Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1994, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1994, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1994 45 Bókatíðindi iMM Bókaútgáfa fyrir þessi jól er afar blómleg, mun blómlegri en margir þorðu að vona eftir álög- ur virðisaukaskatts og erfið- leika margra forlaga. 420 bækur í lOflokkum í þessu bókablaði eru ríflega 420 bækur af ýmsu tagi kynntar og kennir þar ýmissa grasa. Bókunum er skipt í tíu flokka til hægðarauka fyrir lesendur: íslenskar skáldsögur, þýddar skáldsögur, íslenskar barna- og unglingabækur, þýddar barna- og unglingabækur, ljóðabækur, viðtals- og æviminningabækur, almennar fræðibækur, bækur um mat og heilsurækt, hesta- og íþróttabækur og loks eru bækur í flokknum önnur rit. Fjörutíu íslenskar skáldsögur Það vekur strax athygli að ís- lenska skáldsagan stendur vel að vígi. Ekki aðeins eru mörg af helstu skáldum þjóðarinnar með bækur fyrir jólin heldur eru íslenskar skáldsögur í bókablaðinu mun fleiri en í fyrra. Þá voru kynntar 28 ís- lenskrar skáldsögur í bókablað- inu en nú eru þær ríflega fiöru- tíu. Æviminninga- og við- talsbækur, íslenskar og erlend- - ar, eru einnig mun fleiri en í fyrra, 40 á móti 26. Fjöldi ann- cirra bókaer svipaður þó ljóðabækur séu færri en í fyrra. Mest fiölgun bóka er í flokknum önnur rit en þar er að finna handbækur, bækur um þjóðleg- an fróðleik, ættfræðirit og fleiri bækur. Samtals eru bækumar í þessu blaöi um 420. Það eru mun fleiri bækur en kynntar voru í íslenskum bókatíðindum sem komu út um miðjan nóv- ember. Kemur ýmislegt til. Margir forleggjarar eru seint á ferð með sínar bækur og eru því ekki með í bókatíðindum. Þá eru margir rithöfundar sem gefa bækur sínar út sjálfir, sér- staklega ljóðahöfundar, og eru þá með í bókablaði DV. Leiðbeinandi verð Á eftir hverri kynningu er blaðsíðufiöldi bókanna tiltek- inn, útgefandi þeirra og loks verð. Verðið í bókablaði okkar er leiðbeinandi sem þýðir verð án allra afslátta eða tilboða: verð sem fengið erhjá útgef- anda. Mikil samkeppni En það hefur varla farið fram hjá neinum að mikil samkeppni er á bókamarkaðnum þar sem aðilar eins og Bónus og Hag- kaup hafa boðið verulegan af- slátt, Bónus 15 og síðan 30 pró- sent um síðustu helgi, og Hag- kaup 25 prósent afslátt. Til að finna hvaða verð er hjá fyrr- nefndum aðilum þurfa lesend- ur ekki annað en reikna afslátt- inn af því leiðbeinandi verði sem fram kemur í þessu blaði. í þessu sambandi ber að geta þess að bókabúð í Árbæ býður kjöt á tilboðsverði séu bækur keyptar í versluninni. Eigand- inn segist þannig vera að mæta tilboðum stórmarkaðanna. Bókamarkaðurinn er því meö fiörlegra móti og víst að þeir sem ætla aö kaupa bækur fyrir jólin geta fengið þær á mjög góðumkjörum. <

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.