Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1994, Síða 5
MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1994
29-
Iþróttir
nariBjörnssyni?
gt í land
dag. Fyrir bragðið koma fram ákveðnir
veikleikar. Þessir leikir eiga fyrst og
fremst aö vera þörf áminning um að þaö
er rosalega langt í land fram að HM. Það
er alveg feikilegt verk sem þarf að vinna,
bæði með einstaklinga og ekki síst liðið.
Hvað verður til dæmis um miðjustöð-
una, á hvern ætlar Þorbergur að veðja?
Eftir þessa leiki er ekki komin lausn á
því. Siggi Sveins er að spila vel, sérstak-
lega framan af. Harnt þolir ekki að spila
Öóra leiki í röð. Það vantar mann á
móti honum. Sóknaiieikurinn er staður,
það er ákaflega lítið um stöðuskipti og
að menn leysi upp. Þeir menn sem eru
fyrir utan vegna meiðsla eiga eftir að
styrkja þetta verulega."
Hvað fannst Jóhanni Inga?
Brestir í sókn
„Það má
segja að
fyrsta áfanga
sé náð með
því að leika
til úrslita en
það er ýmis-
legt sem má
betur fara. i
úrslitaleikn-
um komu fram brestir í sóknar-
leiknum, hann er of hægur og auð-
lesinn og það vantar í hann óvænt
atriði. Menn þurfa hka að vinna
betur saman og vera áræðnari,"
sagði Jóhann Ingi Gunnarsson,
fyrrum landsliðsþjálfari.
„Það var spilað vel inn á línuna
en hornamennirnir voru nánast
farþegar. Við eigum góða homa-
menn og á móti svona 6/0 vörn eins
og hjá Svíum, sem er sterk á miðj-
unni, þarf að nýta hornin betur.
Markvarsla Bergsveins var góð og
vörnin stóð sig vel að mörgu leyti.
Það þarf því að leggja áherslu á
hraðari og fjölbreyttari sóknarleik.
Það er endalaust hægt að gagn-
rýna val á leikmönnum en mér
finnst vanta fleiri útispilara í hóp-
inn, það hefði t.d. mátt nota Sigurð
Bjarnason. Ennfremur hefði þurft
að vera annar hægri hornamaður,
til dæmis Sigurður Sveinsson úr
FH, á móti Bjarka sem náði sér
ekki vel á strik í mótinu."
Engin liðsheild
„Það leynir
sér ekki hvað
er aö. Þetta
er ekki lið,
heldur tíu
einstakling-
ar sem rcyna
lítiö að
hjálpa hver
öðrum. Leik-
ur íslenska liösins í mótinu byggð-
ist að 80-90 prósentum á einstakl-
ingsfræntaki. Þjálfararnir hafa ör-
ugglega tima til að bæta úr þessu
fram að HM og það er í raun þeirra
eina verkefni að hugsa um andlegu
hliöina og samheldnina; leikmenn-
irnir sjálfn eru nógu góðir og í góðu
líkamlegu formi,“ sagöi Gunnlaug-
ur Hjálmarsson, handknattleiks-
dómari og fyrrum heimshðsmaöur.
„Leikaðferðir voru tæplega til
staðar, aðeins grunnhugmyndir, og
þaö sást best á móti Svíunum að
þegar leikiö var viö sterkari ein-
staklinga gekk ekkert upp. Þá var
liðsheildin ekki til, menn gáfust
upp og fórnuöu höndum. Mér
finnst leikmennirnir of fastir í að
hugsa um aö spila fyrir sjálfa sig
en ekki um árangur heildarinnar
en hins vegar eru þetta nokkurn
veginn sterkustu einstaklingarnir
sem við eigum og ég treysti þeim
til aö standa sig. Þetta er aðeins
spuming um tök þjálfaranna."
Svíar unnu léttan sigur og höfðu umtals-
DV-myndir Brynjar Gauti
þjóða Reykjavíkurmótsins í handknattleik i Laugardalshöll á laugardaginn.
„Það voru bara silfurverðlaunin að þessu sinni.“
Alþjóða Reykjavlkurmótið:
Létthjá
Svíum
Guðmundur Hilmarsscm skrifar:
Evrópumeistarar Svía í handknatt-
leik bættu enn einni skrautíjöðrinni
í hatt sinn á laugardaginn þegar þeir
tryggðu sér sigur á Alþjóða Reykja-
víkurmótinu með sigri á íslending-
um, 19-27, í úrslitaleik. Eins og í fyrri
leikjum sínum á mótinu höföu Svíar
yfirburði og sönnuðu svo ekki verður
um villst að þeir hafa á að skipa einu
af bestu landsliðum heims.
