Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1995, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ1995
27
Ferðir
Að sofa á hót-
eli á íslandi
- gisting fyrir Qögurra manna fjölskyldu í uppbúnu rúmi með morgunverði
Hótel Edda:
Fáir íslendingar líta á þaö sem mögu-
leika þegar ferðast er innanlands
meö börnin að gista á hóteli í upp-
búnu rúmi með morgunverði sem
þykir sjálfsagt þegar ferðast er er-
lendis. Fólk fer með tjaldiö, flýr í
svefnpokapláss ef mikið rignir, gistir
hjá ættingjum og vinum, gerir sem
sagt allt annað en að gista á hóteh í
uppbúnu rúmi. Hvað skyldi það
kosta fyrir hjón meö tvö börn, þriggja
og níu ára, að fara í hálfs mánaðar
ferð um ísland og veita sér þetta?
DV leitaði til Ferðaskrifstofu ís-
lands og Regnbogahótelanna eftir
upplýsingum um verð á gistingu og
morgunverði fyrir þessa fjölskyldu.
Auðvitað eru margir fleiri gistimögu-
leikar fyrir hendi og DV hefur ekki
kannað hvað er hagstæðast, þetta
eru aðeins dæmi af handahófi.
Hótel Lind á Rauðarárstíg í Reykjavík er eitt Regnbogahótelanna.
DV-mynd JAK
Umferðairáð:
Spennum
bílbeltin
- og munum að akstur og áfengi fara ekki saman
Umferðarráðmunisamstarfivið ökumenn haldi jöfnum og góðum
lögreglu um land allt starfrækja hraðaíumferðinniogsýnisérstaka
uppiýsingamiðstöð á skrifstofu
ráðsins um verslunarmatmahelg-
ina. Þar veröur safnað saman upp-
lýsingum um umferöina, ástand
vega og annað sem ætla má aö komi
ferðafólki að gagni. Útvarþ Um-
ferðarráðs vérður með útseridingar
á öllum útvarpsstöðvum um þessa
miklu ferðamannahelgi eftir þörf-
um. Upplýsingamiðstöðin verður
opin fóstudaginn 4. ágúst frá kl.
9-22, laugardaginn 5. águst 10-19
og mánudaginn 7. ágúst 12-19.
Höldum jöfnum hraða
Umferðarráð leggur áherslu á að..
varúð þar sem malarvegir taka við
af vegum með þundnu slitlagi.
Um verslunarmannahelgi eru
margjFáð skemmta sér og þvi fylg-
ir oft áfengisneysla. Umferðarráð
beinir þeim eindregnu tilmælum til
ökumanna að blanda alls ekki sam-
án akstri og áfengisneyslu. Þaö er
lífshættulegt. Almenn varúð og til-
Utssemi verður að vera í hávegum
höfð um helgina.
Ef aUir leggja sig fram aukast lik-
ur á að vel gangi.
Sérstaka áherslu leggur Umferð-
arráö á að alUr spenni bílbeltin
hvar sem þeir sitja í bíhium.
Undanfarið hafa staðið yfir Flat-
eyjardagar í Flatey á Breiðafirði ann-
að árið í röö með sýningum og ýms-
um uppákomum. Þeir hófust 13. júlí
og þeim lýkur 31. ágúst.
Málverka- og ljósmyndasýnmgar
eru á Flateyjardögum. Árni Elfar er
með sýningu á málverkum og teikn-
ingum af Flatey. Sýningin er sölu-
sýning og verður opin út ágústmán-
uð. Ljósmyndasýning er á Veitinga-
stofunni Vogi á gömlum ljósmyndum
úr safni Ólafs Steinþórssonar. Myna-
irnar eru af atburðum og íbúum fyrri
ára. í kirkjunni verður sölusýning á
Hjón meö tvö börn, annaö yngra
en 6 ára, hitt á aldrinum 6-12 ára.
2 vikur í tveggja manna herbergi -
börnin á dýnum í herbergi foreldra.
13 nætur x 4.550 kr. = 59.150 kr.
