Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1994, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994
13
Menning
Sjaldgæf ar upptökur stórsöngvara
íslendingar eru söngelsk þjóð, eins
og ótal kórar, einsöngvarar og kvart-
ettar sanna. Forsvarsmenn hljóm-
plötuverslana segja mér einnig að
hér sé mikið keypt af söngtónlist, ís-
lenskri sem erlendri; ennfremur að
harður kjarni íslenskra óperuunn-
enda fylgist grannt með nýjustu
söngvurum og útfærslum á sínum
áhugasviði.
Breska tónhstarútgáfan Nimbus
hefur sérstaklega gert út á tónlistar-
sögulegan áhuga söngunnenda með
útgáfum á söng helstu ópera- og
ljóðasöngvara sem uppi hafa verið, í
sérstökum flokki geislaplatna sem
nefnist Prima Voice. Hefur útgáfan
verið fundvís á gamlar og sjaldgæfar
upptökur, til dæmis ýmislegt sem
leynst hefur á gömlum vaxsívalning-
um frá því um aldamót. Stefna þeirra
Nimbusar-manna er ekki að flikka
upp á þessar gömlu upptökur heldur
aðeins að hreinsa þær htillega og
yfirfæra á geislaplötur með stafræn-
um hætti. Flest annað efni hafa þeir
tekið upp af 78 snúninga hljómplöt-
um.
íslenskir söngunnendur era ugg-
laust kunnugir þessum flokki geisla-
platna sem vex með hveiju misseri
sem líður og tekur til mikhs fjölda
þekktra söngvara sem lítt þekktra á
Vesturlöndum.
Víðfrægir og minna frægir
Þessar upptökur hafa veitt mér
ómælda ánægju og því langar mig til
að vekja athygli á þremur safnplöt-
um sem Nimbus hefur nýverið sent
á markað. í fyrsta lagi hafa þeir tek-
ið saman efni með „Víðfrægum ten-
Enrico Caruso í hlutverki Fásts.
Kórtónlist í
Skálholti
Á síðari tónleikunum í Skálholti síðastliðinn laugardag voru áfram flutt
verk eftir Misti Þorkelsdóttur. Á efnisskránni voru trúarleg verk, Magn-
ificat, Dicamus gracias, Hugleiðing og Alleluia. Verkin voru öh fyrir kór,
sum með hljóðfæraundirleik, önnur án. Flutning annaðist tíu manna kór
og fimm manna kammerhópur. Stjómandi var Gunnsteinn Ólafsson.
Hrafnhhdur Guðmundsdóttir söng einsöng.
Tvö verkanna hafa áður verið flutt en tvö vora frumflutt við þetta tæki-
færi. Þrátt fyrir þetta eru þau hugsuð sem ein hehd og öll byggja þau að
sögn höfundarins á stefjum sem fengin era úr Þorlákstíðum. Textinn er
á latínu, ef frá er talinn sálmur eftir Sigurbjörn Einarsson biskup og afa
tónskáldsins, „Fræið sem moldin felur“. Tónhstin er uppbyggð með svip-
uðum hætti og mátti heyra í kammerverkum Mistar, skýr stefræn úr-
Tórúist
Finnur Torfi Stefánsson
vinnsla og hálftónalt svolítið smáskrefótt tónamál. Sumir kórkaflanna
voru mjög vel hljómandi. í hehd kom verkið Hugleiðing einna best út,
þar var íslenskur texti, vel vahnn úr ýmsum stöðum ritningarinnar.
Þessi verk gerðu töluverðar kröfur th flytjendanna, einkum kórsins.
Sfjórnandinn, Gunnstein Ólafsson, virtist hafa tónhstina vel á valdi sínu
og yfirleitt tókst flutningurinn mjög vel, þótt hnökrar væru heyranlegir
á stöku stað. Hljómur kórsins var fallegur.
