Þjóðviljinn - 22.11.1951, Blaðsíða 8
Flugmennirnir frá Akureyri komnir
fram heilir á húfi
Urðu að nauðlenda á öræfum vegna
ísingar og lögðu af stað ti!
: byggða í Eyjafirði
Flugvélin, sem týndist í íyrradag er nú komin
íram og ílugmennirnir báðir, Viktor Aðalsteinsson
og Steían Sigurðsson, komnir til byggða heilir á
húfi. Urðu þeir að nauðlenda vegna ísingar milli
Ausíurdals og Urðarvatna á öræfunum milli Skaga-
fjarðar og Eyjafjarðar. Tókst lendingin svo vel að
mennirnir sluppu nær ómeiddir, og vélin mun vera
lítið skemmd.
Fimmtudagur 22. nóvember 1951 -— 16. árgangur — 262. tölubl.
Hin nýja farþegaafgreiðsla Eimskipafélags íslands.
Farþegaafgreiðsla Eimskip fær ný og
smekkleg húsakynni
Hefur eftirleiðis aðsetur þar sem áður var verzlun
Theodórs Siemsens og Gunnþórunnar Halldórsdóttur
Fróttaritari Þjóðviljans á
Akureyri hefur náð tali af
Stefáni Sigurðssyni og fer frá-
sögn hans hér á eftir:
ÍSING SETTIST Á VÉLINA
Við héldum frá Reykjavík
um kl. 12.40 á þriðjudagsmorg-
uninn og tókum beina stefnu
til Eyjafjarðar. Veður höfðum
við ágætt allt austur fyrir
Austurdal og flugum þá í
Konungsbikarinn
afhentur íslendingum
Á hádegi í fyrradag fór fram
virðuleg athöfn í Osló, er ís-
lendingum var formlega afhent-
ur bikar sá, er Hákon Noregs-
konungur gaf til handa sigur-
vegara samnorrænu sundkeppn-
innar. Viðstaddur athöfnina
var hirðmarskálkur konungs,
Smith Kielland og ýmsir íþrótta
frömuðir þar á meðal formenn
sundsambanda Norðurlanda.
Axel W. Floer, formaður
norska sundsambandsins af-
henti bikarinn með ræðu, en
Bjarni Ásgeirsson, sendiherra,
veitti honum viðtöku fyrir ís-
lands hönd og þakkaði með
ræðu. Afhenti sendiherrann því
næst Erlingi Pálssyni, formanni
sundsambands íslánds, bikar-
inn til varðveizlu. Erlingur á-
varpaði forseta norrænu sund-
sambandanna og færði þeim
þakkir Iþróttasambands Islands
og Sundsambands Islands fyrir
ánægjulegt samstarf, en þeir
fluttu heillaóskir vegna hins
glæsilega sigurs. — (Frétta-
tilkvnning frá utanríkisráðun.)
Hér fer á eftir greinargerð
verkalýðsfélagsins um skrán-
inguna:
,,Dagana 14.—16. nóvember
1951 fór fram atvinnuleysis-
skráning á Bíldudal fyrir októ-
bermánuð. Skráningin var fram
kvæmd á vegum Verkalýðsfé-
lagsins „Vamar".
Alls voru skráðir 12 — tólf
—, allt landverkafólk nema
einn fjölskyldumaður, sem var
sjóma’ður. — Skráðir voru: 6
fjölskyldumenn með alls 21 á
framfæri (þar af 15 böm).
Höfðu þeir haft samtals kr.
5416,53 í atvinnutekjur yfir
október, eða kr. 902,75 að með-
altali, eða kr. 200,61 til fram-
færslu hvers einstaklings.
4 einhleypir karlar. Saman-
5 þús. feta hæð. Þegar við
komum austur fyrir Austurdal
fór að dimma og lækkuðum við
þá flugið niður í 4 þús. fet.
Sást þá vel niður til lands.
Þegar við komum austur á
fjöllin milli Skagafjarðar og
Eyjafjarðar lækkuðum við flug-
ið eftir því sem fjallið lækkaði.
En allt í einu verðum við varir
við að vélin fer að lækka ó-
eðlilega. Var þá sett á fulla
ferð en allt kom fyrir ekki,
vélin hélt stöðugt áfram að
lækka. Okkur varð þá ljóst
hvað var að ske, við höfðum
lent í ísingu, sem setzt hafði á
vængi vélarinnar og blöndung-
inn.
NAUÐLENDING A
SNJÓSKAFLI
Reyndum við nú að snúa við
en árangurslaust. Þar sem við
vorum staddir var stórgrýtis-
urð, en við sáum langan snjó-
skafl, sem við ákváðum að
reyna að nauðlenda á. Tókst
það með ágætum svo að við
sluppum báðir svotil ómeiddir
(Stefán svolítið skrámaður á
höfði, en Viktor slapp með
•blóðnasir), en vélin er einnig
óskemmd að mestu leyti. .
