Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1995, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1995, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1995 31 Afmæli Atli Ágústsson Atli Ágústsson, vélfræðingur hjá Landsvirkjun, er fimmtugur í dag. Starfsferill Atli fæddist í Hveragerði en ólst upp í Danmörku til fiórtán ára ald- urs. Hann lauk prófi frá Vélskóla ísiands 1974 og sveinsprófi í vél- virkjun hjá Birni og Halldóri 1982. Ath var vélstjór á fiskibátum og togurum á árunum 1970-75, kennari við Iðnskólann á ísafirði 1975-78, vélfræöingur á skipum Eimskipafé- lagsins 1978-88, yfirvélfræðingur hjá Nesskipum á ms. Selnesi 1988-90 en hefur verið vélfræðingur í gasafl- stöð Landsvirkjunarfrá 1991. Hann er aðaltrúnaðarmaður vélfræðinga Landsvirkjunar. Fjölskylda Atli kvæntist Helgu E. Kristins- dóttur, fulltrúa í Iðnþróunarsjóði. Hún er dóttir Kristins Kristvarðs- sonar, fyrrv. kaupmanns í Reykja- vík, og Valdísar Meyvatnsdóttur. Börn Atla eru Ágústa, f. 29.4.1962, bankastarfsmaður, en maður henn- ar er Heiðar Sigtryggsson deildar- stjóri og eru dætur þeirra Linda, f. 6.10.1982, Harpa, f. 12.2.1989 og óskírð, f. 31.3.1995; Bjarki Þór, f. 10.8.1967, smiður; Ágúst Guðmund- ur, f. 17.3.1972; Atli Geir, f. 20.9.1975. Böm Helgu eru Kristinn Valur Wiium, f. 10.2.1969, húsasmiður, en kona hans er Ásta Kristný Ámadótt- ir og er dóttir þeirra Arnrún, f. 1994; Gunnar Dan Wiium, f. 1.7.1976, nemi; Helga Dögg Wiium, f. 9.12.1980. Systkini Atla eru Einar Ágústs- son, f. 23.9.1922, d. 12.4.1986, ráð- herra og síðar sendiherra; Ásgeir Einarsson, f. 21.1.1935, skólastjóri í Danmörku; Edda Helga Launders, atvinnurekandi í Englandi. Foreldrar Atla: Ágúst Einarsson, f. 13.8.1898, d. 1988, fyrrv. kaupfé- lagsstjóri, og Edel Einarsson, f. 13.6. 1907, hjúkrunarfræðingur, búsett í Skælsbor í Danmörku. Atli og Helga eru erlendis á afmæl- isdaginn. Atli Ágústsson. Guðni Hannesson Guöni Hannesson, hagfræðingur og stórkaupmaður, Álfheimum 18, Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Guðni fæddist í Hlíðarhúsum við Vesturgötu í Reykjavík og ólst upp í vesturbænum. Hann lauk verslun- arprófi frá VÍ1944, stúdentsprófi frá sama skóla 1946, MA-prófi í hag- fræði frá St. Andrew’s háskólanum í Skotlandi 1951 og er löggiltur skjalaþýðandi í ensku frá 1962. Guðni var fulltrúi hjá Olíufélag- inu hf. 1951-71 en stofnsetti þá eigin umboðs- og heildverslun sem hann hefur starfrækt síðan. Fjölskylda Guðni kvæntist 1.10.1949 Önnu Ragnheiði Ingyarsdóttur, f. 28.11.1926, húsmóður. Hún er dóttir Ingvars Sig- urðssonar cand. phil. og Mörtu Ein- arsdóttur, kaupkonu í Reykjavík. Böm Guðna og Önnu Ragnheiðar eru Ingvar Gunnar, f. 6.3.1951, sál- fræðingur á Sauðárkróki, búsettur í Skagafirði, kvæntur Bryndísi Guð- mundsdóttur og á Ingvar eina dótt- ur, Ölmu Ragnheiði, f. 19.6.1970; Rósa Marta, f. 1.12.1955, kennari í Reykholti í Borgarfirði, og á hún tvo syni, Magnús Kára, f. 11.5.1975 og Arnar Guðna, f. 3.5.1989. Systkini Guðna eru Einar, f. 13.2. 1928, fulltrúi í Reykjavík, kvæntur Katrínu Pétursdóttur; Guöný, f. 12.3.1930, húsmóðir í Reykjavík og ekkja eftir Jón Axelsson. Foreldrar Guðna voru Hannes Einarsson, f. 11.3.1896, d. 4.8.1970, sjómaður og fiskmatsmaður, og Rósa Steinunn Guðnadóttir, f. 17.5. 