Dagur - 07.06.1996, Blaðsíða 5

Dagur - 07.06.1996, Blaðsíða 5
FRETTIR Föstudagur 7. júní 1996 - DAGUR - 5 Landsmótið á Melgerðismeium 8.-12. júlí 1998: Búið að skipa framkvæmdanefnd Undirbúningur er nú að komast á fullt skrið fyrir næsta landsmót hestamanna sem eins og kunnugt er verður haldið á Melgerðismelum í Eyjafirði að tveimur árum liðnum. Skipuð hefur verið fram- kvæmdanefnd þeirra aðila sein koma til með að standa að framkvæmd þess, en það eru hesta- mannafélögin Funi í Eyjafjarðarsveit, Léttir á Ak- ureyri, Hringur á Dalvík, Þráinn á Grenivík, Þjáífi í S-Þingeyjarsýslu, Grani á Húsavík, Fylkir í Öxarflrði og Snæfaxi í Þistilfirði en þessi félög tilnefndu hvert um sig tvo fulltrúa í þessa nefnd. Auk þess stendur Landssamband hestamannafé- laga að mótinu eins og að öðrum landsmótum og tilnefnir einn mann í nefndina. Þessi nefnd hefur nú komið saman og tilnefnt fimm manna framkvæmdanefnd úr sínum hópi. í henni eru Jón Ólafur Sigfússon frá Akureyri, formað- ur, Gísli Haraldsson Hafralækjarskóla, ritari, Hólm- geir Valdemarsson frá Akureyri, gjaldkeri og með- stjómendur þeir Ármann Ólafsson, Litla Garði, og Þorsteinn Hólm, Dalvík. Ljóst er að mikið verk er framundan en fyrsta verk þessarar stjómar var að ganga endanlega frá dagsetn- ingu mótsins. Verður það dagana 8.-12. júlí 1998. „Við höfum þegar sett af stað kynningarstarf hér heima og erlendis. Það er talið að um 2.500-3.000 út- lendingar hafi komið á síðasta landsmót og við stefn- um á að sá fjöldi verði töluvert meiri árið 1998. Alls sóttu um 8.500 manns síðasta landsmót og af því má sjá að umfang þessara móta er gríðarlega mikið og mikilvægt að vanda sem best verður kosið allan und- irbúning,“ sagði Jón Ólafur, formaður framkvæmda- nefndar. Einnig eru framundan miklar framkvæmdir á Mel- gerðismelum, sem reyndar eru ekki á hendi þessarar nefndar. Framkvæmdir við svæðið eru þegar hafnar og stefnt á að þeim verði lokið að mestu haustið 1997. Að þeim loknum er talið að svæðið á Melgerð- ismelum verði enn á ný í fremstu röð mótssvæða á landinu, bæði hvað varðar aðstæður fyrir keppendur og áhorfendur. „Það er alveg ljóst að áhugi fyrir mótinu er þegar orðinn mikill og það hafa borist fyrirspumir um það langan veg. Mér er óhætt að fullyrða að mót af þess- ari stærðargráðu, sem stendur yfir í u.þ.b. heila viku, verði bæði héraðinu og nágrannabyggðum þess mikil lyftistöng," sagði Jón Olafur. HA Gengi hlutabréfa í norðlenskum fyrirtækjum: Stórfelld hækkun Mikil hækkun hefur orðið á gengi hlutabréfa í norðlenskum fyrirtækjum að undanförnu. Þetta er í takt við þróunina á landsvísu, þar sem gengi hluta- bréfa í fyrirtækjum í sjávarút- vegi hefur hækkað sýnu mest. Það helgast af jákvæðum tíðinc' um úr sjávarútvegi að undan- förnu, svo sem góðum síldar- og loðnuvertíðum og eins fyrirséðri aukningu á þorskveiðiheimild- um, segir Sveinn Pálsson, ráð- gjafi hjá Kaupþingi Norður- lands. Frá áramótum hefur gengi hlutabréfa í Skagstendingi hf. á Skagaströnd hækkað um rúmlega 118%. Um áramót var gengi bréf- anna rétt tæplega 3,6 en er nú komið í 6,5. Er í þessari tölu þá tekið tillit til útgefinna jöfnunar- hlutabréfa fyrr á þessu ári. Hið sama má segja um hlutabréf í Þor- móði ramma - þau hafa hækkað um nær helming og farið úr 3,5 í 4,3 og þá er tekið tillit til útgáfu jöfnunarbréfa fyrr á árinu. Bréf í Sæplasti hf. á Dalvík hafa hækkuð um fjórðung. Um áramót var gengi þeirra 3,9 en er nú komið í 4,8. Bréf í Útgerðarfé- lagi Akureyringa hafa farið upp um rösklega 67 % eða út 3,1 í 5,2. Þá voru hlutabréf í Skinnaiðnaði hf. í ársbyrjun