Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1995, Blaðsíða 22
30
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1995
íþróttir unglinga
íslandsmeistarar í 6. flokki kvenna
íslandsmelstarar Hauka í handknattlelk stúlkna, 6. flokkur 1995. í llðinu
eru eftirtaldar stúlkur: Ellen Lárusdóttlr, Ema Halldórsdóttir, Rakel Þrá-
insdóttlr, Ásdis Björk Kristjánsdóttir, Ingibjörg Bjarney Bjarnadóttir og
Ásta Marteinsdóttir, Erla Helgadóttir, Björk Þorsteinsdóttir, Ágústa Krist-
ín Jónsdóttir, íris Randversdóttir, Birna Árnadóttir. Þjálfari stelpnanna
er Ótafur Sveinsson. Steipurnar urðu einnig meistarar í tyrra. Þjálfarinn
vill koma á framfaeri þakklæti til Haukaforeldra fyrir frábært starf.
OV-myndir Þorsteinn Gunnarsson
Framstúlkurnar urðu íslandsmeistarar bæðl í keppni B- og C-liða, sem
verður að teljast frábær árangur.
ÍBV-liðið náöi frábærum árangri því stúikumar léku til úrsllta I keppnl
A-liða gegn Haukum og urðu í 2. sæti. Aldís, sem er önnur frá vinstri
í fremri röð, skoraði 17 mörk í úrslitakeppninni.
Bestu leikmenn Íslandsmótsins, frá vinstri: Rakel Þráinsdóttir, Haukum,
besti lelkmaður A-liða, Björg Ólöf Helgadóttir, Fram, besti leikmaöur
C-liða. Anna Tómasdóttir, Fylkl, besti leikmaður B-liða, Anna Llnda
Ágústsdóttir, ÍR, besti markvörður A-liða, Ragnheiður 0. Eggertsdóttir,
Fram, bestl markvörður B-liða og Inglbjörg Einarsdóttlr, Víkingi, bestl
markvörður C-liða.
íslandsmótið, 6. flokkur, handbolti telpna:
Haukar með besta liðið
- og unnu 1 keppni A-liða - Fram sigraði í B- og C-liðum
Frá vinstri, fyrirliði Fram C1, Birna Hrönn Björnsdóttir, og Fram C2, Þórey
Hannesdóttir en liðin léku til úrslita. DV-mynd Þorsteinn Gunnarsson
Þorsteinn Guiuiarsson, DV, Eyjum:
Haukastúlkurnar uröu íslands-
meistarar í A-liði 6. flokks með því
að sigra ÍBV í úrslitaleik, 9-6. Fram-
stelpurnar sigruðu aftur á móti bæði
í B- og C-liðum sem er frábært. Úrsli-
takeppnin fór fram í Vestmannaeyj-
um helgina 18.-19. mars og unnu 8
stigahæstu lið vetrarins sér rétt til
þátttöku.
Haukaliðið var vel að sigrinum
komið í keppni A-liða. Stelpumar
höfðu undirbúið sig vel fyrir úrslita-
keppnina og voru með besta liðið.
Umsjón
Halldór Halldórsson
Þær unnu alla leikina í riðlakeppn-
inni og unnu síðan FH stórt í undan-
úrslitum, 10-5. ÍBV-stúikurnar komu
mjög á óvart og höfnuðu í 2. sæti í
riðlakeppninni með 2 stig en hag-
stæðari markahlutfall í innbyrðis-
leikjum við Fram og ÍR. í undanúr-
slitunum vann ÍBV Stjörnuna, 6-5.
í úrslitaleiknum í keppni A-liða
reyndist liö Hauka mun sterkara og
hafði yfir í hálfleik, 6-3. ÍBV-stelp-
umar, drifnar áfram af stórleik Al-
dísar Grímsdóttur, náðu að ógna að-
eins í seinni hálíleik en góður enda-
sprettur Hauka tryggði þeim sigur,
9-6. Ingibjörg B. Bjarnadóttir var
best hjá Haukum með 4 mörk. Elma
Halldórsdóttir skoraöi 2 og Elísa B.
Þorsteinsdóttir, Rakel Þráinsdóttir
og íris A. RandVersdóttir 1 mark
hver. Aldís skoraði hins vegar öll
mörk ÍBV og gerði alls 17 mörk í
keppninni.
Hjá B-liðunum áttust við Fylkir og
Fram í úrslitaleik sem var ótrúlega
sveiflukenndur því Fylkir haföi yfir
í hálfleik, 5-2. En Framarar áttu frá-
bæran síðari hálfleik og tryggðu sér
framlengingu með því að skora þrjú
mörk en Fylkir skoraöi ekkert og
staðan því 5-5. í framlengingu var
jafnt á næstum öllum tölum en undir
lokin tókst Fram aö knýja fram sig-
ur, 9-8. Markvörður Fram, Ragn-
heiður Ósk Eggertsdóttir, bjargaði
oft af mikilli snilld. í leik um bronsið
vann Stjarnan FH, 4-3.
Hjá C-liðum gerðist það að Fram
átti bæði liðin í úrslitaleiknum. Svo
fór að Fram Cl sigraði Fram C2,6-5,
í mjög spennandi leik. Víkingur
hlaut bronsið með sigri á Fylki, 5-3.
