Dagur - 07.06.1996, Blaðsíða 2

Dagur - 07.06.1996, Blaðsíða 2
(2—iÐAGt/R-^östudagur TVjiúm' 1-996 FRETTIR Frí heimsending phvfpiMf Pizzur 9“ 12“ 16“ 18“ 1. Pisa Nautahakk, sveppir, grænn pipar, sósa og ostur 700,- 950,- 1.200,- 1.450,- 2. Genova Pepperoni, laukur, ólífur, sósa og ostur 750,- 1.000,- 1.250,- 1.500,- 3. Napoli Skinka, ananas, sósa og ostur 650,- 850,- 1.050,- 1.250,- 4. Quatro Staccione Nautahakk, sveppir, grænn pipar, pepperoni, ólífur, túnfiskur, rækjur, salami, laukur, hvítlaukur, sósa og ostur 800,- 1.050,- 1.350,- 1.600,- 5. Busto Salami, laukur, ólífur, sósa og ostur 750,- 1.000,- 1.250,- 1.500,- 6. Milan Skinka, pepperoni, nautahakk, sveppir, papriká, laukur, ananas, sósa og ostur 950,- 1.300,- 1.650,- 1.890,- 7. Reggio Mosarella, maribo, gráðaostur, camembert, sósa og ostur 650,- 950,- 1.200,- 1.450,- 8. Margarita Sósa og ostur 500,- 600,- 700,- 800,- 9. Etna Mikið pepperoni, sveppir, ferskur chilli, chilli krydd, sósa og ostur 800,- 1.100,- 1.400,- 1.700,- 10. Bari Skinka, pepperoni, bananar, sósa og ostur 750,- 1.000,- 1.200,- 1.500,- 11. Parma Túnfiskur, kræklingur, rækjur, laukur, sósa og ostur 850, 1.150,- 1.450,- 1.750,- 12. Como Pepperoni, ananas, sósa og ostur 650,- 850,- 1.050,- 1.250,- 13. Magenta Sveppir, paprika, laukur, tómatar, maís, sósa og ostur 700,- 950,- 1.250,- 1.450,- 14. Juventus Skinka, paprika, ananas, bananar, sósa og ostur 750,- 1.050,- 1.350,- 1.650,- 15. Torino Nautahakk, pepperoni, sveppir, svartur pipar, sósa og ostur 800,- 1.100,- 1.400,- 1.700,- 16. Padova Pepperoni, grænn pipar, gráðaostur, sósa og ostur 700,- 950,- 1.200,- 1.450,- Kjötálegg, verð pr. piz/u hver tegund 100,- 150,- 200,- 250,- Grænmeti, verð pr. pizzu hver tegund 50,- 100,- 150,- 200,- Hvítlauksbrauð 200,- 300,- 400,- 500,- Munid: Kjúklingabitar, brauðstangir, hamborgarar, laukhringir eg fl. J í tilefni r ara h afmælis sýnum viö 4 íbúöir á mismunandi byggingarstigum við Huldugii 1-31, frá kl. 10-17, laugardaginn 8. júní og sunnudaginn 9. júní. Athugið að hægt er að skoða íbúð- irnar á öðrum tíma eftir samkomu- lagi. Á kynningunni á laugardag verða sýnd listaverk eftir Guðmund Ár- mann listmálara, vörur frá bygg- ingarvörudeild KEA, Trésmiðjunni Berki, húsgögn frá Öndvegi, heimil- istæki frá AEG, skilti frá gullsmíða- stofunni Skart, blóm og gjafavara frá Blómabúð Akureyrar og innrétt- ingar frá Ölur ehf. Þá verða pizzur frá Ding Dong kynntar og boðið upp á ávaxtasafann Frissa Fríska - og jafnvel sitthvað fleira. Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars ehf. Skipagötu 16 • Sími 461 2366 Fax 461 2368 ■ Opið kl. 13-17.00 Húsavík: Sjónvarpsútsend- ingar hefjast í byrjun september Húsvísk Fjölmiðlun h.f. áætlar að hefla sjónvarpsútsendingar á fimm rásum á Húsavík í byrjun september, þar af verður ein heimarás þar sem meginefnið verður tengt Húsavík með ein- um eða öðrum hætti og er efnis- öflun þegar hafín. Á hinum rás- unum fjórum verður endurvarp á erlendum gervihnattastöðvum, svipað og þekkist í fjölvarpi á höfuðborgarsvæðinu, þar sem boðið er upp á fréttir, fræðslu- efni, kvikmyndir, barnaefni, íþróttir og tónlist. Hluthafafundur var haldinn hjá Húsvískri Fjölmiðlun h.f. í lok maí og þar var kjörin stjóm, sem leysir af hólmi