Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1995, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1995
5
Fréttir
Maður sem fékk reynslulausn á sínum tuttugasta refsidómi í júlí 1992:
Fékk þrjá f angelsisdóma
áður en hann fór inn á ný
- fór loks í fangelsi aftur skömmu áður en fjórði dómurinn gekk
Þrítugur karlmaöur, sem var sleppt
úr fangelsi á reynslulausn í febrúar
1992, fékk þrjá fangelsisdóma áöur
en honum var loks gert að fara í fang-
elsi á ný í september síöastliönum. í
rúm tvö ár gekk maðurinn laus og
braut af sér aftur og aftur en fór ekki
í fangelsi þrátt fyrir að hafa brotið
skilyrði reynslulausnar og síðar.
fengið þrjá dóma á tímabilinu.
í júlí 1992 var manninum sleppt úr
fangelsi á reynslulausn. Þá átti hann
eftir að afplána 133 daga af sínum
tuttugasta refsidómi. Þegar maður-
inn hafði verið laus um skeið braut
hann skilyrði reynslulausnarinnar
með því að aka bíl ölvaður og rétt-
indalaus. Dómur gekk í því máli í
mars 1993. Niðurstaðan varð átta
mánaða fangelsi en 133 dagarnir
voru dæmdir með. Maðurinn fór
engu að síður ekki í afplánun á ný.
Sjö mánuðum eftir dóminn, eða í
október 1993, gekk annar refsidómur
yfir manninum - átta mánaða fang-
elsi. Hann hafði þá í millitíðinni ekið
aftur ölvaður og réttindalaus og var
ákærður og dæmdur eina ferðina
enn - án þess að hafa farið í afplánun
vegna fyrri dóms og fyrir aö rjúfa
skilyrði framangreindrar reynslu-
lausnar. Þrátt fyrir annan dóminn
eftir að maöurinn varð laus fór hann
ekki í fangelsi.
í febrúar 1994 gekk 23. dómurinn á
afbrotaferh mannsins og þriðji eftir
að hann fékk reynslulausnina 1992.
Aftur hafði hann brotið umferðarlög
og hlaut nú 10 mánaða fangelsi. Hann
átti þvi eftir að afplána samtals 26
mánaða fangelsi vegna þriggja dóma
og nú voru hátt í tvö ár liðin frá því
að manninum var sleppt út á
reynslulausn. Þrátt fyrir þetta hélt
hann áfram að ganga laus.
í stað þess að fara í afplánun hélt
maðurinn áfram samkvæmt venju
að brjóta af sér. Það var loks í sept-
ember síðastliðnum sem manninum
var loks gert að fara í fangelsi á ný
- rúmum tveimur árum og þremur
dómum eftir að hann rauf skilyrði
reynslulausnarinnar. í nóvember
síðastliðinn fékk maðurinn sinn 24.
refsidóm vegna brotsins sem hann
framdi eftir dóminn í febrúar.
Hann hefur reyndar verið ákærður
í 25. skiptiö vegna annars brots sem
honum er gefið að sök að hafa fram-
ið á síðasta ári þegar eldur kviknaði
í rusladalli á salerni í ílugvél á leið
til Kaupmannahafnar. Manninum er
gefið að sök að hafa stofnað hfi íjölda
fólks í hættu með því að henda log-
andi sígarettu í rusladallinn en flug-
Lengd fangelsisrefsinga jókst um 43 prósent frá 1992 til 1994:
Á þriðja hundrað
bíða f angavistar
- afgreiðsla síbrotamannsins ekkert einsdæmi
„Á síðustu misserum hafa 220-230
dómþolar beðið eftir fangaplássum.
Nýtingin á fangarýminu er hins veg-
ar hátt í 110 prósent. Ástæðuna má
rekja th þess að dómum hefur fjölg-
að, refsingar hafa lengst, reynslu-
lausnir eru síður veittar en áður og
fangaplássum hefur ekki fjölgað að
sama skapi. Þegar þetta gerist lengist
sá tími sem menn bíða eftir að kom-
ast í afplánun," sagði Haraldur Jo-
hannesen fangelsismálastjóri í sam-
tali við DV.
Haraldur sagði lýsinguna af máh
afbrotamannsins sem fékk þrjá dóma
á tveggja ára tímabih áður en hann
fór loks í fangelsi geta átt við þó
nokkra aðila - hér sé ekki um eins-
dæmi að ræða. Fangelsi landsins
hafi einfaldlega ekki rúm fyrir alla
þá fanga sem þurfa að komast að.