Víkingur ar útnefnt prúðasta lið
keppninnar.
Leikir um sæti - A-lið
Undanúrslit:
Haukar-FH.....................10-5
ÍBV - Stjaman..................6-5
3.-4. FH - Stjarnan............6-5
1.-2. Haukar - ÍBV.............9-6
íslandsmeistari: Haukar.
Leikir um sæti - B-lið
Undanúrslit:
Fram-FH........................8-6
Fylkir - Stjarnan..............4-3
3.-4. FH - Stjarnan............3-4
1.-2. Fram - Fylkir............9-8
íslandsmeistari: Fram.
Leikir um sæti - C-lið
Undanúrslit:
Fram - Fylkir.................11-5
Víkingur - Frain...............3-4
3.-4. Fylkir - Víkingur........3-5
1.-2. Fram C1 - Fram C2........6-5
íslandsmeistari: Fram Cl.
Ég var í stuði
Ragnheiður Ósk Eggertsdóttir,
markvörður B-liðs Fram, vakti mikla
athygli meö góðri frammistöðu:
„Eg hef æft handbolta í 3 ár og var
í rosalegu stuði í úrslitaleiknum gegn
Fylki nema í fyrri hálfleik. Við emm
svona góðar hjá Fram af því aö við
erum svo margar og höfum frábæran
þjálfara," sagði Ragnheiður.
Við erum svo góðar vinkonur
Tvö Framhð mættust í úrslitaleik í
keppni C-liða og sigraði Fram C1
Fram C2, 6-5. Fyrirhðar þeirra,
Birna Hrönn Bjömsdóttir hjá Cl og
Þórey Hannesdóttir hjá C2, voru
sammála um að það væri leiðinlegt
að keppa á móti vinkonum sínum
úr Fram en þær stöllur sögðu að
þetta hefði reyndar gerst áður á móti
í vetur en þá hefði Fram C2 unnið.
Birna Hrönn, sem er 10 ára, sagði að
ástæðan fyrir því að þeim gengi
svona vel væri að hópurinn sem æfði
væri mjög stór og að þær væru allar
svo góðar vinkonur.
Þórey, sem er 11 ára, sagði að það
væri mjög gaman að koma til Eyja
og kynnast öllum stelpunum í hinum
Uöunum.
Var ekkert stressuð
Aldís Grímsdóttir, stórskyttan í A-
hði ÍBV, vakti mikla athygli á mótinu
en hún skoraði öll mörk ÍBV í úr-
slitaleiknum gegn Haukum, 6 talsins,
og gerði afls 17 mörk í mótinu.
',,Eg var ekkert stressuð fyrir úr-
slitaleikinn. Við héldum fyrir mótið
að við kæmumst ekki svona langt því
besti árangur okkar áður var 6. sæt-
ið. Þetta var rosalega skemmtilegt
og við vorum mjög ánægðar meö 2.
sætið,“ sagði Aldís.
Landskeppni 1 borðtennis:
Svíar hef ndu óf áranna í fyrra
- Hasse marði sigur gegn Guðmundi á boðsmóti TBÍ
Unglingalandslið Islands og Sví-
þjóðar mættust í landsleik í borð-
tennis 1. apríl í TBR-húsinu. Lið
íslands var skipað Guðmundi
Stephensen, Ingólfl Ingólfssyni,
Bimi Jónssyni og Markúsi Árna-
syni. Svíar mættu með sitt sterk-
asta liö og sigruðu, 6-3, eftir hörku-
viðureignir og þurfti m.a. að leika
oddalotu í leik Guðmundar gegn
Cyprian sem lauk 2-1 fyrir Svíann.
Svíarnir náðu því að hefna ófar-
anna frá því í fyrra þegar þeir töp-
uðu fyrir íslenska liðinu, 2-7.
Spennandi boðsmót BTÍ
Sunnudaginn 2. apríl fór síðan
fram hið árlega boðsmót BTÍ sem
fór fram í TBR-húsinu með þátt-
töku sænska landsliðsins og 17 ís-
lenskra borðtennismanna. Þeir
sem komust í 4ra manna úrslit
voru Svíarnir og Guðmundur E.
Stephensen. Guðmundur lék gegn
Svíanum Robert Nilsson og sigraði,
2-1. í hinum undanúrslitaleiknum
sigraði Svíinn Hasse Petterson
samlanda sinn Cyprian, 2-0.
Úrslitaleikurinn varð því milli
Guðmundar og Hasse Pettersons
sem varö hörkuspennandi viður-
eign sem endaði með sigri Svíans,
2-1.
Það er alveg ljóst að borðtennis
hefur tekið miklum framfórum hér
á landi og það sjáum við best á því
að okkar unglingar, sem voru að
leika við sænska jafnaldra sína,
stóðu þeim fyllilega á sporði að
getu en við megum ekki gleyma því
að Svíar eru ein besta borðtennis-
þjóð í heimi.
Þessir kappar léku til úrslita í boðsmóti TBÍ, frá vinstri: Guðmundur
Stephensen, íslandi, varð i 2. sæti, Hasse Petterson, Svíþjóð, sigraði,
Cyprian, Svíþjóð, varð í 3. sæti og Nilsson, Svíþjóð, varð í 4. sæti. Þrir
síðasttöldu skipuðu sænska landsliðið.