Þarna var 12 stiga frost og
ágætis veður. Hæðarmælirinn
sýndi 3100 fet. Kl. var 5—7
mín. yfir 3 er við höfðum lent.
Við vissum nákvæmlega hvar
við vorum staddir, (Stefán er
vel kunnugur á þessum slóðum)
og ákváðum strax að halda nið-
ur í Eyjafjörð. Við vorum báo-
ir berhöfðaðir en í skinnjökk-
lögð vinnulaun kr. 1680,00, eða
kr. 420,00 að meðaltali.
2 einhleypar konur. Saman-
lögð vinnulaun kr. 500,00, eða
kr. 250,00 að meðaltali.
Þátttaka var lítil, en atvinnu
leýsi ■ hinsvegar almennt, e'ða
vinnutekjur líkar og skráning-
in sýnir. Vinna í hraðfrysti-
húsinu var minni en mánuðinn
áður, en hinsvegar nokkur
vinna í Niðursuðuverksmiðj-
unni. Aflahlutur á dragnótabát-
um misjafn, en yfirleitt léleg-
ur, t. d. kr. 650,00 hjá þeim
sjómanni, er þátt tók í skrán-
ingunni.
F. h. Verkalýðsfélagsins
„Varnar". Ingimar
Júlíusson“.
Húsmæðradeild MÍR
gengst fyrir
kvikmyndasýning-
um fyrir börn
Húsmæðradeild MÍR hefur á-
kveðið að gangast fyrir sýn-
ingum á hollum og þroskandi
kvikmyndum fyrir börn. Verð-
ur fyrsta kvikmyndasýningin á
vegum deildarinnar í Stjörnu-
bíó n. k. sunnudag kl. 10,30
fyrir hádegi.
Myndirnar sem sýndar verða
eru þessar: 1. Jólasveinninn. 2.
Telpan fór í Sirkus. 3. Fiski-
maðurinn og kona hans, (ævin-
týri eftir Púskin).
Ættu sem allra flestir for-
eldrar áð leyfa börnum sínum
að sækja þessar ágætu myndir,
sem skera sig úr flestu því sem
börn og unglingar eiga nú
völ á.
Að sjálfsögðu fer um fram-
hald þessara sýningp eftir því
hve vel þessari fyrstu sýningu
verður tekið.
Forsetinn
VÆNTANLEGUR HEIM
Eins og áður hefur verið til-
kynnt dvelur forseti Islands,
herra Sveinn Björnsson, í Eng-
landi sér til heilsubótar. Að-
gerð sú, sem á honum var gerð
hinn 22. f. m. vegna stækkunar
á blöðruhálskirtli heppnaðist
vel og var forseta leyft að
fara úr sjúkrahúsi 12. þ. m.
Eru góðar vonir um, að hann
sé að fullu laus við kvilla
þenna. Forseti er væntánlegur
heim fyrrihluta desembermán-
aðar. — (Frá forsætisráðun.)
Á þessa leið mælti Jónas
Árnason fyrir þingsályktunar-
tillögu sinni um rá'ðstafanir til
að hjálpa ofdrykkjumönnum, er
hún kom til fyrri umræðu á
fundi sameinaðs þings í gær.
Jónas lýsti kjörum áfengis-
sjúklinganna í Reykjavík og
aðbúnaði þeirra af þeirri lát-
lausu mannúð sem lesendur
Þjóðviljans þekkja svo vel úr
greinum hans. Hann benti á
skyldur þær sem Alþingi hefði
lagt stjórnarvöldum landsins á
herffar með lögunum frá 1948
um meðferð ölvaðra manna og
drykkjusjúkra, og hvernig rík-
isvaldið hefði bókstaflega ekk-
ert gert fram að þessu til að
framkvæma þá hjálp við of-
drykkjumenn sem þar er gerð
að lagaskyldu. Það væri því
sízt vanþörf á að Alþingi ýtti
við stjórnarvöldunum og
7 bækurTr/T
Prentsmiðju Austurlands
Bókaforlag Prentsmiðju
Aústurlands, Hverfisgötu 78,
mun væntanlega gefa út 7
bækur á þessu ári. Ein þeirra
er þegar komin út, en það er
Hamingjudraumar skrifstofu-
stúlkunnar (Tomorrow will be
Framhald á 4. síðu.
Eimskipafélag íslands opnar
í dag nýja farþegaafgreiðslu í
húsi sínu við Pósthússtræti.
Fram að þessu hefur far-
þegaafgreiðslan haft aðsetur
uppi á lofti í Kúsi Eimskipa-
félagsins við mjög óhagstæð
skilyrði. En í vor var hafizt
handa um breytinguna, þegar
leigjendurnir á neðstu hæð,
verzlun Theódórs Siemsen^s og
verzl. Gunnþórunnar Halldórs-
dóttur fluttu í annað húsnæ'öi.
