Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1995 35 Yngra fólk á erfitt með að ímynda sér foreldra sína eða vini þeirra sem kynverur. Kynlíf aldraðra Ýmsar bábiljur eru við lýði varð- andi kynlíf eldra fólks. Margir líta svo á að með vaxandi aldri hverfi öll löngun eða þörf á kynlífi. Yngra fólk á erfitt með að ímynda sér for- eldra sína eða vini þeirra sem kyn- verur. í mörgum bókum og flestum kvikmyndum er dregin upp kyn- laus mynd af eldra fólki þar sem léttur koss á kinn, klapp á vanga eða faðmlag er hámark líkamlegrar snertingar. Samkvæmtviðtekinni skoðun situr afi í ruggustól, tekur í nefið, les Moggann og segir sögur meðan amma þeytist um í eldhús- inu, bakar kökur, eldar og strýkur bamabarni létt um tárvota kinn. Það er óhugsandi að þetta sómafólk hafi sömu kynlífsþarfir og yngra fólk. Kynlíf eða kynlifsáhugi full- orðinna er stundum gerður hlægi- legur, aumkunarverður eða í versta falli glæpsamlegur. En þetta- er rangt; eldra fólk er kynverur eins og aðrir, hefur svipaðar þarfir oglanganirogfyrr. Kynhegðun aldraðra Þær fáu rannsóknir sem til eru á þessu sviði sýna svo ekki verður um villst að fólk sem komið er yfir sextugt heldur áfram að hafa kyn- ferðislegar þarfir og þrár og hagar sér í samræmi við þær í ríkari mæh en margir héldu. Það helsta sem í ljós kemur í þessum rann- sóknum er: Kynlíf aldraðra mótast að miklu leyti af kynhegðun yngri ára. Kyn- lífsáhugi þeirra sem áður höfðu engan áhuga á þessum hluta mann- legrar tilvistar vex ekki með aldr- inum. Niðurstöður rannsókna sýna að hafi kynlíf verið lélegt áður fyrr í samskiptum fólks versnar þaö, hafi það veriö gott breytist það ekki mikið. Þau pör sem höfðu mikla ánægju af kynlífi halda áfram að njóta þess. í mörgum til- vikum verður þaö betra þó að sam- fórum fækki yfirleitt eitthvað með árunum. Fólk stundar þess í stað annað kynlíf, gælur, fitl, gagn- kvæma fróun og sleikjur. Rann- sóknir sýna að flest heilsuhraust Á læknavaktínni Óttar Guðmundsson læknir eldra fólk heldur áfram að hafa mikinn áhuga á kynlífi. Fólk telur að kynlíf sé mikilvæg hfsnautn sem auki innheika og unað í samskipt- um. Þetta á bæði við um gift fólk og ógift. Flestir hafa mikinn áhuga á að halda áfram innilegum tengsl- um við aðra manneskju og telja það sjálfsagða og nauðsynlega unaðs- semd tilverunnar. Líkamleg veik- indi geta þó sett stórt og breitt strik í þennan reikning; fólk missir trúna á sjálft sig og áhuga fyrir ýmsum lífsnautnum, s.s. kynlífi. Það kemur hka í ljós í þessum rannsóknum að sjálfsfróun er mun algengari meðal eldra fólks, gifts sem ógifts, en áður var tahð. Helm- ingur karla og kvenna á aldrinum 60-70 ára fróar sér reglulega, meðal 80-91 árs karla er tíðnin 46% og htlu lægri hjá jafnöldum þeirra eða 35%. Sjáhsfróun er mjög góð kyn- ferðisleg útrás fyrir þá sem ekki hafa neinn bólfélaga og kemur sér líka vel þegar lífsforunauturinn er veikur eða fatlaður að einhveiju leyti. Margir lenda þó í einhverjum árekstrum við eigin siðgæðisvit- und vegna þess að þeir telja sjáhs- fróun niðurlægjandi, skammarlega eða jafnvel syndsamlega. Þeir sem kannað hafa þessi mál eru sammála um að kynlíf hjóna stjórnist í flestum tilvikum af hehsufari karlmannsins. Nýleg rannsókn á karlmönnum komnum yfir sextugt sýndi að 35% þeirra áttu í erfiðleikum með holdris. Tæplega helmingur karla mhh sjö- tugs og áttræðs kvörtuðu yfir sama vandamáh. í mörgum thvikum mátti rekja orsakir vandans th lík- amlegra sjúkdóma, s.s. blóðþrýst- ingshækkunar, hjartasjúkdóma, æðakölkunar, sykursýki, offitu, þunglyndis o.fl. Þessir sjúkdómar ásamt mörgum fleirum valda minnkandi kyngetu en hafa auk þess sáiræn áhrif á karlmenn með því að draga úr sjáhstrausti þéirra og trú á sig sem kynveru. Líkamleg hehsa karlsins stjórnar kynlífi mun fremur en hehsufar konunn- ar. Niðurstaða Hver einstakhngur er ábyrgur fyrir því sem hann fær út úr eigin kynlífi. Ef