Þjóðviljinn - 17.05.1949, Side 4
ÞJÓÐVILJINN
Þriðjtidagur 17. maí 1949.
plÓÐVIIJINN
Dtieluid): Sameiningarflokkur alþýðu — Sóaíalistaílokkurlnn
Ritatjórai: lfagnúa Kjartanaaos. Sigurður QuSmundsson (4b>.
Fréttarltstjóri: Jón Bjarnason.
BlaSam.: Ari K&rason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Arnason.
Ritstjóm, afgrelðsla, auglýsingar, prentsmtSja, SkólavörSu'
■tig 19 — Síml 7600 (þrjár Unu iY
Áskrií'arvsrB: kr. 12.00 & m&nuðl. — LausasöluvsrS 50 aur. etnt
Frentsmlðja ÞJóðvllJans h. f.
SóateUstaflokknrlnn, Þórsgötu 1 — Sími 7510 (þrj&r línur)
„Kapphlaup*
BÆ JAUP0STIIRINNJ
Þegar blöð ríkisstjómarinnar ræða um kaupgjaldsmál
sækja þau öll sem eitt samlíkingar sínar yfir á svið íþrótt-
anna og tala um kapphlaupið milli launa og verðlags.
Og þau eru öll sammála um það að slíkt kapphlaup sé
mjög svo skaðlegt og halda því fram áð launþegar eigi
að minnstakosti ekki að haggast hversu mikið sem verð-
lagið þenur sig.
Þessi samlíking er að ýmsu leyti nytsamleg. Það sem
meginmáli skiptir fyrir launþega er sambandið milli kaup-
gjalds og verðlags eða með öðrum órðum kaupmáttur
launanna. Fari verðlag fram úr kaupinu í ,,kapphlaupinu“
minnkar kaupmáttur launanna og dýrtíð vex. Standi hvort-
tveggja í stað eða fylgist að á hlaupabrautinni helzt kaup-
mátturinn óbreyttur. Komist launin fram úr verðlaginu
eykst kaupmáttur þeirra að sama skapi, og dýrtíð sú sem
launþegar eiga við að búa minnkar.
Þessi einfalda staðreynd var undirstaða þess að greiða
laun manna í samræmi við verðlagsvísitölu. Það fyrirkomu-
lag átti að tryggja að kaupgjald og verðlag fylgdist að
á hlaupabrautinni, hvort sem haldið væri áfram, staðið i
stað eða farið afturábak. Þannig átti kaupmáttur launanna
og lífskjör almennings að haldast óbreytt í meginatriðum.
Þetta fyrirkomulag reyndist vissulega ekki einhlítt hér á
landi þar sem grundvöllur vísitölureikningsins vár ótraust-
ur og villandi, en þó var í þessu fyrirkomulagi allmikil
trygging fyrir launþega.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að það er nú-
verandi ríkisstjórn sem rofið hefir þetta samhengi milli
kaupgjalds og verðlags. Þegar er hún tók við völdum hófst
hún handa um stórvægilegar falsanif á vísitöluútreikningn-
um og um áramótin 1947—’48 sleit hún sambandið að
fullu, lækkaði launin um tæp 10% og batt þau þar. Upp frá
því hefur „kapphlaupið“ verið fólgið í einstæðu gönuhlaupi
verðlagsins, en kaupgjaldið hefur staðið í stað. Svo að
íiáldið sé samlíkingunni úr íþróttamálinu má fullyrða að
þarna sé um íslandsmet að ræða, og. algert vafamál hvort
CÍausenbræður hafi hlaupið hraðar að tiltölu á flótta sínum
undan friðsömum Reykvíkingum á Austurvelli 30. marz.
Afleiðingin hefur að sjálfsögðu verið síminnkandi kaup-
máttur launanna og sívaxandi dýrtíð.
Og svo, eftir þessi ósköp, dirfast stjórnarblöðin að
bregða launþegum um að þeir auki verðbólguna með kapp-
hlaupi sínu! Og óskammfeilnin ríður raunar ekki við ein-
teyming, þau flytja launþegum einnig þau „góðu ráð“ að
þeir skuli ekki taka sprettinn heldur reyna að tosa verð-
laginu afturábak á hlaupabrautinni. En einmitt sömu dag-
ana og þessi „góðu ráð“ drjúpa af vörum stjórnarliðanna,
taka þessir sömu stjórnarliðar þátt í því að leggja 25
millj. kr. nýja tolla og skatta á þjóðina, hækka verðlagið
sem því svarar og rýra kaupmátt launanna! Heilindin eru
vissulega í samræmi við þá reynslu sem áður er fengin.
Stjórnarliðið getur sjálfu sér um kennt að almenningur
festir engan trúnað á „ráðleggingar" þess. Það er nú liðið
bálft annað ár síðan samhengið milli kaupgjalds og verð-
lags var rofið að fullu. Því var þá haldið fram að tilgangur
þess verknaðar væri sá að lækka allt, hefja kapphlaup
afturábak. Loforð og ráðleggingar sama efnis hefir ekki
skort síðan. En það eru ekki orðin sem máli skipta heldur
verkin — og hver maður veit að launþegum er nú nauðugur
einn kostur að nálgast verðlagið á nýjan leik, og til þess
hafa launþegar aðeins eitt ráð: að faækka grunnkaup sitt.