I því húsnæði sem þessar
verzlanir höfðu áður til umráða
hefur Eimskipafélagið nú látið
innrétta óbrotna en smekklega
farþegaafgreiðslu, sem kemur
til með a3 auka mjög þægindi
og aðstöðu þess fólks sem
minnti þau á þessi lög, eins
og gert væri með þingsáiyktun-
artillögunni.
Umræðu og atkvæðagreiðslu
var frestað.
„Almennur fundur sérgreina-
félaga smásöluverzlana, haldinn
20. nóv., vekur athygli á því,
áð ráðstafanir hins opinbera í
sambandi við gengisfellingu og
bátagjaldeyri' ásamt verðhækk-
unum vara á erlendum markaði
hafa gert það að verkum, að
verzlunin þarfnast mun meira
rekstursfjár en áður. Fundur-
inn lýsir þessvegna óánægju
sinni yfir því, hversu mjög
lánveitingar bankanna til verzl-
unarinnar eru takmarkaðar. Af
þessum ástæðum getur verzlun-
arstéttin ekki gegnt hlutverki
sínu sem skyldi, þar sem eðli-
leg birgðasöfnun er m. a. mikl-
um erfiðleikum háð. Fundur-
ferðast með skipum félagsins.
Sigurður Guðmundsson og
Eiríkur Einarsson teiknuðu inn-
réttinguna en Gamla kompaníið
annaðist smíðina, sem er eik-
arspónlögð og hin smekkleg-
asta að útliti og frágangi.
Hefur Eimskipafélagið með
þessari framkvæmd bætt mjög
aðstöðu og afgreiðslu alla að
því er varðar viðskipti farþeg-
anna vi'ð félagið._________
Með örvalausum
boga
Ný lióðabók elfir
lón úr Vöe
Út er komin ný Ijóðabók
eftir Jón skáld úr Vör og er
heiti hennar ,,Með örvalausum
boga,“.
Bókinni er skipt í sex kafla
og nefnast þe'ir Maðurinn,
Myndir, Hafið, Steinar, Nóttin
og Moldin, en alls eru í bók-
inni 46 ljóð. Hún er 80 síður
og prentuð í Ingólfsprenti.
Ljóðabók þessi er fimmta
bók Jóns úr Vör. Kom hin
fyrsta út 1937 í tveimur útgáf-
um, Ég ber að dyrum; þá kom
Stund milli stríða 1942; Þorpið
1946 og Með hlióðstaf fyrr á
þessu ári, en ljóðin í þeirri
bók voru raunar eldri en
Þornið.
inn lítur ennfremur svo á, að
mjög hætt sé við, að óheilbrigð
lánastarfsemi þrifizt í skjóli
þessa ástands“.
„Almennur fundur sérgreina-
félags smásöluverzlana, haldinn
20. nóv., mótmælir harðlega
álagningu og inn'heimtu hins
óvinsæla söluskatts, og því að
skylt skuli vera að greiða sölu-
skatt af söluskatti. Fundurinn
er þeirrar skoðunar að fella
beri hann tafarlaust niður sam-
kvæmt ítrekuðum loforðum og
fyrirheitum ríkisvaldsins, þar
sem hinar upprunalegu forsend-
ur fyrir álagningu þessa skatts
eru ekki lengur fyrir hendi“.
Framhald á 6. síðu.
200 kr. til lífsframfœris
ó mónuSi
HiÖ skráða aivinnuieysi á Ríiðudal
næs ii! 33 einsiaklinga
Atvinnuleysisskráning fór fram á Bíldudal um miðjan
nóvember, og voru skráðir 12 atviniiuleysingjar með 21 á
framfæri, þannig að hið skráða atvinnuleysi náði til 33 ein-
staklinga. Fjölskyldumennirnir höfðu í október haft 200 kr.
til framfæris hverjum einstakling fjölskyldu sinnar að jafnaði.
Jónas Árnason talar máli
Ýmsum mun hafa komið á óvænt sú staðreynd að
í Reykjavík er allstór hópur manna sem hvergi á at-
hvarf eða hæli, heimilislausir útlagar mitt í höfuðborg
menningarríkisins íslands. En sá hópur fer stækkandi
og þjóðfélaginu ber skylda til aö hjálpa honum.
Siiiástlkkæiiftmefiiii mótmæla
láifisfjárbaimi og sölfifiskatti
Samband smásöluverzlana hólt almennan fund í Tjarnar-
café í fyrrakvöld og voru þar rædd verzlunar og viðskiptamál.
Voru allmiklar umræður á fundinum og að lokum samþykktar
nokkrar ályktanir m. a. um afnám söluskattsins og lánsfjár-
bann ríkisstjórnarinnar. Fara þær ályktanir hér á eftir: