Þjóðviljinn - 22.11.1951, Síða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagu r22. nóvember 1951
|I1ÓÐ¥IU1NN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjorar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri. Jón Bjarnason.
B'.aðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Simi 7500 (3 línur).
Áskriítarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Atvinnuofsóknir Alþýðuflokksins
Það hsfur vakið sérstaka athygli að Alþýðuflokkur-
inn hefur með þögninni lagt algera blessun yfir ofsóknir
Reykjavíkuríhaldsins gegn strætisvagnabílstjórunum sjö,
sem látnir voru gjalda stéttvísi sinnar. En þögn Alþýðu-
flokksins er skiljanleg; einmitt slikar atvinnuofsóknir
eru eitt vinsælasta vopn Alþýöublaðsklíkunnar hvar sem
hún hefur aðstöðu til að beita sér. Það er t. d. alkunna
að í Hafnarfirði beita forsprakkar Alþýðuflokksins yfir-
ráð'um sínum yfir bæjarfélaginu og flestum atvinnutækj-
um bæjarins á blygðunarlausasta hátt til að hræða menn
og kúga til fylgispeki, — og bitnar þaö ekki sízt á Alþýöu-
flokksmönnum sem óánægðir eru með afturhaldsstefnu
flokksins og íhaldsþjónustu Emils Jónssonar og Co.
Nýtt athyglisvert dæmi um þetta hefur nú gerzt
í Hafnarfirði. Eins og skýrt var frá hér í blaðinu í gær
hefur Alþýðuflokksmeirihlutinn í Hafnarfirði nú ákveðið
að reka Harald Kristjánsson slökkviliðsstjóra úr starfi
1 ofsóknarskyni. Haraldur hefur um langt skeið verið
virkur Alþýðuflokksmaður, hefur verið formaður Alþýðu-
flokksfélagsins í Hafnarfirði og frambjóðandi við bæjar-
stjómarkosningar, en hins vegar hefur hann ekki far-
ið dult með það að hann hefur verið andvígur stefnu
Emils Jónssonar og Co. síðustu árin. Slíkt sjálfstæði í
skoðunum hleypir meiri ólgu í Emil Jónsson en nokkuö
annað. Hann hefur því undanfarið skipulagt árekstra
við Harald með frekjulegustu afskiptum af málefnum
slökkviliðsins, og þegar Haraldur krafðist þess að fá að
rækja starf sitt sjálfur í samræmi við lög og reglugerðir,
lét Emil reka hann, og þóttist þá hafa náð marki sínu.
Þessi ósvífna atvinnuofsókn hefur veriö mikið rædd
í Hafnarfirði og þsir eru fáir sem mæla henni bót. Og
þótt Emil Jónsson telji nú að sinn sé mátturinn og dýrð-
in má hann minnast eins: Meðan Alþýðuflokkurinn var
róttækur baráttuflokkur kom það oft fyrir að forsvars-
menn hans voru reknir úr vinnu í Hafnarfirði af atvinnu-
rekendum íhaldsins. Alþýðuflokkurinn bar þó sigur af
hólmi að lokum. Það eru ömurieg örlög að Alþýðuflokk-
urinn skuli svo hafa komizt í hendur manna sem tekið
hafa upp hina fornu stefnu íhaldsins og beita enn blygö-
unarlausari atvinnukúgun. En á þeim verkum mun Al-
þýðuflokksklíkan falla á sínum tíma á nákvæmlega sama
hátt og íhaldið forðum.
Réttarrannsókn á Borgarnes-
hneykslinu
Enn á ný hefur hin algera þögn orðið hlutskipti Tím-
ans í umræðunum um Borgarnesmálið, Síðasta orð Tím
ans var það að þrátt fyrir allar fyrri yfirlýsingar yrði nú
framkvæmd rannsókn — aðeins yrði hún falin löggiltum
endurskoðanda í stað dómstólanna!
Eins og Þjóöviljann hefur bent á eru slík undan-
brögð algerlega haldlaus. Löggiltur endurskoðandi hef-
ur ekkert vald til áð framkvæma neina sjálfstæða rann-
sókn. Hlutverk hans er það eitt að fara yfir skjöl sem
honum eru rétt, og í þessu falli yrði það Þóröur Pálma-
son sem rétti endurskoðandanum skjölin! Sem dæmi má
nefna að fyrir nokkru komst upp verulegur fjárdráttur
í einni ríkisstofnun og hafði hann staðið yfir árum sam-
an. Öll þessi ár höfðu reikningar stofnunarinnar verið
endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda, og hann
hafði lagt blessun sína yfir reikningana eins og þeir voru
lagöir upp í hendumar á honum. Samskonar dæmi má
nefna um heildsala þá, sem sakfelldir voru fyrir fjár-
drátt og svik meóan sósíalistar tóku þátt í stjóm lands-
ins.