Hraðinn í barna-
kennslunni.
Móðir skrifar: — „Það hefur
lengi verið að veltast fyrir mér
að senda þér línu út af kennsl-
unni í barnaskólunum, sumum
að minnsta kosti .... Þar sem
ég þekki til eru börnin látin
fara svo hratt yfir að þau hafa
ekki nema hálft gagn af kennsl-
unni. .... Kenslan virðist hafa
það takmark, að börnin komist
yfir sem allra mest, án tillits til
þess hvort þau læra nokkuð.
Þetta finnst mér ekki rétt að-
ferð við uppfræðslu barna.----
Móðir.“
Getur valdið sálrænu
fargi.
Þetta mál hefur áður verið
rætt hér í dálkunum og m. a. á
það bent, að auk þess sem svona
kennslumáti væri til lítils gagns,
gæti hann beinlínis reynzt skað-
legur fyrir sum börn, þ. e. a. s.
þau börn sem eru seinni til en
önnur. Þau hljóta að dragast
mjög aftur úr við námið þeg-
ar því er svona hagað, en um
leið dregi^r úr sjálfstrausti
þeirra, þau fá minnimáttar-
kennd og þola ýmiskonar annað
sálrænt farg, sem kann að skilja
eftir sig þau ör sem aldrei
hverfa. — Fleiri annmarkar um
rædds kennslumáta eru einnig
augljósir, þó ekki verði málið
frekar rætt að sinni.
★
Hið fagra umhverfi
bæjarins.
,,Náttúruskoðari“ skrifar:
— ,,Nú er sumarið komið og
um leið fer að verða meira gam
an að fara í skemmtigöngur á
kvöldin og um helgar...........
Það verður aldrei nógsamlega
brýnt fyrir Reykvíkingum, að
þeir þurfa ekki endilega að fara
óraleiðir til að finna unaðssemd-
ir og skemmtileg sérkenni lands
lags. Það er nóg af þessu hér
í næsta nágrenni bæjarias og
maður getur notið ótrúlega mik-
ils af því á einni kvöldgöngu, ég
tala nú ekki um lengri göngu-
ferðir um helgar .... En það
er mikið atriíí í þessu sam-
bandi, að félög þau og aðrir að-
ilar sem hafa með ferðalög að
gera, skipuleggi svona göngu-
ferðir bæjarbúa (það gera þau
nú raunar, en ekki nóg), og fái
kunnuga menn til að sjá um
fararstjórnina.......“
★
Misskilin fílósófía.
Ólöf skrifar: „Mér heyrist á
því sem þú segir um svanina á
Tjörninni, bæjarpóstur minn, að
þér þyki ekki neitt varið í að
þeir skuli vera komnir þangað.
Eg er aftur á móti mjög hrifin
af þeim og vil alls ekki að pilt-
inum, sem góðfúslega lánaði
bænum þá, sé sýnt vanþakklæti.
Ólöf hefur misskilið fíló-
sófíu mína út af þessum fugl-
um. Eg er aldeilis himinlifandi
yfir því að þeir skuli vera komn
ir á Tjörnina. En ég vil að þeir
syndi, standi ekki í fæturna. Og
ég er feginn því að þeir skuli
ekki hafa tekið upp á því að
syngja, því það gera þeir ekki
vel að mínum dómi, — sem er
nú raunar önnur saga.
★
Verkefni fyrir Víkverja,
Loks skrifar H. K.: „Eg vil
þakka Oddnýju Guðmundsdótt-
ur fyrir það sem hún segir um
„Bennabækurnar" og aðrar á-
líka hollar unglingabókmenntir.
..... Eg vil benda Víkverja
og öðrum Morgunblaðsmönnum,
sem virðast láta sér annt um
uppeldi æskunnar, að þama er
einmitt verkefni fyrir þá, að
vinna gegn áhrifum svona bóka,
—■* ef þeir skyldu einhverntíma
fá tóm frá róginum um kenn-
arastéttina .....“
BIKISSKIP:
Brúarfoss fór frá Grimsby i fyrra
dag 15.5. til Antwerpen. Dettifoss
er í Hull. Fjallfoss er í Antwerpen.
Goðafoss var við Reykjanes kl. 07.
00 í gærmorgun 16.5. á austurleið
tii Akureyrar, skipið snéri við fyr
ir austan Horn i fyrradag vegna
hafíss. Lagarfoss fór frá Gauta-
borg 14.5. til Reykjavíkur. Reykja-
foss er i Vestmannaeyjum. Selfoss
kemur til Reykjavikur kl. 18.00 í
gær 16.5. að vestan og norðan.
Tröllafoss er í N. Y. Vatnajökull
kom til Reykjavíkur kl. 11.30 i gær
16.5. frá Leith.
