Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1994, Qupperneq 8
32
MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1994
Iþróttir
Mál Guðna Bergssonar enn í biðstöðu:
Tottenham haf naði
tilboði frá Palace
- leitað aðstoðar hjá samtökum atvinnumanna
Enska úrvalsdeildarliðiö Tott-
enham, gamla liðið hans Guðna
Bergssonar, fyrirliða íslenska
landshðsins í knattspyrnu, hafn-
aði um helgina tilboði frá Crystal
Palace en eins og kunnugt er vill
félagið fá Guðna tii Uðs við sig.
„MáUð er því í biðstöðu en von-
andi verður hægt að liðka fyrir
málunum því það hlýtur að vera
betra fyrir Tottenham að fá ein-
hverja peninga fyrir mig en enga.
Ég ætla aö vona að þetta komi
heim og saman á næstu einni eða
tveimur vikum,“ sagði Guðni við
DV í gær.
„Það ber nú eitthvað á milU, að
minnsta kosti hafnaði Tottenham
þessu fyrsta tUboði og hefur ekki
komið með gagntilboð. Hugmynd-
in er að fá samtök atvinnuknatt-
spyrnumanna í Englandi til hjálp-
ar og ákveðinn umboðsmann úti
tU að Uðka fyrir málum því þetta
er ósanngjarnt gagnvart mér þar
sem Tottenham er ekki með mig
á launaskrá.
Eins og DV skýrði frá á dögun-
um þá hermdu heimildir blaðsins
að sænsku úrvalsdeildarliðin
Helsingborg og Örebro hefðu bor-
ið víurnar í Guðna og í samtali
við DV sagði Guðni í gær: „Það
er ýmislegt annað í deiglunni."
Ragnar til
Grindavíkur?
Eins og komið hefur fram í DV
treysta Keflvíkingar sér ekki tU að
standa við seinni hluta samningsins
við Ragnar Margeirsson, sóknar-
mannin snjaUa sem lék stórt hlut-
verk með liðinu í sumar. Ragnar er
að hugsa sér til hreyfings og í sam-
tali við DV í gær sagði hann að hann
væri ekki búinn að gera upp hug sinn
en myndi gera það í vikunni.
Samkvæmt heimildum DV hafa
nýhðar Grindvíkinga mikinn áhuga
á að fá Ragnar í sínar raðir en þeir
eru einmitt að leita að sóknarmanni
í lið sitt. Eftir því sem DV kemst
næst hafa forráðamenn Grindavíkur
rætt við Ragnar.
Júlíus úr leik
fram í janúar
- fmgurbrotnaöi gegn Spánverjum
Júlíus Jónasson, landsUðsmaður í
handknattleik, fingurbrotnaði í
leiknum gegn Spánverjum á föstu-
dagskvöldið. Þumalfmgur hægri
handar brotnaði er hann fékk högg
þegar hann skaut að marki og ljóst
er að Júlíus spUar ekki á ný með
landsliðinu eða Gummersbach fyrr
en eftir áramótin.
„Eg verð í gifsi í 6-8 vikur þannig
að ég er úr leik fram í janúar. Þetta
kemur á versta tíma, þýska deildin
er leikin mjög þétt og ég missi því
mikið úr. Þeir verða ekki hressir hjá
Gummersbach þegar ég kem þangað
aftur og sýni þeim höndina," sagöi
JúUus við DV.
Eyjólfur Sverrisson skorar áfram fyrir Besikfas og er með markahæstu
mönnum i Tyrklandi.
Sjötta mark Eyjólfs
- skoraði af 30 metra færi í gærkvöld
Eyjólfur Sverrisson skoraði glæsUegt mark fyrir Besiktas í gærkvöld
þegar liðiö sigraði Kayserispor, 4-1, á heimaveUi í tyrknesku 1. deUdinni
í knattspyrnu. Hann skaut af 30 metra færi og boltinn hafnaði í marki
gestanna, óveijandi fyrir markvörðinn. Þetta var sjötta mark Eyjólfs í
11 leikjum á tímabUinu og hann er í hópi markahæstu leUcmanna deildar-
innar. Besiktas er efst sem fyrr og er komið með 28 stig að loknum 12
umferðum.
Sullen er farinn
Fækkun hjá konunum? - og ÍA leitar að nýjum útlendingi
TUlaga um að fækka liðum í 1.
deild kvenna í knattspymu úr átta í
sex verður lögð fyrir ársþing KSÍ sem
haldið verður á Akranesi í byrjun
desember. Jafnframt verði tekin upp
úrslitakeppni fjögurra efstu Uðanna
um íslandsmeistaratitiUnn.
Þá er lagt tU að tvö neðstu Uð 1.
deUdar og tvö efstu Uð 2. deUdar fari
í sérstaka úrsUtakeppni um tvö sæti
í 1. deUd. Sigurvegarar 2. deUdar
færu þá í hana með þrjú stig, næst-
neðsta lið 1. deUdar með 2 stig, lið
númer tvö í 2. deUd með eitt stig en
botnUð 1. deildar ekkert.
Garðar Guöjónsson, DV, Akranesi:
„Það varö að samkomulagi milU
okkar og Anthony SuUen að hann
færi frá félaginu og það má segja að
þetta hafi gerst að beggja ósk," sagði
Ólafur Óskarsson, formaður Körfu-
knattleiksfélags ÍA, í samtali við DV.
