Þjóðviljinn - 06.10.1950, Page 5
Föstudagnr 6. október 1950.
ÞJÖÐVILJINN
B
LDUft FLOKKURI
EMr árangurslansa tllraim tll fjárkiigun-
ar seldu Alþýduflokkskruddarnir sig
Ihaldinu fyrir peniuga til að geta
haldid flokksstarfinu gangandf
Alþýðuflokkurinn er seldur flokkur. Forsprakkar hans hafa lengi undanfarið
selt sig hæstbjóðanda á uppboði. Þessi kaup hafa mörg undanfarin ár verið næsta
frjáls, forsprakkarnir hafa getað valið og hafnað í samræmi við geöþótta sinn og
persónulega hagsmuni. En á þessu varð afdrifarík breyting í sumar. Þá neyddust
forsprakkar Alþýöuflokksins loks til aö selja sig endanlega og tryggilega íhaldinu
í Reykjavík og frá þeim viðskiptum var þannig gengiö að forsprakkarnir eru eng-
um öðrum falir hvorki í bráð né lengd. Þeir eru í rauninni ánauðugir, eins og
dæmin af kosningunum í verklýðsfélögu num undanfarið sanna bezt.
tAt Þegar Alþýðuílokk-
urinn dró sig út
úr pólitík
Gengi Alþýðuflokksins á
hinum frjálsa markaði hefur
sem kunnugt er fallið jafnt og
þétt á undanförnum árum, og
það enn hraðar en gengi is-
lenzkrar krónu. Mesta gengis-
hrunið varð þó í kosningunum
8.1. haust, eftir tæplega þriggja
ára stjórnarforustu Stefáns
Jóhanns Stefánssonar. Afleið-
ing hennar varð sú að tilboðin
gerðust næsta lág á hinum
frjálsa markaði, það þótti lítill
slægur í hinum fylgisr'únu
mönnum. Forsprakkarnir sáu
því að eitthvað þyrfti að gera
til að hækka verðgildi sitt og
komust að þeirri niðurstöðu að
bezt myndi að vera í stjórnar-
andstöðu um tíma. Því næst gaf
Stefán Jóhann út yfirlýsingu í
Alþýðublaðinu þess efnis að
Alþýðuflokkurinn yrði í stjórn-
arandstöðu um tíma, ekki af
neinum málefnaástæðum, held-
ur aðeins til þess að vera í
stjórnarandstöðu! Vakti þessi
yfirlýsing talsverða furðu, því
flokkar þykjast yfirleitt byggja
starfshætti sína á málefnum,
en gárungarnir sögðu að Al-
þýðuflokkurinn hefði dregið sig
út úr pólitík.
Jc Bitlingakeríió
raskaðist
Vonir AlþýðufMíksin ).
gengishækkun í stjórn .
stöðu reyndust þó ‘li
falsvonir, enda v»'.
vænta. Flokksfyh- if . aí ;> :«•
mitt verið bvg
ran þá aðstö: .< so ,,.v 'j
í rikisstjórn
kjarna Al 1 i
þaldið samr . n
sem alkur , jj ;>g s r.
ráðum bc> gvr !a; flo! %
út í frá. '• , petds kerfi r, ,v
aðist j>' * Iþýðtiflokkuj ir
fór í ' r j.-,r-.ndstöðu; þe^r-
völdii aðjjtsðáíi rénuðu tc
fyle t-áR u dofna ískygtp
leg' - ‘ó.! Og almennini'n
áti; ''Te-ara en fyrr ir.e.
að tengju • 'býðuflokksbrode
ana við „hugsjouir". Þó pauf
uðust flokksforsprakkarnir við
eftir beztu getu, Alþýðublaðið
birti „róttækár“ greinar og
ráðamenn Alþýðusambandsins
voru alveg sérstaklega vígreifir
og skeleggir í baráttu sinni
gegn auðvaldi og afturhaldi!
