Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1995, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 1995
35
Lalli og Lína
Ég var einu sinni vitlaus í Lalla en núna er ég
bara vitlaus.
dv Fjölmiðlar
Veraldar-
vefsflandur
Mikiö hefur veriö rætt um þá
nýjung í samskiptum landans
sem hvað mest hefur borið á að
undanförnu, Internetið. Nýj-
ungagimi íslendinga á sér fá tak-
mörk að því er virðist og eigum
við met í net- notkun, rétt eins og
í mörgum öðrum nýstárlegheit-
um. Rýnir átti þess kost nýlega
að fara á flakk um þetta marg-
fræga tölvunet og réð ekki við
forvitnina. Eftir mikið basl við
að ná tengingu við Netið í gegn-
um símalínuna (hún var alltaf
upptekin) var rúntað vítt og breitt
á hinum viðkunnanlega Verald-
arvef. Kíkt var á ýmsar „heimas-
íður“, svo sem Nýherja, Björn
Bjarnason alþingismann, Guð-
mund Árna alþingismann, Þjóð-
vaka, skrifstofu Alþingis, upplýs-
ingaþjónustu Háskóla íslands og
svo mætti lengi telja.
Það sem vakti hvað mesta at-
hygli rýnis á þessu veraldarvefs-
flandri var hversu ótrúlega hratt
má tlakka milli hinna ólíklegustu
staða, hvar sem er í heiminum.
Möguleikarnir virðast takmarka-
lausir svo fremi sem maöur gefur
ímyndunaraílinu lausan taum-
inn. Segja mætti rýni að útþrá
íslendinga fengi nú loks að njóta
sín til fulls þar sem hér halda
engin bönd nema ef vera skyldi
símreikningurinn. Það kostar
nefnilega sitt að hanga á netinu
og Póstur og sími nýtur góðs af
tæknivæddum íslendingum á
flakki um tölvuvæddan veraldar-
vefinn daga, kvöld og nætur.
Rýnir fylgdist ekki mikið með
öðrum flölmiðlum þetta kvöldið,
enda tíminn ótrúlega fljótur að
líða fyrir framan tölvuskjáinn.
Eva Magnúsdóttir
Andlát
Stefán Þórhallsson, Bælengi 6, Sel-
fossi, áður til heimilis í Birkihrauni
11, Mývatnssveit, varð bráðkvaddur
sunnudaginn 19. mars.
Magðalena Andrésdóttir, Ásbraut 17,
Kópavogi, andaðist í Borgarspítalan-
um þann 18. mars.
Snæbjörn Snæbjörnsson, Heiðarbæ
14, lést í Landspítalanum aðfaranótt
18. mars.
Guðmunda Johansen fædd Finn-
bogadóttir, Vesterbrogade 73B,
Kaupmannahöfn, andaðist 19. mars
sl.
Ingólfur Ingvarsson frá Neðri-Dal, til
heimilis á Hvolsvegi 9, Hvolsvelli,
lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 16. mars
sl.
Bergsteinn Jónsson, Háaleitisbraut
20, lést í Landakotsspítala að morgni
19. mars.
Emil Marteinn Andersen útgerðar-
maður, Vestmannaeyjum, lést að
morgni fóstudagsins 17. mars.
Inga Elínborg Bergþórsdóttir frá
Flatey, Breiðafirði, Hjallaseli 55,
Reykjavík, andaðist í Borgarspítal-
anum 19. mars.
Aðalheiður Þórðardóttir Trollebö frá
Víkurgerði, Fáskrúðsfirði, lést 17.
mars sl. Jarðarförin fer fram frá
Kalvág í Noregi flmmtudaginn 23.
mars.
Björn Ófeigsson, Hæðargarði 33,
Reykjavík, lést á Kanaríeyjum 19.
mars.
Bergrún Antonsdóttir, Nónhæð 2,
Garðabæ, lést aðfaranótt sunnudags-
ins 19. mars síðastliðinn.
Jarðarfarir
Guðmunda Valborg Valgeirsdóttir,
sem lést af slysfórum þann 10. mars,
verður jarðsungin frá Storalundy-
kirkju í Grabo í Svíðþjóð þann 23.
mars kl. 14.
Jón Þórðarson, dvalarheimilinu
Hlíð, Akureyri, sem andaðist 16.
mars, verður jarðsunginn frá Akur-
eyrarkirkju fimmtudaginn 23. mars
kl. 13.30.
Slökkvilið-lögregla
Reykjavík: Lögreglan sími 11166 og
0112, slökkvilið og sjúkrabifreið sími
11100.
Seltjarnarnes: Lögreglan s. 611166,
slökkvilið og sjúkrabifreið s.11100.
