Þjóðviljinn - 06.10.1950, Side 4
ÞJÓÐVILJINN
Föstudagur 6. október 1950.
Krossgáta nr. 49
ÞI0Ð¥1L1INN
Útgefandi: Sameinlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Kitstjórar: Magnús Kjartansson (áb.) SlgurSur GuSmundsson.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
BlaSamenn: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnas.
Auglýslngastjóri: Jónstelnn Haraldsson.
Kitstjórn, afgreiösla, auglýsingar, prentsmiSja: SkóIavörSu-
stíg 19. — Sími 7S00 (þrjár línur).
ÁskriftarverS: kr. 14.00 á mán. — LausasöluverS S0 aur. eint.
PrentsmiSja ÞjóSviljans h. f.
Baráttan heldur áfram
Keflavíkursamningurinn er uppsegjanlegur aö ári
liðnu, 5. október 1951, og þaö verður því hlutskipti þess
Alþingis sem kemur saman í næstu viku að taka á-
kvörðun um uppsögn hans. Samningnum verður eflaust
eagt upp, en ekki á þann hátt sem íslenzka þjóðin óskar,
ckki þannig aö íslenzkir menn taki við allri starfrækslu
vallarins og að hann verði óskoruð íslenzk eign. Ætl-
t’.nin er þvert á móti sú að halda áfram á þeirri braut
sem sveigt var inn á fyrir fjórum árum og afhenda
völlinn árásarfélagi Bandaríkjanna, Atlanzhafsbanda-
laginu. Yrði hann þá algerlega ógrímuklædd herstöð.
En áformin eru fleiri og vfðtækari. Auk þess sem
ætlunin er að efla og stækka stöövarnar í Keflavík og
Hvalfirði er þess nú krafizt að komið verði upp nýjum
stöðvum, radarkerfi til notkunar í árásarstríð á Norður-
atlanzhafi. Jafnframt er nú röðin komin að hersetu,
og er einkum rætt um að stofna innlendar flugsveitir
sem studdar verði erlendri hersetu, en Alþýðuflokks-
forsprakkarnir hafa einkum þá hugsjón að eríendi her-
inn verði danskur! Að þessu sinni verða íslendingar
einnig að leggja fram sinn skerf til hins sameiginlega
stríðskostnaöar og er ætlunin að taka hann úr mót-
virðissjóði, en þar er það fé geymt sem almenningur
hefur borgað fyrir gjafakorn og marsjallkartöflur!
íslenzka þjóðin hefur háð harða og eftirminnilega
baráttu gegn landráðunum undanfarin fjögur ár, og
mimu einstakir atburðir þeirrar baráttu verða dýrmæt
eign ókominna kynslóða. Sú barátta mun halda áfram
þrotlaust. ,,Þó landráðamönnum takíst að semja rétt
vorn í hendur erlends herveldis munu þeir ekki fá samið
af oss réttinn til að berjast meðan vér lifum.“
Tvær játningar
Alþýðublaðið viðurkennir í gær að áróðurinn um
,.fylgishrun kommúnistá' í Alþýðusambandskosningun-
um sé gaspur eitt. Þar segir:
„Það getur verið að það megi vera kommúnistum
nokkur huggun í hrakförum þeirra í kosningunum
til Alþýðusambandsþings, að þær virðast síður
stafa af beinu fylgistapi þeirra, en af vaxandi
áhuga og þátttöku hins lýðræðissinnaða meiri-
hluta í verkalýðsfélögunum.“
Hjá þessari viðurkenningu varð ekki komizt. Úrslit
flestra þeirra kosninga sem fram hafa farið sýna að
sameiningarmenn eru í sókn og hafa að þessu sinni
fengið fleiri atkvæði í verkalýösfélögunum en nokkurn
tíma áður. Hitt er einnig rétt sem sagt er um „vaxandi
áhuga og þátttöku lýðræðissinna“, sé með því orði átt
við atvinnurekendur og agenta þeirra, en svo fagrar
nafngiftir velur Alþýðublaðið nú því hyski. Atvinnu-
rekendur hafa sem kunnugt er haft forustu um alla
kosningaþátttöku afturhaldsflokkanna, og Alþýðuflokk-
urinn hefur beinlínis afhent þeim verulegan hluta af
ítökum sínum í verkalýöshreyfingunni og er ástæðunum
til þess verknaðar lýst á öðrum stað í blaðinu í dag. At-
vinnurekendur hafa náð mjög verulegum árangri, og
skýrir Morgunblaðið það 1 gær á þessa leið:
„Þctta gerist á sama tíma og fólkið í verkalýðs-
samtökunum á við vaxandi erfiðleika að etja af
völdum hækkaðs verðlags og minnkandi atvinnu.“
Vel er þar auglýst
eoca-cola
Alþýðublaðið birtir nú á degi
hverjum langar fagnaðargrein-
ar um gang þeirrar baráttu
sem háð er um fulltrúakjör á
Alþýðusambandsþing. Alþýðu-
blaðið birtir líka á hverjum
degi stórar og fallegar coca-
cola-auglýsingar frá Bimi Ól-
afssyni og Vilhjálmi Þór. Svona
táknrænir eru hlutimir stund-
um. Fyrir auðmjúka þjónustu
Alþýðuflokksins hefur atvinnu-
rekendavaldi landsins nú tekizt
að efla geigvænlega sókn að
höfuðvígi verkalýðsins. Nái
sókn þessi tilætluðum árangri,
þá eru aftur framundan þeir
tímar á íslandi að verkalýður-
inn mætir hverjum nýjum degi
með eina og sömu spurningu
á vörum: Hvar skal nú aflað
brauðs og mjólkur handa svöng
um bömum? Alþýðublaðið seg-
ir fólki að drekka meira coca-
cola. Bjöm og Vilhjálmur
borga blaðinu daglega 50 til
100 krónur fyrir að segja það.
