Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Blaðsíða 42
50
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1995
Afmæli
Alfreð Hólm Bjömsson, bóndi að
Útkoti á Kjalamesi, er áttræður í
dag.
Starfsferill
Alfreð fæddist að Skálum á Langa-
nesi og ólst upp til sex ára aldurs
hjá móöur sinni og stjúpa, Tryggva
Sigfússyni, á Þórshöfn á Langanesi.
Þá fór hann til ömmu sinnar í fóður-
ætt og föðursystkina að Strýtu við
Hamarsfjörð. Hann flutti síðan með
þeim suður.
Alfreð vann almenn landbúnaðar-
störf á uppvaxtarárunum en 1933
hóf hann járnsmíðanám í Héðni og
stundaði nám við Iðnskólann í
Reykjavík.
Alfreð starfaði á Nesi á Seltjarnar-
nesi 1938-AO, var á síldveiðum og
stundaði síðan keyrslu frá 1940, m.a.
hjá bæjarsímanum og við flugvall-
argerð. Þá vann hann með eigin
jarðýtu í Kópavoginum og viðar en
Alfreð er einn af frumbyggjum
Kópavogs. Auk þess stundaði hann
vörubílaakstur hjá Þrótti um árabil.
Alfreð flutti að Útkoti á Kjalarnesi
árið 1950 og hóf þar búskap en
stundaði jafnframt malarkeyrslu og
annan akstur við vegagerð. Þá var
Alfreð landpóstur í Mosfellsbæ og á
Kjalarnesi um skeið.
Alfreð er maður hsthneigður en
hann hannar höggmyndir og vinnur
í járn. Þá hefur hann verið frí-
stundamálari um skeið.
Fjölskylda
Alfreð kvæntist 12.10.1940 Huldu
Hraunfjörð Pétursdóttur, f. 24.4.
1921, húsfreyju og rithöfundi. Hún
er dóttir Péturs Hraunfjörð, skip-
stjóra og verkamanns í Reykjavík,
og k.h., Ástu Kristjánsdóttur hús-
móður.
Sonur Alfreðs og Guðlaugar
Hannesdóttur er Björn Reynir, f.
2.5.1937, verktaki, kvæntur Erlu
Jósefsdóttur og á hann sjö böm.
Synir Alfreðs og Huldu em Haf-
steinn Pétur, f. 29.1.1941, b. í Fífl-
holtum, kvæntur Guðrúnu Jóhann-
esdóttur en hann á fimm börn; Ósk-
ar Már, f. 7.2.1944, kaupmaður,
kvæntur Helgu Valdimarsdóttur og
eiga þau þrjú böm; Sæmundur Unn-
ar, f. 26.2.1945, vörubifreiðastjóri,
kvæntur Dagbjörtu Flórentsdóttur
og eiga þauþrjú böm.
Hálfsystkini Alfreðs sammæðra,
Tryggvaböm: Guðrún, f. 22.4.1920,
húsfreyja á Þurrstöðum; Sigfús, f.
28.5.1923, d. 14.1.1991, verkamaöur
í Kópavogi; Helga, f. 1.6.1924, hús-
móðir; Jakob, f. 11.10.1926, d. 24.9.
1992, leigubifreiðastjóri í Kópavogi;
Ólafur, f. 19.3.1929, pípulagninga-
maöur í Kópavogi; Sverrir, f. 25.3.
1930, vélvirki í Kópavogi; Ingólfur,
f. 7.5.1934, forstjóri; Signý Sigur-
laug, f. 8.10.1936, verkakona í
Grindavík.
Foreldrar Alfreðs vom Björn
Jónsson, f. 11.9.1891, d. 15.2.1921,
verslunarmaður og b. í Stakkhamri,
og Stefanía Kristjánsdóttir, f. 16.11.
1893, d. 1.11.1981, húsmóðirog
verkakona.
Ætt
Meðal foðursystkina Alfreðs eru
Ríkarður myndhöggskeri og Finnur
listmálari Jónssynir.
Bjöm var sonur Jóns, b. og smiðs
á Strýtu við Hamarsfjörð, Þórarins-
sonar, b. í Þórisdal í Lóni, bróður
Maríu, móður Hans, hreppstjóra á
Sómastöðum, afa Jakobs, sóknar-
prests og rithöfundar og Eysteins,
fyrrv. ráðherra, Jónssona. Móðir
Jóns á Strýtu var Lísibet Jónsdóttir
frá Núpsþjáleigu á Berufjarðar-
strönd.
Móðir Björns var Ólöf Finnsdóttir,
b. og söðlasmiðs í Tunguhóli í Fá-
skrúðsfirði, Guðmundssonar, bróð-
ur Ingibjargar, ömmu Einars, afa
Eyþórs Einarssonar, formanns
Náttúruvemdarráðs. Móðir Ólafar
var Anna Margrét Guðmundsdóttir
frá Brimnesi við Fáskrúðsfjörö.
Stefanía var dóttir Gunnars
Kristjáns Jakobssonar, á Djúpalæk,
Sveinssonar. Móðir Kristjáns var
Hólmfríður Guðmundsdóttir. Móöir
Stefaníu var Signý Sigurlaug, dóttir
Alfreð Hólm Björnsson.