Kópavogur: Lögreglan sími 41200,
slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166,
slökkvilið og sjúkrabifreið sími 51100.
Keflavík: Lögreglan s. 15500, slökkvilið
s. 12222 og sjúkrabifreiö s. 12221.
Vestmannaeyjar: Lögreglan s. 11666,
slökkvilið 12222, sjúkrahúsið 11955.
Akureyri: Lögreglan s. 23222, 23223 og
23224, slökkvilið og sjúkrabifreið s.
22222. v
ísafjörður: Slökkvilið s. 3300, brunas.
og sjúkrabifreið 3333, lögreglan 4222.
Apótek
Nætur- og helgidagaþjónusta apótekanna
í Reykjavik 17. mars til 23. mars, að báð-
um dögum meðtöldum, verður í Vestur-
bæjarapóteki, Melhaga 20-22, sími
552-2190. Auk þess verður varsla í Háa-
leitisapóteki, Háaleitisbraut 68, sími
581-2101 kl. 18 til 22 virka daga. Uppl. um
læknaþjónustu eru gefnar í sima 18888.
Mosfellsapótek: Opið virka daga frá
kl. 9-18.30, laugardaga kl. 9-12.
Apótek Garðabæjar: Opið mánudaga-
fóstudaga kl. 9-18.30 og laugardaga kl.
11-14. Sími 651321.
Apótek Kópavogs: Opið virka daga frá
kl. 8.30-19, laugardaga kl. 10-14.
Hafnarfjörður: Norðurbæjarapótek
opið mánud. til fimmtud. kl. 9-18.30,
Hafnarfjarðarapótek ki. 9-19. Bæði hafa
opið fóstud. kl. 9-19 og laugard. kl. 10-14
og til skiptis helgidaga kl. 10-14. Upplýs-
ingar í símsvara 51600 og 53966.
Apótek Keflavíkur: Opið frá kl. 9-19
virka daga, aðra daga frá kl. 10-12 f.h.
Nesapótek, Seltjarnarnesi: Opið virka
daga kl. 9-19 nema laugardaga kl. 10-12.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka
daga kl. 9-12.30 og 14-18. Lokað laugar-
daga og sunnudaga.
Akureyrarapótek og Stjörnuapótek,
Akureyri: Á kvöldin er opið í þvi apó-
teki sem sér um vörslun til kl. 19. Á
helgidögum er opið kl. 11-12 og 20-21. Á
öðrum tímum er lyfjafræðingur á bak-
vakt. Upplýsingar í síma 22445.
Heilsugæsla
Slysavarðstofan: Sími 696600.
Sjúkrabifreið: Reykjavík, Kópavogur
og Seltjamames, sími 11100,
Hafnarfjörður, sími 51100,
Keflavík, simi 20500,
Vestmannaeyjar, sími 11955,
Akureyri, sími 22222.
Krabbamein - Upplýsingar fást hjá fé-
lagsmálafulltrúa á miðvikudögum og
fimmtudögum kl. 11-12 í síma 621414
Læknar
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn-
arnes og Kópavog er í Heilsuvemdar-
stöð Reykjavikur alla virka daga frá kl.
17 til 08, á laugardögum og helgídögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir,
símaráðleggingar og tímapantanir í
simi 21230. Upplýsingar um lækna og
lyfjaþjónustu í símsvara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt frá kl. 8-17 alla
virka daga fyrir fólk sem ekki hefur
heimilislækni eða nær ekki til hans (s.
696600) en slysa- og sjúkravakt (slysa-
deild) sinnir slösuðum og skyndiveik-
um allan sólarhringinn (s. 696600).
Vísirfyrir50ámm
Þriðjud. 21. mars
Um 1000 Reykvík-
ingar búa í bröggum.
Örðugasta viðfangsefni hú-
saleigunefndar eru ástands-
stúlkurnar.
Seltjarnarnes: Heilsugæslustöðin er
opin virka daga kl. 8-17 og 20-21, laugar-
daga kl. 10-11. Sími 612070.
Hafnarfjörður, Garðabær, Álftanes:
Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta
morgun og um helgar, sími 51328.
Keflavík: Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8
næsta morgun og um helgar. Vakthaf-
andi læknir er í síma 20500 (sími Heilsu-
gæslustöðvarinnar).
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna í
sima 11966.
Akureyri: Dagvakt frá kl. 8-17 á Heilsu-
gæslustöðinni i síma 22311. Nætur- og
helgidagavarsla frá kl. 17-8, sími (far-
sími) vakthafandi læknis er 985-23221.
Uppíýsingar hjá lögreglunni í síma
23222, slökkviliðinu í síma 22222 og
Akureyrarapóteki í síma 22445.
Heincisóknartími
Landakotsspítali: Alla daga frá kl.