starfsstjóm, sem stýrt hefur félaginu til þessa. Formaður nýju stjómarinnar er Hlífar Karlsson, varaformaður Helgi Pálsson, ritari Janice Denis og meðstjómendur Ásþór Sigurðs- son og Ómar Guðmundsson. Framkvæmdastjóri félagsins er Friðrik Sigurðsson. Þá hefur fé- lagið ráðið markaðsstjóra Sigríði B. Thorarenssen og mun hún fyrst í stað vinna að auglýsingasöfnun og útbreiðslu Víkurblaðsins, sem einnig heyrir undir félagið, og vera ritstjóra þess til halds og trausts. Blandað efni „Við emm að vinna í því að koma þessu af stað og emm bjartsýn á framhaldið," sagði Hlífar Karls- son í samtali við Dag. Samið hef- ur verið um útsendingu frá sex gervihnattastöðvum en það efni verður sent út á fjórum rásum og verður því skipt á milli stöðva á útsendingarrásunum. Fyrirhugað Boðið verður uppá fjölbreytta dagskrá í Vestur-Húnavatns- sýslu í allt sumar undir yfír- skriftinni Bjartar nætur. Dag- skráin hefst þann 16. júní og stendur fram í miðjan ágúst - og verður margt í boði á því tíma- bili. Ferðamálafélag Vestur- Húnvetninga stendur að Björt- um nóttum, en yfírstjórn með verkefninu hefur Karl Sigur- geirsson á Hvammstanga. íbúar einstakra sveita hafa svo umsjón með dagskráratriðum í sinni heimabyggð. Gefinn er út kynningarbækling- ur þar sem helstu dagskráratriði eru kynnt. Margt verður í boði. 16. júní verður sitthvað í boði í Víðidal, s.s. firmakeppni hesta- mannafélagsins Þyts, farið verður í gönguferð um Bakkadal undir leiðsögn Ragnars Gunnlaugssonar og að kvöldi þess dags verður grillveisla við Stóru- Ásgeirsá. Hátíðarhöld verða á Hvamms- tanga á 17. júní og 22. júní verður boðið uppá fjölbreytta dagskrá í Byggðasafninu við Reykjaskóla í Hrútafirði - sem og annarsstaðar við fjörðinn. Byggðasafnið er eitt er að skipta einni útsending- arrásinni á milli fræðslustöðvar- innar Discovery Channel og frétt- arásarinnar Sky News. Önnur rás skiptist milli klassískra kvik- mynda og teiknimynda eða TNT og Cartoon Network. Sportið er á sínum stað á Eurosport og tónlist- in er allsráðandi á MTV. „Erlendu rásimar verða í gangi allan sólarhringinn en heimarásin verður væntanlega síðdegis, á kvöldin og um helgar. Það verður unnin dagskrá með atburðum hér í heimabyggð. Við erum að ganga frá upptökuveri, þar sem hægt verður að taka menn í viðtöl og fjalla um það sem efst er á baugi hverju sinni. Við munum einnig reyna að framleiða efni og taka upp það sem hér er að gerast, jafnt í opinberum atburðum og í menn- ingarlífinu," sagði Hlífar. Sjón- varpsstjóri verður Norman Denis og tæknistjóri Jóhann Bjarni Ein- arsson. Húsvíkingar geta nú þegar fengið festa á filmu merkisatburði eins og brúðkaup, afmæli, jarðar- farir og það annað sem menn kynnu að vilja varðveita fyrir seinni tíma. Sjónvarpsútsendingarnar verða staðbundnar við Húsavík og sent út á örbylgjurás líkt og Stöð 3 og Sýn gera á höfuðborgarsvæðinu. - En verða Húsvíkingar í sam- vinnu við stóru sjónvarpsstöðv- anna sunnan heiða? „Það er ekki búið að ganga frá neinu slíku en þó aðeins verið tæpt á því. Við höfum orðið varir við áhuga og auðvitað erum við opnir fyrir því að vinna með hverjum sem vill,“ sagði Hlífar Karlsson, formaður stjómar Húsvískrar Fjölmiðlunar h.f. SH hið áhugaverðasta á landinu og þar má m.a. finna hákarlaveiði- skipið