Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Side 15
LAUGARDAGUR 15. JÚLl 1995 15 íslendingar eru gjarnan fljótir að tileinka sér alls konar tækninýj- ungar. Flest er nú gert í tölvum, hvort sem það er á vinnustaðnum eða heima. Það er varla það bam sem ekki hefur aðgang að slíku apparati og ungviðið er yfirleitt komið langt fram úr eldri kynslóð- um. Þetta endar auðvitað með því að menn þurfa ekki að fara í vinn- una en ganga þess í stað frá verkum sínum heima. Þá hverfa menn í raun aftur til fortíðarinnar þegar vinna fór fram á heimilunum. Þeir forframaðri þeysa um víðar lendur Internetsins, skrifast á og skoða endalausar upplýsingar. Þar þekkjast engin landamæri og sam- skipti milli landa eru miklu ódýr- ari en áður hefur þekkst. Bráðum fáum við beina línu í bíóin og þurf- um ekki að ómaka okkur við að skreppa í bíó. Með farsímann á eyranu Fáir nota síma meira en íslend- ingar. Þeir bíta á jaxhnn og hringja út og suður þótt erfitt sé að leita í nýju tvöfóldu símaskránni. Símar eru fjölmargir á heimilunum, jafnt í barnaherbergjum sem annars staðar og helst þarf síminn að vera þráðlaus svo hægt sé að spranga með hann um slotið. Farsímanum tók landinn fagnandi og hringdi hvað ákafast úr bílum um allar koppagrundir. Segja má, sem dæmi, að farsíminn sé gróinn við frægasta sjónvarpsfréttamann landsins, Ómar Ragnarsson. Hann er eins konar framlenging líkam- ans. Annað símafyrirbrigði ýtir þó verulega á gamla farsímann. Það eru GSM-símar, smásímar sem fram skrítnar uppákomur. Þannig var nýlega um miðjan dag í vinn- unni. Þá þurfti ég að pissa, sem raunar er ekki í frásögur færandi. Nema hvað. Ég hneppti frá minni buxnaklauf og var svo sem ekki með hugann við neitt sérstakt. Svona rétt eins og þegar maöur pissar hvunndags. Hringir þá ekki bölvaður þráðlausi síminn í brjóstvasanum. Hvað var nú til bragðs að taka? Símhringing er mjög pirrandi fyrirbrigði og manni flnnst maður verða að svara. Þetta gat verið eitthvað mjög mikilvægt. Var á það hættandi að láta símann hringja út? Hvað ef Hekla væri far- in að gjósa? Var ríkisstjórnin farin frá eða miðbærinn að brenna? Þaö er á mína ábyrgð að koma mönnum á vettvang og segja frá. Það væri saga til næsta bæjar ef blaöið mitt sæti eftir bara af því að fréttastjór- inn var að pissa. Skyldan kallar Á hinn bóginn hugsaði ég, meðan síminn ólmaðist í brjóstvasanum, að einhvers staðar væru mörkin. Það eru takmörk fyrir öllu, hka því að svara í síma. Er hvergi griða- staður? Það er viðurkennt að fréttastjórar þurfa að pissa eins og aðrir menn þótt það sé ekki beinlín- is tekið fram í kjarasamningum. Nú er of langt gengið, hugsaði ég með mér. Ég læt djöful hringja út. Síminn hélt áfram aö hringja og ég var kominn á fremsta hlunn með að svara. Þá kom það í hug mér að varla gæti ég farið að tala í símann inni á saleminu. Pisseríin eru hhð við hlið og það hti út eins og við- komandi starfskraftur væri geng- inn af göfhmum þar sem hann tal- aði við sjálfan sig á klósettinu. Allt mælti gegn því að ég svaraði. Tólið ræður ferðinni hægt er að hafa í vasa, í bílnum, heima eða hvar sem er. Þessi app- aröt ná mihi landa, ef því er að skipta, og sem dæmi um vinsældir þeirra má nefna að GSM-símar eru nú vinsælastir meðal þijóta sem stela öhu steini léttara til þess að fármagna fíkniefnakaup. Þar hefur farsíminn tekið við af tölvunni. Þessum tækjum er sem sagt auð- velt að koma í verð. Það þykir enn nokkuð fínt að sjást tala í síma í bh og sérstaklega er þetta áberandi hjá jeppaeigend- um. Það er varla að maður sjái mann í jeppa á rauðu ljósi öðruvísi en talandi í síma. Það er naumast að mönnunum liggur mikið á hjarta. Þeir virðast ekki geta beðið eftir því að komast á áfangastað. Sumir brosa þó að þessari sýndar- mennsku og hætt er við að