Þjóðviljinn - 23.07.1950, Side 4
3
ÞJÓÐVILJZKN
Sunnudagur 23. júlí 1950«
blÓÐVILIINIÍ
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson, áb.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson,^
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu-
stíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Askriftarverð: kr. 14.00 á mán. — Lausasöluverð 80 aur, eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Árásirnar á lífskjör félksins og
verkalýlshreyfingin
Fáir dagar eru liönir frá því ríkisstjórnin tiikynnti,
að júlívísitalan hefð'i verið útreiknuð af meirihluta kaup-
lagsnefndar sem 109 stig, óbreytt frá júnívísitölunni, en
stjómin hefði með bráðabirgðalögum ákveðið að vísi-
talan skuli reiknast 112 stig. Augljóst var strax af því
.sem fréttist af störfum nefndarinnar að vísitalan átti
að vera, meira að segja samkvæmt hinum ,,vísindalega“
falsaða grundvelli gengislækkunarlaganna, 117 stig, en
. fyrir íhlutun ríkisstjórnar íhalds og Framsóknar hefði
meirihluti kauplagsnefndar birt tíina fáránlegu niður-
stööu 109, með því að taka tillit til laga frá síðasta þingi
sem ætlað var að lækka húsaleigu, en ekki er vitað til
að þau lög hafi í nokkru húsi borið tilætlaðan árangur.
En sjálf ríkisstjórnin treysti sér ekki þegar t-il kom að
halda við þessa augljósu fölsun, og blað forsæl isráðherr-
ans hefur neyðzt til að viðurkenna, að vísu hálf skömm-
ustulegt, að niðurstaða kauplagsnefndar, júlívísitalan
109, „samræmist ekki veruleikanum“.
En júlívísitalan sem rikisstjórn Framsóknarflokksins
og íhaldsins ákváðu með bráðabirgðalögum er einnig
langt frá því að „samræmast veruleikanum“ Hún sam-
ræmist ekki einu sinni þeirri gerfölsuðu mynd af veru-
leika sem felst í núverandi vísitölugrundvelli, enda þótt
hann væri í öllum greinum miðaður við það að hafa sem
mest af launþegum landsins.
Enda viröist nú mælirinn fullur, árásir aiturhaldsins
á lífskjör fólksins orðnar einni of margar til þess að
þolað verði án þess að taka á móti. Ýms helztu verkalýðs-
félög landsins hafa fyrir löngu skorað á Alþýöusambands-
stjórn að hefja aðgerðir til varnar lífskjörum fólksins í
camræmi við samþykktir verkalýðsráðstefnunnar í vetur.
Fram að þessu hafa þær kröfur verkalýðsfélaganna eng-
ar undirtektir fengið. Nú hefur Alþýðusambandsstjómin
samþykkt að leggja fyrir verkalýðsíélögin að segja upp
samningum með kauphækkun fyrir augum og leita sam-
starfs við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og Far-
manna- og fiskimannasambandið um baráttu gegn kjara-
i
skerðingu gengislækkunarinnar.
Það er tilgangslaust af afturhaldsblööunum að halda
því fram að framundan sé barátta allrar íslenzku verka-
lýðshreyfingarinnar um smánaruppbót nokkurra fals-
aðra vísitölustiga, enda þótt alþýöuheimili muni um
Það gleymdist að kveða
upp dóm.
Fyrir nokkrutn dögurn var kveð
inn upp dómur yfir þjóðkunn-,
um lækni er dómarinn taldi
brigður á það. Þó þykjast menn
geta séð vankanta á þeirri lög-
gjöf, og eitt Reykjavíkurblað-
anna hefur lagt til að húu verði
endurskoðuð.
Ungbarnavernd Líknar, Templara-
sundi 3, verður opin i sumar &
fimmtudögum kl. 1.30—2.30, en
ekkl á föstudögum eins og und-
anfarið.
r'. *»>,
vr
Nýlega hafa opin-
beruðu trúlofutt
sína Margrét Böbs
Grænumýrartungu
í Hrútafirði og
* Hjalti Guðmunds-
son, Vesturhópshólum, V.-Húna-
vatnssýslu.
að gerzt hafði sekur um fóstur-
eyðingar. Var skýrt frá þessu
í blöðum undir stórum fyrir-
sögnum. Skýrt var frá því í
fréttum blaðanna, að rannsókn
þessa máls hefði tekið langan
tíma, og væru málskjölin á
þriðja hundrað fólíósíður. Þó
mun hafa gleymzt að kveða
upp dóm yfir þeim aðiíanum,
sem á þar þyngstu sök, og
mundi rannsókn í máii hans efa
laust krefjast enn lengri ttma.
