Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1995 Dagur í lífi Helga Bjömssonar leikara: Afmælissöngur og æfingar skjótast í búð til að kaupa leyndar- mál handa Vilborgu sem var búið að standa til lengi. Síðan upp í Blóma- val þar sem Hafsteinn tók vel á móti mér. Hann tók saman fyrir mig stór- an og fallegan rósavönd. Ég fékk líka hjá honum nokkra útjaskaða hausa til að tína af rósablöð sem mér finnst ákaflega rómantískt. Þaðan fór ég upp í Gym 80 þar sem ég þurfti að fara yfir tímatöfluna með Jóni þjálf- aranum mínum sem þarf aldeilis að koma manni í „shape“ fyrir korse- lettið. Maður er búinn að vera allt of góður við sjálfan sig undanfarna mánuði. Að því loknu náði ég sambandi við tengdaforeldrana. Ég rauk af stað í Kópavoginn þegar klukkan var að detta í sjö. Þar var tekið á móti mér með tesopa og pönnukökum. Hjá tengdaforeldrunum frétti ég að þeim Vilborgu og Birni Halldóri seinkaði. Við Hanna Alexandra vorum komin heim um hálfníuleytið. Þegar ég var að renna í hlað keyrði ég fram hjá félaga mínum, Kjartani Bergmunds- syni. Ég stoppaði til að spjalla við hann en í því hringdi síminn. Það var Edi vinur minn sem var kominn til Kaupmannahafnar og hringdi til að þakka fyrir gærkvöldið. Kjartan hélt náttúrlega að ég væri að setja upp leikrit fyrir sig með töffarastæl- um. Kampavín og rósabað Dóttirin var sofnuð um tíuleytið og þá ætlaði ég að fara að taka til. Sím- inn hringdi nokkrum sinnum og ákveðin var æfing með SSól. Mér tókst að dusta af mesta rykið og klára gamalt uppvask. Ég gerði klára kampavínsflösku sem ég átti. Mæðg- inin duttu inn rétt fyrir miðnætti þannig að þau náðu síðasta kortérinu af afmælisdeginum. Þá var ég búinn að kveikja á kertum og láta renna í bað fyrir þau og setja rósablöð í baðk,- arið. Kvöldið sveif inn í rómantíska nótt. Ég vaknaði við það á mánudags- morguninn að Hanna Alexandra, tveggja ára dóttir mín, var að reyna að vekja mig. Við feðginin vorum ein heima, Vilborg konan mín og sonur okkar, Bjöm Halldór, vora á Homa- firði. Ég hafði farið seint að sofa kvöldið áður. Edi vinur minn frá Sviss, kvikmyndagerðarmaður sem ég kynntist í Cannes fyrir tveimur árum, var í bænum og ég var að sýna honum og vinum hans Astró. Það var því aðeins erfiðara að vakna þennan dag en suma aðra. „Pabbi, morgunmat," er ráðið sem Hanna AJexandra notar til að fá mig af stað á morgnana. Hún vill drífa sig niður í morgunmatinn og fá líf og flör í þetta. Við náðum hins vegar samkomulagi um það að við mynd- um lesa eina eða tvær bækur áður en við færam að tygja okkur af stað. Ég er stundum svolítið lengi að lenda á morgnana úr draumalandinu. Fundur og afmælissöngur Helgi Björnsson er á fullu þessa dagana i veitingahússrekstri, hljómsveitaræfingum og æfingum fyrir Rocky Horr- orShow. DV-myndJAK Klukkan tíu átti ég að vera mættur á stjómarfund á Astró svo það var eins gott að fara að haska sér. Eftir morgunmat trítluðum við út á róló sem er þægilega nálægt okkur, að- eins í tveggja til þriggja mínútna fjar- lægð. Dóttirin unir sér þar einstak- lega vel alla morgna. Ég sat á fundinum frá tíu til tólf ásamt Gunnari, Þórami og Halli, meðeigendum mínum að Astró. Það er í mörg horn að líta við rekstur svona veitingastaðar. Þá bresta vin- irnir allt í einu í afmælissöng og það rifjaðist upp fyrir mér að ég átti af- mæh þennan dag. Æfing fyrir RockyHorror Klukkan tólf átti ég að vera mættur á æflngu á Rocky Horror sem við ætlum að frumsýna 10. ágúst. Ég var orðinn með seinni skipunum. Baltas- ar leikstjóri tók á móti mér í dyrun- um og var búinn að ákveða matar- hlé. Við stukkum upp á Kaffibarinn og fengum okkur að borða. Ég notaði tímann til að líta yfir handrit. Æfing- in var mjög skemmtileg og góð stemning. Út í fríska loftið. Klukkuna vantaði kortér í fjögur. Þá hófst kapphlaupið við bankann. Ég hafði ekki verið nógu forsjáll áður en ég fór af stað um morguninn að hafa með mér þau gögn sem þurfti í þau viðskipti. Ég varð að rjúka heim og klukkuna vantaði eina mínútu í fjögur þegar ég skreið inn í bankann. Síminn hringdi, ég er einn af þeim íslending- um sem hafa komið sér GSM-farsíma en hann er eiginlega nauðsynlegur fyrir mig þessa dagana. í háhælaða skó Næst var að koma sér út í bíl sem er eiginlega besta skrifstofan þessa dagana. Ég skaut mér aðeins niður á Astró og fékk mér snarl í leiðinni. Klukkan hálffimm átti ég að vera mættur í skómátun með Filippíu búningahönnuði hjá skósmiðnum Gunnsteini vestur í bæ. Það þarf að sérhanna á mig því það er erfitt að fá háhælaða kvenmannsskó í karl- mannsstærð. Þar .var allt mælt upp og niður, il og upp á læri. Ég kom við í fiskbúðinni við hhðina á skósmiðn- um því ég ætlaði að gleðja mæðginin með mexíkóskum fiskrétti þar sem ég bjóst við aö þau kæmu heim um kvöldmatarleytið. Trimmað fyrir korselettið Ég hringdi til að athuga með dótt- urina sem var í pössun í góðu yfir- læti hjá afa sínum og ömmu í Kópa- voginum. Ég náði engu sambandi þannig að ég notaði tímann til að Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurveg- ai’anna. SÍ33 Maöurinn minn vill fá þessu skipt. Það vantar frammiðið. Nafn:...................................................... Heimili:........................................................ Vinningshafar fyrir þijú hundraðustu og sextándu getraun reyndust vera: 1. Hrönn Ingólfsdóttir 2. Matthildur Óskarsdóttir Klapparstíg 5 Faxabraut 38d 260 Njarðvlk 230 Keflavík 1. verðlaun: TENSAI ferðaútvarp með kassettu, að verðmæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmiðstöö- inni, Síðumúla 2, Reykjavík. 2. verðlaun: Úrvalsbækur. Bækurnar sem era í verð- laun heita Líkþrái maöurinn og Athvarf öreigans, úr bókaflokknum Bróðir Cad- fael, aö verðmæti kr. 1.790. Bækurnar eru gefnar út af Frjálsri jjölmiðlun. Vinningarnir verða sendir heim. Merkiö umslagið með lausninni: Finnur þú ftmm breytingar? 318 c/oDV, pósthólf 5380 . 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.