Þjóðviljinn - 08.08.1945, Page 1

Þjóðviljinn - 08.08.1945, Page 1
lír. Askell Löve komiim keim frá Dr. Áskell Löve kom hing aö ílugleiðis frá Svíþjóö s.l. laugaidag. Áskell lauk stúdentsprófi hér í Reykjavík 1937 og fór næsta haust til Svíþjóðar til náms viö háskólann í Lundi. Lagöi hann stund á erfðafræði, grasafræði og dýrafræði meö sérstöku til- liti til jurtakynbóta. Á surnr in dvaldi hann í Svallöv. Hann varöi doktorsritgerð sína i grasafræðilegri erfða- fræði áriö 1943. Áskell er kvæntur sænskri konu, Dolis að nafni, og lauk hún prófi í sömu vísindagrein og maöur hennar ári síöar, eða 1944. Áskell hyggst að setjast hér að og á von konu sinni og ungri dó.ttur þeirra heim til íslands á næst- unni. Með sömu flugvél komu einnig frá Svíþjóð kona Jóns Gunnarssonar fyrrv. framkvæmdastjóra, Bergljót dóttir Eiríks Hjartarsonar kaupmanns, en hún er gift sænskum manni, og enn fremur Dani sem var á leið til Ameríku. Tito krefst afnáms konungdóms í Júgóslavíu Ásakar Pétur konung um samvinnu við Michailo- vitsj Tito marskálkur, forsætis ráöherra Júgoslavíu, hélt- ræðu í júgoslavneska þing- inu í gær. Krafðist hann, að konung dómur væri afnuminn í Júgoslavíu. Hann ásakaði Petur konung fyrir sam- vinnu viö landráðamann- inn Mihailovitsj, sem nú er á lista Júgoslava yfir stríðs glæpamenn. Tito sagði einn ig, aö Pétur konungur og sú klíka aðalmanna og kon ungssinna, sem að honum stæði, hefði öll stríðsárin verið Þrándur í Götu fyrir sameiningu júgoslavnesku þjóðarinnar í baráttunm gegn naústum. Líkur taldar á, að atómsprengjan knýi Japana til uppgjafar mnan skamms Merkasta uppfinning síðari tíma, sem getur haft geysimikla þýðingu á friðartímum ! fyrradag var skýrt frá því í Wasfiington og London, að brezkir og bandarískir vísinda- menn heföu í sameiningu fundið upp nýja sprengjutegund, sem hefði þúsundfaldan tor- tímingarmátt á við afimestu sprengjur, sem áður voru kunnar. Einni slíkri sprengju var varpað á borgina Horisjimo á Honsjúeyju í fyrradag. í gærkvöld hafði engin opinber tilkynning verið gefin út um eyðilegginguna í borginni, en búizt var við henni á hverri stundu. í fréttastofufregnum hefur þó verið skýrt frá loftárá’sinni og afieið- ingum hennar. Sprengjunni var varpað nið ur í fallhlíf og sprakk hún áður en hún kom til jarðar. Ösku- og reykmökkur lagðist þegar yfir borgina og sást hún ekki nokkra stund. Ekki er talið ólíklegt, að borgin sé al- gerlega í eycji, og horp og smá'borgir í grenndinni séu í rújtum. Hermálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur af ör- yggisástæðum lagt bann við, að sjónarvottar skýri frá loft- árásinni, en búizt er við að því banni verði aflétt á hverri stundu. Uggur í Japönum Lýsingar japanskra blaða og útvarps á loftárásinni gefa til kynna, hvílíkum ugg hef- ur slegið á Japana við hana. Er henni lýst sem villimann- legri og dýrslegri tilraun til að hópmyrða saklaust fólk. í Bretlandi og Bandaríkjun- um er sprengjunni lýst sem ööru tilboði Bandamanna til Japana um skilyrðislausa upp- gjöf, þar sem nú sé ekki um nema tvo kosti fyrir þá að velja: að halda baráttunni á- fram, og láta leggja Japan al- gerlega í rúst á skömmum tíma, eða gefast upp skilyrðis- laust, og eru taldar fullar lík- ur á því, að þeir muni velja seinni kostinn. Knattspyrnumót íslands K. R.~Fram 6:0 Knattspyrnumót íslands (meistaraflokks) hófst á í- þróttavellinum í gærkvöld, með ieik milli KR og Fram. Sigraði KR með 6 mörkum gegn engu. í kvöld keppa Valur og Víkingur og hefst leikurinn á sama tíma og sá í gær- kvöld eöa kl. 8,30. Merkasta uppfinning síðari tíma Nákvæmar Íýsingar hafa enn ekki verið gefnar á þess- ari nýju sprengjutegund, en vitað er, að hin mikla orka, sem í henni er fólgin, stafar frá atómklofningu. , Undap- farna áratugi hafa ýmsir vís- indamenn, aðallega brezkir, fengizt við tilraunir til að kljúfa atóm og leysa þannig úr læðingi hina geysimiklu ofku, sem bundin. er í þeim. Enda þótt tilraunir þessar hafi borið mikinn árangur, og tekizt hafi að kljúfa atóm á rannsóknarstofum, er það ekki fyrr en nú, að tekizt hef- ur að hagnýta orkuna. Litlar sem engar tilraunir voru gerð- ar 1 sambandi við framleiðslu sprengjunnar til að gera þessa uppfinningu hagnýta á friðar- Frh. á 8. síðu. Þýzk skip enn á Eystrasalti segir blað rauða hersins Blað rauöa hersins, „Rauða stjarnan“, skýrir frá því, aö enn séu þýzk skip og kafbátar á Eystra- salti, sem ckki liafa gefizt upp. Skýrir blaðiö’ frá atviki. sem átti sér stað fyrir skömmu. Rússneskur varö- bátur varö var við kafbát á Eystrasalti og gaf honum merki um að staönæmast. svo hægt væri aö rannsaka hann. í stað svars hóf kaf- báturinn skothríð að varð- bátinum. en komst siðan undan. Segir blaðið. að dæmi séu til. aö fleiri slík atvik hafi komið fyrir. Ætl- un þesara kafbátsmanna sé að komast hjá uppgjöf í lengstu. lög og lifa þann tíma á sjóránum. Myndin sýnir japanska ,,s:iálfsmorðsflugvéI“ vera skotna niður af bandarísku flugvélaskipi skammt undan Okinava, meðan bardag- arnir um eyna stóðu sem hæst. Eldlöavminn hægramegin við s-efni skipsins; stafar frá flugvélinni, sem fallið hefur logandi í sjóinn. Rissflugvirki ráðast á Tokío, Jokohama og Singapore Astralíumenn sækja á hjá Balikpapan Kínverjar taka hafnarborgina Jonkong, 400 risaflugvirki gerðu á sunnudag loftárásir á Tokio og Jokohama og nágrenni þeirra. Einnig var gerð loftárás á Singapore á sunnudag. í gær gerðu 125 risaflugvirki frá Marianaseyjum harða loftárás á Nagoja með góðum árangri. Bandamenn sækja einnig alls staðar á á landvígstöðvunum, enda þótt fréttirnar af loftsókninni gegn Japan yfirgnæfi fréttirnar frá þeim vígstöðvum. Kínverjum verður vel á-4 gengt 1 sókn sinni meðfram ströndinni. Hafa þeir tekið hafnaiborgina Jonkong, sem er númlega 200 km suð ur af Hongkong. Stóöu bar- dagarnir um borgina í tvær vikur, áöur en japanska setuliöið gafst upp. Mótspyrna Japana hjá Balikpapan á Borneo er enn mjög hörð, en Ástralíu- mönnum hefur þó tekizt aö sækja nokkuð á. Eiga þeir nú skammt eftir til einna auðugasta olíusvæöisins á Borneo, en Japanar verjast af öllu megni. I Burma hefur Bretum nú tekizt að koma fylilega í veg fyrir, að íið Japana í Pitsjúfjöllum heppnist und- ankoman austur yfir Sitt- angfljct. Hafa um 10 þús. Japanir verið drepnir eða teknir höndum í undan komutilraunum þeirra. Sung kominn til Moskvu Mun ræða við Stalín T. V. Sung. forsætisráð- herra kínversku stjórnar- innar er nú kominn til Moskvu. Mun hann eiga við ræður við Stalín. Sung átti, eins og kunn- ugt er, viöræöur við Stalín og aðra leiötoga Sovétríkj- anna fyrir nokkrum vikum, er hann var á heimleið frá San Franciscoráðstefnunni. en hlé varö á viöræðunum vegna Potsdamráðstefnunn ar. Viðræðurnar munu að öllum líkindum snúast um væntanlega aðsfoð Sovét- ríkjanna við Kim oy af- stöðu Sjungkingst órna^ n r ar til kommúnisiastjórnar- inn í Norður-Kína.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.