Sá aðili er þjóðfélagið.
•
„Óhjákvæmiiegt foöí."
Fóstureyðingar eru máski
léttvægar móti þeim tugmilljón
um mannslífa, sem auðvalds-
þjóðfélagið hefur á samvizku.
sinni. En þær eru þó talandi
tákn þess, hversu gersamlega
það þjóðskipulag hefur brugð-
izt skyldum sínum við mann-
kynið. I auðvaldsþjóðfélagi eru
fóstureyðingar óhjákvæmilegt
böl.
Sökin er þjóðfélagsins.
Engin heilbrigð kona tnundi
láta eyða fóstri sínu, ef nauð-
syn bæri ekki til. En það kem-
ur því miður oft fyrir 1 því
þjóðfélagi, sem leiðir yfir þegna
sína fátækt, öryggisleysi og
spillingu hugarfarsins. Jafn-
framt því hjúpar það sig hræsni
og yfirborðsmóral og lokar aug
unum fyrir ógæfu einstakling-
anna.
„Hin frjálslynda
* Iöggjöf.“
Það bannar fóstureyðingar
með lögum, en veitir þó undan-
þágur ef sérstaklega stendur á.
Þær undanþágur eru þó svo fá-
ar, að það er á allra vitorði,
að „ólöglegar" fóstureyðingar
eru algengar og hafa farið í
vöxt. Sagt er, að við íslending-
ar búum í þessum efnum við
mun „frjálslyndari" löggjöf en
margar nágrannaþjóðir okkar,
og er engin ástæða til að bera
Það þarf að breyta
skipulaginu.
Hér skal enginn dómur á það
lagt, hvort ekki muudi takast
að bæta þessa löggjöf til mik-
illa muna, en því haldið fram,
að þetta mein verður aldpei
læknað með „frjálslyndri lög-
gjöf“. Meinið liggur dýpra. Or-
sök þess er sjálft þjóðskipulag-
ið, þjóðskipulag skortsins, ör-
yggisleysisins, stríðsins og
mannfyrirlitningarianar.
SKIPABEILB S. 1. S.
Arnarfell er á leið frá Kotka tii
Reykjavíkur. Hvassafell er á leið
frá Flekkefjord í Noregi tii R-
vikur.
RÍKISSKIP:
Hekla er í Glasgow. Esja er á
leið frá Austfjörðum til Akureyr-
ar. Herðubreið fór frá Reykjavík
í gærkvöld austur um land til
Reyðarfjarðar. Skjaldbreið er á
ieið frá Húnaflóa tii Reykjavíkur.
Þyrill er í Reykjavík.
ISunarapótek hefur næturvörzlu,
simi 1911.
Erlend mynt — Sölugengi.
Bandaríkjadollar kr. 16.32
Sterlingspund — 45.70
Kanadadollar — 14.84
Danskar kr. 100 — 236.30
Norskar kr. 100 — 228,50
Sænskar kr. 100 — 315,50
Finnsk mörk 100 — 7,09
Franskir frankar 1000 — 46.63
Belgiskir frankar 100 — 32.67
Svissn. frankar 100 — 373.70
Tékkneskar kr. 100 — 32.64
Holl. gyllini 100 — 429.90
g. Bræðrabrúð-
kaup. Þann 13.
þ.m. gengu í
fijónaband þrír
;ynir hjónanna
• * ^önnu Stefáns-
dóttur og Þórðar Jónssonar að
Hjarðarholti í Dölum. Sr. Ólafur
Ólafsson á Kvennabrekku fram-
kvæmdi hjónavígslurnar. Brúð-
hjónin voru: Þráinn Þórðarson gg
Karen Guðlaugsdóttir frá Húsa-
vík, Yngvi Þórðarson og Gyða
Bárðardóttir frá Grænavatni, og
Hjalti Þorðarson og Inga Aðal-
heiður Guðbrandsdóttir frá Lækj-
arskógum.
Hallgrímskirkja
kl. 11 árdegis, sr.
Jakob Jónsson.
Ræðuefni: Brauð
og fiskur. —
Nesprestakall.
Messað í Fossvogskirkju kl. 11
árdegis, sr Jón Thorarensen.
Söfnln
15.15 Miðdegistón-
leikar. 16.15 Út-
varp til Islendinga
erlendis: Fréttir.