Rannsókn löggilts endurskoðanda er því yfirklór
sem enginn tekur mark á, og krafan um réttarrannsókn
á Borgarnesmálinu verður ekki þögguð niður. Væri nú
vissulega timi til kominn að stjóm kaupfélagsins í Borg-
amesi féllist á þá kröfu, því ýmsir meölimir hennar skrif-
uðu undir yfirlýsinguna í Tímanum í algem gáleysi, og
vita. nú fullvel að ekki er allt með feldu. Heiður sam-
vinnuhreyfingarinnar er í veði, að snúizt sé af mann-
dómi og heiðarleik við þessu alvarlega máli.
Hollar barna-
kvikmyndir.
Húsmóðir skrifar: „1 tilefni
af grein Halldórs í bæjarpóst-
inum í fyrradag vil ég skýra
frá eftirfarandi: Húsmæðra-
deild MfR, sem er nýstofnuð,
hefur í hyggju að stofna til
sérstakra sýninga á úrvals
barnakvikmyndum frá Sovét-
ríkjunum. Næst komandi sunnu
dag kl. 10.30 f. h. verður fyrsta
sýningin í Stjömubíó. Þar verða
sýnd þrjú skínandi fögur
barnaævintýri í litum. Þetta
eru allt teiknimyndir. Meðal
þessara mynda er hið heims-
fræga ævintýri stórskáldsins A.
Púskins „Isabella og guli-
fiskurinn“. Ævintýrið er til á
íslenzku í ágætri þýðingu Stein-
gríms Thorsteinssonar og heit-
ir „Fiskimaðurinn og kona
hans.“ Ennfremur er til ís-
lenzk þýðing eftir Hallgrim
Jónsson fyrrv. skólastjóra. Þýð
ingar þessara merku manna eru
næg trygging fyrir því að hér
er um holla bamaskemmtun að
ræða. Þess má einnig geta,
að- tónlistin í myndunum er
mjög við barna hæfi. Meðal
annars er tónlist í einni mynd-
inni eftir tónskáldið A. Katsja
túrían. Ég ræð foreldrum til að
leyfa börnum sínum að sjá þess
ar kvikmyndir. En framhald
þessarar starfsemi er að sjálf-
sögðu. mjög komið undir því,
hvernig þessari fyrstu sýningu
hollra barnakvikmynda verður
tekið. — Húsmóðir".
•
Köttur í miðstöð-
inni.
H. J. skrifarj
„Kæri Bæjarpóstur. Nú get
ég ekki lengur setið á mér að
biðja þig fyrir nokkrar línur
til lögreglunnar. — Það er
laugardagsmorgun, við tökum
eftir því að það liggur köttur
niðri í miðstöð og hann virð-
ist veikur, því að hann liggur
hreyfingarlaus, nema hvað hann
hvæsir þegar maður kemur að
honum. Köttur þessi er okkur
algerlega óviðkomandi, en okk-
ur dettur i hug að hann hafi
annaðhvort etið rottuejtur eða
orðið fyrir bíl. — Nú þykir
okkur óhugnanlegt að hafa kött
inn þarna og hringjum á lög-
reglustöðina og sögðum þeim
hvemig á stæði um köttinn og
báðum þá að fjarlægja hann.
Allir bílar í láni.
En nú er okkur sagt frá lög-
reglustöðinni að það sé ekki
hægt að koma og fjarlægja
köttinn þar eð „allir bílarnir
eru í láni“. En eftir nokkrar
umtölur kveðst maðurinn mundi
reyna að senda menn í dag —
þeir eru ekki komnir enn,
klukkan er 10.30 e.h. — Okk-
ur finnst þetta óviðeigandi og
vitum ekkert hvað við eigum
að gera við köttinn. Nú ligg-
ur hann niðri blessað kvikind-
ið og er aðéins kvenfólk heima
í húsinu og það ekki mjög hug-
að, svo að all illt er í efni —
en þetta er „aðeins köttur“.
Hefði öivaður maður
gengið berserksgang.
Nú þætti okkur fróðlegt að
vita hvað Iögreglan hefði gert
ef t. d. hér hefði komið ölóður
maður og gengið berserksgang ?
