Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ1995
7
Fréttir
Farmiðinn, skafmiðahappdrætti Happaþrennunnar og DV:
Geymdu tölurnar
- fylgstu með þeim 1DV þriðjudaga til föstudaga
„Feröaleikurinn gengur út á það að
ef ein af happatölum D V á Farmiðan-
um birtist jafnframt í blaðinu hefur
þú unnið. Þú verður að geyma DV-
hluta miðans og bera númer hans
síðan við tölurnar sem birtast í blað-
inu þriðjudaga til íostudaga. Þú verð-
ur auðvitað að fylgjast vel með en til
þess að tryggja að þú verðir ekki af
vinningi birtir DV uppsafnaðar
happatölur 1. ágúst, 1. september og
2. október. Þú ættir því ekki að þurfa
að missa af vinningi. Við erum mjög
ánægðir með hvernig þetta hefur far-
ið af stað og við finnum að fólki finnst
þetta spennandi, nýtt og öðruvísi,“
sagði Hjálmar Kjartansson, fjármála-
og markaðsstjóri hjá Happdrætti
Háskóla íslands, um nýjan skafmiða-
leik Happaþrennunnar og DV sem
verið hefur í gangi í sumar.
Meiri vinningslíkur
Farmiðinn er í raun tveir skafmið-
ar og á stærri hluta hans er hefð-
bundið peningahappdrætti. Þar er
vinningshlutfall það sama og á öðr-
um skafmiðum Happaþrennunnar
og Sumarleikurinn er hrein viðbót
við það. Vinningslíkur fólks sem
skefur af Farmiðanum eru því meiri
en á öðrum skafmiðum.
„Þetta hefur gengið mjög vel það
sem af er og samstarfið viö DV hefur
verið mjög ánægjulegt fyrir Happa-
þrennuna. Ég vona að við getum gert
Farmiðann að árlegum viðburði. Nú
er um þriðjungur upplagsins kominn
á útsölustaði og við höfum tekið í
notkun ný sölubox sem gerir miöann
enn aðgengilegri fyrir almenning og
sölufólk."
búið að draga og leynast því innsigl-
aðir vinningsmiðar á sölustöðum um
land allt.
Vinningslíkur fólks sem skefur af Farmiðanum eru meiri en á öðrum skafmiðum og fást miðarnir á sölustöðum
um land alit.
vinningur 2,5 milljónir. Út voru gefn-
Glæsilegir vinningar ir 250 þúsund miðar en í þessu skaf-
Vinningar í Sumarleiknum eru 29 miðahappdrætti, eins og reyndar
ferðir með Flugleiðum. Fjölskyldu- alltaf í skafmiöahappdrættum, er
ferð fyrir flóra til Flórida og 28 borg
arferðir fyrir tvo til New York, Balti-
more, Frankfurt, London og Parísar
auk 150 My First Sony hljómtækja
frá Japis. Vinninga í sumarleiknum
ber að vitja á markaðsdeild DV. í
peningahluta Farmiðans er hæsti
Örn Johnson, framkvæmdastjóri
Skorra h«., greiðir 67 krónur, í
smámynt, hjá tollstjóra.
DV-mynd S
Tollstjórinn í Reykjavík:
Skorri f ékk af-
sökunog67
króna ávísun
Forstjóri heildverslunarinnar
Skorra hf. fékk nýlega senda af-
sökunarbeiðni og 67 króna ávísun
frá embætti tollstjórans í Reykja-
vík. Tilefnið var að Skorri fékk
ekki að leysa út vörur út úr tolli
vegna skuldar upp á 67 krónur,
eins og greint var frá í DV á dög-
unum.
Við athugun Tollstjóraembætt-
isins kom í Ijós að greiðslutil-
kynning á 11 þúsund króna C-gíró
seðli barst embætthiu ekki i tíma
og þvi voru reiknaðir 67 króna
vextir á skuldina. Misfórst að aft-
urkalla vaxtaskuldina hjá Skorra
og var lokað á afgreiðslu til fyrir-
tækisins vegna skuldarinnar. Nú
er málið sem sagt leyst, Skorri
hefur fengíð 67 krónurnar endur-
greiddar og verið beðinn afsök-
unarvegnaóþægindanna. -bjb
Kópasker:
Rækjuskel
stíflar
holræsin
„Við höfum verið að beijast við
þetta vandamál í mörg ár. Nú er
svo komið að þolinmæðin er á þrot-
um og við erum ákveðin í að kippa
þessu í lag áður en rækjuvertíðin
hefst í haust. Holræsakerfið okkar
er gott og við vorum með þeim
fyrstu á landinu til aö leiða skolp
út fyrir stórstraumsfjöru," sagði
Ingunn St. Svavarsdóttir,-sveitar-
stjóri á Kópaskeri, en þar hefur
rækjuskel hvað eftir annað stíflað
holræsakerfi sveitarfélagsins.
Hún sagði að enda þótt hætt væri
að fleygja skehnni í holræsakerfið
hjá rækjuvinnslufyrirtækinu færi
aldrei hjá því að eitthvaö af skel
skolaðist niður. Skehn er beitt og
safnar því að sér og um sig ims
stífla myndast.
Ingunn segir að vonast sé til þess
að vímetstromla, sem notuð hefur
verið með góðum árangri á
Hvammstanga gegn þessum vanda,
muni bjarga málum á Kópaskeri
líka. Tromlan verður sett upp áður
en rækjuvertíðin hefst í haust.
Þetta vandaða Samsung
CX-6837 AN sjónvarpstœki
ermeð:
• 28" Clear Black-myndlampa
• Nicam Stereo magnara
• Aðgerðastýringum á skjá
• íslensku textavaipi
• 4 síðna textavarpsminni
• Sjálfvirkri stöðvaleít
• 90 stöðva minni
• S-VHS-tengi
• Sjónvarpsmyndavélatengi
• RGB-tengi
• Tengi fyrir heymartól
• CTI-litaskerpu
• TvöScart-tengi
• Tímarofa
• Móttöku á Pal, Secam og
NTSC-myndbandi
• Þráðlausrí fjarstýringu
• o.m.fl.
Hœgteraðfástand að auki
TIL ALLT AÐ 36 MÁNAOA TIL ALLT AÐ S4 MÁNAÐA
Hraðþjónusta við landsbyggðina:
Graant númer:
800 8 888
(Kostar innanbœjarsímtal og
vörumarerusendarsamdœgurs)
snsasvegi 11
Sími: 5 886 886 Fax: 5 886 888
• Móttaka fyrir allt brotajárn
« Kaupum alla málma
• Útvegum hagstæða flutninga
W
■éa HRINGRÁS HF.
EMDURVINMSLA
Sími: 581 4757 • Sundahöfn