Þjóðviljinn - 03.09.1946, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 3. sept. 1946.
ÞJÖÐITLJINN
7
Viðtal við Tito marskálk
Framh. af 5. síðu.
gargandi gæsa'nóp á undan
sér. Hann lifir bæði í göml-
um og nýjum heimi. Þessa
tvennskonar tilveru sjáum
við í söngvunum um Tító og
kolodönsunum.
Frægasta kvæði hinnar
nýju Júgóslaviu sem ég
heyrði margsinnis haft yfir,
er Títókvæði Zogovitjs:
Göbbels spyr: hvar er Tító?
og kúlan úr byssu minni
svarar:
Allir erum við Tító.
Eins og öllam erlendum
blaðamönnum lék mér hugur
á að fá einkaviðtal við Tító
marskálk, þessa bjóðhetju, en
orðstír hans umiykur mann í
Júgóslavíu eins og andrúms-
loftið.
En það var ekki auðhlaupið
að því, að koma slíku í kring.!
Eftir mikið vafstur fékk ég'
þó loks morgun nokkurn boð
frá upplýsingamálaráðuneyt- j
inu um að Tító marskálkur,
byggist við mér heim til sín
— í hvíta húsið utan við Bel-
grad — kl. 5 þennan sama
dag.
Þegar bíllinn þaut með mig
um þröngar götar framhjá ót-
al rústahaugum, sem báru
vott um óheyrilegar þjáning-
ar júgóslavneska höfuðborg-
arinnar á striðsárunum, gat
ég ekki að því gert, að ég
komst í hátíðlegt skap. Brátt
átti ég að standa andspænis
einni hinni mestu þjóð- og
frelsishetju vorra tíma. Eg
fór í gegnum hlið og vopnað-
ir verðir rannsökuðu skjöl
mín vandlega. Loks stanzaði
bíllinn fyrir framan breiðar
hallartröppur. Mér og hrað-
ritara mínum var vísað inn
til Títós, en verðir til beggja j
handa heilsuðu með byssun-
um. Aðstoðarmaður vísaði
mér upp nokkur þrep og inn-!
um dyr. Eg kom inn í stórt I
herbergi og stóð skrifborð í j
fjærsta horninu. Maður stóð
á fætur og kom á móti mér
með útrétta hönd. Það var
Tító-
Það sem mér þótti mest til
koma í fari marskálksins er'
yfirlætisleysi hans. Hér var
engin tilgerð eða uppskafn-
ingsháttur, engir taktar og
handasláttur eins og hjá
Mússolini eða Hitler. Við mar
skálkurinn settumst sinn í
hvorn hægindastólinn, hann
bauð sígarettur og síðan hófst
samtalið. 'Stóri hundurinn
hans, Tiger, lá ailtaf við fæt-
ur hans.
— Hvað álítið þér m'kil-
vægasta ávinninginn við þá
stjórnarfarsbreytingu, sem
orðið hefur í Júgóslavíu?
spurði ég.
— Það er sú eining, sem nú
ríkir meðal hinna ýmsu þjóð-
erna í Júgóslavíu, svaraði
Tító marskálkur. Hin gamla
óvinátta milli Slóvena, Kró-
ata, Serba, Bosníubúa, Svart-
fjallabúa og Makedoníu-
manna hefur horfið við þá
stefnu um bandalag þjóðern-
anna á algerum jafnréttis-
grundvelli, sem við höfum
framkvæmt.
— Sumir segja, að þér
byggið völd yðar á ofbeldi og
andstaða gegn stjórn nni sé
ekki leyfð í Júgóslavíu. Hvað
er álit yðar á slíkri gagn-
rýni?
