Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1994, Blaðsíða 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994
ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994
17
Iþróttir
Meistarakeppni
íhandboltanum
Keppnistímabilið í handboltan
um hefst opinberlega annað
kvöld með meistarakeppni HSÍ.
Valur og FH mætast þá í Austur-
bergí klukkan 20.30.
Firmakeppni
hjá Þrótturum
Þróttur heldur firma- og hópa-
keppni í knattspyrnu á Þróttar
vellinum við Sæviðarsund á
sunnudaginn kemur, 18. sept
ember. í fyrstu verðlaun er ferð
fyrir 6 með Flugleiðum, auk hefð-
bundinna verðlauna, og í 2. verð-
laun matur fyrir átta á veitinga-
húsinu Laugaási. Þátttöku skal
tilkynna í síma 81132<Xeöa 812817
(fax 811339).
Forsalanhófst
ímorgun
Forsala aögöngumiða á Ieik ÍA
og Kaiserslautern í UEFA-bik-
amum í knattspymu i kvöld
hófst á Laugardalsvellinum
klukkan 11 í morgun. Forsala á
Akranesi er í versluninni Akra-
sport.
Ráðstefna
umfjármál
íþróttafélaga
íþróttasamband islands heldur
ráðstefnu um íjármál íþróttafé-
laga á sunnudaginn, 18. septemb-
er, klukkan 10-16 í íþróttamið-
stöðinni í Laugardal. Þar verða
meöal axmars flutt erindi umfjár-
mál íþróttahreyfingarinnar í Sví-
þjóð og á íslandi og rekstur félaga
á Akranesi, Stykkishóimi,
ísafiröi, Vestmannaeyjiun og víð-
ar. Þá munu fulltrúar Vifilfells
og Austurbakka ræða um
styrktaraðila og kröfur þeirra til
félaganna.
Ráðsteíhugjald er 1.000 krónur
og innifalið er hádegisverður og
kaffiveitingar. Þátttökutilkynn-
ingar þurfa að berast skrifstofu
ÍSI fyrir fimmtudag.
Ingvarvann
styrktarmótið
Ingvar Ágústsson sigraði á
fyrsta mótinu til styrktar sveit
Golfklúbbs Reykjavíkur vegna
þátttöku í Evrópukeppni sem
haldið var í Grafarholtinu á
sunnudaginn. Ingvar fékk 40
punkta, Hermann Guðmundsson
38 og Guðrún Eiríksdóttir 38
punkta. Næsta styrktarmót verð-
ur laugardaginn 24. september og
er opiö öllum kylfingum.
Popescu bíður
atvinnuleyfis
Rúmenski knattspymumaður-
inn Gheorghe Popeseu gat ekki
leikiö með sínu nýja félagi, Tott-
enham, gegn Southampton í gær-
kvöldi þar sem hann er ekki bú-
inn að fá atvinnuleyfi í Englandi.
Leiðréttstaða
íldeildinni
í stöðunni í 1. deildinni í knatt-
spymu i gær var sú meinlega
villa að þrjú stig vantaði hjá UBK.
Rétt er staðan þannig:
Akranes.16 12 3 2 29-8 36
FH......
Keflavik
Valur...
KR.....
Fram.
ÍBV....
Þór....
....16
....16
....16
....16
....16
....16
....16
4 20-14 30
3 30-20 25
5 23-23 25
4 25-16 24
5 24-26 19
6 19-22 18
8 22-31 14
UBK.......16 4
Stjaman 16 2
2 10 18-34 14
5 9 16-32 11
Kaiserslautem eitt
besta lið Þýskalands
- talið líklegt til að veita Bayern harða keppni um meistaratitilinn
Akurnesingar mæta þýska liðinu
Kaiserslautern í fyrri leik liðanna í
Evrópukeppni félagsliða á Laugar-
dalsvelli í kvöld. Akurnesingar etja
þar kappi viö eitt sterkasta lið Þýska-
lands en í liöi þeirra má segja að sé
valinn maður í hverju rúmi.
Þýska liðið er íslenskum knatt-
spyrnuáhugamönnum aö góöu
kunnt en ekki eru liðin nema tvö ár
síðan liöiö lék gegn Fram í Evrópu-
keppninni. Þjóðverjarnir unnu fyrri
leikinn í Reykjavík, 0-3, og útileik-
inn, 0-4.
