Þjóðviljinn - 22.03.1951, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 22.03.1951, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 22. marz 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (3 (Ritsljári: ÞORA VIGFOSDOTTIR ) Konurnar og alheims f riðurinn Það var minnst á það hér í kvennasíðunni fyrir nokkru að útvarpsráð hafði neitað konum um stuttan útvarpsskrárlið á Alþjóðabaráttudegi lýðræðis- sinnaðra kvenna, 8. marz. For- sendur voru þá ókunnar. En í Tímanum 16. marz síðastliðinn birtist útvarpserindi þetta með nokkrum formálsorðum eftir greinarhöfund, frú Sigríði Eiríksdóttur. Hún segir: „Eftirfarandi erindi sendi ég t'yrir nokkru til Útvarpsins og hað um leyfi til þess að flytja það 8. marz s.l., en Alþjóða- bandalag lýðræðissinnaðra kvenna hafði ákveðið að helga þeim degi friðarstarfsemi um heim allan. Útvarpsráð neitaði mér að flytja erindið! Ég sótti þá um að að fá að flytja Jrað síð'ar, í almennri dagskrá út- varpsins. Útvarpsráð neitaði mér aftur. Mér þykir rétt að erindið komi fyrir sjónir almenn ings í landiúu, og vil leggja nndir hans dóm, hvort það er svo hættulegt islenzku þjóðinni, að banna þurfi flutning þess í útvarp. Einkum \i{ ég bera það nmlir dóm uppeldisfræðinga og þjóna kirkjunnar.“ Á þessari greinargerð frú Sigríðar sést að fyrst hefur Útvarpsráð neitað að erindið væri flutt 8. marz. En þann dag báru 91 milljón kvenna frá 59 löndum fram kröfuna rrm að þjóðirnar gerðu út um deilu- mál á alþjóðaþingrun, en ekki með styrjöldum, kröfu um ör- yggi fyrir börn sín og heimili og jafnrétti kvenna í atvinnu- og launamálum. Allar þessar Þröng köflótt pils viráast vera hæsta tízka í dag. Stutíir dökk- ir jakkar fara vel við og eru notaðir bæði stuttir og síðir eftir því sem hvern klæðir. konur eru af ólíkustu trúar- og stjórnmálaskoðunum, en hafa sameinazt til baráttu fyrir var- anlegum friði í heiminum undir forustu Alþjóðabandalags lýð- ræðissinnaðra kvenna. En Út- varpsráðið íslenzka telur það brot á hlutleysi þess að flutt sé 15 mínútna erindi í tilefni dagsins. Þá býðst höfundur til að flytja erindið í almennri dagskx-á útvarpsins, en hið háa ráð neitar aftur og nú á þeim forsendum, eftir því sem Tím- inn upplýsir, að það samrýmist ekki hlutleysi útvarpsins að Alþjóðabandalag lýðræðissinn- aðra. kvenna sé nefpt þar á nafn. Þessi skrípaleikur er enn furðulegri af því að hér á í hlut þjóðkunn kona, sem hlust- að. er á af athygli af konum í landinu, og hefur árum saman unnið að heilbrigðis- og menn- ingarmálum, en er nú neitað „í landi hins frjálsa orðs“ að tala um stærstu og merkustu al- þjóðamál kvenna, sem nú eru uppi í heiminum, sem taka hönd um saman úr öllum áttum heims. austri og vestri, til að sporna við því að heiminum verði hrundið út i þriðju beims- styrjöldina. Félagssamtök kvenna og þó einkmn Kvenréttindafélag ís- lands hljóta að mótmæla fram- komu islenzka ríkisútvarps.