— Eg álít hana í hæsta
máta illgirnisiega og upp-
logna. Kosningainar í nóvem-
ber 1945, sem fulltrúar heims
blaðanna fylgdust með,
sýndu að þjóðin fylgir ein-
huga stefnu Föðurlandsfylk-
ingarinnar, stefnu, sem bygg-
ist ít hinni sérstöku aðstöðu
okkar á stríðsárunum, og
þeim skorti á lýðræði, sem
ríkti í landinu Jg þegar fyrir
fyrir styrjöldina hafði knúið
lýðræðissinna af ýmsum
flokkum inn á sömu braut,
enda þótt styrjöldin gerði
fastara formþeirrarsamvinnu
nauðsynlegt. Þér hafið sjálfir
getað sannfærzt um, að hér
eru engin höft lögð á stjórn-
arandstöðuna, eins og hún t-
kemur fram hjá Grol og í
blaði hans, DenLokrati. Þegar
allt kemur til alls er ekki
hægt að kenna okkur um, að
Grol nýtur ekki trausts þjóð-
arinnar. Stjórnarandstaða
hans snýst ekki um málefni.
En í Skuptschina — þingi
okkar — er annars konar
stjórnarandstaða, sem ég
vænti mér meira af, heiðar-
leg stjórnarandstaða, er læt-
ur sig varða endurreisnar-
starfið og raunveruleg vanda-
mál þjóðarinnar.
— Hver er utanríkisstefna
hinnar nýju Júgóslavíu?
— Hún miðar að friðsam-
legri samvinnu við allar þjóð-
ir, smáar og stórar. Þér vitið,
að ungverski þjóðernisminni-
hlutinn í Vojvodníu snerist á
móti okkur í kosningunum.
Þess vegna hafa heyrzt radd-
ir í Ungverjalandi, sem krefj-
ast endurskoðunar á landa-
rnærunum. Slíkum kröfum
hljótum við auðvitað að vísa
á bug, og ég er sannfærður
um, að hér er ekki um neitt
alvarlegt deilumál að ræða.
Sambúðin við Austurríki og
Italíu er erfiðari. Við mund-
um álíta það eðldegt, að hinn
slóvenski hluti Kárnten sam-
einaðist landi okkar, en við
erum alltaf reiðubúnir að
ræða sjónarmið okkar í anda
friðar og skilnmgs við þá al-
þjóðaaðila, sem um málið
kunna að fjalla. Sama á við
um Trieste, sem er ítölsk eyja
í júgóslavnesku þjóðahafi- It-
alir eru nú sigruð þjóð, við
erum sigurvegarar. Okkur
finnst það ekki nema sann-
gjarnt, að við fáum Trieste.
Þá málamiðlunartillögu, sem
nú er rædd, sem sé að Júgó-
slavía fái borgina en sjálf
höfnin verði sett undir al-
þjóðastjórn, vil ég ekki ræða
að svo stöddu, en auðvitað
fullnæg'r hún ekki óskum
Júgóslavíu í þessu máli. En
er það ekki alkunna, að ekki
einung'is Júgóslavar. heldur
líka meirihluti italskra verka
manna í Trieste óska eftir að
sameinast Júgósiavíu?
— Hverju er þ.að að þakka?
— Það e.r að þakka þeirri
framsæknu iýðræðisstefnu,
sem við fylgjum i landi okk-
ar.
— Hvað gleður yður mest
nú sem stendur?
— Sú þjóðareining. sem ég
gat um áðan, og hrifningin,
sem gagntekið hefur þjóðina.
Einkum fagna ég þó föður-
iandsást og fórnarvilja æsk-
unnar. Það er dásamlegt, þeg-
ar ungir stúdentar gerast
sjálfboðaliðar og fara út í
sveitir til að útrýma fáfræð-
iuni; við höfum fengið í arf
írá fyrri stjórn fjölda fólks,
sem hvorki kann að lesa né
skrifa Það er áhrifamikið að
sjá æskulýðinn ieggja af stað
á vörubílum til að hjálpa
bændunum, þeim hluta þjóð-
arinnar, sem minnstan hlut
hefur fengið í framförunum.
í Vojvodníu hafa 10.000 ung-
ir menn og koour frá Novi
Sad og öðrum bæjum gerzt
siálfboðaliðar við landbúnað-
arstörf í sumarieyfi sínu-
Annars staðar byggir æsku-
fólkið brýr og ieggur járn-
brautir. Þjóð, sem á slíka
æsku. getur'rólcg horft fram
a veginn.
í tveggja stunda viðtali
skýrði Tító marskálkur fyrir
mér aðstöðu Júgóslavíu í ut-
an- og innanríkismálum.