kynhfsins er ekki notið glatast það að eilífu. Kynlhheldur kynfærum í góðu ástandi og kemur í veg fyrir andlega og líkamlega hrörnun á sama hátt og margvísleg áreynsla, hlaup, sund, göngur og leikfimi styrkjavöðva, auka þol og vehíðan. Rannsóknir á konum eftir tíðahvörf sýna að reglulegt kynhf kemur aö einhveriu leyti í veg fyr- ir rýrnun legganga og shmhimna. Líflegt kynhf örvar framleiðslu og starfsemi kynkirtla. Boðskapurinn er: Hægt er að hægja á líkamlegri og andlegri öldrun með kynlífi. Fréttix Tryggingar á nýrri þyrlu Landhelgisgæslunnar: Útboðið kært til EFTA- dómstólsins - og Q ármálaráðuney tisins af tryggingamiðluninni NHK NHK á íslandi, alþjóðleg vátrygg- ingamiðlun, hefur kært fram- kvæmd útboðs Ríkiskaupa á trygg- ingum á nýrri þyrlu Landhelgis- gæslunnar, TF-LÍF, til fjármála- ráðuneytisins og EFTA-dómstóls- ins. Útboðið fór fram nýlega og var tilboði Sjóvár-Almennra tekið en félagið bauð lægst, eða 58 milljónir fyrir næstu tvö ár. Auk Sjóvár og NHK tók danskt tryggingafélag þátt í útboðinu. „Við höfum jafnframt beðið f]ár- málaráðuneytið um rannsókn á ákveðnum atriðum útboðsins sem að okkar mati benda til þess að Landhelgisgæslan hafi haft áhrh á það hver fékk þessi viðskipti. Við höfum vissu fyrir því að forstjóri Landhelgisgæslunnar var búinn að gefa fyrirmæh um það 45 dögum fyrir útboðið að Sjóvá-Almennar ættu að sjá um allar tryggingar Landhelgisgæslunnar í nútíð og framtíð. Þetta er brot á reglum rík- isins um innkaup og á reglum sam- kvæmt EES-samningnum sem segja til um að viðskipti yfir ákveð- inni upphæð á vegum hins opin- bera eigi að bjóða út á Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta útboö var málamyndagjömingur því 45 dög- um áður var búið að gefa þessi fyr- irmæli sem blokkeruðu markað- inn. Þetta var bara skrípaleikur," sagði Gísli Maack hjá NHK á ís- landi í samtali við DV. Fyrirmælin sem Gísh talar um frá Landhelgisgæslunni eru þegar Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri skipti um tryggingar á þyrlunni TF-SIF frá Leslie Nicholson Aviati- on í London yfir til Willis Coroon Aerospace án þess að útboð hefði farið fram en Willis Coroon er miðlari Sjóvár-Almennra á flug- tryggingum félagsins. Leshe Nic- holson hafði á síðasta ári fengið tryggingar á TF-SIF með útboði. í kæru NHK til fjármálaráðu- neytisins er tekið fram að með henni sé það ekki markmiðið að kasta rýrð á forsvarsmenn Land- helgisgæslunnar, nauðsynlegt sé að skoða framkvæmd útboðsins í ljósi þeirra staðreynda að Haf- steinn sé fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Sambands íslenskra tryggingafélaga og hafi stundað nám í tryggingatengdum fræðum í London. „Af þessu má draga þá ályktun að forstjóri Landhelgisgæslunnar hefur mjög góða þekkingu á því hvernig alþjóðlegur vátrygginga- markaður vinnur og hefur því mátt vera ljóst að þegar hann færöi vátryggingar á TF-SIF til Willis Coroon Aerospace þá veitti hann þeim um leið forgang að væntan- legum vátryggingum TF-LÍF, en á þeirri stundu var vitað að þær kæmu til útboðs eigi síðar en í júní 1995. Auk þess hafa borist spurnir af fundahöldum forstjórans í Lon- don í apríl sl. með þeim aðhum sem stóðu að lægsta tilboði í TF-LÍF,“ segir m.a. í kærubréfinu til fjár- málaráðuneytisins. -bjb Góðir notaðir bílar BMW 735i árg. '89, ek. 139 þ. km, ss. svartur. Einn með öllu. Glæsil. bfll. V. 3.200.000. Audi 100 2.3E árg. '91, ek. 60 þ. km, ss„ gylltur. V. 2.200.000. Subaru Legacy 2.0 Arctic árg. ’92, ek. Suzuki GSXR 1100 árg. '88, ek. 20 þ. 58 þ. km, ss„ hvítur. V. 1.600.000. km, svartur, toppstand. V. 670.000. Mercedes Benz 240D árg. ’80, ek. 270 þ. km, ss„ gulur. V. 350.000, einnig árg. '83, grár, beinsk. Allur uppg. V. 695.000. Paradiso fellihýsi ’93. Notað I 5 daga. Fæst á góðum kjörum. V. 450.000. Opið laugardaga 13-17 Símar: 421-4690 421-4242

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.