Dagur - 16.05.1996, Page 7
Fimmtudagur 16. maí 1996 - DAGUR - 7
Kór Tónlistarskólans á Akureyri:
Flytur Messu í D-dúr efitir Dvorák
- aðgangseyrir rennur óskertur til söfnunarinnar „Börnin heim“
Kór Tónlistarskólans á Akureyri
undir stjórn Michaels Jóns
Clarke mun nk. sunnudag, 19.
maí, kl. 17.00, flytja Messu í D-
dúr eftir Antonin Dvorák (1841-
1904) í Akureyrarkirkju. Að-
gangseyrir er kr. 700 og mun
hann óskertur renna til söfnun-
arinnar „Börnin heim“.
Þetta eru aðrir tónleikar kórsins
sem stofnaður var sl. haust. Hann
samanstendur af nemendum söng-
deildar Tónlistarskólans ásamt
öðmm riemendum en einnig er
hann opinn öllu öðru áhugasömu
söngfólki. Kórinn hélt sína fyrstu
tónleika um síðustu jól þegar hann
flutti Gloríu Vivaldis.
Messa í D-dúr tekur um það bil
45 mínútur í flutningi og verður á
tónleikunum á sunnudag flutt í
sinni upprunalegu mynd með org-
eli og eru einsöngskaflar í hönd-
um kórfélaga. Verkið er litúrgísk
Michael Jón Clarke stjórnar flutn-
ingi Kórs Tónlistarskólans á messu
Dvoráks. Tékkneska tónskáldið
Antonin Dvorák er höfundur Messu
í D-dúr.
messa, þ.e.a.s. það hefur verið
samið með það í huga að flutning-
ur þess kæmi í staðinn fyrir
messuhald og leiddi söfnuðinn til
íhugunar.
Dvorák er viðurkenndur í dag
sem einn af aðaltónskáldum síð-
rómantíska tímabilsins. Hann náði
miklum vinsældum sem stjómandi
eigin verka, sérstaklega í Bret-
landi og Ameríku. Messan var
pöntuð af arkitektinum Josef
Hlavka fyrir opnun kapellu á
herrasetri hans í Luzany.
Messa í D-dúr var frumflutt ár-
ið 1887 í kapellu Hlavka undir
stjóm tónskáldsins. Tveim ámm
síðar var það gefið út af Novello í
London sem hvatti Dvorák til að
útsetja það fyrir hljómsveit og
kór. Verkið náði fljótt miklum
vinsældum bæði austan hafs og
vestan.
Á tónleikunum á sunnudag
mun Madrigalhópur Tónlistar-
skólans koma fram í fyrsta skipti,
en hann mun syngja kórlög frá
fyrri tímum. Hópurinn er afrakstur
kennslu í söngíð fyrir lengra
komna nemendur.
Orgelleikarinn Wolfgang
Tretzsch mun einnig flytja tvö
verk á tónleikunum; „Til heiðurs
Henry Purcell" eftir Petr Eben og
„Hetjuverk“ eftir César Franck.
Úthlutanir Húsfriðunarnefndar:
MíUjón í Hildebrandts-
hús og Roaldsbrakka
Húsfriðunarnefnd ríkisins hefur
samþykkt styrkveitingar úr
sjóðnum fyrir árið 1996. Veittir
voru alls 155 styrkir að upphæð
43,5 milljónir, aðallega til end-
urbygginga og viðhalds gamalla
húsa um land allt. Sú nýbreytni
var tekin upp að veita stóra
styrki að upphæð ein milljón
hver, til verkefna í hverjum
landshluta, í samræmi við nýja
stefnumörkun húsfriðunar-
nefndar.
Þau hús sem hlutu slíka styrki
að þessu sinni voru Vesturgata 3 í
Reykjavík (Hlaðvarpinn), Strand-
gata 49 í Hafnarfirði, Skólahús í
Ólafsdal, Salthúsið á Þingeyri,
Riishús á Borðeyri, Hildebrandts-
hús á Blönduósi, Roaldssbrakki á
Siglufirði, Jensenshús á Eskifirði
og Landlyst, Vestmannaeyjum.
Önnur hús á Norðurlandi sem
hlutu styrki voru eftirtalin:
Hús á safnasvæðum:
Gilsstofa í Glaumbæ, 400 þús-
und.
Friðaðar kirkjur:
Blönduóskirkja, Bergstaða-
kirkja, Auðkúlukirkja í Svína-
vatnshreppi, Reynisstaðakirkja í
Skagafirði, Goðdalakirkja í
Skagafirði, Hvammskirkja í Lax-
árdal, Hólakirkja í Eyjafirði,
Vallakirkja í Svarfaðardal, Háls-
kirkja í Fnjóskadal og Grenjaðar-
staðakirkja í Aðaldal. Eru styrk-
imir á bilinu 200-350 þúsund
krónur hver.