ISFISKSALAN:
13. þ. m. seldi Marz 336 lestir i
Bremenhaven 14. þ. m. seldi mótor
skipið Hvítá 1169 kits fyrir 2878
pund í Fleetwood.
Hekla fór til Kph.
og Stokkhólms kl.
8 í morgun með 35
farþega. Kemur
aftur á morgun.
Flugvélar Loftleiða fóru í gær
tvær ferðir tii Akureyrar, Vest-
mannaeyja og Sands og eina til
Hólmavíkur og Isafjarðar. Gullfaxi
fór kl. 8.30 i morgun til Prestvíkur
og Kaupmannahafnar með 30 far-
þega. Flugvélar F. 1. fóru til Vest
mannaeyja og Akureyrar í gær.
8.30—9.00 Morgun-
utvarp. 10.10 Veð-
urfregnir. 12.10 —
13.15 Hádegisút-
varp. 15.30—16.25
Miðdegisútvarp. —
16.25 Veðurfregnir. 19.25 Veður-
fregnir. 19.30 Þingfréttir. 19.45 Aug
lýsingar. 20.00 Fréttir. 20.15 Útvarp
frá Alþingi: Framhald þriðju «m-
ræðu um frumvarp til fjárlaga, fyr
ir árið 1949 (eldhúsdagsumræða).
23.35 eða síðar: Veðurfregnir. —
Dagskrárlok.
Leikfélag Hafnarf jarðar sýnir
revýuna Gullna leiðia í kvöld kl.
8.30
^ S. 1. sunnudag
gaf séra Jakob
Jónsson saman
í hjónaband í
Hallgríms-
kirkju, ungfrú
Guðbjörgu Guðjónsd., Skeggjagötu
10 og Einar Hafstein Hjartarson,
Stórholti 30, starfsmann á Toll-
stjóraskrifstofunni. Heimili brúð-
hjónanna verður að Skeggjagötu
10. — Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Hálfdáni Helga-
syni prófasti að Mosfelli, ungfrú
Hrefna Pétursdóttir, Sjávarborg
Reykjavík og Jón Ólafsson múrari
að Reynisvatni. — 1 dag verða gef
in saman í Dómkirkjunni, af séra
Bjarna Jónssyni, vígslubiskupi,
ungfrú Hemma Kristín Þórar-
insdóttir, saumakona og Charles
Daníelsen trésmíðameistari. Heim-
ili þeirra verður fyrst um sinn á
Laufásveg 2.
Lesendur blaðsins eru beðnir um
að athuga smáauglýsingarnar
eru á 7. síðu. Þar kennir margra
grasa. Þar má oft finna augl. um
íbúðir til leigu og sölu og allskonar
Jnáviðskipti, sem menn ættu ekki
að láta fara fram hjá sér. Lesið
smáauglýsingarnar — auglýsið í
smáauglýsingadálkunum á 7. síðu.
mi/
Gerpir, mán-
aðarrit Fjórð-
ungsþings Aust
firðinga, 4. tbl.
1949, er komið
út. Efni: Vorið
kemur, kvæði Kristinn Arngríms-
son. Stjórnmálasamtök. Um strönd
og dal. Jafnvægi stjórnkerfis og
stjórnarfars. Þáttur af séra Guðm.
Erlendssyhi á Klyppstað og Ólafi
bróður hans. Skjaldberinn, eftir
Snæbjörn Jónsson. 1 Gerpisröst-
inni. Á heimsenda köldum, ferða-
þáttur.
Sýning frístundamálara. Lauga-
veg 166, er opin daglega kl. 1—11.
Máiverkasýning Örlygs Sigurðs-
sonar í Listamannaskálanum, er
opin daglega kl. 11—23.
— Klna
Framhald af 8. síða.
að. Síðustu fregnir herma, að
barizt sé í úthverfum Sjanghai.
Skæruliðar nærri Tíbet.
Kommúnistaherirnir, sem
sækja suður Kína frá strönd-
inni og inn á móts við Hanká
njóta sívaxandi stuðnings skæru
liðaflokka sem stöðugt spretta
upp að baki Kuomintangherj-
anna. Skæruliðar láta til sín
taka langar leiðir frá vígstöðv
unum, svo sem í Júnnanfylki,
sem liggur að Burma og Indo-
Kína, og nálægt Tíbet. Komm-
únistar tóku í gæT Sían, höfuð-
stað Sjensifylkis.
— Ptliliöfundalaim
Framhald af 8. síðu.
sá að ekki yrði hægt að hindra
þessa „hækkiui", sat hann hjá
við atkvæoagreiðsluna en gerði
þannig grein fyrir hjásetu
sinni:
„Ef menn vilja endilega gefa
kommúnistaleirskáldum !aun úr
ríkissjóði mega þeir það fyrir
mér.“
Mun hér rétt lýst „menning-
arstefnu" stjórnarliðsins al-
’mennt og Alþýðuflokksins sér-
staklega, en súrt mun Hagalín,
Davíð Stefánssyni og Elínborgu
þykja að vera kölluð „kommún-
istaleirskáld" en þau eru sein
kunnugt er meðal þéirra sem
notið hafa þessara launa um
Iangt sksið.