Merkilegt þótti mér, að hann
kvaðst hafa farið snöggva
ferð til Kaupmannahafnar og
Stokkhólms í ágúst 1938 Hon
um þótti mikið til þess koma,
sem hann þá sá af norrænni
menningu.
' — Eg vona, að land okkar
og Norðurlönd geti, áður en
langt um líður, hafið árang-
ursríkt menni.igarlegt og
efnahagslegt samstarf, sagði
marskálkurinn að lokum.Sem
stendur eru á því erfiðleikar,
cn þeim má ryðja úr vegi.
Þótt við höfum 14 milljónir
íbúa erum við smáríki, og
eðlilega leikur okkur mikill
bugur á að hafa samstarf við
smáríki, sem slanda jafn
framarlega og Norðurlönd
gera.
Að svo búnu kvaddi ég
Tító marskálk. Þegar ég gekk
niður tröppurnar stóð hin
merkilega ævi hans mér fyr-
ir hugskotssjónum- Tító, sem
var sonur fátæks smiðs í
þorpi nærri Zagreb, hóf ævi-
starf sitt sem byggingarvinnu
maður. í heimsstyrjöldinni
fyrri tóku Rússar hann til
fanga, en hann var leystur úr
fangabúðum eftir byltinguna.
Hugleiðingar
Örvarodds
Framhald af 5. síðu.
ins hefur birzt á jafn eftirminni
legan hált. Þótt Valtýr Stefáns-
son telji hina heiSarlegu heilcl-
sala, hina duglegu skattsvikara,
hina atorkusömu húsabraskara
„bctri og færari menn“ en al-
þýöu landsins, skal hann fá aö
finna jiaö, aö islenzka þjóöin hef
ur meiri mætur á öörum eigin-
leikúm en þeim sem eru rikaslir
í fari þessara háu herra.
Stjórn Nehrus
á Indlandi
Frh. af 1. síðu.
Óeirðir í Bombay
Múhameðstrúarbandalagið
hvatti fylgismenn sína til að
sýna andúð á valdatöku
Nehrus með því að draga
svarta fána að hún. Múha-
meðtrúarmenn fóru í mót-
mælagöngur í ýmsum borg,
um, en hvergi kom til átaka
nema í Bombay. Þar féllu 75
menn en 400 særðust í gær
og fyrradag. Brezkt herlið
með skriðdreka er komið til
borgarinnar og umferðar-
bann hefur verið sett.
Jón Grímsson bankafulltrúi
varð fimmtugur í gær.
Guðrún Jónasdóttir, kennari
við Húsmæðraskóla Reykiavíkur,
var meðal farþega á Esjunni. —
Hún hefur dvalið eitt ár í Sví-
þjóð við framhaldsnám í vefn-
aði.
Síðan barðist hann árum sam
an í Rauða hernum. Er hann
hvarf heim til föðurlands síns-
sat hann sex ár í fangelsi fyr-
ir ólöglega starfsemi. í upp-
hafi styrjaldarinnar, sem nú
er nýafstaðin, veitti hann
Kommúnistaflokki Júgósla-
víu forystu. Úr fámennum
skæruliðasveitum skapaði
hann milljónaher, og er nú
einn af frægustu herfor.ngj-
um styrjaldarinnar. Það eru
sannarlega merkileg örlög.
Per Meurling.
Valur víðförli
Myndasaga eftir Dick Floyd
WEVE
ALLTW' GUESTS'
SIGTlATUftES ONTW'
PETITION TO KEEP/
O.HAINTACT?
Bianca hefur veri drepinn af lögreglustjóranum, og nú
færist aftur ró yfir sumarhótelið. — Valur: Við höfum
fengið undirskrift allra gestanna undir áskorunina um að
matvælaeftirlitið haldi áfram. Þar sem við höfum nú ráðið
niðurlögum Bianca skulum við snúa okkur að því að stöðva
leynisölu matvæla. — Jói frændi: Sæll Valur, má ég kynna
þig fyrir nýjum gesti, Ona Morgun. — Wendy (með ís-
kulda): Þú varst eitthvað að tala um leynisölu á kjöti
Valur.