Alþýðublaðið
hættir að koma út
Svo alvarlegt sem það var
að bitlingahjörðin linaðist i
trúnni og „hugsjónir" Stefáns
Jóhanns Stefánssonar þættu
illa gjaldgeng vara, kom þó
fram enn eitt vandamál sem
var öllum öðrum alvarlegra:
fjármál flokksins og Alþýðu-
blaðsins. Stjórnarforusta Al-
þýðuflokksins hafði verið með
þeim hætti undanfarin ár að
sum fyrirtæki broddanna sem
lagt höfðu drjúgan skilding af
mörkum, eins og t.d. útgerðin
í Hafnarfirði, gerðu nú varla
meira en að standa undir eyðslu
eigendanna. Önnur voru blóð-
mjólkuð, eins og Alþýðubrauð-
gerðin í Reykjavík, sem skil-
aði rúmlega 100 kr. arði i
fyrra! Og önnur höfðu verið
vanrækt svo á valdatímum
flokksins, þegar allt lék í lyndi,
að þau gáfu engan arð, eins og
Ingólfscafé. Fjárþörf flokksins
var hins vegar geysileg. Hall-
inn af Alþýðublaðinu varð þrír
milljónarfjórðungar á síðasta
ári og sá baggi hefur stöðugt
farið vaxandi, þar sem áskrif-
endum fækkar jafnt og þétt og
upplagið minnkar. í vor var
ástandið orðið svo alvarlegt að
blaðið gat ekki staðið í skilum
við neina viðskiptavini sína,
lögtök voru tekin í prentsmiðj-
unni, meira að segja sendi-
fcrðabíllinn var tvívegis aug-
lýstur til uppboðs, og að lok-
um hætti Alþýðublaðið alger-
lega að koma út, og stóð sú
stöðvun í tíu daga.
•fe Fjárkúgun sam-
kvæmí amerískri
fyrirmynd
Þegar svo var komið þótti
að vonum óvænlega horfa, og
forsprakkarnir vissu í rauninni
ekki sitt rjúkandi ráð. Þeir sáu
að tilgangslaust myndi að leita
til alþýðunnar, þess fólks sem
fyrrum sparaði við sig lífs-
• nauðsynjar til að halda Al-
þýðublaðinu gangandi. Og að
lokum gripu þeir til örþrifa-
ráðs: fjárkúgunar samkvæmt
amerískri fyrirmynd! Þeir
sendu öllum bitlingamönnum
sínum og mönnum sem þeir
töldu sig hafa aðstöðu til að
hafa í hótunum við eftirfarandi
bréf, imdirritað af Stefáni Jó-
hanni Stefánssyni, Haraldi Guð-
mundssyni, Gylfa Þ. Gíslasyni,
Emil Jónssyni og Guðmundi I.
Guðmundssyni:
Reykjavík, júlí 1950.
Kæri félagi!
Um langt skeið hefur Aþýðu-
blaðið átt við nokkra fjárhags-
örðugleika að stríða. Tekjur
blaðsins hafa ekki hrokkið fyr-
ir útgjöldum og gripa hefir
þurft til þess ráðs hvað eftir
annað að leita til einstakra
flokksmanna, samtaka og vel-
unnara blaðsins um fjárhags-
lega fyrirgreiðslu. Til skamms
tíma hefir þetta reynst fær
leið. Nú hefir hinsvegar orðið
nokkur breyting á. Allur til-
kostnaður við blaðið hefir auk-
ist verulega á síðari tímum.
Pappír hefir hækkað mjög í
verði, vegna gengisbreytingar-
innar, hækkunar flutnings-
gjalda og hækkunar á erlend-
um markaði. Prentkostnaður
hefir hækkað og launagreiðslur
við blaðið aukist, vegna nýrra,
almennra kjarasamninga. Tekj-
ur blaðsins hafa hinsvegar ekki
aukist að sama skapi sem til-
kostnaðurinn. Að vísu hefir á-
skriftagjöld blaðsins verið
hækkuð nokkuð eins og hjá
öðrum blöðum og kaupendum
þess frekar fjölgað en fækk-
að,(!) auk þess sem auglýs-
ingatekjur blaðsins hafa haldist
með eðlilegum hætti. Hækkun
áskriftargjaldsins hefir þó ver-
ið stillt svo í hóf, að hækkun-
in hefir fram til þessa að mestu
farið í kostnað vegna Alþýðu-
helgarihnar, sem liafin var út-
gáfa á fyrir nokkru. Sjálf verð-
lagshækkunin hefir því óskert
bæst við þann reksturshalla á
blaðinu, sem fyrir var, án þess
að tekjur kæmu á móti. Afleið-
ingin af þessu er sú, að þær
fjáröflunarleiðir, sem farið hef-
ir verið til þessa og enn verða
farnar, eru nú ekki lengur full-
nægjandi og stöðvaðist útkoma
blaðsins fyrir nokkru í viku
tíma vegna fjárskorts. Augna-
blikserfiðleikarnir hafa verið
leystir í bili, en fullvíst má
telja, að aftur fari í sama farið,
ef ekki verður nú þegar grip-
ið til alvarlegra ráðstafana.
