Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1995, Page 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 1995
Fréttir
Olga hefur ríkt á olíumarkaðnum frá því 1 haust:
/ i / /
Olíufélögin búa sig
undir komu Irving Oil
- draumar neytenda um raunverulega samkeppni að rætast?
Tilkynning kanadíska olíurisans Ir-
ving Oil sl. haust um áform um starf-
semi á íslandi setti af staö þróun á
olíumarkaðnum sem aö margra mati
er ekki séð fyrir endann á. Olíufélög-
in þrjú; Skeljungur, Olíufélagiö og
Olís, sem starfað hafa óáreitt hér á
landi í áratugi, hafa brugðist viö
væntanlegri samkeppni með ýmsum
hætti. Nú síðast tilkynntu Olíufélag-
ið og Olís stofnun sameiginlegs dreif-
ingarfyrirtækis eftir að Olíufélagið
keypti 35% hlut í Olís. Nokkru áður
hafði Skeljungur ákveðið þátttöku í
bensínsölu með Hagkaupi og Bónus.
Eftir að Irving Oil lagði inn um-
sóknir í Reykjavík um lóðir undir
birgðastöð og bensínstöðvar liðu
ekki margar vikur þar til olíufélögin
þrjú lögöu einnig inn lóðaumsóknir
í borginni. Forstjórar olíufélaganna
áttu erfitt með að viðurkenna að
umsóknirnar væru tilkomnar vegna
Irving Oil og vitnuðu til póhtískra
lóðaúthlutana Sjálfstæðisflokksins.
Helst voru það forráðamenn Olíufé-
lagsins sem bentu á „óeðlilega" fyrir-
greiðslu við Skeljung og Olís í borg-
arkerfmu.
Viðbrögð Skeljungs komu í ljós í
upphafi árs þegar félagið tilkynnti
þátttöku í bensínsölufyrirtæki með
Hagkaupi og Bónus. Fyrirtækið, sem
nefnist Orkan, mun kaupa bensín af
Skeljungi og selja það við þrjá stór-
markaöi. Hagkaups-Bónuss veldið
hafði um tíma haft áform uppi um
bensínsölu, eða frá því að aðstoðar-
forstjóri Olís, Hörður Helgason, var
ráðinn til Hofs hf., eiganda Hagkaups
og Bónuss, á miðju síðasta ári. Áður
en samdist við Skeljung höfðu Orku-
menn rætt við Irving Oil og fleiri
erlend olíufélög.
Samruna Olís og Oiíu-
félagsins spáð
Þá eru það viðbrögð hinna olíufé-
laganna ef „lóðapaníkin" er undan-
skihn. Eftir að spurðist út að hlutur
erfmgja Óla Kr. Sigurðssonar, eða
Fréttaljós
Sunda hf„ í Olís væri falur upphófst
mikið kapphlaup. Skeljungur sóttist
eftir bréfunum og sömuleiðs Irving
Oil. Irving Oil hafði reyndar alveg frá
áramótum 1993/1994 sýnt áhuga á að
kaupa hlut í Olís. Það var síðan Olíu-
félagið sem hafði sigur í kapphlaup-
inu. Ásamt Hydro Texaco í Dan-
mörku keypti Olíufélagið hlut Sunda
hf. í Olís og eiga þessi félög um 35%
hlut hvort í Olís. í kjölfarið stofnuðu
Olís og Olíufélagiö fyrirtæki sem
mun sjá um innflutning og dreifingu
eldsneytis fyrir félögin.
Forráðamenn Olís og Olíufélagsins
segja að félögin muni áfram verða í
samkeppni á smásölumarkaðnum en
margir telja að þess verði ekki langt
að bíða að þau sameinist alfarið.
Aukin samkeppni
eða fákeppni?
Nú deila menn um það hvort sam-
Hluthafar Olís
Aðrir
Hydro
Texaco
Olíufélagið
OV
IWIHlaiÍílWK
- eftir útspil Irving Oii -
Október 1994
Kanadíska olíufélagiö Irving Oil tillkynnir áform um starfsemi á íslandi og
sækir um lóðir í Reykjavík undir birgöastöö og bensínstöövar.