þetta þyki ekki eins eftirsóknarvert eftir því sem símum fjölgar í bílum. Það hiýtur til dæmis að vera áfah fyrir manninn í dýra jeppanum að rek- ast á annan á götuhorni, talandi í síma í smápútu. Þá fer nú mesti glansinn af. Titrandi boð Enn eitt tóhð er að verða ómiss- andi. Það er símboði. Þeir sem eitt- hvað mega sín eru með símboða í beltisstað. Það þykir enn nokkur sjarmi yfir þvi að fá píp th sín ef menn eru staddir á fundi. Pípi boði á fundi grípa margir um sig miðja til þess að slökkva á boðanum. Þeir sem ekki grípa um kviðinn telja sig útundan og annars flokks. Hægt er að fá píparana meö titrara. Titring- urinn er htið notaður enda vita aðrir þá ekki af mikilvægi þess er boðann ber. Þeir sem lengst eru komnir í fjar- skiptunum eru með hefðbundinn síma, farsíma með gamla laginu, GSM-síma, símboða og símsvara. Ef svo ólíklega vill th að ekki næst í þá í síma eða boða þá er alltaf hægt að skhja eftir boð á símsvar- anum. Símafíklarnir hringja svo reglulega í símsvarann sinn til þess að gá að boðum á honum. Það skal svo ósagt látið hvort þeir hringja til baka. Eflaust fer það eftir erind- inu. Hvergi óhultir Á öllu þessu græðir Póstur og sími. Það risafyrirtæki fitnar sem aldrei fyrr. Það getur því leyft sér að gefa út símaskrá í tveimur bók- um. Ekki er vitað th þess að neinn hafí beðið um tvöfaida símaskrá og ekki verður það séð að þetta dvergríki okkar kahi á þvhíka framleiðslu. En með tvöfaldri skrá nást meiri peningar af kúnnum símafélagsins og símaforstjóramir geta státað af tvöfaldri bók eins og aðrir símaforstjórar á alþjóðlegum símaráðstefnum. Laugardagspistill Jónas Haraldsson fréttastjóri Símavæðingin er góð svo langt sem hún nær. Það hlýtur þó að vera skelfhegt fyrir þá sem lengst eru komnir í væðingunni að vera hvergi óhultir. Það er varla að þeir taki af sér boðann meðan þeir sofa og trúlega er hann á brúninni rétt á meðan þeir baða sig. Bara að þeir grípi ekki í sturtuhausinn og tah í hann í ógáti. Maður með loftnet Pisthskrifari notar símann mikið og skal það viðurkennt. Hann er nauðsynlegt vinnutæki og raunar algerlega ómissandi. Ég hef þó ekki ánetjast símanum eins og sumir gera. Þeir geta varla sest niður án þess að hringja, bara hringingar- innar vegna. Ég er til dæmis ekki með síma í bhnum og ekki þráð- lausan síma heima. Þá hef ég reynt að þrauka án símboða. í vinnunni er ég hins vegar gjarnan með þráð- lausa símann í brjóstvasanum. Því er ekki að neita að bungan á bijóstvasanum og loftnetið upp úr sýna mikhvægi starfsmannsins. Þar gengur um sali maður sem mikið á undir sér. Óheppileg símhringing Það að vera með símann í vasan- um er þæghegt. En þaö getur kahað Þessar hugsanir flugu hratt gegn- um huga mér enda er maður ekki svo lengi að pissa við normal að- stæður. Niöurstaöan varð samt sú að ég fann mig knúinn til þess að svara í símann rétt á meðan á þess- ari stuttu athöfn stóð. Skyldan og ábyrgðartilfmningin varð öðru yf- irsterkari. Ég ætlaði ekki að missa af fréttinni þótt svona stæði á. Ég greip því símann úr brjóstvasan- um, með annarri skiljanlega. Punktar ekki skráðir I símanum var ómþýð kven- mannsrödd. Ég svaraði eins ljúf- mannlega og mér var unnt miðað við aðstæður. Ég þakkaði mínum sæla að ekki var um sjónvarpssíma að ræða. Konan sagði erindi sitt, sem hvorki var eldgos né stór- bruni, en ég náði ekki að skrifa hjá mér punkta. Hendumar voru upp- teknar. Ég gat að vísu ekki nefnt það við viðmælanda minn. Konan var kurteis og gerði enga athuga- semd við það þótt hún heyrði sturt- að niður úr klósetti rétt áður en samtahnu lauk. Eftir þetta atvik gæti ég mín á því að skiija þann þráðlausa eftir þegar mikið hggur við. Það má segja að ég þvoi hendur mínar af honum rétt á meðan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.