á genginu 3,0 en eru nú komin í 5,0, sem er 67% hækkun. Gengi hlutabréfa í B- deild stofnsjóðs Kaupfélags Ey- firðinga hefur hins vegar staðið í stað allt þetta ár, það var og er 2,1. Stækkun íþrottahússins á Sauöárkróki: Framkvæmdir hafnar Stækkun íþróttahúss um nær helming er langstærsta fram- kvæmdin á vegum Sauðár- króksbæjar á þessu ári. Kostn- aður er nær 109 millj. kr. og eru framkvæmdir þegar hafnar, að sögn Hallgríms Ingólfssonar, bæjartæknifræðings. Iþróttasalur hússins stækkar um 687 mÁ búningsherbergi um 171 m2 og anddyri um 218 m“, en alls gera þetta 1,076 m-. Það er Tré- smiðjan Óstak sem annast fram- kvæmdir, en að því fyrirtæki standa sameiginlega Trésmiðjan Borg og Friðrik Jónsson ehf. Af öðrum framkvæmdum má nefna jarðvegsskipti í götunni Gilstúni og þar verður einnig skipt um lagnir. Þá verður unnið að uppbyggingu götunnar Sæmund- arhlíðar og byggð ný brú yfir Sauðá, vestan bóknámshúss Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra. Einnig verður unnið að ýmsum minniháttar framkvæmdum víðs- vegar um bæinn, að sögn Hall- gríms. -sbs. Brýrnar yfir Eyjafjarðará: Reynt aö stela einum bekknum Eins og frá hefur verið greint í Degi voru fyrir stuttu settir nið- ur fjórir bekkir við gömlu brýrnar yfir Evjafjarðará. Bekk- irnir eru gjöf Utgerðarfélags Ak- ureyringa hf. til Félags hjarta- sjúklinga á Akureyri og ná- grenni, en hjartasjúklingar hafa lengi gengið þessa leið sér til heilsubótar svo og margir aðrir. Vel var vandað til niðursetning- ar bekkjanna, en það virðist ekki hafa dugað til því greinilegt er að einhver eða einhverjif hafa reynt að ná upp einurn bekknum og væntanlega stela honum. Guðlaug- ur Jakobsson, einn þeirra sem unnu við að setja bekkina niður, sagði að greinilega hafi verið reynt að ná upp vestasta bekknum, en ekki tek- ist. Bekkirnir eru festir með 15-20 cm löngum kengjum úr steypu- styrktarjárni. Viðkomandi hefur tekist að ná nokkrum kengjunum upp en ekki öllum. „Það er Ijóst að við munum festa bekkina enn betur, en mér finnst í meira lagi sorglegt að menn skuli sjá sig knúna til að hreyfa við slíkum hlutum. Það er furðuleg árátta," sagði Guðlaugur. óþh Sveinn Pálsson segir Sæplast, KEA, Útgerðarfélagið, Þormóð ramma og Skinnaiðnað hafa greitt 10% arð til sinna hluthafa eftir síðasta ár og Skagstrendingur 5%. Gengi hlutabréfa í norðlenskum fyrirtækjum sem skráð eru hjá Verðbréfaþingi íslands er almennt séð í sögulegu hámarki um þessar mundir, segir Sveinn. Hann telur að vænta megi einhvers stíganda áfram, mismikið þó eftir fyrirtækj- um. -sbs. Til sýnis og sölu nýr Suzuki Sidekick Sport 1996 með ýmsum aukabúnaði stgr. verð 2.060.000 Bílasala Akureyrar Fjölnisgötu 6 Sími 461 2533 Formabur framkvœmdanefndar Jón Ólafur Sigfússon, formaður framkvæmdanefndar landsmótsins á Melgerðismelum 1998, segir stefint á enn fleiri erlenda gesti en síðast. í baksýn er mótssvæðið, en þar á mikið eftir að framkvæma. Mynd: bg déí Hótel Edda edda stórutjörnum Paradís fjölskyldunnar opnuð laugardaginn 8. júní Fyrsta kaffihlaðborðið okkar verður sunnudaginn 9. júní Verið hjartanlega velkomin Starfsfólkið á Hótel Eddu, Stórutjörnum. CAS- OC á frábœru verði VERÐLÆKKUMm á bensíni 2,- kr. á lítra og 2,80 kr. til safnkortshafa Aðeins í <g> Tryggvabraut Veganesti Hörgárbraut (fsso) Tryggvabraut á öllum föstudag og CRILLKJÖT FRÁ KEA Lambaframhryggsneiðar samba kr. 830 kg Lambalœrissneiðar barbeque kr. 946 kg Svínakótelettur bombay kr. 898 ROYAL OAK Grillkoi á kostnaðarverði kr. 224,- stór poki 4,5 kg

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.