Dagur - 08.05.1996, Page 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 8. maí 1996
DAODVELJA
Stiörnuspa
9 eftir Athenu Lee *
Mibvlkudagur 8. maí
(Vatnsberi
KJÚfSEy (80. jan.-18. feb.) J
Þaö eru líkur á streitu og efasemdum
ef þú blandar þér of mikib í málefni
annarra. Þér ætti að ganga best upp á
eigin spýtur, einbeittu þér því ab þín-
um málum af alefli.
(H^^Fiskar
(19. feb.-gQ. mars)
Fjölskyldan er vibkvæmt mál núna.
Ekki vera því ab brydda upp á „eldfim-
um" málum nema ab þú viljir leggja
öll spilin á borbið. Góður dagur til að
vinna ab langtíma fjárhagsáætlunum.
(Hrútur ^
(21. mars-19. april) J
Vertu vibbúin(n) aukaverkefnum eba
ab þurfa axla meiri ábyrgö. Þab líbur
ab tímamótum í ákvebnu sambandi
og þú ert orðin(n) viss um hvab þú
vilt. Happatölur 9,17 og 28.
(vjtfr Naut ^
(20. april-20. maJ) J
Góður dagur til alls kyns hópvinnu og
sameiginlegar framkvæmdir gætu ver-
ið upphaf gróba og gleðistunda. Meb-
an gott andrúmsloft ríkir skaltu nýta
þab og laga allan misskilning.
(/jUK Tvíburar ^
V^yV. J\ (81. maí-20. júni) J
Þegar togstreita á sér stab er betra að
beita virbulegri lagni frekar en
miskunnarlausum abferbum vib ab
sanna að þú hafir rétt fyrir þér. Þrálátt
vandamál munu hverfa smám saman.
( KVflWhi ^
(81. júní-as. júli) J
Þú ert óvarin(n) fyrir því ab láta út-
smogib fólk nota þig. Gættu þín að
gefa ekki alltaf eftir. Þú þarft ab laga
þig aðeins betur ab áætlunum.
Þetta er ekki beint þinn happadagur í
fjármálum. Haltu þig við ab kaupa
þab naubsynlegasta núna. Þér gengur
betur í mannlegum samskiptum og
fréttir verba til ab létta lundina.
(i f Meyja 'N
V (S3. ágúst-22. sept.) J
Hafbu langtímaþægindi í huga þegar
þú endurskobar útgjöld þín, sérstak-
lega varðandi heimilið. Nú væri gott
ab endurnýja gömul kynni, jafnvel
þótt þab kreföist smá ferbalags.
Ab hafa gób áhrif er hjálplegt í vib-
skiptum, en heppnin er ekki þín megin
í fjölskyldumálum, sem skapar vanda-
mál. Vertu ekki kærulaus og haltu per-
sónulegum leyndarmálum fyrir þig.
(xmQ. Sporðdreki^)
V (85- okt.-21. nóv.) J
Það verður erfitt ab velja, sérstaklega í
félagsmálum þar sem upp koma mis-
skiptar skoöanir. Þú kemur vel fyrir og
það nýtist þér, einna helst í ástamál-
um. Happatölur 12,13 og 36.
(Bogmaður ^
(22. nóv.-21. des.) J
Þú ert laus vib truflanir og getur geng-
iö frá erfibum málum í tæka tíb.
Ákvebin abstaba eba hegðun einhvers
aðila kemur þér á óvart og skilur þig
eftir í hrúgu af spurningarmerkjum.
(Steingeit ^
\jT7l (22. des-19. jan.) J
Nú verður ab draga línuna varlega
milli þess ab vera klók(ur) og fljótfær.
Þú gætir þurft ab bregöast fljótt vib
tækifæri en samt ekki fara of geyst í
hvernig sé best ab nýta þab.
Hvernig var í skólanum
Hildur?
Fínt nema einhver
lúði var að
elta mig.
HVAÐ?! Öskraðir þú ekki eins og
ég sagði þér að gera? Hljópstu að
næsta síma og hringdir í 112?
Viltu að ég öskri
og hringi í 112
þegar einhver
/ lítill lúði í
1. bekk eltir
mig í frí-
mínútunum?
Á léttu nótunum
Ljóft dagsins
Hjáleiga
Nemandinn útskýrði hugtakib „hjáleiga" á eftirfarandi hátt:
„Hjáleiga er kvenmabur sem karlmenn geta leigt sér til ab sofa hjá."