Ófeig, sem er eitt hið fræg- asta sinnar gerðar á landinu. Veiðidagur fjölskyldunnar er þann 23. júní og þá stendur fólki til boða að renna fyrir fisk í vötn- um víða í sýslunni, meðal annars á Amarvatnsheiði. Að kvöldi 28. júní verður boðið uppá hlaðborð í fjörunni við Hamarsá og þar munu húnvetnskar húsmæður reiða fram heimatilbúnar veitingar. Þar verða einnig í boði ýmis heimagerð skemmtiatriði. Hátíðarhöld verða á Hvamms- tanga 12. til 14. júlí. Að kvöldi föstudagsins 12. er dansleikur í fé- lagsheimili staðarins þar sem hljómsveitin Sixties leikur. Á laugardeginum er markaðsdagur á staðnum og fjölskyldudansleikur um kvöldið, svo nokkuð sé nefnt af dagskráratriðum á Hvamms- tanga þá helgina. - Helgina 9. til 11. ágúst verður síðan 50 ára byggðarafmælis Laugabakka í Miðfirði minnst. Alla þá helgi verður sitthvað í boði á staðnum, en það verður kynnt nánar þegar nær dregur. -sbs. Akureyri: Bæjarmála- punktar GA biður um bæjarábyrgð Á fundi bæjarráðs í gær var tekið fyrir erindi frá Golf- klúbbi Ákureyrar þar sem þess er farið á leit að Ákureyrarbær veiti klúbbnum bæjarábyrgð til tryggingar láni til 15 ára að upphæð kr. 18 milljónir. Lánið hyggst klúbburinn nota til þess að endurfjármagna eldri lang- tímaskuldir klúbbsins. Meiri- hluti bæjarráðs samþykkti að leggja til að erindinu verði hafnað. Þórarinn B. Jónsson (D) lagði til að orðið verði við erindinu. Gísli Bragi Hjartar- son (A) lýsti sig vanhæfan og tók ekki þátt í afgreiðslu máls- ins. Kosið í Oddeyrarskólanum Tekið var fyrir bréf frá kjör- stjóm Akureyrarkaupstaðar þar sem lagt er til að Oddeyr- arskóli verði kjörstaður við forsetakosningamar 29. júní nk. og verði bænum skipt nið- ur í 9 kjördeildir. Bæjarráð samþykkti tillögu kjörstjómar. Átaksverkefni Lagður var fram listi yfir af- greiðslu Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs á umsóknum um átaksverkefni á þessu ári. Bæj- arráð samþykkti að launamis- munur vegna verkefna hjá eft- irtöldum félögum og stofnun- um verði greiddur: Golfklúbb- ur Akureyrar 16 mannmánuð- ir, íþróttafélagið Þór 18 mannm., KA 18 mannm., Listasumar 9 mannm., Minja- safnið 15 mannm., Punkturinn 18 mannm., Skautafélag Akur- eyrar 4 mannm., Skátafélagið Klakkur 15 mannm., Umhverf- isdeild 80 mannm., skiptiverk- efni 20 mannm., Blindrafélag íslands 6 mannm., íþróttamið- stöð Glerárskóla 6 mannm. og atvinnuátak skólafólks áætlað 120 mannm. Húsnæðismál Síðuskóla Bæjarráð samþykkti tillögu starfshóps um málefni Síðu- skóla um bráðabirgðalausn á húsnæðismálum skólans á næsta skólaári, en þar er gert ráð fyrir: 1. Að gengið verði til samn- inga við Skátafélagið Klakk um samnýtingu við Síðuskóla á húsnæði félagsins í Glerár- kirkju. 2. Að með hagræðingu inn- anhúss í núverandi húsnæði Síðuskóla verði útveguð ein viðbótarkennslustofa. 3. Að bæjarráð heimili að smíðuð verði ein laus kennslu- stofa, sem komið verði fyrir við skólann fyrir haustið. Bæjarráð vísaði áætluðum kostnaði, 8 milljónum króna, til endurskoðunar fjárhags- áætlunar. Þá samþykkti bæjar- ráð að fela bæjarverkfræðingi að láta bjóða út smíði einnar lausrar kennslustofu eins fljótt og verða má. Vestur-Húnavatnssýsla: Margt í boði á Björtum nóttum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.