Nóvember 1994
Skeljungur, Olís og Olíufélagiö sækja um lóöir ur
Reykjavík í kjölfar áhuga Irving Oil.
snsínstöövar í
Desember 1994
Irving Oil fær vilyröi Reykjavíkurborgar fyrir lóö
Sundahöfn og 3 bensínstöövar viö Eiðisgranda,:
Bæjarhðls.
birgöastöð viö
jarbakka og
flRVINGl
Janúar 1995
SBfÍgKiWMii
Irving Oil sækir um lóðir undir bensínstöövar á
20. janúar 1995
3si og í Keflavík.
tt «ttd Hagkaup, Bónus og Skeljungur stofna fyrirtækiö
HACxKAUr bensín viö 3 stórmarkaöi Hagkaups og Bónuss.
fyrírfjoiíkyiduna Qlís, Höröur Helgason, ráöinn framkvæmdastjór
Hagkaup og Bónus leitaö til þriggja erlendra aðil
Irving Oil.
tna hf. sem mun selja
aöstoöarforstjóri
tnnar. Áöur höföu
sarhstarf, þ.á.m. til
Mars 1995
Kapphlaup hefst um hlutabréf erfingja Öla Kr.
r\«dppiiidup neiisi uin iiiuiduici ci iiiigjd wid r\i. o
tilkynnist aö ekkja Óla, Gunnþórunn Jóhsdóttir,
auk Irving Oil, sækjast eftir hlutabréfuhum.
ssonar í Olís eftir aö
ílja. Hin olíufélögin,
18. mars 199i.........
Niöurstaöa kapp®£up~ in. Olíufélagiö kaupir 35% og Texaco 10% af
hlut erfingja Óla Kr. í Olís. Saman eiga Olíufélagiö og Texaco 70% hlut í
Olís. Olíufélagiö og Olís stofna í kjölfariö sameiginlegt dreifingafyrirtæki.
Samstarfi Olís og Skeljungs í dreifingu því lokiö.
1
i
i
i
í
starf Olís og Olíufélagsins leiði til
aukinnar fákeppni frekar en að sam-
keppni aukist. Samkeppnisstofnun
hefur tvo mánuði til að úrskurða um
það. Á meðan aukast líkur á komu
Irving Oil til íslands og neytendur
eygja von um að áratugahefð fyrir
samráði olíufélaganna um bensín-
verð sé endanlega úr sögunni.
Kakan sem slegist er um er þó jafn-
stór eftir sem áður. Bíla- og skipafloti
íslendinga mun ekki stækka svo mik-
ið á næstu árum að stórir nýir molar
verði til skiptanna. Olíufélögin þrjú
veltu um 25 milljörðum króna á síð-
asta ári og viðbúið er að tilkoma Ir-
ving raski þeirri tölu nokkuð. Þetta
er staðreynd sem olíufélögin eru að
uppgötva, sér til hreliingar, og virðast
til í allt til að halda sínum kökubita.
Á meðfylgjandi gröfum má annars
vegar sjá þróun mála á olíumarkaðn-
um frá því í haust og hins vegar
hvernig myndin lítur út af stærstu
hluthöfum Ohs eftir að ekkja Óla Kr.
Sigurðssonar, Gunnþórunn Jóns-
dóttir, seldi hlut Sunda hf. í félaginu.
Talið er að Gunnþórunn hafi fengið
í kringum 1 milljarö fyrir bréfin.
í
i
YNNINGARVERÐ
IVIC E750
MC E852
Kraftmikill 10OO Watta mótor
Clean air loftsía
breytilegur haus fyrir hörð gólf og teppi
INNDRAGANLEG SNÚRA
LÉTT OG MEÐFÆRILEG (4,9KG).
RYKMÆLIR
FÓTROFI
Kraftmikill 1 200 WATTA MÓTOR
Styllanlegur sogkraftur
Breytilegur haus fyrir hórð gólf og teppi
Geymsla fyrir fylgihluti
360 gráðu snúningsbarki
IN NDRAGANLEG SNÚRA
Rykmælir