Friðuð hús:
Klörnbrur í Vesturhópi og
Gudmanns Minde á Akureyri fá
400 þúsund. Friðbjamarhús á Ak-
ureyri 250 þúsund og Nonnahús á
Akureyri 150 þúsund.
Önnur verkefni:
Styrkir á bilinu 150-500 þús-
und. Illugastaðir í V-Hún., Sýslu-
mannshúsið að Komsá (flutningur
á húsinu), Bjamanes á Skaga-
strönd, Villa Nova á Sauðárkróki,
Leiðrétting
í umfjöllun um kórinn Sálubót í
síðustu viku var rangt farið með
nafn sr. Magnúsar G. Gunnars-
sonar. Beðist er velvirðingar á því.
Vellir í Vallhólma (uppmæling og
ljósmyndir), Unastaðir í Kolbeins-
dal, Pakkhús á Möðruvöllum í
Hörgárdal, Hótel Hjalteyri, Gamla
Syðstabæjarhúsið í Hrísey, Beitu-
skúr á Grenivík, Aðalstræti 10,
Aðalstræti 44, Hafnarstræti 20
Útgerðarfélag Akureyringa hf.
hefur fært Félagi hjartasjúklinga
á Eyjafjarðarsvæðinu að gjöf fjóra
bekki sem komið verður fyrir við
veginn yfir gömlu Eyjafjarðarár-
brýrnar, en þessi vegur er vinsæl
gönguleið hjartasjúklinga, sem og
(Höpfnershús), Hafnarstræti 86 og
Norðurgata 6 á Akureyri, Hall-
dórsstaðir í Laxárdal, íbúðarhúsið
að Laxamýri í S-Þing., Grænavatn
í Mývatnssveit, Kálfaströnd í Mý-
vatnssveit og Héðinshöfði í Mý-
vatnssveit. HA
annarra útivistarunnenda.
Þessi mynd var tekin sl. mánu-
dag en þá voru þeir Þorsteinn Svan-
laugsson, Guðmundur Magnússon
og Guðlaugur Jakobsson að koma
bekkjunum fyrir. óþh/Mynd: bg
ÚA gefur Félagi hjarta-
sjúklinga fjóra bekki
Sumarbúðirnar
Vestmannsvatni
Barnaflokkar - unglingaffokkur - flokkur aldraðra
Innritun stendur yfir virka daga kl. 16-19
í síma 462 6605.
Upplýsingar og skráning einnig í sfmum
466 1685 og 461 3126.
Starf verkstjóra
Grýtubakkahreppur auglýsir eftir verkstjóra hjá
hreppnum.
Umsóknarfrestur er til 25. maí og skal skila skriflegum
umsóknum á skrifstofu Grýtubakkahrepps, 610 Greni-
vík, þar sem fram kemur aldur, menntun og fyrri störf.
Sveitarstjóri.
Firmakeppni
Hestamannafélagsins Léttis,
fer fram á Hlíðarholtsvelli fimmtudaginn 16.
maí kl. 14.
Fjöldi glæsilegra gæðinga.
Kvennadeild Léttis sér um giæsilegt kaffi-
hlaðborð í Skeifunni að lokinni keppni.
Keppt í barna- og unglingaflokki, kvenna- og
karlaflokki.
ÓKEYPIS AÐGANGUR.
Firmakeppnisnefnd.
Skráning keppenda fer fram í Skeifunni í síma
462 6163 eða hjá Jóni Ólafi í síma 462 2500 á
daginn eða 462 3435 á kvöldin.
Knapar mætið kl 13.30.
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU
Nám í Red Cross Nordic United
World College
Red Cross Nordic United World College í Fjalar í Vest-
ur-Noregi er alþjóðlegur norrænn menntaskóli sem
rekinn er sameiginlega af Norðurlöndunum og í tengsl-
um við Rauða krossinn. Nám við skólann tekur tvö ár
og lýkur með viðurkenndu alþjóðlegu stúdentsprófi,
International Baccalaureate Diploma (IB). Kennsla fer
fram á ensku. íslensk stjómvöld eiga aðild að rekstri
skólans og býðst þeim að senda 1 nemanda á næsta
skólaári. Nemandinn þarf sjálfur að greiða uppihalds-
kostnað sem nemur 15.000 norskum krónum á ári auk
þess ferðakostnað.
Menntamálaráðuneytiö auglýsir hér með eftir umsækj-
endum um skólavist fyrir skólaárið 1996-1997. Um-
sækjendur skulu hafa lokið sem svarar einu ári í fram-
haldsskóla, hafa gott vald á ensku og vera á aldrinum
16-19 ára. Umsóknir þurfa að berast menntamálaráðu-
neytinu í síðasta lagi 5. júní.
Nánari upplýsingar eru veittar í menntamálaráðuneyt-
inu, framhaldsskóla- og fullorðinsfræðsludeild, í síma
560 9500. Þar er einnig að fá umsóknareyðublöð.