Dagur - 10.08.1996, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 10. ágúst 1996
FRÉTTIR
Slysadeild FSA:
„Alagið her a deildinni
eykst frá degi til dags“
„Álagið hér á deildinni hefur
verið að aukast dag frá degi að
undanfornu. Nóg var það fyrir,
miðað við eðlilegar kringum-
stæður, en nú bætist mikið við
hjá okkur þegar heilsugæslu-
læknar eru hættir störfum,“
sagði Birna Sigurbjörnsdóttir,
deildarstjóri á slysadeild og
bráðamóttöku FSA.
Samkvæmt beiðni frá embætti
Landlæknis hafa sjúkrahúslæknar
verið beðnir um að taka að sér
læknisstörf við bráðamóttöku og
umönnun slasaðra, nú þegar vel-
flestir heilsugæslulæknar eru hætt-
ir störfum. Sjúkrahúslæknar hafa
orðið við þessari beiðni - og jafn-
framt sinna hjúkrunarfræðingar
nefndum störfum einsog þeir best
mega. Að sögn Bimu Sigurbjöms-
dóttur hefur hjúkmnarfræðingum
sem ganga vaktir á slysadeild og
bráðamóttöku FSA verið fjölgað,
Rætt um nýja
dagblaðið
Aðstandendur Dags-Tímans efndu
til borgarafundar á Akureyri í fyrra-
kvöld þar sem var rætt um hið nýja
dagblað, sem kemur út fyrsta sinni
síðar í mánuðinum. Stefán Jón Haf-
stein ritstjóri og Hörður Blöndal
framkvæmdastjóri Dagsprents sátu
fyrir svörum um blaðið og stefnu
þess og sýndu fundargestir umræðu-
efninu áhuga og spunnust fjörlegar
umræður um blaðið og væntanlegt
hlutverk þess. Þessi mynd var tekin
á fundinum, sem haldinn var í Al-
þýðuhúsinu. -sbs/Mynd: BG.
Ríkey sýnir í
Safnahúsinu
Ríkey Ingimundardóttir,mynd-
listarmaður, heldur sýningu í
Safnahúsinu á Húsavík dagana
10.-13. ágúst. Sýningin verður
opnuð kl. 14 í dag, laugardag-
inn 10. ágúst, og verður opin
til klukkan 18 alla fjóra sýn-
ingardagana. Á sýningunni eru
bæði málverk og skúlptúrar og
eru allir hjartanlega velkomnir
á sýninguna. Ríkey hefur hald-
ið fjölda sýninga og nú síðast í
Perlunni í Reykjavík. GKJ
Bændablaðið
prentað á Akureyri
og þannig er reynt að leysa þau
mál sem upp koma.
„Hingað er fólk að koma vegna
ýmiskonar eymsla, foreldrar koma
með böm með eymaverk, sumir
þurfa að láta endumýja lyfseðla
sína og þannig gæti ég haldið
áfram að telja þau mál sem nú
koma til okkar, sem fæm ella til
heilsugæslulækna. Á Heilsugæslu-
stöðinni á Akureyri em reyndar
þrír læknar enn við störf og þeir
taka ákveðinn kúf verkefna sem
teljast ekki vera bráðamál, en
engu að síður hefur álag hér aukist
frá degi til dags. Víð búum okkur
undir aðra þunga helgi - og nóg
var nú umleikis um þá síðustu;
verslunarmannahelgina," sagði
Bima Sigurbjömsdóttir. -sbs.
Um þessa helgi verður Bænda-
blaðið í fyrsta skipti prentað hjá
Dagsprenti hf. á Akureyri, en
gengið hefur verið frá samning-
um Dagsprents hf. og Bænda-
samtaka íslands um prentun
Bændablaðsins, sem að jafnaði
kemur út hálfsmánaðarlega og er
prentað í sjö þúsund eintökum
og dreift ókeypis til þeirra sem
búa utan þéttbýlis.
Fyrsta eintakið sem rennur úr
prentvél Dagsprents hf. fer inn á
Á einu ári hafa hlutabréf
Hlutabréfasjóðs Norðurlands
hækkað um
Hlutabréf Hlutabréfasjóðs Norðurlands
veita skattaafslátt.
Þannig getur einstaklingur
sem kaupir hlutabréf íyrir
130.000 krónur,
lækkað skattana um
44.000 krónur.
Upphæðin er tvöföld íyrir hjón.
Tryggðu þér
skattaafslátt
með einu simtali!
4700
. KAUPÞING
NOkÐURLANDS HF
-Löggilt verðbréfafyrirtæki
Kaupvangsstræti 4 • 600 Akureyri • sími: 462-4700 • fax: 461 -1235.
hvert heimili í landinu og er því
upplagið 95 þúsund eintök. Þetta
er lang viðamesta prentun sem
Dagsprent hf. hefur nokkru sinni
ráðist í.
