Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 15. JULI1995 Á toppnum Lagið Hold Me, Thrill Me, Kiss Me, Kill Me, úr kvikmyndinni Batman Forever, situr í toppsæti íslenska listans fjórðu vikuna i röð og geri aðr ir betur. Lagið, sem er ílutt af írsku hljómsveitinni U2, hefur notið mikilla vinsælda en myndin var frumsýnd vestra fyrir nokkru. Það er Val Kilmer sem fer með hlutverk leðurblöku- mannsins í myndinni. Nýtt Lag Bjarkar Guðmundsdóttur, It’s Oh so Quiet, af plötunni Post, kemur nýtt inn á listann þessa vikuna og lendir í 5. sæti. Annað lag Bjarkar, Army of Me, sem hef- ur verið í 11 vikur á listanum, er komið heldur aftarlega á listann, það er í 33. sæti þessa vikuna en var í 18. sæti vikuna þar áður. Hástökk Hástökk vikunnar er lagiö I’ll Be there for You með hljómsveit- inni The Rembrants. Lagið, sem hefur verið í þrjár vikur á listan- um, var í 28. sæti listans í síðustu viku en er nú komið í 19. sæti. Það verður spennandi að sjá hvort lagið, sem hefur verið tölu- vert mikið spilað á útvarpsstöðv- um undanfarið, komist ofar á Ust- ann. Courtney Love enn í ham Courtney Love heldur áfram að skandalísera eins og henni er einni lagið og þessa vikuna hleypti hún öllu í háaloft með ásökunum á Intemetinu á hend- ur fyrrum félaga Kurts Cobains um að hafa reynt að drepa hann með dópi. Vinurinn .heitir Buzz Osboume og leikur á gítar með hljómsveitinni The Melvins en Cobain var rótari sveitarinnar áður en hann gerðist stórrokkari. Osbomne lét þau orð falla í við- tali að Hole, hljómsveit Courtney Love, yrði ekki neitt neitt þegar Cobain væri fallinn frá þar sem hann hefði samið lungann af lög- um sveitarinnar. Love ærðist við þessi ummæli og dreifði umsvifa- laust þeirri sögu út á Intemetið að Osboume væri ekkert annað en öfundsjúkur aumingi sem á sínum tíma hefði komið Cobain á klafa eiturlyfjanna. Og eitt sinn heföi hann látið Cobain hafa sprautu af svo sterku heróíni að það hefði nægt til að sálga hon- um þrisvar sinnum. Love segist hafa komið í veg fyrir það á síð- ustu stundu að Cobain sprautaði sig með efninu. er I SI Ll m »r v ^ Mm. 1 LISTIB íi \T i\R. 12« 10 .7. '95 - 9 9 7 'C|K • I « «1 f) ÞESSI VIKA SÍÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKUR Á USTANUM 1 ,111 1 J | * 4- Q) 1 1 4 HOLD ME, THRILL ME, KISS ME, KILL ME 4MI t r- U2 Q 5 17 3 COME OUT AND PLAY OFFSPRING 3 3 3 6 THIS AIN'T A LOVE SONG BON JOVI 4 2 2 5 END OF THE CENTURY BLUR - NÝTTÁUSTA - C 5) 1 IT'S OH SO OULET BJÖRK 6 4 9 6 SÖKNUÐUR SIXTIES 7 6 13 4 RANGUR MAÐUR SÓLSTRANDARGÆJARNIR Q 13 29 3 1 DON'T BELIEVE YOU CIGARETTE (1) ?SS51 1 SÖNGUR HERÓDESAR PÁLL ÓSKAR 10 9 10 4 THINK OFYOU WHIGFIELD Cn) 12 19 3 DECEIVED IN BLOOM 12 16 28 3 . EVERYBODY'S GOTTO LEARN SOMETIMES BABY D. (13 14 36 3 FANNFERGI HUGANS SÁLIN HANS JÓNS MÍNS 14 11 15 5 WHEREVER WOULD 1 BE D. SPRINGFIELD/D. HALL 15 7 4 7 BIG YELLOW TAXI AMY GRANT 16 8 7 5 MÉR VAR SVO KALT S.S.SÓL (17 23 32 4 IF YOU ONLY LET ME IN MN8 18 10 5 5 CUANTO LA GUSTA PÁLL ÓSKAR OG MILUÓNAMÆRINGARNIR - HÁSTÖKK VIKUNNAR - 1 Gs) 28 39 3 l'LL BE THERE FOR YOU THE REMBRANTS 20 15 27 3 KYRRLÁTT KVÖLD REGGAE ON ICE (2t) NÝTT 1 SOMEWHERE SOMEHOW WET WET WET 22 21 22 3 MORGUNN TWEETY (23) NÝTT 1 KORRIRÓ AGGI SLÆ & TAMLASVEITIN 24 17 6 6 NO MATTER WHAT YOU DO OLIVIA NEWTON-JOHN (25 29 — 2 1 WANNA BE WITH YOU FUN FACTORY (26) 37 38 3 ALL IT TAKES HANNEBOEL (27 30 40 3 LET YOUR YEAH BE YEAH ALI CAMPBELL 28 22 25 5 (YOU GOT ME) ALL SHOOK UP NELSON 29 35 - 2 STOP GRAHAM GOPLE 30 19 16 8 l'LL BE AROUND RAPPIN '4- TAY 31 20 18 7 WATER RUNS DRY BOYS II MEN 32 31 31 3 1 CAN LOVE YOU LIKE THAT ALL4 0NE 33 18 8 11 ARMY OF ME BJÖRK 34 25 20 6 COME AND GET YOUR LOVE REAL MCCOY 35 36 - 2 1 BET YOU BUBBLEFLIES 36 38 _ 2 JEALOUSY CHARLES & EDDIE 37 34 34 4 AUKAKLÚBBURINN BUBBI OG RÚNAR 38 40 _ 2 SURRENDER MY LOVE NIGHTCRAWLERS 39 33 35 4 SCRCAM MICHAEL JACKSON EllNÝTT 1 ROLLTO ME DEL AMITRI Kynnir: Jón Axel Ólafsson Islenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DV og Coca-Cola á Islandi. Listinn erniöurstaöa skoöanakönnunarsem er framkvæmd af markaösdeild DV íhverri viku. Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekiö miö af spilun þeirra á islenskum útvarpsstöövum. Islenski listinn birtist á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 'á sunnudögum I sumar. Listinn er birtur, aö hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöövarinnar. Islenski listinn tekur þátt í vali “World Chart" sem framleiddur er af Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaöinu Music & Media sem er rekiö af bandaríska tónlistarblaöinu Billboard. Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og ívar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson Vörnin góð Bobby Brown, eiginmaður Whitney Houston, var sem kunn- ugt er tekinn á dögunum fyrir dólgshátt í Miami í Flórída þar sem hann barði mann og annan auk þess sem hann sýndi vörðum laganna þá lítilsvirðingu að míga inn í lögreglubílnum sem kom að sækja hann. Brown hefur nú birt vörn sína í málinu en hún geng- ur út á það að hann eigi við vanda- mál að glíma sökum þvagleka! Dýr nautn Jimmy kallinn Page, fyrrum gítarleikari Led Zeppelin, er stór- reykingamaður og kann því illa að hafa ekki rettuna við höndina þegar honum svo sýnist. Þess vegna tekur hann ekkert mark á reykingabanni í flugvélum og fer sínu fram. Það geta þó orðið dýr- ir smókar því á dögunum var hann gripinn „glóð“volgur inni á klósetti einnar vélarinnar og fékk fyrir vikið þúsund dollara sekt eða sem svarar 65 þúsund ís- lenskum krónum. 2Pac óþekkur Rapparinn 2Pac, sem situr í einu af efstu sætum bandaríska vinsældalistans með plötu sína Me Against The World og situr jafnframt í fangelsi fyrir nauðg- un og líkamsárás, var á dögun- um gómaður við hassreykingar í fangaklefanum. Fyrir vikið var hann settur í 60 daga einangrun og ennfremur má búast við að refsing hans verði lengd en hann fékk dóm í eitt og hálft til fjögur ár og á lengd refsingarinnar að fara eftir hegöun. Rappstripp Annar alræmdur rappari og hugsanlega verðandi tukthúslim- ur, Snoop Doggy Dogg, hefur hellt sér út í bissness vestur í Los Ang- eles á meðan hann bíður dóms. Ekki er hægt að segja að starfs- vettvangurinn, sem hann valdi sér, sé hámenningarlegur því hann hyggst opna keðju af stripp- búllum þar sem „listafólkið” mun að sjálfsögðu strippa við rapptónlist. Plötufréttir Hljómsveitin Echobelly hefur nýlokið við að leggja síðustu hönd á nýja plötu sem kemur út í september og er önnur plata sveitarinnar. Ekki gekk starfið andskotalaust fyrir sig því bassa- leikarinn Alex Keyser var rekinn í kjölfarið .. . Nýjustu fréttir af langþráðri plötu frá Red Hot Chili Peppers eru þær að hún komi út 8. ágúst næstkomandi... Erasure hefur lokið upptökum á nýrri plötu og þessa dagana stendur hljóðblöndun yfir . . . Og sömu sögu er að segja af hljómsveitinni 808 State .. . -SþS-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.