Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1994, Qupperneq 4
28
MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1994
íþróttir
Köflóttir leikhr
„Miðaö við
styrkleikann
á mótinu er
þaö góð
frammistaða
aö komast í
úrslit. Leik
irnir voru
köílóttir og
það sem ein-
kenndi þá var einstaklingsffam-
takið. Þegar maður fylgist með
sóknarleíknum hjá Svíum og eins
hjá Dönum þá virðist þetta miklu
auðveidara h)á þeim en okkur.
Konráð áttu rispur, Geir var stöð-
ugur og Gústaf lék vel gegn Dön-
um,“ sagði Gunnar Gunnarsson,
þjálfari Víkings og fyrrum lands-
liðsmaður.
„Mér fxnnst jákvættað Þorbergur
er byrjaður að próía aðrar varnar-
aðferðir en 6:0. Það er stírðleiki í
hraðaupphlaupumun, boltinn fær
, ekki að ganga og menn eru aö þvæl-
ast hver fyrir öðrum. Ég held að
þessi hópur, plús þeir sem eru
meiddir, sé sterkasti kjarninn sem
völ er á en ef einhverjir heltast úr
lestinni til viðbótar sé ég menn eins
Siggi Sveins spilaði mjög vel, Dagur
og Patrekur áttu mjög góöa kaila -
þeim á að sýna 100% traust - og
Bergsveinn kom á óvart. Bjarki og
og Sigurð Bjamason og Magnús
Sigurðsson koma sterklega til
greina í hópinn."
Sagteftirleikinn:
Nokkrir leikmenn
þurf a að komast
í betri þjálfun
Þorbergur Aðalsteinsson:
„Við lékum líklega okkar lélegasta
leik á mótinu og það gengur einfald-
lega ekki upp á móti svona liði. Þeir
refsa svo fljótt. Þetta leikur í höndun-
um á þeim. Þeir eru búnir að vera í
úrslitaleikjum á öllum vígstöðvum
og þekkja þetta út og inn. Við fórum
afar illa með góð færi og menn voru
að gera alltof marga feila í sókninni.
Það getur vel verið að menn hafi
verið yfirspenntir. Við ákváðum að
spila með 5:1 vörn til að byrja með
og það gekk ágætlega en í byrjun var
eins og menn misstu sjálfstraustið
þegar dauðafærin voru að klikka
trekk í trekk.
- Hvað fannst þér jákvæðast í þessu
móti?
„Sigurleikurinn gegn Dönum
fannst mér mjög góður og þjálfari
Dana sagði að fyrri hálfleikurinn
hefði verið sá besti sem Danir hefðu
leikið undir hans stjórn. Leikurinn
gegn Spánverjum var líka ágætur.
Menn hafa verið að tala um aö
spánska liðið sé ekki nógu gott en
þetta eru allt atvinnumenn á ferð.
Þó svo að það hafi vantað tvo leik-
menn í þeirra Uö vorum viö án íjög-
urra manna og það hefði getað breytt
heilmiklu að hafa þá því þá hefði
maöur getað skipt meira á mönnum
eins og Svíar gerðu fyrir leikinn gegn
okkur.“
- Frammistaða leikmanna?
„Mér fannst Bergsveinn og Konráð
koma með góöa kafla og Patrekur
átti góða spretti ásamt Sigurði. Þetta
voru ljósu punktarnir. Viö höfum
verið að gera mælingar á hópnum
og það sem háir okkur er að það er
alltof langt bil á milli þeirra sem eru
í góðri æfingu og í lökustu standi.
Það er stórt stökk og það eru nokkr-
ir einstaklingar sem þurfa að komast
í mun betri þjálfun. Ég er mjög
ánægður með þetta mót og vona að
það verði haldið reglulega hér eftir.
Þetta er þaö besta í boltanum í dag
ef Rússar eru undanskildir og ítölum
er sleppt. Næst hittumst við 17. des-
ember og svo verða þrír landsleikir
á milh jóla og nýárs. Síðan verður
Norðurlandamót í byrjun ársins,“
sagði Þorbergur.
Bergsveinn Bergsveinsson:
„Við verðum að viðurkenna að þeir
eru betri en við en ég er óánægðstur
með að við vorum ekkert að berja á
þeim. Staffan Olsson fékk til dæmis
að skjóta á markið án þess að það
væri ýtt viö honum. Það er erfitt að
ráða við menn eins og Wislander og
Magnus Andersson. Þeir hafa báðir
góðar bogfintur, hanga lengi í loftinu
og bíða eftir því að markvörðurinn
hreyfi sig. Ég hef séð sænska liðið
sterkara en það sem þeir hafa um-
fram önnur lið eru þessi frábæru
hraðaupphlaup.