Tónlist
Aðalsteinn Ingólfsson
órsöngvurum“ (Legendary Tenors),
söngvurum sem vora upp á sitt besta
frá því fyrir aldamót og fram yfir
síðari heimsstyijöld (Nimbus NI
7856). Þar er auðvitað að finna þekkt
nöfn eins og Caruso, Perthe, Melchi-
or, Tauber, Gigh, Björhng og Schipa,
en einnig söngvara sem að ósekju
hafa falhö í skugga þeirra: Tamagno,
Smirnov, Sobinov, Zanelh o.fl. Sér-
staklega þótti mér varið í að heyra i
prýðisgóðum dönskum söngvara
sem ég þekkti ekki nema af afspum,
nefnhega Helge Roswænge (í Mörtu
eftir Flotow). Á svona safnplötu er
auðvitað engin leið að koma til móts
við ahra smekk, en mér þykir valið
hafa tekist með ágætum. Já, jafnvel
þótt Stefán íslandi sé ekki hafður
með.
Fastasöngvarar á La Scala
Óhjákvæmilega skarast efni þess-
arar geislaplötu og annarrar safn-
plötu frá Nimbus, „Stórsöngvarar
við La Scala“, (NI7858) en hún tekur
einnig th söngkvenna eins og Nellie
Melba, Rosina Storchio, Maria Gay
o.fl. En þessi plata bætir óneitanlega
við tónlistarþekkingu okkar því
nokkrir þessara söngvara urðu svo
rótfastir við La Scala að þeir náðu
aldrei. verulegum vinsældum utan
Ítalíu. Þetta á sérstaklega við söng-
konur eins og Lucreziu Bori, Ghdu
Dalla Rizza og kólóratúrsöngkonuna
Toti dal Monte. Geislaplötunni fylgir
fróðleg ritgerð um það hvort sérstak-
ur „La Scala-söngstíll“ hafi einhvern
tímann veriö th.
Þriðja safnplatan í þessum flokki
er einnig sú sérhæfðasta, en á henni
er að finna túlkanir þeirra Carusos,
Geraldine Farrar og Marcel Journet
(NI 7859) á franskri óperutónlist,
einkum eftir Gounod, í upptökum frá
árunum 1906-16. Við þetta má bæta
að þessir þrír söngvarar sungu í
rauninni aldrei alhr saman, heldur
söng Farrar ýmist með Caruso eða
Journet. Caruso og Farrar þarf ekki
að kynna, en Joumet er ekki eins
þekkt stærð. Hann var á tímabili
rómaður fyrir þokkafulla og ljóð-
ræna túlkun sína á Fást eftir Go-
unod, en féll síðan í gleymsku. Hér
hefur Nimbus aftur unnið þarft verk
með kynningu á afar fahegum söng
næstum gleymds listamanns.
Legendary Tenors
Great Singers at La Scala, Milan
Caruso, Farrar, Journet: Highlights from
Faust & French Opera
Nimbus
Umboð á íslandi: Japis
SVARJISVANURINN
Laugavegi 118
Nætursala um helgar
Agústtilboð
Pylsa
's' +
§‘/2 I kókdós
kr. 150
i b°ði
maTkt
TOPP 40
mSiíEMM
íslenski listinn er birtur í DV á hverjum fimmtudegi og á
fimmtudagskvöldum á milli kl. 20 og 23 kynnir Jón Axel
Ólafsson stöðu laganna á Bylgjunni og greinir frá sög-
um á bakvið athyglisverða flytjendur og
lög þeirra. Á Bylgjunni, laugardaga milli
kl. 16 og 19 er staða laganna 40 svo '
kynnt á ný og þau endurflutt.
'tantmum
fiOTT ÚTVARPI
fSLENSKI LISTINN er urtninn I samvinnu DV, Bylgjunnar og CocæCola ð íslandi. Mikill Qöldl fólks tekur þátt f aö velja ÍSLENSKA LISTANN f hverri viku.
Yfirumsjón og handrit eru f höndum Ágústs Héöinssonar, framkvæmd f höndum starfsfólks DV en tæknivinnsla fyrlr útvarp
er unnln af Þorsteinl Ásgeirssyni.