Varð þess og vart, er blaðið
stöðvaðist um skeið, hversu
sárt áhyggjuefni það var góð-
um f lokksmönnum, og hvað
þeim þótti mikið við liggja að
úr þessu yrði bætt. Það þarf
og ekki heldur að lýsa því,
Jhversu rík nauðsyn það er,
ekki sizt nú, að hugsjónir Al-
þýðuflokksins séu öfluglega
túlkaðar, og því lífsnauðsyn að
slá skjaldborg(!) um Alþýðu-
blaðið.
Undanfarið hefir verið unnið
að því að draga úr reksturs-
kostnaði blaðsins og auka tekj-
urnar. Eru ^cgar á ferðinni
aðgerðir, sem leiða munu til
verulegs sparnaðar í rekstri
blaðsins og aðrar sem auka
tekjur þess. Þessar ráðstafanir
éru þó hvergi nærri fullnægj-
andi. Blaðið þarf á frekari
stuðningi að halda ef ekki á
að verða stöðvun á útkomu
þess. Það hefir því verið ákveð-
ið að leita eftir því við áhuga-
sama flokksmenn í Reykjavík,
Hafnarfirði og nágrenni og
aðra velunnara blaðsins, að
þeir hver um sig keyptu frá 1
til 6 eintökum af blaðinu og
greiddu. Geti þessir menn út-
vegað sjálfir skilvísa kaupend-
ur að cinhverjum þessara ein-
taka, er þeir þannig taka að
sér að greiða, losna þeir að
sjáifsögðu undan greiðslunni
sjálfir. Vinnst með þessu
tvennt, tekjur blaðsins aukast
og von er til að lesendum þess
fjölgi. Ætti því hér að fara
saman bættur fjárhagur og
aukin áhrif blaðsins.
Við væntum þess, að þú hafir
fullan skilning á þeim erfið-
leikum, sem hér eru á ferð-
inni, og viljir leggja þitt fram
til hjálpar blaðinu og flokkn-
um. Við höfum leyft oltkur að
áætla ibér .... eintök af blað-
inu umfram þitt fasta eintak,(!)
sem við vonum að þú veitir
móttöku og greiðir frá næstu
mánaðarmótum er áskriftar-
gjaldið verður innheimt. Getir
þú útvegað kaupendur að um-
fram eintökunum er þess vænst,
að þú gerir afgreiðslu blaðsins
aðvart og fellur þá niður gjald
þitt fyrir það eða þau blöð,
sem þú útvegar skilvísa kaup-
endur að.
Ef svo kynni að fara, gegn
von okkar, að þú treystir þér
ekki til að taka að þér þessi
umfram eiiitök er þess vænst,
að þú skýrir einhverjum okkar
undirritaðra frá því þegar í
stað, annaðhvort með bréfi eða
með viðtali. Tilkynning til
blaðsins er ekki fullnægj-
andi(!). Berist hinsvegar eng-
in tilkynning frá þér um þetta
munum við lita svo á að þú
hafir á ráðstöfunina fallist.
Treystum á góða flokks-
hyggju þína og fómarlund og
takir því að þér þessa fórn fyr-
ir góðan málstað.
Með flokkskveðju.
F. h. stjómar Alþýðuflokks
og Alþýðublaðs
Stefán Jóh. Stefánsson.