Það er ekki spurning að þetta var
mjög gott æfingamót fyrir HM. Við
erum búnir að sýna það að viö erum
í fremstu röð og eigum nokkra leik-
menn inni. Við þurfum að bæta okk-
ur í sóknarleiknum en varnarleikur-
inn hefur verið í lagi. Ég get ekki
verið annað en sáttur við eigin
frammistöðu á mótinu og tel mig
hafa nýtt tækifærið vel.“
Staffan Olsson:
„íslenska liðið var mjög erfitt viður-
eignar til að byrja með en eftir að
við náðum tveggja marka forystu
vorum við komnir meö tökin á leikn-
um. Eftir að við komumst níu mörk-
um yfir í seinni hálfleiknum slökuð-
um við heldur mikið á og íslenska
liðið náði líka upp mikilli baráttu og
minnkaði muninn,“ sagði Staffan
Olsson, örvhenta stórskyttan í liöi
Svía, við DV eftir sigurinn gegn ís-
landi á laugardagskvöldið.
Svíar lentu aldrei í teljandi vand-
ræðum í mótinu því þeir unnu alla
leiki sína af talsverðu öryggi. Olsson
tók undir það: „Við lentum ekki í
neinum sérstökum vandamálum,
enda erum við með mjög sterkt lið
um þessar mundir."
- Eruð þið ekki með besta lið
heims?
„Það er ekki gott að segja, Rússam-
ir eru líka mjög góöir.
- Stefnir ekki í enn eitt einvígið
milli ykkar og þeirra í heimsmeist-
arakeppninni á íslandi næsta vor?
„Það er erfitt að fullyrða eitthvað
um það því það er enn langur tími
til stefnu. Þetta Reykjavíkurmót er
heldur ekki alveg marktækt því það
vantaöi marga góða leikmenn í flest
liöin. Heimsmeistarakeppnin verður
mikiu erfiðari.“
- Er ekki truflandi að spila hérna
frammi fyrir íslenskum áhorfend-
um?
„Ég er mjög ánægður með aö spila
héma því það er betra að hafa há-
væra áhorfendur og mikla stemn-
ingu heldur en að hafa 100 manns í
húsinu. Þá skiptir ekki máli þótt þeir
klappi og blístri á mann.
- Nú virðist þú vera óvinur númer
eitt í sænska liðinu í augum ís-
lenskra áhorfenda. Hvernig er það?
- Já, ég hef orðið var við það en
það eflir mig bara. Þetta fer alls ekki
í taugarnar á mér, svona er þetta í
öllum deildaleikjum á útivelli og ég
kippi mér ekki upp við það. Þetta er
hluti af leiknum," sagði Staffan Ols-
son.
HvaðfannstHiIi
LHið í gangi
„Mér fannst
frammistaða
íslenska liðs-
ins svona
sæmileg en
ekkimeiraen
það. Liðið var
alls ekki
sannfærandi
og að mínu
mati er það heimavöllurinn sem
fleytir því í úrslitin. Það virkar á
mann eins og það sé lítið í gangi
hvað sóknina varðar. Það er of mik-
ið um einstaklingsframtak og lítið
af markvissum leikkerfum," sagði
Guðríður Guðjónsdóttir, þekktasta
handboltakona landsins.
„Siggi Sveins, Patrekur og Berg-
sveinn voru að mínu mati að leika
best. Dagur var vaxandi og Geir
stendur alltaf fyrir sínu. Bjarki á
meira inni og hann á eftir að koma
til. Leikmaður eins og Einar Gunn-
ar sem stendur sig vel í deildinni
nær sér ekki á strik með landslið-
inu, er óöruggur og ragur. Aðall
liösins er kannski 6:0 vörnin en
hún gekk kannski ekki sem skyldi
gegn Svíum. Það kom hins vegar á
daginn að við eigum enga mögu-
leika gegn Svíum með því að sækja
fram á völlinn. Ég held að þetta sé
sterkasti hópurinn sem við eigum
að viðbættum þeim leikmönnum
sem eru frá vegna meiðsla."
Enn lan
„í sjálfu sér er vel
ásættanlegt að
lenda i úrslitum.
Það var markmíð-
ið sem liðið hafði
númer eitt. Ef
maður fer að
skoða leikina sem
slíka þá eru uppi
ýmsar efasemdir;
sumt má afsaka með ákveðnum skýring-
um, það vantar t.d. cöluvert af leikmönn-
um í liöíð og það er að koma saman eft-
ir langt hlé. Það skýrir vonandi þessa
slæmu kafla i leikjunum," sagði Hilmar
Björnsson, fyrrum þjálfari landsliðsins.
„Það er ljóst að nokkrir leikmenn lið-
ins eru ekíti í nægilega góðri þjálfún í
;0fMM‘í;ss
Sigurður Sveinsson hefur hér lent i klóm sænsku varnarmannanna Ola Lindgren og Pierre Thorsson i úrslitaleik Al
verða yfirburði á mótinu. Á minni myndinni er Sigurður Sveinsson með siifurpeninginn og hann sagði yið Ijósmyndara
4-