— Erindi (Gísli
Kristjánsson rit-
stjóri). 18.30 Barnatími (Ingi-
björg Þorbergsdóttir og Skúli Þor
bergsson): a) Sögur og ævintýri.
— b) Söngur með gítarundirleik.
— c) Framhaldssagan: „Óhappa-
dagur Prillu" Katrin Ólafsdóttir
les). 19.30 Tónleikar: Paganini-
tilbrigðin eftir Brahms. 20^20
Skemmtiatriði „Bláu stjörnunn-
ar“: MIM. 22.15 Danslög. 23.30
Dagskrárlok.
Útvarplð á morgun:
20.20 Tónleilcar: „Góði hirðirinn,"
svita eftir Hándel. 20.45 Um dag-
inn og veginn (frú Filippía Krist-
jánsdóttir). 21.05 Einsöngur: Elisa
beth Schumann syngur, 21.20
Ferðaþættir frá Jótlandi. 21.40
Tónleikar. 22.10 Létt lög. 22.30
Dagskrárlok.
Landsbókasafnlð er opið kl. 10
—12, 1—7 og 8—10 alla virka
daga, nema laugardaga, þ& kl.
10—12 og 1—7. — Þjóðskjalasafn*
Ið kl. 2—7 alla vlrka daga. —
Þjóðminjasafnlð kl. 1—3 þriðju-
daga, fimmtudaga og sunnudaga.
— Náttúrugripasafnið er oþlð
sunnudaga kl. 1,30—3 og þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 2—3. —
Listasafn Einars Jónssonar kL
1.30—3.30 á sunnudögum. — Bæj-
arbókasafnlð kl. 10—10 alla virka
daga nema laugardaga kl. 1—4.
Bólusetning gegn barnavelkl.
Pöntunum veitt móttaka í síma
2781 kl. 10—12 f. h. fyrsta þriðju-
dag hvers mánaðar. Fólk er á-
minnt um að láta bólusetja börn
Leopold
Ilelgldagslæknir er Jón Eiríks-
son, Ásvallagötu; 28, sími 7587.
Framhald af 1. sí5u.
allskonar slagorð á móti kon-
ungi, og þurfu verkamenn að
íiiinna en þá upphæð sem af þeim er rænt mcð fölsuninni.
Þessi síðasta árás ríkisstjórnar afturhaldsins á lífskjör
fólksins og viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar þýða aö
einu sinni of oft hefur verið vegið í sama knérunn. Svo
langt er gengið á lagið gegn íslenzkri alþýðu að jafnvel
Mnir sáttfúsustu segja að nú skuli tekið á móti. Og verka-
lýðshreyfingin öll býst ekki einungis til sameigjnlegra
i.taka um uppbætur fárra vísitölustiga, heidur einnig
gegn þeirri gífurlegu kjaraskerðingu sem gengislaekkunin
og fyrri árásir afturhaldsins hafa búið henni.
En slík átök verða því aðeins sigursæl að alger eining
ríki innan raða verkalýðssamtakanna, að bak við ákvarð-
aríir sem teknar eru* standi raunverulegt afi verkalýðs-
hreyfingarinnar á íslandi. Hér ríður á aö yfirstjórn sam-
takanna hafi nægan heiðarleik og heilindi til að líta ekki
á sig sem ábyrga gagnvart einum stjórnmálaflokki heldur
eingöngu gagnvart heildarsamtökunum. Tillaga fulltrúa-
ráðs verkalýösfélaganna í Reykjavík um skyndiráðstefnu
áhrifamanna allra verkalýðsfélaga landsins sem til næst
og aðrar ráðstafanir til að tryggja einhug og einbeittni
állrar verkalýðshreyfingarinnar í átökunum framundan,
mun vekja almenna ánægju meðal verkamanna. Sam-.
stillt og einhuga er verkalýðshreyfing íslands orðin þaö
afi í landinu að hún þarf ekki að láta bjóða sér ósvífnar
árásir á lífskjör alþýðunnar. Samstilltri og einhuga al-
þýðu íslands er sigur vís.
fara á undan vagni konungs tii
að afmá þau.
Fátt fólk var á götunum, en
því meira herlið, og voru allar
þvergötur afgirtar af hermönn-
um vopnuðum byssustingjum
og táragasi.
Blað belgÍ3ka kommúnista-
flokksins „Drapeau Rouge,“
skoraði í gær á Bruxellesbúa að
safnast saman í miðbiki borg-
arinnar þá um kvöldið og mót-
mæla heimkomu konungs. Full
trúar sósíaldemókrata í ríkisráð
inu hafa sagt sig úr því. ’