— En hvernig er það annars,
er hægt að fá lánaða bíla hjá
lögreglunni ? Ekki getur Verið
áð við höfum minni rétt til
]?Ha lögreglunaar .T en aðrir-
þjóðfélagsþegnar? Okkur dett-
ur í hug hvort það geti verið
að lögreglumennirnir, eða ein
einhverjir aðrir, séu máske að
aka konum sínum í búðir nú
á laugardagsmorgni ? Til hvers
eru lögreglubílarnir og lögreglu
þjónarnir? — En hvað á að
gera við blessað dýrið ? Ekki
vitið þið lögregluþjónarnir hvað
dýrið kvelst mikið. H. J.
NB.: Á sunnudagsmorgun
hringdum við aftur, en þá var
kisa dáin, og komu þeir síðan
um kl. 12 á hádegi sama dag.
— H. J.“
Elmsklp
Brúarfoss fór frá Tálknafirði í
gær til Akraness og Rvíkur. Detti-
foss fó rfrá Antwerpen 19. þm. til
Hull og Rvíkur. Goðafoss er i
London; fer þaðan til Rotterdam
og Hamborgar. Gullfoss er í R-
vík. Lagarfoss er í New York;
fer þaðan í dag eða á morgun til
Rvikur. Reykjafoss er í Ham-
borg. Selfoss er í Rvík. Tröllafoss
er í New York.
Skipadeild SIS
Hvassafell fór frá Vestmanna-
eyjum 18. þm. áleiðis til Finn-
lands. Arnarfell er í Bilbao. Jök-
ulfell lestar freðfisk á Vestfjörð-
Ríkisskip
Hekla er í Reykjavík. Esja
verður væntanlega í Gautaborg í
dag. Herðubreið fer frá Reykja-
vík í kvöld austur um land til
Bakkafjárðar. Skjaldbreið var
væntanleg til Reykjavíkur í morg-
un að vestan og norðan. Þyrill
er í Faxaflóa. Ármann var í Vest-
mannaeyjum í gær.
Flugfélag fslands:
1 dag eru ráðgerðar flugferðir
til Akureyrar, Vestmannaeyja,
Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar,
Blönduóss og Sauðárkróks. — Á
morgun er áætlaðar flugferðir til
Akureyrar, Vestm.-eyja, Kirkju-
bæjarklausturs, Fagurhólsmýrar,
Hornafjarðar og Siglufjarðar.
Steðji h. f. kr. 1000,00., Björn
Markússon kr. 100,00, J.J. kr. 100,
00 og Kvenfélag Njarðvíkur kr.
1000,00. — Innilegar þakkir færi
ég öllum gefendunum. f. h.
Krabbameinsfélags Reykjavíkur.
Gísli Sigurbjörnsson.
Nýlega voru
gefin saman í
hjónaband af sr.
Þorst. Björns-
syni ungfr. Auð
ur Waagfjörð
frá Vestmannaeyjum og Jörundur
Kristinsson, sjómaður. Heimili
þeirra verður að Sogamýrarbletti
43. mí
Félag Borgfirðinga eystri held-
ur skemmtifund í Breiðfirðinga-
búð föstudaginn 23. nóv. kl. 8.30.
Hjartásin, nóvem-
berheftið er ný-
komið út. Efni: er
m. a.: Óráð kvæði
eftir Vald. ‘ Hólm
Hallstað, Klums,
smásaga eftir Indriða Þorstéins-
son, þáttur um Ólaf holdsveika
eftir Guðmund Frímann og frá-
sögn um snjóflóð eftir Ólaf Stef-
ánsson. Þá eru þýddar smásögur:
Er það ekki nóg, Starfssystkin,
Hjónaskilnaður, Engin ummerki,
Morðið, mannlýsing og Leynilög-
reglusagan; Maðurinn við ljóskers-
staurinn. Þá er gleðisagan Upp-
skera augnabliksins eftir Þeydal,
framhaldssagan Flóknir forlaga-
þræðir og margar fróðleiksgrein-
ar. — Stjörnur, nóv-heftið er ný-
komið. Sagt er frá hinni nýju
kvikmynd Lofts og myndaopna úr
henni. Kvikmyndagr.: Nefið er
mitt vörumerki, segir Jimmy Dur-
ante, Diana Durbin syngur vel,
þegar hún er hamingjusöm, Holly-
woodbréf og fréttir af leikurum.