íi’.s í þessu máli. Ef útvarpið telur það hlutleysisbrot að flytja grein frú Sigríðar mun dómur aimennings verða sá að með slíkri yfirlýsingu sé höggvið all nærri sjálfu lýðræðinu í land- inu. Og það eru aðeins rúm 6 ár síðan að íslenzkar konur lýstu því yfir í ræðum og riii að þær myndu fyrst og frem&t standa vörð um lýðræðishug- sjóu hins unga lýðveldís. Er ekki þörf að vera vei á verði? Að endingu skulu hér birt niðurlagsorð úr grei.i frú Sigríð ar, og ætti hver kona að kvnna sér greinina í neild: „Frá alda öðli hefur því verið haldið að konunni — og það ekki sizt af karimönnum —, að hennar staðnr sc arinn heim- ilisins og að hennar starf sé fyrst og fremst að sá fræjum siðgæðis bg guðstrúar i sálu barnanjia. Þetta er satt og rétt. Ekkert hlutskipti getur verið fegurra en það, að móta barns- sálina til góðra dyggða, og veita barrii og ungmenni óttalausa, heilbrigða og glaða æsku. Þetta er einmitt það, sem konur um allan heim, af hinum ólíkustu Iífsskoðunum, vilja vinna að því að gera. En þær eru ekki fúsar til þess að afhenda ung- menni sín í greipar vopnavalds- ins, heldur viija þær freista þess, að skapa heilbrigðari og réttlátari heim en nú er, heim, ,sem notar Ijármagn sitt til þess Vaxandi sektartilfinning Sovétlistakonan Nadezdu Kazant- zeva, sem hefur vakið hrifningu og aðdáun Reykvíkinga með söng sinum undanfarin 3 kvöld. að vinna bug á skorti, þar sem öllum mannanna börnum getur liðið vel í samlyndi. Þær vilja ekki lengur horfa á eftir feðr- um, bræðrum, sonum, unnust- um og eiginmönnum hverfa til vígvallanna, þar sem bíður þeirra annað tveggja, að tor- tímast eða tortíma öðrum. Þrátt fyrir dimmar blikur á lofti, hafa kvennasamtök heims ins þó ekki misst alla von. Undanfama mánuði hafa þeim bætzt sterkir liðsmenn hvaðan- æva að. Öflugar friðarlireyfing ar eru stofnaðar um öll lönd, af mönnum og konum af öllum stjórnmálaskoðunum, sem liafa hug á að vinna saman, eins og vera ber, og á að virða viðleitni hverrar manneskju, sem beitir áhrifum sínum til sátta og sam- lyndis, hvort heldur er á milli manna eða þjóða.------- Framhald á 7. síðu. Þeir ólánsmenn, sem liafa flækt land okkar inní hernaðai'- kerfi stórþjóðanna, eiga nú í vök að verjast. Þeir finna vax- andi beiskju og andúð íslenzku þjóðarinnar á því gerræði, sem þeir frömdu með innlimun ís- lands í hemaðarbandalag. Þessir menn, sem sviftu liið unga íslenzka lýðveldi dýr- keyptu frelsi sínu — eru að komast að raun um það, að hið svokallaða Atlantshafs- bandalag er stórkostlegasta stríðsfyrirtæki veraldarinnar. Vitfirrt vígbúnaðarkapphlaup, stjórnað af kaldrif juðum heims- valdasinnum. En um leið, er þeim að verða það fullljóst, að mannkynið er að rísa upp gegn þessu stríðsfyrirtæki, sem þeir erú aðilar að. Þeir heyra sívaxandi mótmæli alls almennings í liinum svoköll uðu Atlantshafslöndum — mót- mæli gegn vígbúnaðarbrjálæð- inu. Þeir heyra þimgan nið þús- unda milljóna manna um heim allan, sem heimta friS — at- vinnu og brauð. Og þeir lilusta skelfdir á raddir þeirra stjórn- málamanna stórþjóðanna, sem í fávísi sinni og valdafíkn áttu sinn þátt í að stofna þetta vold- uga stríðsfyrirtæki — en sem nú stynja undir ábyrgðinni, sem þeir hafa með þessu lagt þjóð sinni á herðar. Sektartilfinning þeirra manna, sem stóðu að innlimun okkar litla og friðsama lands i stríðs- fyrirtækið lejmir sér ekki í skrifum þeirra og öllu tali um Hekla, Akureyri vefur prjónasilki Yfir 50 manns starfa nú við fataverksmiðjuna Heklu á Akureyri, sem er eign Sambands ísl. samvinnufélaga. Hefur verksmiðjan. nýlega bætt .við nýrri tleild, sem framleiðir vinnu- föt, og ennfremur var síðastliðið sumar tekin upp sú nýbreytni að lefa prjónasilki hér á laiidi og liefur þegar sparazt töfuverð- ur gjaldeyrir við það, að flutt er inn garn í staðinn fyrir full- ofinn dúk. Framleiðsla Heklu var á síð- astliðnu ári sem hér segir: 19.775 - stk. prjónafatnaður á börn og fullorðna (peysur, jákk ar og vesti). 