„Við getum ekki sett fleiri en einn
fanga í hvert fangarými. Þess vegna
ganga dómþolar lausir. Við höfum
sett þá stefnu hér, með undantekn-
ingum þó, að hver fangi skuli vera
vistaður einn í klefa. Það er vissulega
hægt að minnka biðhstana með því
að setja feiri en einn í klefa en menn
geta þá rétt ímyndað sér það ástand
sem þá myndi skapast í fangelsun-
um. Ég vísa til nýlegra atburða í
Bretlandi,“ sagði Haraldur.
Til marks um þá auknu þörf sem
hefur skapast á fangarými liggur fyr-
ir að heildarlengd dæmdra refsinga
var 140 ár árið 1992. Á nýliönu ári
var árafjöldinn orðinn rúmlega 200.
Hér er um 43 prósent aukningu að
ræða á milli tveggja ára.
Haraldur sagði að þrátt fyrir að 36
ný fangapláss skapist þegar nýbygg-
ing á Litla-Hrauni verði tekin í notk-
un í vor sé ekki hægt að segja fyrir
hvenær biðlistar rpuni styttast með
hhðsjón af þróun í dómsmálum -
þjóðfélagið hafi greinilega gert þá
kröfu að fangelsisrefsingar þyngist.
Þannig sé fyrirséð að lengri tima taki en áður var auk þess sem refsidóm-
hvern fanga að ljúka sinni afplánun um hefurfjölgað. -Ótt
W'
/V *
Macintosh Performa 475
er öflug einkatölva, sem
hentar sérlega vel hvort heldur
er fyrir heimili, skóla eða íyrirtæki.
Macintosh Performa 475 er með
15" Apple-litaskjá, stóru hnappa-
borði, mús, 4 Mb vinnsluminni og
250 Mb harðdiski.
ES
L Íh« JTVf- f'Fll 17!
TIL ALLT AO 3 16 MÁNAÐA
IÍ33 RADGREIÐSLUR \
3
TIL ÁLLT AO 24 MÁNAÐA
Apple-umboðið hf.
Skipholti 21, sími: (91) 62 48 00
freyjur náðu að slökkva eldinn með
slökkvitækjum.
Eins og fyrr greinir er maðurinn
þrítugur. Hann hefur auk ölvunar-
akstursbrota meðal annars verið
dæmdur fyrir þjófnaö, flkniefnamál,
skjalafalsognytjastuld. -Ótt
LAUSN NR. 2
65 ár við dýnuframleiðslu hafa kennt SERTA
heilmikið um það hvemig dýna verður gerð
fullkomlega góð. Þar sem þeir hafa lagt sérstaka
áherslu á að leysa þau atriði sem fólk kvartar
yfirleitt undan þarf kaupandi SERTA dýnu ekki
að hafa áhyggjur af þeim.
Algengt umkvörtunarefni á dýnum ýmissa
framleiðenda, jafnvel dýrra gerðafrá þeim,
er að þær séu óþœgilegar að liggja á.
Hm sérstaha Bmm SEÍtTA tilfullkomnunar
þœginda er að nota í réttri samsetningu
bylgjusvamp, trefjafyllingu og viðnámsbólstrun,
tœkni sem mun gefa eigenda SERTA dýnu
hollan nœtursvefn um ókomin ár.
Þegar þú ákveður að kaupa þér amerískt rúm,
þá skaltu koma til okkar og prófa hvort þér líkar
hörð, mjúk eða millistíf dýna. Starfsfólk okkar
tekur vel á móti þér og við eigum Serta dýnumar
alltaf til á lager og þeim fylgir margra ára ábyrgð.
Mest selda ameríska dýnan á íslandi
BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-871199
M
Þá kemur aðeins
ein tölva til greina:
acintosh Performa 475
Macintosh Performa 475
kostar aðeins 125.263,- kr.
119-000,-krs,*,
*4.242,-k,
á mánuði í 36 mán.
& j
- * í > < > ♦ * »
/ 7 *. *. \ \ \ \ \ \ \
/ i
I t \
\\\
' Upphæðin er meðaltalsgreiðsla með vöxtum, lántökukostnaði og færslugjaldi.