Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1995, Síða 18
18
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1995
Dagur í lífl Jakobs H. Magnússonar, formanns Klúbbs matreiðslumeistara:
Fylgst með sveinsprófum
Jakob H. Magnússon var viðstaddur sveinspróf nemanna í Hótel- og veitingaskóla íslands i vikunni. DV-mynd Brynjar Gauti Sveinsson
Ég vaknaði meö fyrra fallinu eða
um klukkan sjö. Þessa fyrstu daga í
janúar er alltaf mikið að snúast. Ég
kíkti í Moggann en rann fljótt yfir.
Ég var kominn niður á veitingahúsið
Hom um hálfátta og fór yfir nokkur
verkefni áður en ég dreif mig upp í
Hótel- og veitingaskóla íslands.
Sveinspróf í matreiðslu og fram-
reiðslu standa yfir og sem fulltrúi
Sambands veitinga- og gistihúsaeig-
enda í sveinsprófanefnd þurfti ég að
sinna ákveðnum störfum þar.
Það er bæöi gaman og lærdómsríkt
að taka þátt í því verki og ekki síður
aö hitta góöa félaga. Upp úr klukkan
tíu fór að hægjast um í skólanum og
þá skrapp ég aftur niður á Horn til
að undirbúa daginn þar meö starfs-
fólkinu.
Þá þurfti ég að hringja nokkur
símtöl varöandi hátíðarkvöldverð
Klúbbs matreiðslumanna sem verö-
ur haldinn 6. janúar eða á þrettánd-
anum í Skíöaskálanum í Hveradöl-
um. Þetta er í sjötta sinn sem Klúbb-
urinn heldur svona galakvöldverö
og eru um hundrað gestir. Milli tutt-
ugu og þrjátíu kokkar og fimmtán
þjónar sjá um aö elda og bera fram
tíu rétta kvöldverð ásamt jafnmörg-
um vínum.
Mikill undirbúningur
Hilmar B. Jónsson matreiðslu-
meistari heimsótti mig á Homið og
fékk sér kaffibolla meðan við rædd-
um væntanlegan kvöldverö. Það er
mjög gaman að taka þátt í þessu
verkefni en undirbúningurinn hefur
staðið í nokkra mánuöi.
Áður en ég hélt aftur upp í Hótel-
og veitingaskóla fékk ég mér pitsu
en þá var klukkan að veröa tvö. Ég
fylgdist með nemendum sem voru
aö undirbúa sig fyrir lokatörnina
næsta dag. Einnig þurfti ég að fara á
nokkur hótel og veitingahús í borg-
inni þar sem nemarnir hafa verið að
æfa sig.
Ég var farinn að hlakka til að fara
heim um sexleytið. Var farinn að
sakna Vallýjar, eiginkonu minnar
(Valgerðar Jóhannsdóttur), og
krakkanna, Jakobs Reynis, sem er
13 ára, og Ólafar, sem er 11 ára.
Krakkarnir áttu að byrja í skólanum
daginn eftir og gott jólafrí því að baki.
Hann er í Hagaskóla en hún í Mela-
skóla.
Síminn hringdi og enn var það vegna gala-
kvöldverðarins. Síðan var það kvöldmatur,
fiskur, í faðmi fjölskyldunnar og smávegis
sjónvarpsgláp.
Nóg aö gera
Um hálftólfleytið fór ég aftur niður
á Horn til að ganga frá og gera upp.
Það var búið að vera nóg að gera og
ég er stoltur af starfsfólki mínu sem
passar vel upp á að allt sé í lagi.
Þegar ég kom heim um hálfeitt
voru gestir í heimsókn. "Þeir voru
með góðar fréttir af elsta syni mín-
um, Hlyni, sem er við tónlistarnám
í Los Angeles.
Ég var kominn í háttinn um hálftvö
og gjóaöi aðeins augum á bókina á
náttboröinu, Sule, eftir bandaríska
höfundinn Toni Morrison, en lestur
verður að bíða betri tíma.
Finnur þú finnn breytingar? 291
Eg fékk ekki börnin með hingað i dag, elskan. Þau vildu heldur
fara í dýragarðinn.
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrir tvö hundruð áttugustu og
níundu getraun reyndust vera:
1. Steinunn M. Sigurðardóttir, 2. Sigrún Helgadóttir,
Kambahrauni 4, Torfufelli 44,
810 Hveragerði. 111 Reykjavík.
Myndirnar tvær virðast við íyrstu sýn
eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós
að á myndinni til hægri hefur fimm atrið-
um veriö breytt. Finnir þú þessi fimm at-
riði skaltu merkja við þau með krossi á
myndinni til hægri og senda okkur hana
ásamt nafhi þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum liðnum birtum við nöfn
sigurvegaranna.
1. verðlaun:
Grundig útvarpsklukka að verðmæti 4.860
krónur frá Sjónvarpsmiðstöðinni hf.
2. verðlaun:
Fimm Örvalsbækur. Bækumar sem eru í
verðlaun heita: Þú ert spæjarinn, Síminn,
Á ystu nöf, í helgreipum haturs og Lygi
þagnarinnar. Bækurnar eru gefnar út af
Frjálsri íjölmiölun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú Ðmm breytingar? 291
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík