Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1995, Page 46
50
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1995
Afmæli
Guðrún Marteinsdóttir
Guðrún Marteinsdóttir fiskvist-
fræðingur, Tómasarhaga 11,
Reykjavík, verður fertug á morgun.
Starfsferill
Guðrún fæddist í Reykjavík en
ólst upp á Selfossi. Hún lauk stúd-
entsprófi frá ML1975, lauk BS-prófi
í líffræðiskor við Verk- og raunvís-
indadeild HÍ1979, MS-prófi í líffræði
frá Rutgers University í Bandaríkj-
unum 1984 og doktorsprófi frá sama
skóla 1991.
Guðrún var aðstoðarmaður við
rannsóknir við Lífræðistofnun HÍ
sumrin 1978-79, var í rannsóknar-
mannsstöðu við Rutgers University
1983-86, við líffræðistofnun sama
skóla og aðstoðarritstjóri við vís-
indaritið Evolution 1987-88.
Hún var sérfræðingur hjá Haf-
rannsóknastofnun 1989, sérfræðing-
ur hjá Veiðimálastofnun og Haf-
rannsóknastofnun 1990 og er sér-
fræðingur hjá Hafrannsóknastofn-
unfrál991.
Við rannsóknir sínar hefur Guð-
rún þegið fjölda styrkja á vegum
sjóða við Rutgers University og ann-
arra bandarískra vísindasjóða, frá
NATO Science Fellowship, Vísinda-
sjóði íslands og Rannsóknarráði
ríkisins.
Hún hefur samið fjölda rita um
sjávarlíffræði og eiginleika fisk-
stofna.
Fjölskylda
Eiginmaður Guðrúnar er Krist-
berg Kristbergsson, f. 3.3.1952, dós-
ent í matvælafræði við HÍ. Hann er
sonur Kristbergs Guðjónssonar,
fyrrv. flugumsjónarmanns í Njarð-
vík, og k.h., Valgerðar Ármanns-
dótturhúsmóður.
Dóttir Guðrúnar og Kristbergs er
Hlín, f. 20.7.1980, nemi.
Bróðir Guörúnar er Bjöm Mar-
teinsson, f. 9.1.1950, byggingaverk-
fræðingur og arkitekt við Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins,
búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Guðrúnar eru Marteinn
Bjömsson, f. 28.2.1913, bygginga-
verkfræðingur og fyrrv. byggingar-
fvúltrúi Suðurlands, og k.h., Arndís
Þorbjamardóttir, f. 26.3.1910, fyrrv.
fulltrúi hjá Fiskifélagi íslands.
Ætt
Marteinn er bróðir Erlends, sýslu-
manns á Seyðisfirði, fóður Jóns
sakadómara. Hálfsystir Marteins
var Guðrún, móðir Björns alþm. á
Löngumýri, Halldórs búnaðarmála-
stjóra, Hannesar, afa dr. Hannesar
Hólmsteins, og Huldu, móður Páls,
þingflokksformanns á Höllustöðum,
og Más dómara. Meðal hálfbræðra
Marteins má nefna Sigurgeir, fóður
Þorbjarnar prófessors, og Þorstein,
föður Björns sagnfræðiprófessors.
Marteinn er sonur Björns, b. á Orra-
stöðum, bróður Ingibjargar,
langömmu Friðriks fjármálaráð-
herra og Guðmundar sýslumanns
Sophussona. Bjöm var sonur Ey-
steins, b. á Torfalæk, Jónssonar, og
Guðrúnar Erlendsdóttur á Sveins-
stöðum í Þingi Árnasonar.
Móðir Marteins var Kristbjörg,
systir Soffíu, ömmu Georgs Olafs-
sonar verðlagsstjóra. Kristbjörg var
dóttir Péturs, b. í Miðdal í Kjós,
Árnasonar, b. í Hagakoti, Ámason-
ar, bróður Guðmundar, langafa
Guðmundar, fóður Einars Más rit-
höfundar. Móðir Kristbjargar var
Margrét, dóttir Benjamíns, b. í
Miðdal og Flóakoti, Jónssonar og
Kristínar Þorkelsdóttur.
Arndís er systir Björns, yfirlæknis
í New York, Páls, alþm. í Vest-
mannaeyjum, Sverris, forstjóra í
Reykjavík, Þórðar forstjóra, fóður
Þórðar Þorbjarnarsonar borgar-
verkfræðings og systir Guðrúnar,
móður Þorbjörns prófessors og
Brodda fréttamanns Broddssona.
Arndís er dóttir Þorbjarnar, héraðs-
læknis á Bíldudal, Þórðarsonar,
hreppstjóra og dbrm. að Neðra-Hálsi
í Kjós, Guðmundssonar. Móðir Þor-
bjarnar var Guðrún Guðmundsdótt-
Guðrún Marteinsdóttir.
ir, b. í Þórukoti á Álftanesi, ísaks-
sonar.
