Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1995, Side 20
20
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1995
Kvikmyndir
Godzilla-jap-
anska risaeðlan
Homa-
bolta-
hetja á
hvíta
tjaldinu
Ein þeirra mynda sem voru
frumsýndar nú fýrir jólin vestan-
hafs var Cobb. Hún Qallar um líf
eins besta homaboltaleikmanns
Bandaríkjanna, Tyms Raymond
Cobb. Hann gekk undir gælu-
nafninu „Goergia Peach“ og lék
í ein 24 ár með Detriot Tigers og
Philadelphia Athletics og sló flest
met sem hægt er slá í þessum leik.
Þótt hann hafi orðið þjóösagna-
persóna var hann einnig um-
deildur, ekki síst Utan vallar.
Hann var sjálfselskur og eigin-
gjarn og oft viðskotáillur. Það
voru einmitt þessir síðasttöldu
eigirúeikar sem reyndust áhuga-
veröastir við gerð kvikmyndar
um líf Tyrus Raymond Cobbs.
Endursögn
Myndin hefst á því að íþrótta-
fréttaritarinn A1 Stump er feng-
inn til að skrifa ævisögu Ty
Cobbs. Hann er orðirm aldraður
og heilsunni farið að liraka og
ætlunin er að skrá lífshlaupþessa
merka íþróttmanns áður en það
er um seinan. Þegar Stump kem-
ur á landareign Cobbs tekur hann
á móti honum vopnaður byssu,
sem er ágætis inngangur þess
sem síðar gerist í myndinni. Cobb
íjallar sem sagt minna um horna-
bolta heldur en álíka myndir um
sama efni, eins og Bull Durham;
leikstjórinn og handritshöfund-
urinn hafa þess í stað einbeitt sér
að persónusköpun Cobbs. Þetta
gerir söguþráðinn stundum rugl-
ingslegan en það sem heldur
myndinni uppi og nær athygli
áhorfendanna er stórkostlegur
leikur Tommy Lee Jones sem
leikur Cobb. Tommy Lee Jones
virðist hafa eílst við hverja raun
eins og myndirnar The Fugitive,
The Client og nú síöast Natural
Born Rillers sýna.
Cobb hefur fengið mjög mis-
jafna dóma hjá gagnrýnendum.
Þetta er ekki óalgengt um myndir
sem fjalla um íþróttir eins og
hornabolta því efni þeirra höfðar
mjög mismunandi til fólks. Hins
vegar mun þessi mynd bæta Cobb
í þann hóp íþróttamanna sem
hafa orðið þess heiðurs aðnjót-
andi að fá lífshlaup sitt fest á
filmu.
í fyrra var haldiö upp á dálítið sér-
kennilegt afmæli í Japan. Þá voru
liðin 40 ár frá frumsýningu japönsku
kvikmyndarinnar Gojira sem var
upphafiö að ferli risaeðlunnar Godz-
illa, eins og hún hefur verið kölluð í
hinum enskumælandi heimi. Raunar
er japanska nafnið Gojira samsett
úr japönsku orðunum yfir górillu og
hval. Godzilla hefur á þessum fjórum
áratugum notið mikilla vinsælda í
Japan og í tilefni afmælisins var
frumsýnd 21. Godzilla-myndin sem
ber heitið Gojira Tai Supeesugojira.
Myndin var frumsýnd í 240 kvik-
myndahúsum.
Frægð Godzilla hefur einnig borist
út fyrir landsteinana og svo virðist
sem gömlu myndirnar séu famar að
skjóta upp kollinum í hillum á mynd-
bandaleigum, bæði í Evrópu og vest-
anhafs. Ahugasamir íslenskir Godz-
Ula-aðdáendur geta meira að segja
fundið Godzilla-myndir á nokkrum
myndbandaleigum.
Unnið að gerð Godzilla-myndar.
Godzilla berst við risaeðlu utan ur
geimnum.
Vangaveltur
um vinsældir
Það er erfitt að átta sig á því hvort
vinsældir Jurassic Park, sem fjallaði
einnig um risaeðlur, hafl endurvakið
áhugann á GodzUla. Þessi japanska
risaeðla tapaði vinsældastríðinu á
sínum tíma við King Kong en mun
líklega reynast miklu langlífari þeg-
ar allt kemur til alls. Það er einnig
búið að ákveða að í ár verði næsta
GodzUla-myndin gerð í Hollywood og
er áætluð frumsýning á árinu 1996.
Godzilla hefur því haldið innreið sína
af fullum krafti í hinn vestræna
heim.
Fyrsta myndin um Godzilla var
gerð 1954 og er í dag ein vinsælasta
myndin sem hefur verið gerð í Jap-
an. Það hafa margir velt fyrir sér
hvers vegna risaeðlan Godzilla varð
svona vinsæl meðal japönsku þjóðar-
innar. Myndin fjallaði um afleiðingar
kjarnorkusprenginga og geislunar
sem þeim fylgdi og var því málefnið
mjög tengt minningum japönsku
þjóðarinnar um þann atburö þegar
Bandaríkjamenn vörpuðu kjarn-
orkusprengjunum á Hiroshima og
Nagasaki.
Sannsögulegtefni
Hugmyndin aö handritinu kom úr
fréttum í japönskum blöðum árið
1954 þess efnis að japanskur sjómað-
ur hefði látist úr krabbameini. Bát-
urinn hans hafði lent í geislavirku
úrfelh eftir tilraunir Bandaríkja-
manna með vetnissprengjur á Bik-
ini-kóralrifinu i Suöur-Kyrrahafinu.
Það var taliö næsta öruggt að hann
hefði orðið fyrir allt of mikilli geislun
sem hefði síðan leitt hann til dauða.
Þessi atburður kom af stað miklum
mótmælum gegn kjamorkutilraun-
um í Japan. Það má þvi segja að efn-
ið hafi hitt beint í mark hjá japönsk-
um almenningi.
Það vom því þessar tilraunir
Bandaríkjamanna með vetnis-
sprengjuna á Bikini sem vöktu Godz-
illa aftur til lífsins. Hann kunni því
illa að vera traflaöur af aldalöngum
svefni og réðst því á Tokyoborg. Eft-
ir mikla bardaga endaði Godzilla síð-
an líf sitt í Tokyo-flóanum ásamt ein-
eygða vísindamanninum sem fann
ráðið til að knésétja Godzilla og
bjarga þannig borgarbúum frá þess-
ari kolóðu risaeðlu.
Stórkostlegar
tæknibrellur
Eins og lesa má á milli línanna
byggði Godzilla mikið upp á tækni-
brellum. Þaö var lagt miklu meira í
þessa mynd en gengur og gerist um
álíka myndir frá þessum tíma. Fram-
leiðslukostnaður var talinn þrefald-
ur miðað við venjulega japanska
mynd og það tók eina fjóra mánuði
að gera myndina. Shimura Takashi
var fenginn til að leika eitt aðalhlut-
verkið. Hann var virtur leikari og til
gamans má geta þess aö á sama tíma
og Godzilla var frumsýnd var einnig
frumsýnd önnur mynd með Takashi,
en það var hin fræga Kurosawa-
mynd, The Seven Samuari. Þegar
upp var staðið höfðu 9,6 milljónir
Japana séð myndina sem telst nokk-
uð gott. Myndin hlaut þó blendnar
móttökur hjá gagnrýnendum sem
fannst efnið ódýrt og lítið listrænt.
En í könnun japanskra kvikmynda-
tímaritisins Kinema Junpo fyrir
nokkrum árum meðal japanskra
gagnrýnenda á hvaða myndir þeir
teldu bestar frá upphafi kvikmynda-
gerðar, lenti Gojira í einu af 20 efstu
sætunum.
Bækur og fræðimenn
Það hafa líka verið skrifaðar marg-
ar bækur um Godzilla þar sem höf-
undar hafa reynt að útskýra vin-
sældir risaeðlunnar og tengja þær
Umsjón
Baldur Hjaltason
m.a. við hersetu Bandaríkjamanna í
Japan. Japanir hafa oft htið á sig sem
fórnarlömb utanaðkomandi afla,
hvort sem um er að ræða innrásar-
her, jarðskjálfta eða hvirfilvinda. Því
er það ríkt í Japönum að þeir veröi
að reiða sig á sinn eigin mátt og
megin eins og endurspeglast í því að
helstu hetjur í Godziha-myndunum
eru þjóðvarðhðar.
Aðrir höfundar sjá Godziha sem
fulltrúa falhnna hermanna sem lét-
ust á Suður-Kyrrahafssvæöinu í
seinni heimsstyrjöldinni. Þá er oft
vitnað í atriði í myndinni þegar
Godziha er búinn að leggja í rúst
Ginza-hverfið í Tokyo og þinghúsið
og stendur fyrir framan keisarahöh-
ina. Þar stoppar Godzhla, snýr th
hægri og arkar út í sjóinn með sárs-
aukafullt yfirbragð á andlitinu. Það
hafa því auðsýnilega skapast heil-
mikil fræði um Godzilla þar sem
menntamenn deila um stefnur og
túlkun á atferli Godzilla.
Framhald
í næstu mynd
Aðstandendur Godziha' geröu sér
upphaflega enga grein fyrir því að
myndin gæti orðið svona vinsæl. Til
að kynna myndina var þó búin til
útvarpsþáttaröðin Kaiju Gojira sem
var útvarpað vikulega í tvo mánuði
fram að frumsýningu myndarinnar.
Það voru engar hugmyndir um fram-
haldsmyndir eða að tengja persónu
Godzilla við leikföng, sælgæti og aðr-
ar vörur eins og nú tíðkast með sögu-
hetjur kvikmyndanna. En lokaatriði
myndarinnar reyndist gefa þeim
möguleika á aö vekja Godzilla aftur
til lífsins. Þar segir aö „ef þessar til-
raunir með kjarnorkusprengjur
halda áfram, getum við búist við því
aö ófreskjur eins og Godzilla geti
skotið upp kollinum hvar sem er í
heiminum." En framleiðendur
myndarinnar, Toho-kvikmyndaver-
ið, var ekki lengi að nýta sér vinsæld-
ir Godzhla. Árið 1955 kom fram á
sjónarsviðið Gojiro no Gyakushu. En
síöan tók Godzilla sér frí í ein sex
ár. Toho notaði tímann vel og þróaði
margar nýjar persónur sem síðan
litu dagsins ljós í Kingu Kongu tai
Gojira eða King Kong gegn Godziha.
Hugmyndin var að endurspegla tog-
streituna milli Japans og Bandaríkj-
anna þar sem King Kong var fulltrúi
Bandaríkjanna en Godzilla fulltrúi
Japans. En aðalbreytingin var þó sú
að myndin var látin höfða meira til
barna en áður og virkaði því of ein-
fóld fyrir marga hinna fullorðnu sem
höfðu hrifist af fyrstu myndinni um
Godziha. En í þeim 18 myndum sem
gerðar hafa verið um Godziha til við-
bótar, hefur þessi risaeðla orðið að
aðlaga sig viðhorfi þjóðfélagsins
hverju sinni og virkar því að
ákveðnu marki sem söguspegill.
Godzillaábanda-
rískri grundu
Þess má geta að bandarískir kvik-
myndaframleiðendur sýndu Godzilla
einnig mikinn áhuga strax í upphafi.
Columbia-kvikmyndaverið keypti
sýningarréttinn vestanhafs fyrir
upphaflegu myndina á sínum tíma,
stytti hana um 20 mínútur og bætti
viö efni þar sem bandaríski leikarinn
Raymond Burr var látinn leika
fréttamann staðsettan í Tokyo.
Myndin var síðan frumsýnd vestan-
hafs 1956 undir nafninu Godzilla,
King of Monsters. Þessi sami leikur
var síðan endurtekin 1985. Japanir
reyndu einnig að aölaga Godzilla
sjálfir bandarísku þjóðfélagi. Þeir
fengu Nick Adams áriö 1964 til að
leika í einni myndinni en hknn hafði
árið áður verið tilnefndur til óskars-
verðlauna sem besti karlleikari í
aukahlutverki. Hvorug þessara
mynda sló í gegn en eftir að Sony
keypti Columba-kvikmyndaverið
fyrir nokkrum árum er ætlunin að
reyna einu sinni enn að kynna Godz-
hla bandarískum áhorfendum. Þeir
Ted Ehiott og Terry Rossio skrifa
handritið en þeir eru einna þekktast-
ir fyrir handritið að Walt Disney-
myndinni Aladdin. Myndin mun
verða stútfull af tæknibrellum en
halda þó upphafsímynd sinni sem
ádeila á notkun kjarnorkuvopna.
Það er einnig búið að ráða leikstjóra
en það er Jan De Bont. Það er því
kominn tími til að Bandaríkjamenn
fái aö kynnast betur risaeðlunni
Godzhla.