Dagur - 08.05.1996, Qupperneq 9
Miðvikudagur 8. maí 1996 - DAGUR - 9
„Fjóla Díana er fínleg og kvenleg. Við vildum fá fram grófa pönklínu en út-
færa hana á kvenlegan hátt," segja þær stöllur, Nanna, Sólrún og Sigríður
Soffía, um módelið sitt að þessu sinni. Jakkinn sem Fjóla Díana klæðist er
úr versluninni Perfect.
Förðunin er mjög einföld. Augnaumgjörðin er dökk með svörtum og silf-
urlitum augnskuggum og mjög löngum gerviaugnhárum. Varalitur er
dökkur en farðinn frekar ljós til að undirstrika andstæður, þ.e. dökk augu
og varir.
Fjóla er frekar villt í útliti þannig að hárið er blásið upp í góða fyllingu og
klipið í það með gelvaxi á eftir.
í anda pönklínunnar var bakgrunnur búinn til á staðnum, frjálslegur og
ljósið notað beint og hart. Uppstilling er líka frjáls og óheft.
Fjóla Díana Gunnarsdóttir er 27 ára og borinn
og bamfæddur Ólafsfirðingur en flutti til Akur-
eyrar frá Reykjavík síðasta sumar.
Hún vinnur á Snyrtistofu Nönnu sem snyrti-
og förðunarfræðingur og því vanari að vera sú
sem farðar frekar en sú sem í stólnum situr.
Henni fannst það þó góð tilbreyting að skipta
um hlutverk og hafði gaman af því að vera
módel hjá samstarfskonu sinni.
„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég sit fyrir því
þegar ég var yngri var ég stundum módel; þó
ekki mjög oft," segir Fjóla Díana. Þess má til
gamans geta að fyrr á þessu ári tók Fjóla Díana
þátt keppninni Tíska '96 og var í fyrsta sæti í
dagförðun nema en á þeim tíma var hún á
nemasamningi sem hún hefur nú lokið. AI