Móðir Arndísar var Guðrún, syst-
ur Jakobínu, ömmu Ágústs Hjálm-
arssonar dómkirkjuprests. Bróðir
Guðrúnar var Ólafur, afi Árna
Ámasonar alþm. Guðrún var dóttir
Páls, prófasts í Vatnsfirði, Ólafsson-
ar og Arndísar Pétursdóttir Eggerz
frá Borðeyri.
Guðrún er að heiman á afmælis-
daginn.
Sigurgeir Scheving
Sigurgeir Scheving, leikari og leik-
stjóri, Faxastíg 33, Vestmannaeyj-
um, er sextugur í dag.
Starfsferill
Sigurgeir fæddist í Vestmanna-
eyjum og ólst þar upp. Hann stund-
aði nám við Gagnfræðaskóla Vest-
mannaeyja, tók landspróf frá Hér-
aðsskólanum að Skógum og lauk
prófi frá Samvinnuskólanum 1954.
Þá stundaði hann nám við Leiklist-
arskóla Ævars Kvaran í tvo vetur.
Á yngri árum stundaði Sigurgeir
fiskvinnslu og sjómennsku. Hann
var um skeiö kaupmaður í Eyjum
en flutti síðan til Reykjavíkur þar
sem hann starfaði í nokkur ár fram
að gosi við Heildverslun Péturs
Péturssonar. í gosinu flutti hann
aftur til Eyja þar sem hann tók
þátt í hreinsun og uppbyggingu,
m.a. sem vörubílstjóri.
Aðalstarf Sigurgeirs hefur þó
lengst af tengst leiksviðinu. Hann
hefur um árabil starfað með Leik-
félagi Vestmannaeyja.
Fjölskylda
Sigurgeir kvæntist 10.11.1961
Sjöfn Sigurbjörnsdóttur, f. 10.11.
1941, húsmóður. Þau slitu samvist-
um 1968.
Dóttir Sigurgeirs með Brynhildi
Hjálmarsdóttur frá Bakkafiröi er
Bylgja Scheving, f. 10.11.1956, nemi
viö HÍ, og á hún tvö börn, Nínu
DöggFilippusdóttur, f. 25.2.1974,
og Andra Snæ Helgason, f. 26.6.
1992, en sambýlismaður Bylgj u er
HelgiÞórlngason.
Börn Sigurgeirs og Sjafnar eru
Heiða Björg Scheving, f. 20.6.1960,
en börn hennar eru Hrund Sigurð-
Byggðu þig upp
á nýju ári með
A nýju ári er
rétt að hrista af
sér slenið og
byggja sig upp með
hreyfingu, hollum mat og
góðum bætiefnum.
Þúsundir íslendinga viðhalda
heilbrigði sínu með Gericomplex.
Regluleg neysla þess bætir
starfsþrekið og eykur viðnám
gegn sleni og slappleika.
Gericomplex inniheldur valin
vítamín, steinefni og lesitín og
það er eina fjölvítamínið sem
inniheldur Ginsana G115.
Éh<
Sigurgeir Scheving.
ardóttir, f. 12.2.1978, og Eygló Sig-
urðardóttir, f. 4.11.1983, en sambýl-
ismaöur Heiðu Bjargar er Axel Sig-
urðsson; Sigurpáll Scheving, f. 27.5.
1964, læknir en sambýliskona hans
er Hildur Jakobína Gísladóttir.
Sambýliskona Sigurgeirs er Ruth
Barbara Zohlen frá Stuttgart í
Þýskalandi.
Systur Sigurgeirs eru Helga Rósa
Scheving, f. 15.12.1930, þinglýsing-
arfulltrúi í Reykjavík; Margrét
Scheving, f. 27.9.1944, kaupkona í
Reykjavík, gift Þorvaldi Halldórs-
syni.
Foreldrar Sigurgeirs voru Páll
Scheving, f. 21.1.1904, að Steins-
stöðum í Vestmannaeyjum, d. 15.4.
1990, verksmiðjustjóri hjá Lifrar-
samlagi Vestmannaeyja, og Jón-
heiður Steingrímsdóttir Scheving,
f. 24.7.1907, að Gamla-Lundi á Ak-
ureyri, d. 24.12.1974, húmóðir.
Sigurgeir tekur á móti gestum á
Hertoganum í Vestmannaeyjum
laugardaginn 7.1. kl. 16.00-18.00.
Til hamingju með afmælið 7. janúar
-------------------------- Ólafia Birna Sigurvinsdóttir,
Nökkvavogi l.Reykjavík.
Áslaug Kristinsdóttir,
Lönguhlíð 3, Reykjavik.
Einar Sigurjónsson,
Höíðavegi 32, Vestmannaeyjum.
Kristín Magnúsdóttir,
Kirkjulundi 8, Garðabæ.
Hólmfríður Sigurðardóttir,
Hlíð, Garðabæ.
Hólmfríður er að heiman.
Árni Aðalsteinn Bjarman,
Seljahlíð UG, Akureyri.
María ögmundsdóttir,
Baugholti 21, Keflavxk.
MagnúsÁlfsson,
Hlíðarvegi23, Grundarfirði.
Þórhildur Guðjónsdóttir,
Sogavegi 135, Reykjavik.