15-16 og 18.30-19. Barnadeild kl. 14-18,
aðrir en foreldar kl. 16-17 daglega. Gjör-
gæsludeild eftir samkomulagi.
Borgarspítalinn: Mánud.-fostud. kl.
18.30-19.30. Laugard.-sunnud. kl. 15-18.
Heilsuverndarstöðin: Kl. 15-16 og
18.30-19.30.
Fæðingardeild Landspítalans: Kl.
15-16 Og 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Heimsóknartími
frá kl. 15-16, feður kl. 19.30-20.30.
Fæðingarheimili Reykjavíkur: kl.
15-16.30
Kleppsspítalinn: Kl. 15-16 og 18.30-
19.30.
Flókadeild: Kl. 15.30-16.30.
Grensásdeild: Kl. 16-19.30 virka daga
og kl. 14-19.30 laugard. og sunnud.
Hvítabandið: Ftjáls heimsóknartími.
Kópavogshælið: Eftir umtali og kl.
15-17 á helgum dögum.
Sólvangur, Hafnarfirði: Mánud.-laug-
ard. kl. 15-16 og 19.30-20. Sunnudaga
og aðra helgidaga kl. 15-16.30.
Landspitalinn: Alla virka daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Barnaspítali Hringsins: Kl. 15-16.
Sjúkrahúsið Akureyri: Kl. 15.30-16 Og
19-19.30.
Sjúkrahúsið Vestmannaeyjum: Kl.
15-16 og 19-19.30.
Sjúkrahús Akraness: Kl. 15.30-16 og
19-19.30.
Hafnarbúðir: Kl. 14-17 og 19-20.
Vífilsstaðaspitali: Kl. 15-16 og 19.30-20.
Geðdeild Landspítalans Vífilsstaða-
deild: Sunnudaga kl. 15.30-17.
TiXkyimingar
AA-samtökin. Eigir þú við áfengis-
vandamál að stríða, þá er sími samtak-
anna 16373, kl. 17-20 daglega.
Blóðbankinn. Móttaka blóðgjafa er op-
in mán.-miðv.’kl. 8-15, funmtud. 8-19 og
fóstud. 8-12. Sími 602020.
Söfnin
Ásmundarsafn við Sigtún. Opið dag-
lega kl. 13-16.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74: Op-
iö laugard og sunnud. kl. 13.30-16.
Árbæjarsafn: Tekið á móti hópum eftir
samkomulagi. Upplýsingar í síma 84412.
Borgarbókasafn Reykjavíkur
Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155.
Borgarbókasafnið í Gerðubergi 3-5, s.
79122.
Bústaðasafn, Bústaöakirkju, s. 36270.
Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814.
Ofangreind söfn eru opin sem hér segir:
mánud.-funmtud. kl. 9-21, fóstud. kl.
9- 19, laugard. kl. 13-16.
Áðalsafn, lestrarsalur, s. 27029. Opið
mánud.-laugard. kl. 13-19.
Grandasafn, Grandavegi 47, s.27640.
Opið mánud. kl. 11-19, þriðjud.-fóstud.
kl. 15-19.
Seljasafn, Hólmaseli 4-6, s. 683320.
Bókabílar, s. 36270. Viðkomustaðir víös
vegar um borgina.
Sögustundir fyrir böm:
Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15. Borgar-
bókasafnið í Gerðubergi, fimmtud. kl.
14-15. Bústaðasafn, miðvikud. kl.
10- 11. Sólheimar, miðvikud. kl. 11-12.
Lokað á laugard. frá 1.5.-31.8.
Kjarvalsstaðir: opið daglega kl. 10-18.
Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7:
er opið daglega nema mánud. kl. 12-18.
Listasafn Einars Jónssonar. Opiö
laugard. og sunnud. kl. 13.30-16. Högg-
myndagarðurinn er opinn alla daga.
Spakmæli
Tónlistin lýsir því
sem ekki verður með
orðum tjáð og óger-
legt eraðþegjayfir.
Victor Hugo
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á
Laugarnesi er opiö laugard.-sunnud.
kl. 14-17.
Náttúrugripasafnið við Hlemmtorg:
Opið sunnud., þriðjud„ fimmtud. og
laugard. kl. 13.30-16.
Norræna húsið við Hringbraut: Sýn-
ingarsalir í kjallara: alla daga kl. 14-19.
Bókasafn Norræna hússins: mánud. -
laugardaga kl. 13-19. Sunnud. kl. 14-17.
Sjóminjasafn íslands er opið helgar kl.
13-15 og eftir samkomulagi fyrir hópa.
J. Hinriksson, Maritime Museum, Sjó-
og vélsmiðjuminjasafn, Súðarvogi 4, S.