1899, d. 15.9.1993, húsmóðir. Guðni verður með gestamóttöku í Ársal Hótel Sögu, inngangur um norðurdyr, í dag kl. 18.00-20.00. Guðni Hannesson. Hildur Eiðsdóttir Hildur Eiðsdóttir húsmóðir, Ár- teigi, Ljósavatnshreppi í Suður- Þingeyjarsýslu, er sjötug í dag. Fjölskylda Hildur er fædd á Þóroddsstaö i Ljósavatnshreppi og ólst upp i Köldukinn. Hún stundaði nám í Al- þýðuskólanum á Laugum í Reykja- dal og síðar í Húsmæðraskólanum á Laugum. Hildur gegndi starfi rit- ara og síðar formanns í Kvenfélagi Þóroddstaðarsóknar. Maður Hildar er Jón Sigurgeirs- son, f. 13.11.1921, vélsmiður. For- eldrar hans: Sigurgeir Pálsson og Kristín Jónsdóttir. Þau bjuggu á Granastöðum. Börn Hildar og Jóns: Kristín kenn- ari, maki Ögmundur Guðmundsson loftskeytamaður, þau eru búsett í Reykjavík og eiga þrjú böm, Guð- mund, Jón og Unni; Kristbjörg sjúkraliði, maki Haukur Þórðarson rafvirki, þau era búsett á Akureyri og eiga tvö börn, Hildi og Val; Sigur- geir bóndi, búsettur í Árteigi; Eiður rafvirki, maki Anna Harðardóttir kennari, þau era búsett í Árteigi og eiga tvö börn, Andreu og Arnór; Arngrímur vélvirki, maki Svanhild- ur Kristjánsdóttir, þau eru búsett á Granastöðum og eiga tvö börn, Irisi og Óðin; Karitas, maki Erlingur Kristjánsson íþróttakennari, þau eru búsett á Akureyri og eiga eitt barn, Örnu Valgerði. Systkini Hildar: Friðgeir, f. 27.8. 1919; Amgrímur, f. 23.4.1922; Þór- oddur, f. 13.4.1927; Helga, f. 27.9. 1935. Þau eru öllu búsett á Akureyri. Foreldrar Hildar: Eiður Arn- grímsson, f. 25.2.1886, bóndi, og Karitas Friðgeirsdóttir, f. 14.4.1890, húsmóðir. Þau bjuggu á Þórodds- stað. Hildur Eiðsdóttir. Leiðrétting Myndaruglingur var með mynd- listargagnrýni í blaöinu í gær. Mynd- in hér aö ofan er eftir Sveinbjörgu Hallgrímsdóttur og átti að fylgja umfiöllun um sýningu hennar í Stöðlakoti. Beðist er velvirðingar á mistökunum. WÆJJMÆÆÆÆJÆJJJJMÆUi ATH.! Smáauglýsing í helgarblaö DV veröur aö berast okkur fyrir kl. 17 á föstudag. Þ DV 4 verholti 11-105 Reykjaví Sími 563 2700 Bréfasími 563 2727 Græni síminn: 99-6272 JRMESON REYKSKYNJARI GETUR VERIÐ LÍFGJAFI Margar gerðir fyrir mismunandi staðsetningar. Minni um sig en aðrar gerðir. Allar gerðir eldvarnartækja. Þjónustum slökkvitæki. HAGSTÆTT VERÐ. LEITIÐ UPPLÝSINGA. □ FlDVARNAMIflSTSfllN Hf ÓLAFUR GÍSLASON & CO. HF. SUNDABORG 22 SÍMI 91-684800 EVROPUVIKA ALÞYÐUFLOKKSINS Alþýðuflokkurinn vill vekja athygli á að eftirfarandi fyrirtæki bjóða evrópuverð á sínum vörum út þessa viku. Verðlækkunin er áþreifanleg. OKKUR ER ALVARA! BORGARLJOS ucinazizs HEIMILISTÆKI á evrópuverði Allt að 25% verðlækkun REYKJAVÍK AKRANESI KEFLAVÍK HAFNARFIRÐI AKUREYRI ÍSAFIRÐI EGILS- STÖÐUM HÖFN SELFOSSI 3.-7. apríl - vestur í bæ KJÚKLINGUR á evrópuverði 6. apríl Sími 564 3535 16" PIZZUR á 900 króitur 3.-7. apríl l/AFFI , RE Y IvJ AVIK HÁDEGIS- VERÐUR 490 krónur 3.-7. apríl Hagfræðistofnun Háskóla fslands telur í skýrslu sinni til ríkisstjómar- innar að við aðild íslands að Evrópu- sambandinu myndi verð landbúnaðarafurða hérlendis lækka um 35-45%. Það munar um minna fyrir íslenskar fjölskyldur. Alþýðuflokkurinn vill hefja aðildarviðræður við ESB til þess að fá úr því skorið hvað íslendingum stendur til boða. /UANÞ f/fa/tW. /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.