Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1995, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 2. MARS 1995
11
DV
Fréttir
Hótelgestur á Flughóteli í Keflavík:
í stað teiknimyndar horfðu
börnin á svæsna klámmynd
- engin íslensk lög um gervihnattasjónvarp
„Við fórum niður að borða og skild-
um eftir tvö börn uppi á herbergi þar
sem þau voru aö horfa á teiknimynd
í sjónvarpinu. Þegar við komum upp
aftur þá rak mig í rogastans því að
teiknimyndin var horíin af skjánum
en í staðinn komin ein sú svæsnasta
klámmynd sem ég hef séð og börnin
sátu yfir þessum ófógnuði. Þama
voru lesbísk atriði og fleira sem ekki
á að koma fyrir augu barna," segir
maður á fertugsaldri sem var hótel-
gestur á Flughóteh í Keflavík fyrir
skömmu.
Hann og unnusta hans höfðu tekið
að sér að gæta tveggja barna vinkonu
sinnar, sjö ára drengs og 12 ára
stúlku. Þau voru gestir á hótelinu
þegar fyrrgreint atvik átti sér stað.
Maðurinn, sem ekki viU láta nafns
síns getið að sinni, segist vera mjög
undrandi á að hótelið skuh vera með
svona „þjónustu" á opinni rás. Hann
segir umrædda sýningu hafa verið á
Film Net, sem er gervihnattasjón-
varp. Hann segir sýninguna hafa
verið fyrir klukkan 11 um kvöldið.
„Mér er stórlega misboðið og ég
skil ekki hvaða siðferði er þarna að
baki. Það er verið að gera upptækar
spólur á myndbandaleigum hér og
þar og í mörgum tilvikum er þar um
að ræða mun vægara klám en þama
var á skjánum," segir hann. Á Flug-
hóteh í Keflavík fengust þær upplýs-
ingar að nefnd sjónvarpsrás væri til
staöar og opin hótelgestum. Útsend-
ingar væm þó ekki fyrr en um eða
eftir miðnætti. Steinþór Júhusson
hótelstjóri segir leitt ef þetta hafi
valdið gestum ama.
„ Við erum með Film Net og það eru
einhveijar bláar myndir þar tvisvar
í viku. Ég veit ekki betur en þetta sé
á flestum hótelum. Mér þykir mjög
leitt ef þetta hefur valdið einhverjum
gestum okkar ama,“ segir Steinþór.
Auður Eydai, forstöðumaður Kvik-
myndaeftirhts ríkisins, segir að eng-
in íslensk lög nái yfir útsendingar
gervihnattasjónvarps. Þetta sé
vandamál sem þurfi að taka á.
„Um íslenskar sjónvarpsstöðvar
ghda útvarpslög en um gervihnatta-
stöðvar gfida ekki íslensk lög. Kvik-
Bragi Valgeirsson. DV-mynd Júlfa
Snjall Maðberi DV á Höfn
Bragi Valgeirsson er hörkudugleg-
ur og vinsæh strákur á Höfn sem ber
út DV th áskrifenda við nokkrar göt-
ur þar. Fljótt eftir flug er blaðið kom-
ið til áskrifenda en svo var ekki allt-
af hér áður fyrr.
Bragi er 12 ára og hefúr mikinn
áhuga á körfubolta en boltinn verður
að bíða þegar DV er annars vegar.
Vinnan fyrst - síðan leikurinn, segir
þessi áhugasami blaðberi.
myndaeftirhtið hefur aldrei gripið
inn í mál sem tengjast slíkum útsend-
ingu, en við höfum margbent á þessi
mál og þau þarfnast skoðunar. Eg sá
það á norsku hóteh að þegar kom að
útsendingu Fhm Net á efni sem ekki
er ætlað börnum, þá var settur svart-
ur femingur yfir myndflötinn. Þær
skýringar fylgdu að samkvæmt
norskum lögum væri þetta efni sem
útsending væri bönnuð á,“ segir
Auöur. -rt
EKKI UTSALA
BARA GÓÐ VERÐ
Star LC 20
Nettur heimilisprentari
á frábæru verði.
9 nála -180 stafir/sek - 1Ö" vals - tekur tvírit - traktor
fyrir samhangandi tölvupappír - einblaðamötun -
g, hentar fyrir DOS og Windows forrit
Ta^ar/ca<j
ftiagn!
Eigum fyrirliggjandi mikið úrval prentara á ótrúlegu verði.
Litaprentarar
Bleksprautuprentarar
Nótu- og gíróseðlaprentarar
Laserprentarar
frá kr. 16.900
frá kr. 23.900
frá kr. 29.900
frá kr. 66.900
NÝHERJI
SKAFTAHLÍÐ 24 - SÍMI 69 77 00
Alltaf skrefi á undan
Verslunin er opin
á laugardögum
frá kl. 10:00 - 14:00