Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1995, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1995, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1995 Fréttir Játaði hnífstunguárás en gengur samt laus: Hríkalegt að dóms- kerf ið bregðist svona segir Guðlaug Pétursdóttir, móðir þess sem var stunginn „Það sem mér finnst sorglegast í þessu og í raun alveg óþolandi er að dómskerfið skuli geta látið svona mál fymast vegna þess að við því er ekki hreyft. Pilturinn var handtekinn eft- ir verknaðinn, hann játaði og var sakfelldur fyrir brot sem varðar að hámarki eins árs fangelsi en síðan er ekki hreyft við málinu í tvö og hálft ár og því fymist þaö og maður- inn gengur laus. Mér fmnst fyllsta ástæða til þess að upplýsa fólk um hvemig kerfið getur brugðist," sagöi Guðlaug Pétursdóttir, móðir Örvars Sigfússonar, en á hann var ráðist í janúar 1991 og hann stunginn með hníf. „Örvar býr í Svíþjóð en kom hingað heim til þess að vera við dánarbeð fóður síns sem lést svo úr krabba- meini skömmu eftir að Örvar kom heim. Það varð mér því mjög mikiö áfah þegar lögreglan hringdi hingað til þess að leita að Örvari um nótt- ina. Hann hafði þá farið til bróöur síns til þess að hlífa mér. Sárið var ekki mjög mikið en aö sögn læknis hefur það líklega verið buxnastreng- urinn sem bjargaði Örvari. Pilturinn kom hlaupandi að honum með hníf- inn á lofti og hefði stungan komið rétt ofan við strenginn er hætt viö að hann hefði drepið Örvar,“ segir Guðlaug. Hún missti skömmu síðar einn sona sinna úr krabbameini og um þetta sama leyti heilsuna. Hún er öryrki í dag. Nú spyr hún hvemig standi á því að menn sem fremja glæpi og játi þá skuh ganga lausir, hugsanlega enn við sama heygarðs- hornið, og allt vegna þess að dóms- kerfið tekur ekki á máhnu. Málið týndist ofan í skúffu „Ég hef reynt að reka á eftir málinu eins og ég get. Ein skýringin á seina- ganginum var sú að ekki næðist til Örvars þar sem hann væri í Svíþjóð. Hann væri eina vitnið sem ætti eftir að gefa skýrslu. Ég gaf þeim þá upp heimilisfangið hans og þeir lofuðu að haft yrði samband við hann. Það var aldrei gert. 'Ég fór síðan til út- landa sl. haust og kom heim í vor. Þegar ég fór síðan að leita eftir upp- lýsingum um máhö frétti ég að búið væri að dæma í málinu, það hefði verið gert í nóvember 1994.“ Guðlaug segir helstu skýringuna á því hvers vegna máhð fékk ekki eðh- lega meðferð hljóta að hafa verið þá að við aðskilnað dóms- og fram- kvæmdavalds 1992 hafi þvi veriö stungið ofan í skúffu og það hrein- lega týnst þar. Fyrst hafi það verið til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjaness en verið flutt til Héraðs- dóms Reykjavíkur. í Héraðsdómi Reykjavíkur fengust engin svör við því hvers vegna málið hefði fyrnst en vísað var á Hjört Aðalsteinsson héraðsdómara sem kvað upp dóminn. Hann er í fríi og ekki náðist í hann vegna málsins í gær. -sv Isafjörður: Veitirfjölskyldum íHnífsdalafslátt fasteignagjalda Bæjarráð Ísaíjarðar hefur ákveðið að veita 10-15 íjölskyldum, sem þurftu að flytja um lengri eða skemmri tíma út úr húsum sínum í Hnífsdal í vetur, 15 prósenta afslátt af fasteignagjöldum ársins 1995 eða um 11-12 þúsund krónur á hús. Þess- ar íjölskyldur þurftu að leigja sér húsnæði í vetur vegna snjóflóða- hættu og sumar þeirra sneru ekki aftur í hús sín fyrr en í vor. „Fólkið þurfti að flytja vegna snjó- flóðahættu og gat ekki verið í húsum sínum um nokkum tíma alltaf af og til í allan vetur. Bæjarráð hét því stuðningi því aö það þurfti að koma sér annars staðar fyrir og það var ákveðið að koma til móts við fólkið með því að gefa afslátt af fasteigna- gjöldum," segir Þórir Sveinsson, fjár- málastjóri hjá ísafjarðarkaupstað. -GHS Samstarfshópur friðarhreyfinga á íslandi hefur áréttað kröfuna um kjarnorkuvopnalausan heim si. 10 ár með því að fleyta kertum á Reykjavíkurtjörn. í gærkvöldi