•
Sími baráttunnar
Lýðræðissinnar, herðið bar-
áttuna! hrópar Alþýðublaðið.
Ef þið þarfnizt einhverra upp-
lýsinga eða hafið einhverjar
upplýsingar, sem styrkt gætu
málstaðinn, þá hringið í síma
7100. Herðið baráttuna!. —
Þetta er barátta um fulltrúa
á þing alþýðunnar, og síminn
sem Alþ.bl. tilgreinir sem eina
mestu miðstöð þeirrar baráttu
er prívatsími $jálfstæðisflokks-
ins í Holsteini. Þannig er nú
helzt svo að sjá sem það blað,
er kennir sig enn við alþýðu,
telji málstað verkalýðsins bezt
borgið í kjöltunni á kontor-
dömum íhaldsins.
Hvaðan verða
kjarabæturnar?
Útyfir tekur þó þegar Al-
þýðublaðið blæs sig upp í gor-
geir um þær kjarabætur sem
það þykist geta lofað verka-
lýðnum ef hann vilji efla sig-
ur „lýðræðissinna“. Hvaðan
mundu þær kjarabætur koma?
Frá coca-cola-sölunum Birni og
Vilhjálmi? Eða kannski frá
kontordömum íhaldsins ? Líka
er til sá möguleiki að Sæmund-
ur Ólafsson sæki þær niðrí kex-
kassana hjá mági sínum og
bissnissfélaga Eggerti Kristjáns
syni heildsala.
Skrefið stigið
til fulls
Forustumenn Alþýðuflokksins
hafa nú stigið skrefið til fulls.
Þeir hafa að fullu sagt skilið
við fylkingar verkalýðsins og
horfið til faðmlaga við auðvaldið
og öll hin spilltustu öfl þjóðfé-
lagsins. Til þessara afla hefur
hugur þeirra lengi staðið.
Svo fast hafa þeir sótzt eftir
samlífi við þau, að ókunnugur
gæti haldið að framhaldssaga
Alþýðublaðsins fjallaði um
þetta mál. Sú saga nefnist
Heitar ástríður.
/ 2 3 T |
fe 7
8 •í
10
II u /3
/‘/ S3 iS /fe
/? —J
Rikisskip
Hekla er í Reykjavík og fer það
an næstkomandi mánudag vestur
um land til Akureyrar. Esja verð
ur væntanlega á Akureyri siðdegis
í dag. Herðubreið er á Austfjörð-
um á norðurleið. Skjaldbreið var
á Isafirði siðdegis í gær á norður
leið. Þyrill er í Reykjavík.
Skipadeild SIS
Arnarfell fór frá Valencia 4. þ.
m. áleiðis til Reykjavíkur. Hvassa
fell fró frá Reykjavík 2. þ.m. á-
leiðis til Xtaliu með saltfisk.
Eimskip
Brúarfoss er i Færeyjum. Detti
foss fór frá Reykjavík 3.10. til
Hull, Hamborgar og Rotterdam.
Fjallfoss fór frá Reykjavík 30.9.
til Sviþjóðar. Goðafoss er í Vest-
mannaeyjum. Gullfoss kom til R-
víkur í gærmorgun 5.10. Fer frá
Reykjavik 7.10. til Leith og Kaup
mannahafnar. Lagarfoss fór frá
Norðfirði 4.10. til Bremerhaven og
Antverpen. Selfoss fór væntanlega
frá Keflavík i gærkvöld 5.10. til R-
víkur. Tröllafoss fór frá Halifax
3.10. til Reykjavíkur.
> 20.30 Útvarpssag
an: Ketillinn. 21.00
Tónleikar: Sónata
fyrir flautu og
píanó eftir Bach.
21.15 Frá útlönd
um: (Jón Magnússon frétta-
stjóri). 21.30 Tónleikar: Kvartett í
A-dúr op. 18 nr. 5 eftir Beethoven.
22.10 Vinsæl lög. 22.30 Dagskrár-
lok.