Eins og við var að búast áttu leik-
menn íslenska landsliösins við ofur-
efli að etja og Svíagrýlan viröist enn
vera sprelllifandi. Það tók leikmenn
liðanna nokkrar mínútur að finna
réttu leiðina að marki enda sýndu
markverðirnir, þeir Thomas Svens-
son og Bergsveinn Bergsveinsson,
stórkostleg tilþrif og lokuðu mörkum
sínum fyrstu 5 mínúturnar. Eftir
jafnar upphafsmínútur náðu Svíar
góðum tökum á leiknum. íslending-
um gekk illa að finna sér leið fram-
hjá geysisterkri vörn Svía og ef það
tókst þá varði Svensson oftar en ekki
frá íslensku leikmönnunum. Eftir að
Svíar höfðu náð fimm marka for-
skoti í fyrri hálfleik var aldrei spurn-
ing um hvernig leikurinn færi.
Um miðjan síðari hálfleik höfðu
Svíar náð afgerandi forystu, 12-21,
en með ágætum leikkafla náðu ís-
lendingar að rétta sinn hlut og
minnka muninn í fjögur mörk. A
lokakaflanum settu Svíar á fullt og
innbyrtu öruggan 7 marka sigur.
Slakasti leikur íslands
íslenska liðið náði sér aldrei á strik
í leiknum og lék sinn slakasta leik á
mótinu. Strákarnir báru alltof mikla
virðingu fyrir sænsku snillingunum
og það kann aldrei góðri lukku aö
stýra. Sóknarleikurinn var slakur og
alltof fáir menn þorðu að taka af
skarið. Geir Sveinsson nýtti færi sín
vel á línunni og Bjarki Sigurðsson
átti góða kafla. Bergsveinn Berg-
sveinsson stóð upp úr í liðinu, varði
íslenska markið vel eins og hann
gerði reyndar allt mótið.
Svíar voru í allt öðrum gæðaílokki
en önnur lið á mótinu. Varnarleikur-
inn og markvarslan frábær, hraða-
upphlaupin eins og þau gerast best
og sóknarleikurinn fjölbreyttur og
árangsríkur. Thomas Svensson varði
frábærlega í markinu og þeir Erik
Hajas og Staffan Olsson léku ís-
lensku vörmna grátt.
Sóknin höfuðverkur
Alþjóða Reykjavíkurmótið var kær-
komin og lærdómsrík æfing fyrir ís-
lenska liðið. Þrír sigrar og eitt tap á
jafnsterku móti er ágætisárangur.
Mikið verk er þó framundan fyrir
landsliðsþjálfara ef takast á að gera
gott liö fyrir HM. Jákvæðu þættirnir
eru markvarsla Bergsveins og ágæt-
ur varnarleikur en eins og fyrirfram
var vitað er sóknarleikurinn höfuð-
verkur. Liðið á þó nokkur tromp
uppi í erminni og þar er átt við Héð-
in Gilsson, Ólaf Stefánsson og Valdi-
mar Grímsson. Þessir leikmenn eiga
eftir að styrkja liðið til muna þegar
þeir hafa jafnað sig af meiðslum.
Frammistaða leikmanna
Áður er minnst á frammistöðu Berg-
sveins á mótinu en Sigurður Sveins-
son og Patrekur Jóhannesson voru
þeir útileikmenn sem léku einna
best. Geir Sveinsson náði sér á strik
í tveimur síðustu leikjunum og Kon-
ráð Olavsson er í uppsveiflu. Bjarki
Sigurðsson og Gústaf Bjarnason áttu
ágæta spretti og sömuleiðis Dagur
Sigurðsson. Júlíus Jónasson lék
vörnina vel en Jón Kristjánsson og
Einar G. Sigurðsson náðu sér hins
vegar ekki á strik, voru báðir ragir
og óöruggir.
ísland - Svíþjóð (8-13) 19-27
1-0, 2-4, 4-0, 5-10, 6-12, (8-13), 10-16, 12-21, 15-21, 19-23, 19-27.
• Mörk íslands: Sigurður Svelnsson 5/3, B|arki Sigurðsson 4, Gelr Sveinsson 4, Patrek-
ur Jóhannesson 3, Konráð Olavsson 2, Dagur Sigurðsson 1.
Varin skoi: Bergsveinn Ð. 15, Guömundur H. 1/1.
• Mörk Svíþjöðar: Erik Hajas 9/3, SlaRan Otsson 6, Magnus Wíslander 5, Magnus
Andersson 2, Thomas Sivertsson 2, Johan Petterssen 1, Stefan Lövgren 1, Plerre
Thorsson 1.
Varin skot: Thomas Svensson 17.
Brottvisanir: tsland 8 minútur, Sviþjóö 6 minútur.
Dómarar Sven Olav Öie og Björn Högsnes Irá Noregi.
Áhorlendur: Um 3000.
Maður leiksins: Thomas Svensson, Svíþjóð.