Antonía Sigurðardóttir,
Hjarðargrund, Jökuldalshreppi.
Ingólfur Ásgrimsson,
Hlíðartúni 19, Homafjarðarbæ.
Kristín Jósefsdóttú’,
Fjarðarstræti 6, ísafirði.
Hólmfríður Bjarnadóttir,
Brekkugötu 9, Hvammstanga.
Hildur Karen JónsdóttLr,
Nóatúni 26, Reykjavik.
María Sigrún Jónsdóttir,
Hringbraut58, Hafnarfirði.
Rósa Lára Guðlaugsdóttir,
Kjarrmóum 5, Garðabæ.
Gróa S.Æ. Sigurbjörnsdóttir,
Árskógum 26 A, Egilsstöðum.
Stefán Sigurður Stefánsson,
Sólbrekku 4, Húsavík.
Aðalsteinn J. Kristjánsson,
Bakkaseli 23, Reykjavík.
Sigrún Ólafsdóttir,
Lautasmára 25, Kópavogi.
RannveigHrönn Harðardóttir,
Dalseli38, Reykjavík.
ísak Halim Al,
kaupsýsluraað-:
uríTyrklandi
ogfyrrv.eigin-
maðurSophiu
Hansen.
Valgerður Gísladóttir,
Hásteinsvegi 22, Stokkseyri.
Steindór Ari Steindórsson,
Lækjarkinn 28, Hafnarfirði.
RósaHugrún Svandísardóttir,
Gerðhömrum25, Reykjavík.
Sigríður M. Kristjánsdóttir,
Hringbraut 88, Reykjavík.
Þórarinn Sigurgeirsson
Eilsuhúsið
Kringlunni sími 689266 Skólavörðustíg sími 22966
Þórarinn Sigurgeirsson pípulagn-
ingameistari, Árskógum 6, Reykja-
vík, verður áttræður á mánudaginn.
Starfsferill
Þórarinn fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk sveinsprófi
í pípulögnum frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1937 og öðlaðist meistara-
réttindi í greininni 1941.
Þórarinn starfrækti pípulagning-
arfyrirtæki ásamt Jóhanni Sigur-
geirssyni fram undir 1950. Hann
starfaði síðan við Vinnufatagerðina
til 1967 en hóf þá aftur störf við pípu-
lagnir. Hann sá síöan um viðgerðir
á svæfingatækjum á Borgarspítal-
anum en lét af störfum fyrir aldurs
sakirl991.
Þórarinn var verkstjóri iðnaðar-
manna á Borgarspítalanum á árun-
um 1973-86.
Fjölskylda
Þórarinn kvæntist 8.1.1944 Lovísu
Júlíusdóttur, f. 21.7.1916, d. 21.12.
1989, húsmóður. Hún var dóttir Júl-
íusar G. Loftssonar múrara og Mar-
íu Símonardóttur húsmóður.
Börn Þórarins og Lovísu eru Júl-
íus Már Þórarinsson, f. 20.11.1944,
tæknifræðingur á Akranesi. Dætur
hans og fyrrv. eiginkonu, Guðrúnar
Sigurjónsdóttur hjúkrunarfræð-
ings, eru Sigríöur, Lovísa Björk og
Þóra Margrét, en sambýliskona
hans er Jóna Kristrún Sigurðardótt-
ir skrifstofumaður og á hún þijár
dætur; María Þórarinsdóttir, f. 13.7.
1949, sjúkraliði í Reykjavík, gift Emi
Þorsteinssyni myndlistarmanni og
eru börn þeirra Högni Þór, Hildur
Sif og Hrund Ýr; Sigurgeir Þórarins-
son, f. 11.5.1957, tæknifræðingur í
Hafnarfirði, kvæntur Charlottu
Ingadóttur leikskólakennara og eru
börn þeirra Harpa Bóel og Þórarinn
Snorri.
Systkini Þórarins: Jóhann Sigur-
geirsson, pípulagningameistari í
Reykjavík, nú látinn; Jónína Þór-
unn Sigurgeirsdóttir, nú látin,
kaupmaður í Reykjavík; Guðrún
Brimdís Sigurgeirsdóttir, nú látin,
húsmóðir í Hafnarfirði; Katrín
Bergrós Sigurgeirsdóttir, nú látin,
verslunarmaður í Reykjavík; Ingi-
björg Sigurgeirsdóttir, nú látin, for-
Þórarinn Sigurgeirsson.
stöðumaður í Reykjavík.
Hálfbróðir Þórarins er Kristján
Sigurgeirsson, tæknifræðingur í
Reykjavík.
Foreldrar Þórarins voru Sigurgeir
Jóhannsson, f. 20.9.1881, d. 22.1.
1968, pípulagningameistari, og Bóel
Bergsdóttir, f. 4.6.1887, d. 12.11.1920,
húsmóðir.
Þórarinn tekur á móti gestum í
samkomusal að Árskógum 6-8
sunnudaginn 8.1. milli kl. 15.00 og
18.00.
GERICOMPLEX - MEST SELDA BÆTIEFNI Á ÉSLANDI