1 dag verða
gefin saman í
hjónaband í
Kaupmanna-
höfn Kristjana
Sigurz og Stef-
án Islandi kam-
mersöngvari. Heimilisfang þeirra
er Solvænget 1, Köbenhavn K. —
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Gerda Doretz frá
Lubeck-Kucknitz og Blómkvist
Helgason, Miðfelli í Hreppum.
Hamingjuleitin. Nokkur rugling-
ur varð á sögunni í blaðinu í gær.
Hann er leiðréttur í dag. Lesend-
ur munu átta sig á samhenginu.
Nú lízt mér á
það. Það stend-
ur í Tímanum
í gær, að tó-
baksreykur só
„bannvænn fyr-
ir bílveikt fólk.“ Eg verð sem sé
að hætta við að skreppa norður
með rútunni, einsog ég hafði þó
hugsað mér; það er vonlaust að
ég komist þangað lifandi. Að
mlnnsta kosti virðist lítillar Iífs-
vonar að vænta af hálfu bílstjór-
anna, því að sama greln í Tíman
um seglr til dæmis um einn
þeirra: „Hann fyrirskipaði að loka
öllum gluggum eftir belðnl reyk
háfanna, svo að nóg yrði svælan.“
Með öðrum orðum: sem flesta
dauða farþega, það er prinsípið.
Lár. 1 ekki gagn
7 áflog — 8 fifl —
róna — 14 sérhl. -
17 spyrna.
Lóðr. 2 róleg —
gagg — 5 æða — 7
— 9 vantar enga -
13 Xrlendinga — 16
Lausn á nr. 48
Lár. 1 óskar —
— 8 krakkar — 10
— 14 tá — 15 áar -
Lóðr. 2 sár — 3
— 5 skraf — 7 óar
kátan — 12 kát —
Ra.
- 6 heiður —•
10 rann -— 11
- 15 barst —
3 æpir — 4
dýr — 8 sleif
- 12 hrúga —
skammst.
6 áls — 7 ók
ára — 11 skipt
- 17 tærhar.
klafi — 4 ask
- 8 kæst — 9
- 13 pár — 16
Næturlæknir
er í Austurbæjarskólanum. —
Sími 5030.
Næturvörður
er í Laugavegsapóteki. — Sími
1616. —
I
Það er atvinnukúgunin sem er bezta vopn atvinnu-
rekenda eins og nú er komiö, sama atvinnukúgunin sem
Alþýðuflokkurinn baröist af öllu haröfylgi gegn á fyrstu
árum sínum. Nú er hann oröinn tæki a^tvinnukúgaranna.
Landsþlng Náttúrulækningafé-
lags Xslands verður sett í Félags-
heimili verzlunarmanna kl. 2 e.h,
á laugardaginn.
Hjúskaparafmæli. I dag eiga
merkishjónin Þorgerður Árnadótt-
ir og Stefán Árnason, Njálsgötu
7, 40 ára hjúskaparafmæli.
Ðýraverndarinn, 5.
tbl. þessa árs er
komið út. Efni:
Sigurðnr J. Ár-
ness: Skyggnir
hundar. Sigríður
Hannesdóttir Hólum: Skilja dýrin
mannamál? Breytingar á fuglalífi
hér á landi. Húndar. Strúturinn
— stærsti fugl jarðarinnar.
!
Leiðrétting.
X blaðinu í gær var frá þvi skýrt
að ungfrú Erla Ólafsson og Har-
aldur Sigurðsson hefðu opinberaS
trúlofun sína. Komið hefur í
ljós að fregn þessi er uppspuni og
eru hlutaðeigendur hér með beðn-
ir afsökunar á birtingu hennar,
Heimildarmaður blaðsins að fregn
þessari nafngreindi sig, en uppiýst
er, að sökin er ekki hans, en fé-
lagar hans misnotuðu nafn hans.
Slík óþokkabrögð eru að vísu
fátið, en þó munu flest eða öll
blöð hafa orðið fyrir því að flytja
falsaðar trúlofunarfregnir, sem
augljóslega eru settar fram í þeim
tilgangi að særa tilfinningar við-
komandi fólks og valda því óþæg-
indum. Þyrftu blöðin að gera
sérstakar ráðstafanir til að hafa
hendur í hári slíkra náunga og
láta þá sæta ábyrgð fyrir gerðir
sinar.
Kólumbus sakaðuz
um faisauiz
1 sambandi við kvikmynd þá
sem Tjarnarbíó sýnir þessa
dagana mætti benda á það,
fólki til fróðleiks og skemmt-
unar, að Kólumbus karlinn hef-
ur nýlega orð-
ið fyrir hörð-
um ásökunum.
Bandarískur
prófessor, Da-
vies að nafni,
þykist sem sé
hafa sannað
að Kólumbus
hafi raunveru-
lega falsað
loggmælingar
sínar og gef-
ið rangar landfræðilegar upp-
lýsingar. Með þessum fölsunum
segir Davies að Kólumbus hafi
viljað leyna því að portúgalski
sægarpurinn Dualmo fann Am-
eriku fimm árum á undan hon-
um. ■