5. nóttin frí (x2) = -9.100 kr.
Morgunverður f. 2 fulloröna x 13 =
18.200 kr.
Morgunverður f. barn 6-12 ára x
13 = 4.550 kr.
Morgunverður frír f. barn yngra
en 6 ára.
Samtals 72.800 kr.
Herbergin eru meö handlaug,
morgunverður er af hlaðborði.
Tekið skal fram að böm ungri en
6 ára fá frítt að borða (réttir dagsins
og hlaðborð) á Edduhótelunum og
börn 6-12 ára fá 50% afslátt.
Regnbogahótelin:
Tvenns konar tilboð eru í gangi á
gistingu á Regnbogahótelunum.
Annað er svokallað ASÍ-tilboð en til
að geta notað það þarf annar hinna
fullorðnu aö vera í verkalýðsfélagi
innan ASÍ. Hitt tilboðið nefnist Föru-
nautur.
Hjón meö tvö börn, annað yngra
en 6 ára, hitt á aldrinum 6-12 ára.
2 vikur í tveggja manna herbergi -
börnin á dýnum í herbergi foreldra.
ASÍ-tilboð:
14 nætur + morgunverður x 5.800
kr.
Samtals 81.200 kr.
Förunautur:
14 nætur + morgunmatur x 7.200
kr.
Samtals 86.800 kr.
Herbergin eru með baði, morgun-
verður er af hlaðborði.
Á Laugalandi á Þelamörk er rekið Edduhótel á sumrin.
Mynd Haukur Snorrason
Travelpro
LOKsrn Aísuurn
Ferðatöskurnará hjólum.
Má krækja 3 töskur samanog
draga meðannarri hendi.
Töskurfyrirþásem
ferðast mikið.
FRÁBÆR GÆÐI
FRÁBÆR ENDING!
SKANDINAVÍUVERÐ!"
(>lÁlúiró7Áúlti£j 7 IOI^irrá551-5814
Flateyjardagar
ljósmýndum úr safni Þorsteins Jós-
epssonar. Á sýningunni eru ljós-
myndir af byggðinni í Flateyjar-
hreppi og mannlífinu fyrir og um
miðja öldina. Ennfremur er sögusýn-
ing úti á spjöldum þar sem lýst er
byggðinni og mannlífinu í máh og
myndum.
Flateyjarferðir verða með sérstak-
ar skoðunarferðir í úteyjar til að
sýna ferðamönnum hið fjölbreytta
náttúrufar héraðsins. Einnig sjá
Flateyjarferðir um leiðsögn fyrir far-
þega sína í Flatey.
Reynslusaga
Reykjavík 18. 07 1995
Ég undirritaður vil segja frá reynslu minni af því undraefni MIUTEC-1.
Það var í ágúst 1993 sem ég fékk þá niðurstöðu hjá Vélalandi að Opelinn
minn, sem erárg. 1985 GSI 1800, væri úrbræddurá stangarlegum og þar
sem ég hafði engan veginn efni á því að láta gera við bílinn þá spurði ég
hvort það væri í lagi að setja á bílinn olíu og nota hann. Þeir sögðu að ég
gæti svo sem gert það en ég mætti búast við að bíllinn stoppaði á næsta
götuhorni. Nú ég setti olíu á bílinn og keyrði á næstu smurstöð og lét setja
MILITEC-1 á vélina eins og um væri að ræða rallbíl, þ.e. tvöfaldan skammt.
Síðan eru liðin tvö ár og 20.000 km. Ég lét renna ásinn hjá Vélalandi núna
14.07 1995 og þeim fannst hann líta ágætlega út. Á þessu tímabili þá lét ég
setja aðeins einu sinni aftur MIUTEC-1 á bílinn.
Ég tel að þarna sýni það og sanni hversu frábært efni MILTEC-1 er í raun og
veru og mun ég setja það á alla mína bíla, vélar, gírkassa og drif um ókomna
framtíð.
Kristinn Ó. Ólafsson
Kt: 300759-0489
S: 551-0440