Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1995, Page 24
24
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1995
Sviðsljós
Ofurhuginn og sundkappinn Giuseppe Palmulli, sem orðinn er 42 ára gamall, stekkur fram af Cavour brúnni i Róm á nýársdag og stingur sér eina 20
metra niður í Tíber ána en hún rennur i gegnum höfuðborgina. Giuseppe varð ekki meint af volkinu og var hinn hressasti á eftir. Símamynd Reuter
Hinn konunglegi koss
Það vakti heimsathygli í síðustu
viku þegar Karl Bretaprins kyssti
Tiggy Legge-Burke, barnfóstru sona
sinna, í skíðabrekkunum í Klosters
í Sviss. Slúðurblöðin bresku tóku
heldur betur viö sér og voru þegar
búin að ganga frá því að Tiggy væri
stóra ástin í lífi prinsins og búast
mætti við heitum fréttum í framhald-
Tajaðu við okkur um
BILARETTINGAR
BILASPRAUTUN
Varmi
Auðbrekku 14, sími 64 21 41
inu af samdrætti þeirra.
Strax daginn eftir birtust hins veg-
ar nýjar myndir af Karli þar sem
hann var að kyssa Töru Palmer
Tomkinson og virtist sem hann væri
að gera stólpagrín að bresku press-
unni. Blaðafulltrúi prinsins segir það
ekkert athugavert þó prinsins gefi
nokkra kurteisiskossa þegar vinkon-
ur hans eru annars vegar. Það er
hins vegar ljóst aö koss er ekki bara
koss þegar konungbornir eiga í hlut.
Hárlakk - Froður - Gel
Cæði ágóðu
verði -
Fœst í næstu
verslun
Letur
Letursson
Austurlenskir fjöllistamenn eru annálaðir fyrir fimi sína eins og margsannast hefur á þeim sem hefur rekið á fjör-
ur okkar hér uppi á íslandi. Konan á þessari mynd er frá Mongólíu og hún sýndi nýlega listir sínar austur í Pa-
kistan. Ekki er annað að sjá en henni takist bærilega að halda jafnvægi á munninum einum saman. Simamynd Reuter
Jerry Lewis
og Kölski
Jerry Lewis hlakkar til að glíma
við húsbóndann í neðra, sjálfan
Kölska, í söngleiknum Fjandans
Kanar sem verður tekinn aftur
upp í leikhúsi á Broadway á næst-
unni. „Ég er búinn aö æfa fyrir
þetta hlutverk i 63 ár,“ segir Jerry
sem verður að losa sig við fimm
kíló til að komast í búninginn.
Að sjálfsögðu freistar þessi
skratti, eins og aðrir, og hér reyn-
ir hann aö plata hafnaboltaaðdá-
anda til að selja sér sálina og fá
í staðinn góðan minjagrip.
Glenn Close
vekur reiöi
Glenn Close, sú margreynda og
frambærilega leikkona, hefur
hneykslað samtök siðavandra í
Ameríku með nýjustu sjónvarps-
myndinni sem hún leikur í. Mynd
sú er byggð á ævi liðsforingjans
og konunnar Margarethe Cam-
mermeyer. Sú baröist hatramm-
lega fyrir þvi aö fá vera áfram í
hernum eftir að það komst í há-
mæli að hún væri lesbía. Siða-
vandir eru óhressir með að Glenn
aöra konu í myndinni,
Jon Lithgow í
sjónvarpið
John Lithgow viil ekki vera
minni maður en margir aðrir
leikarar úr Hollywood að undan-
förnu sem hafa keppst við að
skriía undir samninga við sjón-
varpsmyndaframieiðendur. Lát-
hgow hefur nú fallist á að leika í
sjónvarpsþáttaröö, sinni fyrstu,
sem fjallar um hóp geimvera sem
heimsækja okkur til að skoða líf-
ið á jörðinni í meira návígi.
Besta mynd
Brandos
Heldur hefur verið hljótt um
stórleikarann Marlon Brando
mörg undanfarin ár. Hann er þó
að skríða út úr hýði sínu og fyrir
skömmu var efnt til forsýningar
á nýjusta myndinni sem hann
leikur í, Don Juan De Marco. Þar
eru með honum þau Johnny
Depp og Faye Dunaway. Fregnir
herma að Brando hafi ekki staðið
sig jafn vel í áraraðir. Peninga-
menn vonast til að fá þá Brando
og Depp til að leika saman í enn
annarri mynd síðar.
I
I
i
i
i
í
í
í
í
4
4
í
«
€