Akurnesingar hafa sýnt það í gegn-
um tíðina í Evrópukeppni að liðið
sýnir andstæöingum sínum enga
virðingu og er leikur þess viö hol-
lenska liðiö Feyenoord í Reykjavík í
fyrra enn í fersku minni. A góðum
degi ætti Skagaliðið hiklaust að geta
velgt þýska liðinu undir uggum svo
að ekki sé talað um kröftugan stuðn-
ing áhorfenda. Erfitt er að bera
Andreas Brehrrie
er frægasti leikmaður Kaisers-
lautern. Hann hefur um langt >
árabil leikið með þýska landsl-
iðinu og tryggði Þjóðverjum
heimsmeistaratitilinn árið 1990
þegar hann skoraði sigurmark-
ið gegn Argentínumönnum
úrslitaleiknum.
Skagaliðið í dag og það sem lagði
Feyenoord að velli í fyrra saman efl
liðið í dag hefur þó sýnt alla tilburöi
til að leika stórgóöa knattspyrnu.
Leikmenn innan um
í hæsta gæðaflokki
Kaiserslautern er að mörgum taliö
það liö sem getur veitt Bayern
Munchen hvað harðasta keppni um
þýska meistaratilinn. Liðið styrkist
mikið fyrir yfirstandandi tímabil og
er talið að með þann mannskap í
höndunum eigi liðið að geta gert góða
hluti. Þekktasti leikmaður Kaisers-
lautern er Andreas Brehme sem lék
með þýska landsliðinu á HM í Banda-
ríkjunum í sumar. Stefan Kuntz átti
einnig fast sæti í landsliðinu og skor-
aði sigurmark gegn Rússum í
Moskvu á dögunum. Þriðji landsliðs-
maöurinn er Martin Wagner sem
vakti þó nokkra athygli með Þjóð-
verjum á HM.
Erlendu leikmennirnir í liðinu eru
allir landsliösmenn. Fyrstan skal
nefna Svisslendinginn Ciriaco
Sforza, mikið efni sem ætlað er stórt
verkefni hjá félaginu í framtíðinni
enda ekki nema 24 ára gamall. Tveir
Tékklendingar leika með liðinu; þeir
Miroslav Kadlec, vamarmaður, og
Pavel Kuka, eitilharöur sóknarmað-
ur. Loks Pólverjinn Pjotr Nowak.
Kaiserslautem er stöndugt félag og
má í því sambandi nefna aö liðiö
greiöir í vetur góða bónusa til leik-
manna, þá mestu á meðal liða í þýsku
Bundeslígunni.
Skagamenn mæta Kaiserslautem i kvöld:
„Verðum að sýna okkar
allra sterkustu hliðar“
„Þetta verður að öllum likindum
hörkuleikur enda mótherjinn ekki af
verri endanum. Það er engin spuming
um að við verðum að ná að sýna okkar
allra sterkustu hliðar. Það er alltaf
möguleiki og þetta mun ráðast á dags-
forrainu. Við verðum að vera samstillt-
ir í öfium aðgerðum og einnig heppn-
inni. Ég er eklú svo íjarri því að Kais-
erslautern væri með sterkara lið en
Feyenoord sem við lékum á móti í
íyrra,“ sagöi Ólafur Þórðarson, fyrir-
liöi ÍA, viö DV í gærkvöldi.
Skagamenn em að vonast eftir að
geta stillt upp sínu sterkasta liðiö í
kvöld gegn Kaiserslautern. Ólafur
Adolfsson hefur verið meiddur und-
anfarnar þrjár vikur og Zoran Milj-
okovic meiddist í leiknum gegn KR um
síðustu helgi. Þeir félagar era báðir á
batavegi og átti að koma í ljós um há-
degið i dag hvort þeir yrðu leikhæfir.
Bjartsýni ríkti fyrir því í herbúðum
Skagaliðsins.
„Þjóðverjarnir eru mjög agaðir í leik
sínum og segja má um liðiö að hver
staða sé vel skipuð. Við munum sjá
hvemig leikurinn þróast og að sjálf-
sögðu munum við sækja þegar færi
gefst. Ég hef trú að þetta gæti oröið
skemmtilegur leikur. Það er samt al-
veg-ljóst að við verðum að vera á tán-
um frá upphafi til enda. Við stefnum
að sjálfsögðu að sigri eins og alltaf en
þetta verður erfitt að allt verður að
ganga upp. Það er alveg ljóst að viö
verðum að fá góðan stuðning áhorf-
enda og þeir munu ekki bregðast okk-
ur frekar en fyrri daginn,“ sagði Ólafur
Þóröarson.