Bandaríkjamaðurinn Anthony
SuUen lék sinn síðasta leik með IA í
úrvalsdeUdinm þegar Skagamenn
töpuðu fyrir ÍR, 108-65, á fimmtu-
dagskvöldið. Hann er þegar farinn
tíl síns heima. Ólafur segir að ÍA
muni nota tímann fram að næsta
leik, sem er gegn Haukum í Hafnar-
firði á sunnudagskvöldið, tU að finna
nýjan Bandaríkjamann í liðið.
hiofnp á HM CÍMPIIH CÍMNlAll
- brenn anllverðlaun íslands á HM fatlaðra í sundi
íslenska sundfólkið á heims- öðrus, meistaramóti fatlaðra 1 sundi á mínúti æti í 200 m fjórsundi á 2:33,71 100 m flugsund á 1:38,27 mln., sem Þá setti Hilmar Gunnarsson nýtt mi. er nýtt íslandsmet, og 100 m bak- íslandsmet í flokki þroskaheftra í
Möltu hélt áfram að sópa að sér Sigri m Huld Hrafhsdóttir vann sund á 1:31,50 min. 50 m baksundi þegar hann varð í
verðlaunum í gær. gullvei 'ðlaun í 100 m skríðsundi Birkir Rúnar Gunnarsson varð 5.sætiá36,72sekúndumogGunnar
Ólafur EirUcsson vann til ti’eggja þroska guUverðlauna í flokki fatlaðra. 1:13,06 heftra á nýju íslandsmeti, annar í 200 m fjórsundi á nvju ís- Þ. Gunnarsson setti einnig íslands- mínútum, og hún varð í 3. landsmeti, 2:42,23 mínútum, og met í 50 metra flugsundi þroska-
átímanum 10:5,28 mínútumogí 100 um. m skriðsundi þar sem hann synti Krist á 1:02,30 mínútum. Þá varð hann í tveggj; sæti í 50 m flugsundi kvenna í úrshtum með því að synda á 32,10 fn R. Hákonardóttir varrn til flokki þroskaheftra á 39,94 sekúnd- sekúndum. t bronsverðlauna. Hún synti um.
DV
Ágústtii Sviss
eftiráramót?
Ágúst Gylfason, knattspyrnu-
maður úr Val, bíður eftir því
hvernig Solothum gengur í fyrri
hluta svissnesku 2. deUdar
keppninnar en hann lék meö Uð-
inu í fyrravetur þegar það vann
sig upp úr 3. deild.
„Þeir ætla aðfá mig ef þeir kom-
ast i úrshtakeppnina um sæti í
1. deild en þaö skýrist fyrir ára-
rnótin," sagði Ágúst við DV í gær-
kvöldi.
Um þær sögusagnir að hann
væri á leið i KR sagði Ágúst: „Það
er algiört rugl, einhver hefur búið
þá sögu tU.“
HlynurtilFH
fráHaukum
Hlynur Eiríksson, sóknarmað-
ur úr Haukum, er genginn til Uðs
við FH-inga á ný eftir eins og
hálfs árs fjarveru. Hlynur hefur
leikið 27 leiki með FH í 1. deUd-
inni i knattspyrnu og skorað í
þeim þrjú mörk og hann varð
markahæsti leikmaður Hauka í
3. deUdmni í sumar.
Jónafturí
raðirFH
Jón Sveinsson, varnar- og
miðjumaöur, er kominn aftur til
FH-inga og mun leika með Uðinu
á næsta keppnistímabili. Jón lék
fyrstu leiki FH á íslandsmótinu í
sumar en í júni hélt hann af landi
brott til Mexíkó þar sem hann lék
innanhússknattspymu með
mexikósku félagsliði.
Benediktfram
gegn Lúðvík
Það stefnir í harðan slag um
formannssætið í sljórn knatt-
spyrndeUdar KR. Benedikt Jóns-
son, varaformaður KR, ætlar að
bjóða sig fram gegn sitjandi for-
manni, Lúðvík Georgssyni, á að-
alfundi knattspyrnudeUdarinnar
sem haldin verður 15. nóvember.
SteinarAdolfs
til KR-inga
Steinar Adolfsson, miðjumað-
urinn öflugi úr Val, er genginn
til liðs við KR-inga og hefur gert
við þá eins árs samning. Steinar
er 24 ára gamaU og var um skeið
fyrirUði Valsmanna. Hann hefur
leikið 102 leiki með þeím í 1. deUd
og á að baki einn A-landsleúc, og
samtals.39 leiki með landsliöum
í öllum aldursflokkum.
Heldtil Japans
Harmes A. Jónsson, DV, Japan:
Japanska knattspymufélagiö
Gamba Osaka Ulkynnti á dögun-
um ráöningu nýs þjálfara. Frá og
með næsta keppnistímabUi, sem
hefst vorið 1995, mun Þjóðverjinn
Sigfried Held verða við stjórnvöl-
Um hjá Gamba, sem í augnablik-
inu berst fyrir áframhaldandi til-
verurétti í japönsku úrvalsdeUd-
inni.
Eins og íslenskir knattspymuá-
hugamenn muna var Held þjálf-
ari íslenska landshðsms um
nokkurra ára skeið, frá 1986 til
1989.
í fréttatilkynningu frá Gamba,
sem birtist í öllum helstu dag-
blöðum Japans um helgina,
greinir frá „glæstum" árangri
Helds meö Schalke og Dynamo
Dresden í Þýskalandi, Galatas-
aray I Tyrklandi og meö íslenska
landsUðið, en þó er ekkert faríð
nánar út í það í hverju þessi afrek
hans séu fólgin.