Smásögur: Hjúkrunarkonan, Nafn
spjaldið, Þjófur í speglinum, Góð
hugmynd, Gestrisni, Afhjúpuð,
Daður, Góður eiginmaður og fram
haldssagan Heimanmundurinn. —
Smáletursgreinar: Siðir og venjur,
Gamansemi, Alþýðuvinur, Orð af
viti, og Hann hjálpar mér ekki
og svar til Ástrósu eftir Áróru
og Stirni.
Leiðrétting.
í þriðjudagsblaðinu misþrentað-
Ist númer bifreiðar, sem stolið var
frá húsinu nr. 3 við Öldugötu.
Stóð í blaðinu að númer bifreið-
arinnar hefði verið R-556, en átti
að vera R-5556.
Breiðfirðingafélagið hefur félags-
vist og fund í Breiðfirðingabúð í
kvöld kl. 8,30. — Þar verður sýnd
kvikmynd af ferðum félagsins um
Borgarfjörð og Dalasýslu.
Húsmæðrafélag Beykjavíkur
heldur fund með ýmsu skemmti-
efni í kvöld kl. 8,30 í Borgart. 7.
Tii Sólheimadrengsins
Frá N. N. kr. 50.—
fl.
Loftleiðír h. f.
1 dag verður flogið til Akureyr-
ar t>g Vestmannaeyja. — Á morg- . ----------——-------------—
un er áætlað að fljúga til Akur- .
eyrar, Hellissands, Sauðárkróks, Pí^SSÍSIHÍðjfi JIUSÍUllfiH«S
Siglufjarðar og Vestmannaeyja.
Framhald af 8. síðu.
better) eftir Betty Smith. höf-
und bókarinnar Gróður í gjósti.
Bækurnar koma út núna fyrir
jólin, en þær eru: Harðsporar,
innlendur fróðleikur eftir Öi&f
Þorvaldsson, sem kunnur er
fyrir greinar sínar í blöðum og
þætti í útvarpinu. Ljóðúbók
cftir Etrík aiþirgÉmann Einars-
son frá Hæli. Eiríkur var
prýðilega skáldmæltur, svo
sem alkunna er, og kvæði hans
mikils metin af kunningjum
hans. Hins vegar hafa þau ekki
áður komið fyrir almennings
sjónir. Lífsgleði njóttu (Kotv
to stop worrying and.start liv-
ing) Handbók eftir Dale Carn-
egie (höfund bókarinnar Vin-
sældir og áhrif). Þessi bók hef-
ur verið þýdd á fjölda mála,
. kom m.a. 12 sinnum út í Danm-
á tveimur árum. Bók Victors
Kravchenko: Ég kaus frelsið.
Ferðasaga Joshua Stocum:
Einn á báti umhverfis jörðina
í þýðingu Hersteins Pálssonar,
ritstjóra. Son'ur Napoleons, ævi-
saga konungsins af Rómi, eftir
Clara. von Tschudi. Bókin, sem
er prýdd fjölda mynda, er .þýdd
af .prófv GuðbraMdi Jóoseyni., •
15.30—16.30 Miðdeg
arp. — (15:55
Fréttir og veður-
fr.) 18.30 Dönsku-
kennsla; II. fl. —
19.00 Enskuk.; I.
19.25 Þingfréttir. .—- Tónleikar.
19.40 Lesin dagskrá næstu viku.
20.20 íslenzkt mál ■ (Bjarni Vil-
hjálmsson cand. mag.). 20.35 Tón-
leikar (plötur); „Borgari sem að-
alsndaður", hljómsveitarverk eftir
Richard Strauss (Sinfóníuhljómsv.
í París leikur; Walther Straram
stjórnar). 21.05 Skólaþátturinn
(Helgi Þorláksson kennari). 21.30
Einsöngur: John McCormack
syngur (plötur). 21.50 Upplestur:
Sigursteinn Magnússon skólastj. á
Ólafsfirði les frumort kvæði. 22.00
Fréttir og veðurfrégnir. 22.10 Sin-
fónískir tónleilcar (plötur); a)
Fiðlukonsert í d-moll eftir Schu-
mann (Menuhin og Philharmon-
íska hljómsv. í N.Y. leika; Sir
John Barbirolli stjórnar). b)
„Mazeppa" sinfónía eftir Liszt
(Sinfóníuhljómsveitin í Berlin
leikur; Hans ■ ■ Knappertsbúsch
stj.), 22.55 Dagskrárlok.,
Krabbameinsfélag Reykjavíkur
hafa borizt eftirfarandl gjafir tii
kaupa á geislahekningatækjum:
Skipshöfnin b. v. Júní frá Hafns
arfirði,. kr. 2.9)0 00, V.élsmiðjan