Á annaö hundrað stuön-
ingsmenn með þýska liðinu
Þýska liðiö kom til landsins eftir há-
degið í gær með allt sítt besta liö. Þó
var ekki talið víst að Martin Wagner
myndi leika með liðinu í kvöld. Kais-
erslautern lék ekkert í Þýskalandi um
helgina. Liðið æfði ekkert i gær en
þess í stað var létt æfing íyrir hádegið
á Valbjarnarvelli.
Með liðinu kom á annað hundrað
stuðningsmenn svo þeir munu eflaust
láta í sér heyra í Laugardalnum í
kvöld. Leiknum verður sjónvarpað
beint til Þýskalands.
Knattspyrnufélag
*
IA- 1. FC Kaiserslautem
Laugardalsvöllur kl. 20.00
13. september 1994
Ath. Akraborg fer frá Reykjavík kl. 22.30.
(Íbúnamrbanki ÍSLANDS
Taphjá
Tottenham
Einn leikur fór fram í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu í
gærkvöldi. Tottenham tapaði á
heimavelli fyrir Southampton,
1-2.
Júrgen Klinsmann kom Totten-
ham yfir á 6. mínútu með sínu
sjötta marki á tímabiiinu en
Matthew Le Tissier skoraði tví-
vegis, það fyrra úr vítaspyrnu á
75. mínútu og í kjölfarið var ein-
um varnarmanni Tottenham vik-
iö af leikvelli og þaö síðara á síö-
ustu mínútunni eftir herfileg
mistök í vörn Tottenham.
í kjölfar brottvikningar Sigurðar Lárussonar frá Þór:
Láras farinn
- Nói Bjömsson stýrir Þórsliðinu það sem efdr er móts
Sigurður Lárusson var eins og greint
var frá DV í gær látinn taka poka sinn sem
þjálfari 1. deildar Þórs í knattspyrnu á
sunnudaginn. Stjórn knattspymudeildar
Þórs ákvaö aö leysa Sigurð frá störfum
vegna slaks árangurs liðsins í sumar og
mun Nói Björnsson, fyrrum leikmaður og
fyrirliði Þórsara, stýra liðinu í þeim tveim-
ur leikjum sem liðiö á eftir í 1. deildinni
í ár.
Lárus Orri Sigurðsson, sonur Sigurðar
Lárussonar, sem verið hefur einn albesti
leikmaöur Þórsara í sumar ákvaö 1 kjöl-
farið á brottvikningu foöurs sína að hætta
í félaginu og leikur hann ekki meö Þór
þá tvo mikilvægu leiki sem eftir eru, gegn
KR og Keflavík.
„Ég spila ekki meira meö Þór og því
veröur ekki breytt. Ég hef engan áhuga
að spila með svona mannskap og stjórn
sem vinnur svona aö málunum. Ég held
aö menn ættu að reyna að líta aöeins í
eigin barm áður en þeir skella skuldinni
á aöra,“ sagöi Lárus Orri við DV í gær.
„Nú tekur bara við að halda sér í formi
fyrir U-21 árs landsleikina í haust og ætli
maöur leiki sér bara ekki einn og fái aö
æfa meö vinnufélögunum í löggunni."
Lárus eftirsóttur
Nokkur 1. deildar félög settu sig þegar í
samband viö Lárus Orra í gær með það í
huga að fá hann í sínar raðir fyrir næsta
keppnistímabil.
„Þaö eru þónokkur lið búinn að tala viö
mig en ég ætla ekkert að ákveöa mig fyrr
en þetta mál hefur gengið yfir. Þaö er al-
veg á hreinu að ég mun leika í 1. deildinni
á næsta ári. Ekki með Þór heldur félagi
fyrir sunnan,“ sagöi Lárus.
Sigurður Lárusson, fráfarandi þjálfari
Þórs, vildi ekki tjá sig um brottreksturinn
þegar DV haföi tal af honum í gær.