Afmælisbam
dagsins
Orbtakib
Ekkert
Þú situr enn v/'ð giuggann
og senn er komin nótt,
og úti er nibamyrkur,
svo annarlega hljótt.
Og senn er komin nótt.
(fyrsta erindi kvæ&is Steins Steinarrs „Ekkert")
Horfur á að ná persónulegum árangri
eru góbar í byrjun árs, þótt þab gæti
kostab þig eitthvab tímabundib.
Farðu hægt í ýmsa hluti svo þú skabir
ekki heilsuna. Þab kemur jó-jó-tímabil
í ástarsambönd en fjölskyldulíf ætti
ab vera nokkuð stöbugt og ham-
ingjusamt.
Leggja e-b í sölurnar
Merkir ab fórna e-u, hætta á e-b.
Orötakib er kunnugt frá 18. öld.
Líkingin er dregin af áhættusamri
kaupmennsku.
Spakmælib
Dagur
Dagurinn í dag er sá fyrsti þeirra
daga sem þú átt ólifaba.
(Óþekktur höfundur)
&/
STORT
• Síldarsamningar
Mál málanna
þessa dagana
eru síldarsamn-
ingarnir milli
Norbmanna,
íslendinga,
Færeyinga og
Rússa, sem tók-
ust á elleftu
stundu, en búib er ab þrefa um
síldina mánubum saman og ekki
var útlit fyrir ab samningar
tækjust. Norskir hagsmunaabil-
ar eru ævareibir og telja ab
norska ríkisstjórnin hafi gefib ís-
lendingum 190 þúsund tonna
kvóta og einn þeirra lét svo um
mælt ab næst mundu íslending-
ar krefjast þess ab fá olíuborpall
í Norbursjó! Allir gera sér grein
fyrir ab þarna er tekist á um
gríbarlega hagsmuni til framtfió-
ar. Þeir sem komnir eru á mibj-
an aldur muna eftir síldarævin-
týrinu og þá kemur Siglufjörbur
fyrst upp í hugann en einnig
Raufarhöfn og Austurlandshafn-
Ir á síbustu árum sfldarverkunar
úr Norsk-íslenska sfldarstofnin-
um hér á landi. Þab var mikil
blóbtaka fyrir þessa stabi þegar
síldin hætti ab láta sjá sig á ís-
landsmibum og lá vib efnahags-
legu hruni því sfldveibarnar
voru svo þýbingarmiklar fyrir
þjóbarbúib.
• Ofveibi
Af hverju hætti
síldin ab ganga
á íslandsmib?
Þab var aubvit-
ab vegna of-
veibi á smásíld
vib Noregs-
strendur og
hrygningar-
stofninn hreinlega hrundi. Þetta
þekkjum vib líka meb svokallaba
Suburlandssíld og minnumst
þess Akureyringar þegar smá-
síldinni var ausib upp úr Pollin-
um og sett í bræbslu í Krossa-
nesi. Því mibur er þab svo meb
flesta ef ekki alla fiskistofna hér
vib land ab þeir hafa verib of-
veiddir á síbustu árum. Þab er
því engin spurning ab samning-
ar um veibar úr Norsk-íslenska
síldarstofninum eru engum
þýbingarmeiri en okkur íslend-
ingum. Vonandi ganga menn
svo „varlega um glebinnar dyr"
þegar síldveibar hefjast á ný.
• Síldarsöltun á Sigló
Þab hlýtur ab
vera fagnabar-
efni ef síldin
gengur aftur á
sínar gömlu
slóbir vib
Norburlandib á
næstu árum,
sem marga
dreymir um eftir tæplega 30 ára
síldarleysi. Þá geta Siglfirbingar
farib ab salta síld á ný en þurfa
ekki ab setja upp sýningu, sem
hefur dregib ab sér ferbamenn í
stórum stfl. Ritari S&S notabi
sumarfríb sitt til ab taka þátt í
síldarævintýrinu fyrr á árum og
er þab ógleymanleg lífsreynsla.
Skipin komu inn drekkhlabin og
fólkib vann meban þab gat
stabib uppi. Aubvitab vona
menn ab þessir tímar komi aftur
á björtum sumarnóttum.
Umsjón: Svavar Ottesen.