33.719 pör sokk- ar og leisar. 6.000 sett kven- undirföt og náttkjólar. 4.386 stk. vinnuföt. Vinnufataverksmiðjan tók þó ekki til starfa fyrr en í októ- bermánuði, svo að afkasta- geta liennar er miklu meiri en frairileiðslan 1950 gefur til kynna. Standa vonir til þess, að þessi verksmiðja geti bætt úr hinum mikla skorti, sem verið hefur á viunufötum úti um land undanfarin ár. Fi’amleið- ir verksmiðjan flestar tegund- ir vinnufatnaðar, svo sem sam- festinga, jakka, strengbuxur og smekkbuxur. Prjónadeild Heklu mun vera fullkomnasta og stærsta prjóna verksmiðja landsins. Vinnur verksmiðjan aðallega úr íst lenzku ullargarni, en einnig úr erlendu garni, þegar þaó hef- Bandið undið á spólur í Heklu áður en prjónað er þá göfugu og fómfúsu baráttu, sem hálft mannkyn heyr nú tii varðveizlu friðarins í heiminum. Eitt siðasta dæmið, er grein í „Tímanum" 16. þ. m., sem er nokkurskonar fylgirit með á- gætri grein frú Sigríðar Eiríks- dótur um friðarstarf kvenna í lieiminum. I skjóli þess, að við sem byggj um þessa nú svo mjög þýðing- armiklu eyju, fáum svo ein- hliða og ófullkomnar fréttir af því sem gerist á vettvangi stór- þjóðanna, er þeirri „speki“ við- stöðulaust haldið að okkur, að það, sem réttlæti „nauðsynina“ á því að gera ísland að herstöð mesta herveldis heimsins í næstu styrjöld sé „baráttan gegn kommúnismanum“. í þeim vestrænu „lýðræðis- löndum“J þar sem alþýðan er illa upplýst og fáfróð um flesta hluti, er liægt um vik að rugla svo dómgreind liennar, að hún jafnvel gangi til fylgis við erki óvin sinn. En ótrúlegt er, að gömul og útslitin áróðursað- ferð Hitlers og hans sálufélaga. sem enn einu sinni er reynt að beita gegn heilbrigðri skynsemi íslenzkrar alþýðu til sjávar og sveita, komi að tilætluðum nöt- um að þessu sinni. Það er mikil og aðkallandi þörf, að íslenzkur almenning- ur rísi upp gegn vaxandi at- vinnuleysi, vaxandi dýrtíð, vax- andi húsnæðisleysi, í einu orði sagt, vaxandi óstjórn þessa lands. En eitt er þó nauðsjTi- legra og þýðingarmeira öllu öðru. Og það er, að íslenzka þjóðin taki höndum saman, kon. ur og karlar, til þess að forða ættjörð okkar frá þeirri ógn, sem biður hemiar, ef til heims- styrjaldar kæmi. Og það gerum við ekki með því, að taka undir trylltan áróður stríðsæsinga- manna, heldur með því — að ganga einarðlega með í þeirri voldugu og einhuga sveit manna, sem berst gegn stiíðs- bölinu -— gegn því, að laudið okkar verði skotspónn ægileg- ustu morðtækja í yfirvofandi heimsstyrjöld. Ah. ur fengizt, en innflutningur á því hefur verið mjög takinark- aður undanfarin ár. Kvenundirfatadeildin var að- eins starfrækt lítinn hluta síð- astliðins árs vegna skorts á K O N U K ! sendið Kvennasíðunni greinar i um áhugamál ykkar. efrii, svo að afkastageta henn- ar er einnig meiri en töhirnar gefa í skvn. 1 sambandi við þessa deild tók til starfa í júlí- mánuði í fyrra silkiiðnaður S.í. S., sem er nýjung liér á landi. Rayongarnið ér flutt inn á spól um, ofið í silkideildinni, en dú’.c urinn síðan þveginn, litaður og pressaður í Gefjun. Með því að kaupa aðeins rayongarnið er- lendis, liefur sparazt töluverður gjaldeyris. Starfsfólk Heklu er samtals 54 og greidd vinnulaun á síð- astliðnu ári námu yfir 700.000 krónum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.