Fyrsti leikurinn á HM 7. maí
ísland mun leika fyrsta leik sinn í heimsmeistarakeppn-
inni í handknattleik sunnudaginn 7. maí 1995, ekki daginn
eftir eins og upphaflega var ráð fyrir gert. Mótherjinn verð-
úr fulltrúi Ameríku, Kúba, Bandaríkin eða Brasilía. „Það
verður glæsilegri byrjun fyrir okkur í keppninni að heíja
hana á sunnudegi, heldur en mánudegi, því þá eiga fleiri
möguleika á að fylgjast með leiknum, hvort sem er í Höll-
inni eöa í sjónvarpinu," sagði Ólafur B. Schram, formaður
HSÍ.
Eyjólfur Sverrisson skoraði fyrsta mark Besiktas eftir
aðeins tvær mínútur í 3-1 sigri á Adana Demirspor í tyrk-
nesku 1. deildinni í knattspymu á sunnudaginn. Þetta var
fjóröa mark Eyjólfs í ijórum fyrstu leikjunum en Besiktas
er á toppnum, hefur unnið alla leiid sína og skorað 15 mörk
gegn aðeins tveimur. Sama er að segja um Galatasaray og
Fenerbache sem eru með 12 stig eins og Besiktas.
ACMilanán
tíu leikmanna
Evrópumeistaramir AC Milan
verða án 10 leikmanna þegar þeir
heíja meistaravörnina gegn Ajax
i Amsterdam, í fyrsta leik riðla-
keppninnar annað kvöld. Þeir
Demetrio Albertini, Mauro Tas-
sotti, Cristian Panucci og Daniele
Massaro eru allir í leikbanni og
Marcel Desailly, Alessandro
Costacurta, Stefanio Eranio, Dej-
an Savicevic, Marco Simone og
Marco Van Basten eru meiddir.
Fimmtán leikmenn
eruíleikbanni
Alls taka 15 leikmenn út bann
í leikjum Evrópukeppni meist-
araliða annað kvöld. Auk Milan-
mannanna má nefna Eric Can-
tona hjá Manchester United, sem
tekur út fyrsta leikinn af fjórum,
spænsku landsliðsmennina Jose
Bakero, Alberto Ferrer og Miguel
Nadal hjá Barcelona og Benfica-
leikmennina Carlos Mozer, Joao
Pinto og Paulo Madeira.
Margirstórleikir
eruannaðkvöld
Sextán lið em eftir í Evrópu-
keppni meistaraliða og leika þau
í fiórum riðlum, heima og heim-
an, fram í desember, og síðan
komast tvö lið áfram úr hverjum
riöli, Leitómir annað kvöld em
Manchester United-Gautaborg,
Barcelona-Galatasaray, Dinamo
Kiev-SpartakMoskva, Paris SG-
Bayern Munchen, Hajduk Split-
Benfica, Anderlecht-Steaua,
Austria Salzburg-AEK Aþena og
Ajax-AC Milan.
meðíkvöld
Newcastle topplið ensku úr-
valsdeildarinnar mætir belgiska
liðinu Antwerpen í 1. umferð
UEFA keppninnar í knattspymu
í Belgiu í kvöld. Öllum á óvart
mun Peter Beardsley verða tóár
í slaginn aðeins þremur vikum
eftir að hann kinnbeinsbrotnaði
og sagöist Kevin Keegan, stjóri
liðsins, ætla að tefla Beardsley
fram í leiknum.
Stuðningsmanna-
klúbbur hjá Val
Valsmenn hafa ákveðið að
stofna stuðningsmannaklúbb
sem hefur fengiö nafnið, „Alvöru
menn“. Stofnfundur verður hald-
in á fimmtudaginn klukkan 20 í
Valsheimilinu og em allir Vals-
menn hvattir til að mæta.
Blóðtaka hjá kvennaliði Vals:
Fjórar hættar
Kristín Arnþórsdóttir með dóttur sina Ástu Eir, Bryndís Valsdóttir, Kristín Briem og Ragnheiöur Víkingsdóttir með Heiðu
Dröfn, dóttur sína, í fanginu tyrir utan iþróttahús Vals í gærkvöldi, augljóslega sáttar við að hætta knattspyrnuiðkun.
DV-mynd Sveinn
Bryndís Valsdóttir, Kristín Arn-
þórsdóttir, Kristín Briem og Ragn-
heiður Víkingsdóttir, sem allar leika
knattspyrnu með meistaraflokki
Vals, ætla aö leggja skóna á hilluna
eftir þetta tímabil. Stöllurnar fiórar
em allar mjög leikreyndar og hafa
skipað kjarnann í liði Vals í rúman
áratug. Samtals hafa þær leitóð vel
yfir fimm hundrað leiki í 1. deild og
skoraö í þeim tæplega 200 mörk.