H. Guðmundsson.
Gylfi Þ. Gíslason.
Emil Jónsson.
Guðm. 1. Guðmundsson.“
Siórtæk bófa-'
itarfsemi!
■r-t .ig sjá má er hér um
sébxa, fjárkúgun að ræða.
tleon eru .skikkaðir til að
caupa og bcrga allt að sex
álöð. Vilji menn ekki fallast
I géttn verðK fceir að tilkynna
jað tílnhverjtnn „’ii-immenning-
i-'.a, „tiIkyanLíig til blaðsins
:r ekki fuihrægjdnai'* ’. Fimm-
menningarnir hafa panrJg bein-
Jtnisa Jhótunum ittn rt-,'i&Cgerð-
m ef f járkúgn i. kki
mgnt. i« fv'r*í fcitlíng-
um og aðstöðu eðs eyðileggja
atvinnumöguleika þeirra. Þann-
íg voru forsprakkar Alþýðu-
Sveinspróf í 3
mafreiðsluiðn
Sveinspróf fór fram í mat-
reiðslu í fyrri viku. f tilefni
þess bauð prófnefnd, stjórn.
Sambands matreiðslu- og frani-
reiðslumanna og stjórn Sam-
bands veitinga- og gistihúsaeig
enda nokkrum gestum til hófs,
í Sjálfstæðishúsinu fyrri mið-
vikudag.
Hófið setti Böðvar Steinþórs
son formaður S.M.F. og stjóm
aði því. !-Mi
Þeir Friðsteinn Jónsson, stjóm
armeðlimur Sambands veitinga-
og gistihúsaeigenda og Böðvar
Steinþórsson héldu ræður, þar
sem þeir bentu á nauðsyn þess
að Matsveina- og veitingaþjóna-
skólinn tæki hið fyrsta til
starfa. Einnig bentu ræðumenn
á nauðsyn nýrrar veitingalög-
gjafar, en gildandi lög um það
efni eru til endurskoðunar hjá
nefnd er samgöngumálaráðu-
neytið hefur skipað.
Sveinbjörn Pétursson hélt
ræðu fyrir hönd próftaka. Guð-
mundur Vilhjálmsson fram-
kvæmdastjóri Eimskipafélags
Islands hélt ræðu, og að lokum
Friðrik Gíslason próftaki.
Allir ræðumenn ræddu mn
nauðsyn á fullkominni menntun;
veitingamanna, og bentu á
Matsveina- og veitingaþjóna-
skólann sem myndi. geta full-
komnað hlutverk sitt, og þv£
nauðsynlegt að hann tæki til
starfa.
Prófi luku þessir menn:
Friðrik Gíslason, Hressingar-
skálanum h.f., Sveinbjöm Pét-
urssoh, Tjarnarcafé h.f. og
Tryggvi Jónsson, Hótel Borg.
Prófnefnd var skipuð
Tryggva Þorfinnssyni form.,
Marbimi Björnssyni og Frið-
steini Jónssyni.
Loks mótmæla
sósíaldemókratar
morðuimm í
Grikklandi
Kómiskó, alþjóðasamtök.
sósíaldemokrata, hafa nú loks
dregist til að mótmæla morð-
öldinni sem ríkir í Grikklandi
undir vernd Bevins flokksbróð
ur þeirra. Þúsundir manna úr
vinstri flokkunum hafa þegar
■’crio teknir af lífi en Kómiskó
-■á ckki ástæðu til að mótmæla.
'yr ' i daucadómur var kveðinn
cyp’ af herrétti yfir gríska
st >k!o7.ió'-ratcnuin Psaromit-
as. Kc mickó bendir á, að meira.
að cegjn opinberi ákærandinn
lagði t:! viC réttarhöldin, að
Psr.rcmitr i yrði sýknaður.
Harr, vnr ákæ- "ur fyr'r komm-
únistíska star. emi, r;-n var
fólgin í gagnrýní á meðferð á
fólki í fangabúðum grisku fas-
istanna.
flokksins komnir út í hreina.
bófastarfsemi, líkt og gerist i
vestrænum kvikmyndum! Send
Frambald á 6. siða.