Davíðs Sigmundssonar á Höfn á
Strönd og Guðrúnar Jónsdóttur.
Alfreð veröur með málverkasýn-
ingu á laugardag og sunnudag í Út-
koti á Kjalarnesi og tekur þá á móti
gestum. Allir velkomnir.
Sesselja Guðmundsdóttir
Sesselja Guðmundsdóttir húsmóðir,
Asparfelh 4, Reykjavík, er sjötug í
dag.
Starfsferill
Sesselja fæddist í Sandvík í Norð-
fjarðarhreppi. Hún var ahn upp á
Akri hjá Jóni Þórðarsyni og k.h.,
Jóhönnu Sveinbjömsdóttur hús-
móður.
Sesselja lauk skyldunámi í Nes-
kaupstað og hússtjómamámskeiði
í Húsmæðraskólanum á Hahorms-
stað 1949. Hún vann lengi við versl-
unina á Bakka en flutti árið 1949 th
Reykjavíkur þar sem hún starfaði
viö ljósmyndagerð th árins 1958,
fyrst meö systur sinni við Bama-
ljósmyndastofuna og síðar hjá
Stj örnulj ósmyndum.
Sesselja bjó í eitt ár í Bandaríkjun-
um hjá Helgu systur sinni. Þá bjó
hún á Fáskrúösfirði frá 1962 th 1984
og vann á þeim tima við fiskverkun,
auk húsmóðurstarfanna, þar af í tvö
ársemverkstjóri.
Sesselja hefur búið í Reykjavík
síöan 1984.
Fjölskylda
Sesselja giftist 25.1.1958 Ólafi
Bergþórssyni, f. 14.10.1936, kennara.
Hann er sonur Bergþórs Ólafssonar
Theodórs, húsasmíðameistara í
Reykjavík, og Torfhildar Jónsdóttur
húsmóður.
Börn Sesselju og Ólafs era Berg-
þórTheodórs, f. 10.6.1958, sjávarút-
vegsfræöingur í Noregi, kona hans
er Greta Wikstrand meinatæknir og
eiga þau þrjú börn; Ólafur Theo-
dórs, f. 9.1.1961, myndlistarmaður,
giftur Birnu Eggertsdóttur húsmóö-
ur og eiga þau þrjú börn; Torfhhdur
Theodórs húsmóðir, f. 9.1.1961, sam-
býlismaður hennar er Ólafur Hólm
Þorgeirsson tannsmiður og eiga þau
þijúböm; SesseljaTheodórs, f. 10.1.
1969, nemi, sambýlismaður hennar
er Lárus Valgarðsson nemi.
Systkini Sesselju era Helga Þuríð-
ur, f. 1.4.1914, húsmóðir í Bandaríkj-
unum; María, f. 19.2.1917, húsmóðir
í Reykjavík; Óskar, f. 16.2.1918, d.
4.8.1991, bóndi á Beitistöðum og síð-
ar verkamaður á Akranesi; Einar
Guðmann, f. 22.11.1919, skipstjóri
og útgerðarmaður í Neskaupstað;
Sveinn, f. 11.4.1921, d. 9.3.1983,
bílstj., verkstj. og verslunarmaður í
Neskaupstað; Guðrún, f. 5.7.1922,
húsmóðir og ljósmyndari í
Garðabæ; Magnús, f. 26.7.1923,
kennari í Neskaupstað; Hallgerður,
Sesselja Guðmundsdóttir.
f. 2.8.1924, húsmóðir í Hafnarfirði;
Sveinbjörn, f. 1.10.1926, rafmagn-
seftirlitsmaður á Eghsstööum.
Foreldrar Sesselju eru Guðmund-
ur Grímsson, f. 14.7.1886, d. 19.2.
1941, frá Ásakoti í Biskupstungum,
bóndi á Barðsnesi og síöar Sandvík
í Norðfjarðarhreppi, og Sesselja
Sveinsdóttir, f. 23.8.1891, d. 1.10.
1926, húsmóðir, frá Barðsnesi, Norö-
fjarðarhreppi.
Sesselja og hennar fjölskylda er á
ferðalagi í Kaupmannahöfn.
Haraldur Þórðarson
Haraldur Þórðarson, fv. fram-
leiðslustjóri, Hólmagrund 9, Sauð-
árkróki, verður sjötugur á morgun,
sunnudag.
Starfsferill
Haraldur er fæddur í Reykjavík
en ólst upp hjá móðurafa sínum og
ömmu í Vestmannaeyjum.