Ragnheiður Víkingsdóttir er leikja-
hæsti leikmaður 1. deildar kvenna
frá upphafi, hefur leikið 184 leiki og
9 kvennalandsleiki. Hún varö ís-
landsmeistari í skvassi 1992 og hefur
hug á aö snúa sér að því aftur. „Þaö
er kominn tími til aö gera eitthvað
annaö, fara í útilegu meö fiölskyld-
unni og eiga sumarfrí, svo heillar
skvassið og ég ætla að byrja aftur í
því í haust,“ sagði Ragnheiður Vík-
ingsdóttir.
Kristín Briem er á leið til Detroit í
Bandaríkjunnum. „Maðurinn minn
er farinn tii Detroit í skóla og ég á
von á að fá starf þar sem sjúkraþjálf-
ari. Ég ætla að reyna að komast að
hjá einhverju liði þarna en kvenna-
knattspyrna er mjög hátt skrifuð í
Bandaríkjunum," sagði Kristín
Briem í samtali við DV.
Kristín Arnþórsdóttir segist vera
hætt en það gæti þó verið erfiöleikum
bundiö. „Ég er hætt en verð þó enn
að einbeita mér að öðrum verkefn-
um,“ sagði Kristín, en Logi Ólafsson
landsliðsþjálfari kallaði hana á æf-
ingu nú um helgina. Það gæti því
fariö fyrir Kristínu eins og Ástu B.
Gunnlaugsdóttur að þær ljúki ferli
sínum með landsleikjum í haust.
Bryndís Valsdóttir hefur verið einn
besti framherji kvennaknattspyrn-
unnar um árabil. „Ég var búin að
ákveða að hafa þetta síðasta árið en
það getur náttúrlega kannski eitt-
hvað gerst - en ég held samt ekki.
Þetta er búið að vera hálfgerð skylda
á manni, æfingum hefur fiölgað mik-
ið frá því sem áður var og mig er
farið að langa til að gera eitthvaö
annað þó ektó væri annaö en aö fara
í bíó án þess aö koma beint af æf-
ingu,“ sagði Bryndís Valsdóttir sem
ásamt þremur ööram stöllum sínum
úr Val er hætt knattspyrnuiðkun í
bili aö minnsta kosti en þær sögöu
þó allar aö drottningalið eldri leik-
manna Vals heillaði.
Stjarnan fær
öf lugan Rússa
- heims- og ÓL-meistari meö 100 landsleiki að baki
Stjömumenn, sem á dögunum
tryggöu sér sigur á opna Reykja-
víkurmótinu í handknattleik,
munu tefla fram rússneskum
landsliösmanni í vetur. Sá heitir
Dimitri Filipov, 25 ára gamall,
horna- og miðjumaður sem hefur
leitóð með einu sterkasta félags-
liði heims, rússneska liðinu
Krasnodar. Hann á að bató 100
landsleitó með Rússum og er
heims- og ólympíumeistari með
rússneska landsliðinu.
Viggó Sigurðsson, þjálfari
Stjömunnar, og Magnús Ándrés-
son, aðstoðarmaður hans, voru í
Þýskalandi um helgina til aö
fylgjast með Filipov en þar var
hann í æfingabúðum meö rúss-
neska landsliðinu. Gengið var frá
munnlegum tveggja ára samn-
ingi viö leikmanninn og er hann
væntanlegur til landsins í dag og
leikur sinn fyrsta leik með
Stjörnunni þegar liðið mætir
Haukum í fyrstu umferð 1. deild-
arinnar miövikudaginn 21. sept-
ember.
„Við væntum mikils af þessum
leikmanni sem er mjög öflugur,
bæöi góöur varnarmaður og
hraðaupphiaupsmaöur og mitóll
spilari sem kemur öruggtega til
með aö styrkja lið okkar. Hann
getur spilað í horni, fyrir utan og
á miðju og hann leysir allar þijár
stöðurnar okkar,“ sagði Viggó við
DV í gær.
Stjarnan hefur misst þrjá leik-
menn sem léku með liðinu frá
síðasta ári. Patrekur Jóhannes-
son er genginn í raðir KA manna,
Hilmar Hjaltason í Fram og Haf-
steinn Bragason er á leið í nám
erlendis. I stað þessara leik-
manna fá Stjörnumenn Rússann
Filipov og Jón Þórðarson frá
Breiöablitó.