var þess einnig minnst að 50 ár eru liðin frá því að kjarnorku- sprengjum var varpað á Hírósíma og Nagasaki i Japan. DV-mynd JAK Tildrög slyssins í Kjósinni enn óljós: Húsbíllmn var aðeins skráður fyrir þrjá „Það er ekkert launungarmál að samkvæmt bifreiðaskrá er húsbíll- inn aðeins skráður fyrir tvo farþega auk bílstjóra en þegar slysið varð voru átta manns í honum. í bílnum voru því fimm aukafarþegar, allir í húsinu, og þar viröist ekki hafa veriö neinn öryggisbúnaður, belti eða slíkt. Fólk hugsar ekki nógu langt áður en lagt er af stað og vitaskuld reiknar enginn með því að svona lag- aö komi fyrir. Ætli menn að flytja farþega í svona bflum, umffam það NIÐURSTAÐA sem heimilt er, verða menn aö ganga úr skugga um að alls öryggis sé gætt,“ sagði Gylfi Jónsson hjá slysa- rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík við DV í gær þegar hann var beðinn að staðfesta það að hús- bíllinn, sem fór út af veginum í Kjós- inni á fóstudagskvöld með þeim af- leiðingum að lítil stúlka lést, hafi ein- ungis verið skráður fyrir tvo farþega. Drengurinn, sem höfuðkúpubrotn- aði, er enn á barnadeild Borgarspít- alans og að sögn lækna er hann á Á rfklð að borga bændum fyrir að hætta búskap? Nei góðum batavegi. Einn farþeginn braut hálslið í slysinu en aðrir, sem fluttir voru á slysadeild, sluppu bet- ur. Gylfi Jónsson sagöi að tildrög slyssins væru enn ókunn en verið væri að rannsaka ástand bílsins, ör- yggisbúnað, bremsur, stýrisenda og slíkt. Aðspurður hvort ástand vegarins hefði verið kannað sagöi Gylfi það hafa verið gert en erfitt væri að full- yrða um nokkuð þar að lútandi. „Bílar sem fóru þarna um þetta svæði daginn áður lentu í vandræð- um vegna nýrrar klæðningar sem verið var að leggja. Eittlivað hafði víst rignt ofan í hana og tjara þvi sest á dekkin. Ég veit að menn þurftu aö koma við í Hvalfirði til þess að hreinsa tjöruna af dekkjunum. Ég á alveg eftir að fá það staöfest hvort eitthvaö hefur verið athugavert þama.“ Samkvæmt upplýsingum frá Vega- gerðinni var nýja klæðningin lögð á kafla nokkuö fjarri slysstaðnum og því væri ekki um það að ræða að þær framkvæmdir kynnu að hafa haft áhrifáakstúrskilyrðiástaðnum. -sv Þú getur svaraö þessari spurningu meö því að hringja í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. Já Q Ne i 3 -1600 A að hækka bílprófsaldur upp i 18 ár? Alllr 1 »tafr»na kerflnu weB tinv»l»slm» g«t« nýtt gtr þe«g« j>J6im«tu. Örvar Sigfússon var stunginn með hnifi og árásarmaðurinn játaði verknaðinn en málið týndist i kerfinu og fy rntist og gengur hann því laus. Stuttar fréttir Rannsóknáleka Seðlabankinn hefur krafist rannsóknar á meintum ieka í Landsbankanum á upplýsingum um Sambandið. Sjónvarpið greindi frá þessu. Nærekkiímanninn Kona eins skipverjaí Smugunni hefur í rúma viku reynt árang- urslaust að ná sambandi við eig- inmann sinn. Konan hefur kvart- að við norska sendiráöið yfir sinnuleysi íjarskiptastöðvarinn- ar í Vardö þegar um íslensk skip er að ræða. RÚV greindi frá. Línustæði mótmætt Landverðir í Herðubreiðarlind- um munu í dag eftia til mótmæla gegn fyrirhuguöu línustæði um Ódáðahraun. Staurar verða reist- ir til að sýna ferðamönnum það sem koma skal. Loðnanfinnstekki Engin loðna hefur enn veiðst fyrir norðan land og ætla loðnu- veiðiskipin að halda austur á bóg- inn í loðnuleit. Skv. RÚV tefur ís á miðunum veiðamar. Ráðherra stefnt? Varnarfiðið neitar að greiða ís- lenskum vélavinnumönnum laun samkvæmt kjarasamningi þeirra. Vegna þessa íhugar Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur að steíha utanríkis- ráðherra. Sjónvarpiðgreindifrá. Mæiarsettiríbrýr Verkfræöistoftmn Háskólans hefur sett upp jarðskjálftamæla í brýr á Suðurlandi. Skv. Alþýðu- blaðinu á með mælunum að safna upplýsingum sem má nota við ákvörðun á álagsforsendum fyrir mannvirki. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.