814677. Opiö kl. 13-17 þriðjud. - laugard.
Þjóðminjasafn Islands. Lokað vegna
viðgerðar.
Stofnun Árna Magnússonar: Hand-
ritasýning í Árnagárði við Suðurgötu
opin virka daga kl. 14-16.
Lækningaminjasafnið í Nesstofu á Sel-
tjamarnesi: Opið samkvæt samkomu-
lagi. Upplýsingar í síma 611016.
Minjasafnið á Akureyri, Aöalstræti 58,
sími 96-24162, fax. 96-12562. Opnunar-
tími 1. júní-15. sept. alla daga frá 11 til
17.15. sept. Jil 1. júní sunnud. frá 14-16.
Bilanir
Rafmagn: Reykjavík, Kópavogur og
Seltjarnames, sími 686230. Akureyri,
sími 11390. Suðumes, sími 13536. Hafn-
arfjörður, sími 652936. Vestmannaeyjar,
sími 11321.
Hitaveitubilanir:
Reykjavík og Kópavogur, sími 27311,
Seltjamames, sími 615766, Suðurnes,
sími 13536.
Vatnsveitubilanir:
Reykjavík sími 27311. Seltjarnarnes,
sími 621180. Kópavogur, sími 985 - 28215.
Akureyri, sími 23206. Keflavík, sími
11552, eftir lokun 11555. Vestmannaeyj-
Adamson
r""' 111 \ Wu S-96
1©PIB cmRMUM á m
Um í ff o
ar, símar 11322. Hafnarfjörður, sími
53445.
Símabilanir: í Reykjavík, Kópavogi,
Seltjamamesi, Akureyri, Keflavík og
Vestmannaeyjum tilkynnist í 05.
Bilanavakt borgarstofnana, sími
27311: Svarar alla virka daga frá kl. 17
síödegis til 8 árdegis og á helgidögum
er svarað allan sólarhringinn.
Tekið er við tilkynningum um bilanir á
veitukerfum borgarinnar og í öðrum
tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa
að fá aðstoð borgarstofnana.
Sljömuspá______________________________________
Spáin gildir fyrir miðvikudaginn 22. mars.
Vatnsberinn (20. jan.-18. febr.):
Þú undrast eitthvað sem þú sérð eða heyrir. Við athugun er þó
allt eðlilegt. Allt færist í fastar skorður í kvöld.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars.):
Einhver leikur þig grátt þar sem þú ert of trúgjam. Þú ættir að
nota tímann til þess að sinna eigin málum.
Hrúturinn (21. mars-19. apríl):
Taktu ekki ótrúverðugar skýringar gildar. Sýndu andúð þína. Þú
eignast nýja vini fljótlega.
Nautið (20. april-20. mai):
Það má búast við skoðanaágreiningi í dag. Reyndu þó að leysa
ágreining áður en þú gengur til náða. Þú færð góðar fréttir síðdeg-
is. Happatölur era 2, 22 og 36.
Tvíburarnir (21. maí-21. júní):
Þú ert mun uppteknari af því sem er að gerast núna fremur en
einhverju sem kann að gerast í framtíðinni. Þú lætur þvi ákvarð-
anir bíða.
Krabbinn (22. júní-22. júlí):
Menn treysta þér og því er líklegt að þú takir að þér hlutverk
sáttasemjara. Reyndu að hughreysta þá sem eiga um sárt að
binda.
Ljónið (23. júlí-22. ágúst):
Ákveðnir aðilar era óraunsæir. Það er því erfitt að komast að
sameiginlegri niðurstöðu. Þú gætir þurft að taka allar ákvarðan-
ir einn og óstuddur.
Meyjan (23. ágúst-22. sept.):
Ýmislegt hefur áhrif á þig í dag. Reyndu að gera nákvæmar athug-
anir áður en þú framkvæmir. Þú færð hrós fyrir vel unnin störf.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
Þú hikar við og ert í vafa um hæfileika þína til að fást við ákveð-
ið mál. Talaðu við aðila sem þú treystir fremur en að ana áfram.
Sporðdrekinn (24. okt.-21. nóv.):
Þér semur vel við aðila sem venjulega eru í andstöðu við þig.
Farðu gætilega með það sem á ekki aö lenda hjá öðrum.
Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.):
Gerðu upp hug þinn um mál sem snertir marga. Ákveðinn aðili
reynir að hafa áhrif á þig. Haltu hugsunum þínum fyrir sjálfan
Þig-
Steingeitin (22. des.-19. jan.):
Gættu orða þinna. Einhveijir kunna að rifja þau upp síðar og það
gæti komið sér illa fyrir þig. Ákveðinn aðili aðstoðar þig óvænt.
Happatölur era 10, 24 og 29.