Knattspyrnufélagið
Þróttur
Knattspyrnuþjálfari óskast fyrir 3. flokk karla.
Umsóknum og meðmælum skal skila til
skrifstofu Þróttar, Holtavegi 11, fyrir föstu-
daginn 16. sept.
Unglingaráð
GLIMUDEILD
Æfingar byrja þarin 13. septemb-
er í íþróttasal Austurbæjarskóla
þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18.00 til
20.30 og föstudaga kl. 18.00 til 19.50. Æf-
ingagjöld kr. 3.000 fyrir unglinga og kr.
5.000 fyrir fullorðna.
Ungir sem gamlir velkomnir til
iðkunar á alíslenskri íþrótt.
Iþróttir
BoltagjöfDV:
Sigursteinn
langefstur
Sigursteinn Gíslason er sem
fyrr með ömgga forystu í „bolta-
gjöf DV“ í 1. deildinni í knatt-
spyrnu. íþróttafréttamenn og
fréttaritarar DV gefa leikmönn-
um 0-3 bolta í einkunn fyrir
frammistöðu sína í leikjum, einn
fyrir að leika vel, tvo fyrir aö
leika mjög vel og þrjá fyrir frá-
bæran leik.
Sigursteinn hefur fengið 22
bolta í 16 leikjum en næstur kem-
ur Guðmundur Benediktsson hjá
Þór með 17 bolta í 15 leikjum.
Þessir leikmenn hafa fengið
flesta bolta hjá hverju liði fyrir
sig:
Boltar Leikir Akranes SigursteinnGíslason 22 16 Þórður Þórðarson 11 15 Haraldurlngólfsson 11 16 ÓlafurÞórðarson 10 12 ZoranMiljkovic 10 15 FH Stefán Amarson 13 16 Hallsteinn Arnarson 8 12 PetrMrazek 8 16
Ólafur Kristjánsson . 7 16
DrazenPodunavac........ . 6 14
Keflavík
Kristinn Guðbrandsson .12 15
RagnarMargeirsson .12 15
Gunnar Oddsson .11 16
MarkoTanasic . 7 16
Ragnar Steinarsson . 7 16
Valur
Eiður S. Guðjohnsen .13 16
Kristján Halldórsson . 9 16
GuðniBergsson . 8 14
DavíðGarðarsson . 7 15
Lárus Sigurðsson . 7 16
KR
Daöi Dervic .10 15
KrisfiánFinnbogason... . 9 15
Tómas Ingi Tómasson... . 8 16
JamesBett , 7 13
RúnarKristinsson . 7 15
Fram
Birkir Kristinsson ,12 16
Kristinn Hafliöason.. .11 16
HelgiSigurðsson .10 16
HólmsteinnJónasson.... . 9 16
Gaoti Laxdal . 7 15
ÍBV
Friðrik Friðriksson .14 16
Heimir Hallgrímsson .11 14
Dragan Manojlovic .10 14
Steingrímur Jóhanness 9 16
Nökkvi Sveinsson 6 13
Þói
GuðmundurBenediktss .17 15
Lárus Orri Sigurðsson... .11 15
ÓlafurPétursson... . 9 15
JúlíusTryggvason.......... . 8 16
Bjami Sveinbjömsson.. . 5 16
Breiðablik
AmarGrétarsson .13 15
RastislavLazorik .12 15
KristóferSigurgeirsson ..10 15
HákonSverrisson 5 16
HajmdinCardaklija 4 4
Stjarnan
Goran Micic 9 13
RagnarGíslason . 9 14
Sigurður Guðmundsson 9 15
LúðvikJónasson 8 14
BaldúrBjarnason 7 14
Markskotin:
I
sérflokki
KR og Akranes hafa átt lang-
flest markskotin í 1. deildinni í
sumar. Kefivikingar eru hins
vegar með bestu nýtinguna á sín-
um markskotúm. Staðan í „Skot-
deildinni" er þannig, fiöldi og
nýting:
KR................204 12,3%
Akranes...........203 14,3%
ÍBV...............163 11,7%
Breiðablik........163 11,0%
Þór...............162 13,6%
Valur.............161 14,3%
Keflavík..........155 19,4%
FH................152 13,2%
Fram..............151 15,9%
Stjaman...........146 11,0%