Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1995, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1995
13
Fréttir
Verðhækkun á nautakjöti:
Vegna þving-
unaraðgerða
kúabænda
- segir formaður Neytendasamtakanna
„Þetta minnkandi framboð eru
þvingunaraðgerðir sem Landssam-
band kúabænda greip til til að ná upp
verði á nautakjöti. Framleiðendur
voru í raun knúnir til að draga úr
framboði sínu. Þeir hafa veriö að
flytja út besta kjötið á sama tíma og
kjötskortur er hér. Það er eðlileg
krafa neytenda á Landssamband
kúabænda að það upplýsi hvaða verð
það fær fyrir þetta í Bandaríkjunum.
Það sé þá á hreinu að þessi hækkun
sé ekki til að dekka þennan útílutn-
ing,“ segir Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna,
vegna verðhækkunar á nautakjöti.
Nautakjöt hækkaði í verði um 10
prósent til framleiðenda í gær. Þetta
þýðir verðhækkun á bilinu 5 til 7
prósent til neytenda. í tilkynningu
frá framleiðendum segir að hækkun-
in sé m.a. til komin vegna minnkandi
framboös og vaxandi eftirspurnar.
Nýlega voru seld 10 tonn af nauta-
kjöti til Bandaríkjanna og þá var
haft eftir kjötframleiðendum að það
hefði engin áhrif á framboð á nauta-
kjöti hérlendis.
Guðbjörn Ámason, framkvæmda-
stjóri Landssambands kúabænda,
segir að þau 10 tonn af nautakjöti
sem flutt voru til Bandaríkjanna hafi
engin áhrif á innanlandsmarkaðinn
eins og sjá megi af því að seld séu
innanlands 350 tonn á ári. Hann seg-
ir ekkert óeðlilegt vera við hækkun-
ina núna, þetta sé hluti af markaðs-
kerfinu.
„Þetta er sveigjanlegur markaðúr
sem fylgir framboði og eftirspurn.
Þetta kemur til með að lækka aftur.
Það er fullt af kálfum í uppeldi og
þegar framboðið eykst aftur mun
verð lækka. Þetta er einfaldlega eðli
markaðarins," segir Guðbjörn.
-rt
Stúlkurnar hjá Trausta hf. notuðu verkfall kennara til að taka til hendinni
við saltfiskverkunina. DV-mynd gk
Aflahrota í Eyjafirði:
Skólakrakkar tóku til hendinni
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það kom sér vel að geta haft
krakkana í vinnu þessa daga sem
aflahrotan stóð yfir, þetta eru krakk-
ar sem hafa unnið hjá mér í mörg
ár og kunna vel til verka,“ segir
Hilmir Sigurðsson, fiskverkandi á
Hauganesi í Eyjafirði og eigandi
Trausta hf.
Mikil aflahota var hjá netabátum í
Eyjafirði fyrir nokkrum dögum og
voru dæmi þess að netabátar væru
að koma með 15-16 tonn eftir daginn.
Veiðin var í mynni Eyjafjarðar og
þar fyrir utan, en hins vegar var afli
lítill hjá krókabátum á þessum tíma.
viristri barátta
Sjálfstæðarkonurv\\]a að litið sé á konur sem frjálsa
einstaklinga, hvorki betri né verri en karlmenn - og gera
kröfu um jöfn tækifæri kynjanna.
Við viljurn
... að konur fái sömu laun og karlar fyrir sambærileg störf.
... efla fjölskylduna með því að foreldrar beri sameiginlega ábyrgð á
heimilisstörfum og barnauppeldi.
... viðurkenna að innan hvors kynjahóps er jafnmikil breidd í
hæfileikum og getu.
... að karlar fái sama rétt til fæðingarorlofs og konur.
... ná varanlegum lausnum á grundvelli sjálfstæöisstefnunnar, sem
byggir á frelsi einstaklingsins.
Til að jafha launamismun kynjanna þarf almenna viðhorfsbreytingu.
Metum konur og karla jafnt - sem sjálfstæða einstaklinga.
Kvennapólitík til hægri snýst
um frelsi til að velja.
BETRA
ÍSLAND
SJ ÁLFSTÆÐAR KONUR
MATUR & KÖKUR
r mr jm mj æj æ* jm jm æw jm jm æj jm jm jm mr mm mm ~ mm ^m ^m ^m ^m ^m ^m ^ ^ ^ ^ _
16 síðna aukablað um mat og kökur
fyrir páskana fylgir DV á morgun.
Fjallað verður um matartilbúning fyrir
fermingarnar, nýjar kökuuppskriftir, upp-
skriftasamkeppni um nýstárlega eftirrétti
og margt fleira.