheimtra krafna væri ekki í samræmi við þær innheimturegl- ur sem bærinn hefur og menn hafi því ekki enn náð tökum á innheimtumálum. HA Ungbarnavernd Heiísugæslustöðvarinnar á Akureyri: Starfsemin hófst á nýjum stað í gær Ungbarnavernd Heilsugæslu- stöðvarinnar á Akureyri hefur flutt starfsemi sína úr Hafnar- stræti 104 á 4. hæð Amaro-húss- ins að Hafnarstræti 99. Flutn- ingarnir fóru fram um helgina og starfsemin var á nýjum stað í gær. Ungbarnaverndin er þar með komin úr leiguhúsnæði sem hún hefur verið í undanfarin ár en ekki er nema hluti framtíðar- húsnæðis fyrir hana kominn í stand og bíða frekari fram- kvæmdir fjárveitinga frá ríkis- valdinu. Guðfinna Nývarðsdóttir, deild- arstjóri, segir að húsnæði ungbarnaverndarinnar hafi lengi verið óviðunandi. Áætlanir hafi verið uppi um að innrétta framtíð- arhúsnæði á 4. hæð Amarohússins og er hönnun lokið en fjárveitingar vantar og er reiknað með að farið verði í framkvæmdir á næsta ári. Engu að síður segir Guðfinna að nauðsynlegt hafi verið í hagræð- ingarskyni að útbúa bráðabirgða- aðstöðu fyrir starfsemina á hluta þess svæðis sem fyrirhugað hefur verið að taka undir starfsemina. í ungbarnaverndinni fer fram umfangsmikið forvarnarstarf sem felst í stuðningi við foreldra ný- fæddra barna þannig að þau geti þroskast við bestu andlegu, líkam- sem legu og félagslegu skilyrði völ er á. Starfið skiptist í meginat- riðum í bólusetningar ungbamanna gegn ýmsum hættu- legum sjúkdómum og viðtöl for- eldra þeirra við hjúkrunarfræð- inga, heimilislækna og barna- lækna um þarfir barnanna og þroska. Árlega koma nærri 3 þús- und börn í ungbamaverndina og auk þess fara hjúkrunarfræðingar í um þúsund vitjanir heim til ný- fæddra bama á ári. JÓH Stöplafiskur hf. í Reykjahverfi: Þurrkuð loðna til Japans - íslendingum kynnt framleiðslan í sumar Innan tíðar mun fyrirtækið Stöplafiskur hf. í Reykjahverfi afgreiða fyrstu pöntunina af loðnu sem fyrirtækið hefur þurrkað og meðhöndlað. í þess- ari fyrstu sendingu fer til Japans 40 feta gámur, sem lætur nærri að vera um 18 tonn af þurrkaðri loðnu, að sögn Aðalsteins Árna- sonar, framkvæmdastjóra fyrir- tækisins. Neysla á þurrkaðri loðnu á sér ríka hefð hjá fóki sem er af asísku bergi brotið. Loðnan er mikil kalkgjafi og gegnir því sama hlut- verki hjá börnum víða í Asíu og mjólk hjá okkur, Flutningskostn- aður til Asíu er að sjálfsögðu nokkur og því segir Aðalsteinn menn hafa áhuga á að komast inn á markaði sem eru nær, þ.e. í Evr- ópu og Bandaríkjunum. Hafa prufusendingar farið á báða þessa staði og em viðbrögð að skila sér þessa dagna sem Aðalsteinn segir lofa góðu. „Það sem liggur fyrir hjá okkur er að fara í nokkra upp- byggingu og við erum að leita okkur að samstarfsaðilum í það mál,“ sagði Aðalsteinn. Framleiðslan byggir að mestu á vinnu í höndunum en fiokkun á loðnunni er þó hægt að vélvæða. „Við emm með um 100 tonn af hráefni sem við ætlum að vinna á þessu ári og teljum okkur vera komna með trygga afsetningu á því. Á næsta ári er stefnan að vera búinn að vinna meiri markaði, bæði í Evrópu og Bandaríkjum. Þar fæst líka hærra verð en í Japan og þá myndum við pakka vörunni í neytendaumbúðir. Sendingin sem fer til Japans núna er sett í neytendapakkningar ytra,“ sagði Aðalsteinn. í bígerð er að kynna íslending- um þurrkaða loðnu í sumar, en hún er upplögð á grillið. „Það hef- ur fjöldi fólks komið hingað í heimsókn og fengið að prófa þetta og þeir eru teljandi á fingrum ann- airar handar, sem ekki hefur líkað framleiðslan," sagði Aðalsteinn. Stöplafiskur framleiðir einnig harðfisk en síðustu vikur hefur mest af orku manna farið í loðn- una meðan verið var að koma þeirri framleiðslu vel af stað. HA Sigrún Guðmundsdóttir, móttökuritari ungbarnaverndar, vigtar eitt af börnunum í nýja húsnæðinu í gær. Mynd: BG K Sorpflokkunarátak Endurvinnslunnar hefur fengið góðar undirtektir. Fyrir óá sem vilja vera með i hessu átaki óá fást nú grænu sorppokarnir undir pappír og plast í verslunum. Pokana má setja í gáma, sérstaklega ætlaða fyrir pappír og plast. GERUM AKUREYRIAÐ GRÆNUM BÆ!

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.