Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1995, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1995, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 1995 13 DV Fréttir Fljótin: Hagkaup í Njarðvík: Veski stolið frá einstæðri 3ja barna móður Hús svigna af snjó- þunga Öm Þóiarinsson, DV, Fljótum; Mikil snjóþyngsli eru hér í Fljótunum og talið aö snjór sé nú jafnmikill og metárið 1989. Raun- ar telja sumir að nú sé meira fannfergi. Tveir bændur, sem búið hafa hér ailan sinn búskap, telja að þetta sé mesti. snjór sem þeir muna eftir. Snjódýptin er talin ekki undir tveimur metrum að jafnaöi og segja má að allt sé slétt yfir aö lita. Fannfergið og ótíðin hafa sett allar samgöngur úr skorðum og hafa því vélsleðar verið örugg- asta samgöngutækið. Víða hefur þurft að moka snjó af þökum úti- húsa sem voru að svigna undan snjóþunga. Jarðýtur hafa verið fengnar til að ryðja snjónum frá húsum þegar menn hafa ekki lengur komið snjónum frá sér. Ekki er vitað til að hús hafi skemmst verulega af snjóþung- anum enn sem komið er. Ægir Már Karason, DV, Suðumesjum: „Þetta kom sér afar illa fyrir mig. Ég þurfti að fá lánaða peninga. Það sem var stolið frá mér eru miklir peningar fyrir mig, þegar litlir pen- ingar eru fyrir,“ sagði Ásdís Inga- dóttir, einstæð þriggja barna móðir í Njarðvík, í samtali við DV. Ásdís varð fyrir því að veski henn- ar með 15 þúsund krónum var stolið nú í vikunni þegar hún ætlaði að fara að versla í Hagkaupi í Njarðvík. Hús- og bíllyklar hennar voru einnig í veskinu og þar var ávísun upp á 7000 krónur og 8000 krónur í pening- um. Hún lét bankann sinn strax vita um þjófnaðinn. Ásdís segist hafa látið veskið sitt í innkaupakörfuna og verið að kíkja á fermingarklukkur sem voru á borð- inu við upplýsingabásinn í anddyr- inu. Þegar hún sneri sér við og leit í körfuna var veskiö horíið. „Mér brá alveg rosalega - trúði þessu varla. Ég stóð þarna allt í einu allslaus. Ég lét strax vita af þessu og það voru fáir í búðinni. Ég sá þar grunsamleg hjón sem komu réft á eftir mér inn í verslunina og ég er ekki sátt við hvernig staðið var aö leit að veskinu. Aðeins var gáð í körf- umar þegar fólkið hafði verslað. Lög- reglan sagði við mig að hægt væri aö stööva þann sem lægi undir grun og kalla á lögregluna. Þá er ég ekki ánægð með verslunarstjórann. Hann bað mig að koma og tala við sig en vildi svo ekkert viö mig tala þegar ég kom,“ sagði Ásdís. Slökkviliðsmenn voru kaUaðir út í varðskipið Tý eftir að innstreymis- loki í útsýnistumi gaf sig og vatn tók að leka niður í vistarverur skipsins sem iá mannlaust við bryggju síðdegis á sunnudag. Við- vörunarkerfi í vaktskúr gaf til kynna að eitthvað væri að og var þá óskað eftir aðstoð. Vatnið náði m.a. að flæða yfir teppi í íbúð yfirvélstjóra en slökkviliðsmenn fóm meö vatns- sugur og náöu að þurrka upp það mesta af því vatni sem náði að flæða um skipið. Tjón var ekki tal- iðverulegtsamkvæmt. -Ótt FERÐIR /////////////////////////////// AUKABLAÐ FERÐIR - UTANLANDS Miðvikudaginn 29. mars mun aukablað um ferðir utanlands fylgja DV. Efni blaðsins veróur helgað sumarleyfisferðum til útlanda í sumar og ýmsum hollráðum varóandi ferðalög erlendis. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði, vinsamlega hafi samband vió Björk Brynjólfsdóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 563-2723. ÍSLENSKI LISTINN ER BIRTUR í DV Á HVERJUM LAUGARDEGI OG SAMA DAG ER LISTINN FRUMFLUTTUR Á BYLGJUNNI FRÁ KL. 16-19. BYLGJAN ENDURFLYTUR LISTANN Á MÁNUDAGSKVÖLDUM MILLI KL. 20-23. Kynnir: Jón Axel Ólafsson ÍSLENSKI LISTINN ER SAMVINNUVERKEFNI BYLGJUNNAR, DV OG COCA-COLA A fsLANDI. LlSTINN ER NIOURSTAOA SKOOANAKÖNNUNAR SEM ER FRAMKVÆMD AF MARKAOSDEILD DV I HVERRI VIKU. FJÖLDI SVARENDA ER Á BILINU 300 TIL 400, Á ALDRINUM 1S-3S ÁRA AF ÖLLU LANDINU. JAFNFRAMT ER TEKIO MID AF GENGI LAOA Á ERLENDUM VINSÆLDARLISTUM OO SPILUN PEIRRA Á fsLENSKUM ÚTVARPSSTÖOVUM. fsLENSKI LISTINN DIRTIST Á HVERJUM LAUGARDEGI ( DV OO ER FRUMFLUTTUR A BYLGJUNNI KL. 16.00 SAMA DAG. (SLENSKI LISTINN TEKUR PÁTT f VALI "WORLD CHART" SEM FRAMLEIDDUR ER AP RADIO EXPRESS f LOS ANGELES. KlNNIO HEFUR HANN ÁHRIF Á EVRÓPULISTANN SEM BIRTUR ER f TÓNLISTARDLAOINU MUSIC & MEDIA SEM ER REKIO AF BANDARfSKA TÓNLISTARBLADINU BILLBOARD. Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er fimmtudagurinn 23. mars. ATH.! Bréfasími okkar er 563-2727. URVAL’ UTSYN MARMARIS 99-1750 Glæðilegir ferðavinningar í Ipoði fyrir heppna þátttakendkr! Sólarleikur Úrval-Útsýn er skemmtilegur leikur þar sem þú getur unnið glæsilega vinninga. Það eina sem þarf aö gera er að hringja J síma 99-1750 og svara þremur laufléttum spurningum um sumar og sól. Svörin við spurningunum er að finna í ferðabæklingi Úrvals-Útsýnar „Sumarsór. Bæklinginn getur þii fengið hjá ferðaskrifstofunni Úrval-Útsýn og umboðsmönnum. Ifefö 39.90 mín. Miðvikudagana 8., 15., 22. og 29. mars verður einn heppinn ^ þátttakandi dreginn úr pottinum og hlýtur hann 5000 kr. innborgun fyrir tvo inn á ferð til hins glæsilega sólarbæjar Marmaris í Tyrklandi. Heildarverðmæti hvers vinnings er því kr. 10.000. Allir sem svara öllum þremur spurningunurrí rétt komast I pottinn í hverri viku og einnig í aðalpottinn. 1. apríl kemur í Ijós hver dettur í lukkupottinn og hlýtur ævintýraferð fyrir tvo í tvær vikurtil lands ævintýranna, Tyrklands, á hinn sólríka stað Marmaris við Miöjaröarhafið. Heildarverðmasti aðal- mtiings er kr. 150.000!!! Alltaf í fararbroddi þegar ævintýrin gerast erlendis!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.