Hann lærði th vélvirkja í Vél-
smiðjunni Héðni hf. í Reykjavík,
flutti th Siglufjarðar 1948, þar sem
hann vann í iðn sinni hjá SR, th
Ólafsfjarðar 1951, þar sem hann
vann einnig í sinni iðn, var verk-
smiðjustjóri í beinamjölsverk-
smiðju, verkstjóri í saltfiskvinnslu,
auk þess að vera framkvæmdastjóri
hjá Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðarog
Útgerðarfélagi Ólafsfjarðar. Á Ól-
afsfirði var Haraldur formaður
sóknamefndar og meðhjálpari við
Ólafsfjarðarkirkju mörg ár og eitt
kjörtímabh var hann í bæjarstjóm
þar. Haraldur og kona hans ráku
þar einnig verslunina Lín hf. í 26
ár. Loks fluttist Haraldur tíl Sauðár-
króks áriö 1987 þar sem hann sá um
fóðurstöð fyrir loðdýrabændur í
Skagafirði og Húnavatnssýslu,
hann hefur auk þess verið með-
hjálpari við Sauðárkrókskirkju frá
1.1.1993.
Fjölskylda
Haraldur kvæntist 14.8.1948 Rögnu
Hólmfríði Pálsdóttur, f. 16.5.1925, fv.
kaupmanni og verslunarmanni.
Hún er dóttir Páls Guðmundssonar,
f. 12.11.1883, d. 28.8.1956, veitinga-
manns á Siglufirði, og Elínar Steins-
dóttur, f. 25.11.1887, d. 12.5.1958,
húsfreyju.
Böm Haralds og Rögnu era Ehn
Hólmfríður, f. 26.3.1950, nuddfræð-
ingur og Þórður Gunnar, f. 28.9.
1963, viöskiptafræðingur, starfar
hjá Bank One í Ohio, Bandaríkjun-
um.
Systkini Haralds era Magnea
Katrín, f. 27.6.1923, húsfreyja í
Kópavogi; Lína Guðlaug Þórðar-
dóttir, f. 27.7.1927, kaupmaður og
húsfreyja í Reykjavík; Guðbrandur
Kjartan, f. 19.3.1929, afgreiðslumað-
ur í Reykjavík; Guðmundur Jón, f.
15.6.1930, rafvirkjameistarií
Garðabæ, og Katrín Wallace, f. 9.9.
Haraldur Þórðarson.
1931, húsfreyja í Bandaríkjunum.
Foreldrar: Þórður Ehert Guð-
brandsson, f. 26.12.1899, bifvéla-
virkjameistari, og Guðrún Marin
Guðjónsdóttir, f. 19.8.1905, d. 3.3.
1983, húsmóðir.
Haraldur verður að heiman á af-
mælisdaginn.
95 ára
Dagbjört Sigvaldadóttir,
Hombrekku, Ólafsfiröi.
90 ára
Guðrún Sigurðardóttir,
Stigahlíö 2, Reykjavik.
80 ára
Gissur Gíslason,
Skólavörðustíg 6b, Reykjavík
Garðastræti 6, Reykjavík.
Garðar Kristjánsson
varðstjóri,
Miðvangi 106,
Hafnarfirði.
Eiginkona
hanserÁsta
Jónsdóttir.
Þautakaámóti
vinumog
vandamönnum
- áheimihsínufrákl. 15.00 áafmæl-
isdaginn.
Jónina Sisí Bender,
Skúlagötu 78, Reykjavík.
Pálmi Viðar Óskarsson,
Hraunsvegi 13, Njarðvík.
Ásta Laufey Haraldsdóttir,
Kleppsvegi 58, Reykjavík.
Pétur J. Pétursson,
Hraunbæ 170, Reykjavik.
Sverrir Tryggvason,
Víðihlíö, Skútustaðahreppi.
Arngrímur Stefónsson,
Karlsbraut9, Dalvík.
70 ára
Barði G. Jónsson,
Bræöratungu 34, Kópavogi.
Rey nald Þorvaldssoh,
Skólavegi 42, Keflavík.
PállJónsson,
Löngufit 8, Garðabæ.
60 ára
Guðrún Guðmundsdóttir,
Huldubraut 13, Kópavogi.
Bergþór Jónsson,
Erluhrauni 7, Hafharfirði.
Inga Ingólfsdóttir,
Miöstræti 17, Bolungarvík.
Þorbjörg Ingólfsdóttir,
Kjalarlandi 4, Reykjavík.
Ragnar Þór Ágústsson,
Birna Ástvaldsdóttir,
Mávahrauni 2, Hafnarfirði.
Taechol Óskar Kim,
Þrastanesi 20, Garöabæ.
Edda Þ. Sigurjónsdóttir,
Dalseli 34, Reykjavík.
40ára
Brynhhdur Inga Einarsdóttir,
Reykjavegi 84, Mosfehsbæ.
Eyþór Arnórsson,
Hlíðarbæ 14, Hvalfjaröarstrand-
arhr.
Byigja Dröfn Gisladóttir,
Sigtúni 6, Vesturbyggö.
Guðrún Vilborg Sverrisdóttir,
Súlunesi 5, Garðabæ.
Guðrún Ágústa Árnadóttir,
Grettisgötu 73, Reykjavík.
Soffía Guðmundsdóttir,
Eyrarvegi 7, Akureyri.
Gunnar Ólafur Gunnarsson,
Vaharbarði 7, Hafnarfirði.
Svava Viktoría Clausen,
Klyfjaseh 4, Reykjavík.
Sjá einnig afmælisgrein á bls. 47
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA! yujLoAR