í þessu fyrsta tölublaði prentuðu
hér norðan heiða, sem verður 32
blaðsíður að stærð, er sérstök
áhersla lögð á kynningu „Bændur
bjóða heim“, sem verður 18. ágúst
nk.
Til þessa hefur Bændablaðið
verið prentað í ísafoldarprent-
smiðju í Reykjavík, en verður sem
sagt framvegis prentað á Akureyri
og dreift um allt land þaðan. óþh
O HELGARVEÐRIÐ
Um helgina spáir Veðurstof-
an mildu veðri á Norður-
landi. í dag, laugardag, er
gert ráð fyrir sunnangolu
með léttskýjuðu veðri og
hita á bilinu 10 til 18 stig. A
morgun og mánudag er bú-
ist við hægri breytilegri eða
suðvestlægri átt og léttskýj-
uðu veðri með hita á bilinu
8 til 16 stig.
Halló Akureyri -
halló Akureyringar!
- greinargerð foreldravaktarinnar
á Akureyri um „Halló Akureyri“
Foreldravaktin á Akureyri var á
vaktinni um verslunarmanna-
helgina. Hún hefur nú sent frá
sér greinargerð sem hér á eftir
birtist í heild sinni:
„Akureyringar buðu gestum
heim um verslunarmannahelgina
og voru rausnarlegir, því hingað
komu um tíu þúsund manns. En
hvemig stóðu heimamenn að mót-
tökunni?
Aðstandendur „Halló Akur-
eyri“ höfðu samband við fulltrúa
foreldravaktar bæjarins og fóm
þess á leit að þeir skipulegðu
„vakt“ um þessa helgi í miðbæn-
um. Voru fimm til sjö manna
hópar á vaktinni aðfaranótt föstu-
dags, laugardags og sunnudags.
Það er samdóma álit þeirra sem
vaktimar stóðu að ástandið hafi
verið gjörsamlega óviðunandi
þessar nætur. Að það sé óverjandi
fyrir framkvæmdaaðila hátíðar-
innar og forsvarsmenn Akureyrar-
bæjar að ætla sér að halda ámóta
samkomu að ári.
Foreldrar bera vissulega
ábyrgð á veru ósjálfráða unglinga
á svona hátíðum og sem uppal-
endur á viðhorfum og hegðun
þeirra sem náð hafa 16 ára aldri.
En þeir sem gefa leyfi, auglýsa og
standa fyrir samkomuhaldi geta
aldrei fríað sig ábyrgð á því sem
gerist á „hátíðarsvæðinu" sem í
þessu tilfelli er sveitarfélagið Ak-
ureyri. Það sem foreldravaktin
varð vitni að þær þrjár nætur sem
hún var á ferli í miðbænum og
víðar getur tæplega verið það
sama og forsvarsmenn hátíðarinn-
ar sáu á sínum ferðum um bæinn.
Þeir telja, eftir því sem fram kom-
ið í fjölmiðlum, að ástandið þessa
daga hafi verið þolanlegt og engin
ástæða sé til annars en að reyna
aftur að ári. Hundruðir ölvaðra
ungmenna að gera þarfir sínar hér
og þar um bæinn, nokkrar nauðg-
anir, fíkniefnasala, hávaði og læti
nótt eftir nótt í og við íbúðahverfi,
skemmdarverk á eigum heima-
fólks og opinberra aðila og
margra daga fréttaflutningur af
ástandinu er sú ásýnd Akureyrar
sem þessir hagsmunaaðilar virð-
ast gera sig ánægða með. Það er
ýmislegt sem má viðgangast ef
hagnaðarvonin er annars vegar.
Er siðferðilega rétt að gera út á
neyslu kófdrukkinna unglinga?
Framkvæmdastjóri „Halló Ak-
ureyri“ hefur sagt að skipuleggj-
endur hátíðarinnar hafi búist við
allt að tíu þúsund manns og þeim
varð að ósk sinni. Samt sem áður
er ljóst að viðbúnaði og afþrey-
ingu var ábótavant og engan veg-
inn í samræmi við þarfir.
Bæjarfélagið þarf að greiða
verulegan aukakostnað vegna lög-
gæslu þessa umræddu helgi og
einnig hlýtur hreinsunarkostnaður
að vera talsverður.
Er ekki sjálfsagt að þeir sem
stóðu að hátíðinni greiði fyrir sig?
Er þetta sú ímynd sem við
kjósum ferðamannabænum Akur-
eyri?
Er þetta sú fyrirmynd sem við
teljum bömum og unglingum
bæjarins samboðna?
Viljum við bæjarbúar hafa
svona uppákomu í bænum okkar
þar sem allt fer á annan endann
og friðhelgi íbúanna er virt að
vettugi?
Hvað er til ráða?
Foreldrafélagið hefur beðið
um fund með bæjarstjóra og bæj-
arfulltrúum til að ræða þessi mál.“