Þjóðviljinn - 23.11.1951, Side 5
Föstudagur 23. nóvember 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Fullkomin hagnýtlng aficcns gætl gjör-
bréytt atvinnuásfandinu á Norðurlandi
lirsiéÍFTSáiifif^ togaraaflaias og aukning sOdarsöliunar
iiiu MMi þiís. Éuniiur kefði færÉ linndriiðiini lieiinlla at-
vlnnu og þ|éSiuMÍ 25-00 mllljénir kréna í gjaldeyri
Mikill samdráttur er nú í
atvinnulífinu á Akureyri,
cins og víðast annars stað-
ar á Norðurlandi. Hjá okk-
ur gætir þessa ekki sízt í
verksmiðjuiðnaðinum, en við
hann hefur fjöldi bæjarbúa
liaft atvinnu undanfarin ár.
Önnur skóverksmiðjan hefur
t. d. alveg hætt störfum og
sömuleiðis bómullarverk-
smiðjan. Starfsfólki hefur
einnig verið fækkað í SÍS-
verksmiðjunum. Mun láta
nævri að um 90 manns hafi
misst vinnu sína í iðnaðin-
um á Akureyri í haust, en
í þeirri atvinnugrein hafa
fram að þessu unnið um
400 nmnns.
Þetta sagði Tryggvi Helga-
son, forseti Alþýðusambands
Norðurlands og formaður Sjó-
mannafélags Akureyrar, þegar
Þjóðviljinn náði tali af honum
fyrir skömmu og innti hann
eftir fréttum af atvinnuhorf-
um Akureyringa og Norðlend-
inga yfirleitt, en Tryggvi hef-
ur dvalizt hér í bænum undan-
farið og sat þá 8. þing Sósíal-
istaflokksins og sjómannaráð-
stefnu Alþýðusambandsins.
14 Iiús í staö 60.
— Hvað er að öðru leyti áð
segja um atvinnuhorfur og
framkvæmdir á Akureyri?
— Byggingariðnaðurinn hef-
ur þar eins og alls staðar í
landinu dregist stórlega saman.
Undanfarandi ár hafa 40—60
hús verið í smíðum árlega en
nú eru aðeins 14 hús i bygg-
ingu. Við Laxárvirkjunina og
lagningu háspennulínunnar til
Akureyrar hafa unnið 70—80
menn í sumar. Vinna við há-
spennulínuna er hætt, og þeir
sem enn vinna að virkjuninni
sjálfri hætta strax og vetur
gengur í garð. Gera. má rá'ð
fyrir að framundan sé örðugur
vetur hvað afkomu almennings
snertir. Nú þegar er um helm-
ingur þeirra verkamanna, sem
stunda algenga daglaunavinnu,
atvir.nul9.usir með öllu eða búa
við mjög stopula vinnu.
— Hvað um framkvæmdir
á vegum bæjarins?
Bærinn lætur aðaílega vinna
við grjótnám til gatnagerðar
og bryggjugerðar, einnig nokk-
uð að skurQavinnu og við drátt-
arbrautina. Síðustu vikurnar
hafa ca. 70 verkamenn unnið
í bæjarvinnuimi og henni er nú
skipt milli heirra. sem húa við
erfiðastar heimijisástæður og
hafa mestan fjölskyldubunga.
Atvinnuleysið kemur því lang
harðast niður á yngri verka-
mönnnnum. og má segia að
þeim séu flestar bjargir bann-
aðar.
Byjro-jno’ afkastamikils
hraðfrystihúss
nauösynleg'.
— Hvað telur þú að sé lík-
legast til a’ð skapa öryggi í at-
vinniilífi Akureyrar?
— Tvímælalaust byggingu og
rekstur hraðfrvstihúss til hess
að vinna úr afla togaránna og
vélbátsnna, en í þessum efnum
er Akurevri mjög illa sett, þar
sem aðeins er fyrir hendi eitt
gamalt frvstihús sem notað er
einungis fvrir kjöt og sem mat/
istafélag Akureyrar hefur fyrir
nokkru sent bæjarstjórninni er-
indi um þetta mál. Höfum við
lagt til að bæjarstjórnin hafi
forgöngu um að reist verði
hraðfrystihús sem afkastar 25
tonnum af fiskflökum í sólar-
hring. Bæjarstjórn hefur kosið
4 manna nefnd til að athuga
málið. Rekstur slíks hraðfrysti-
húss sem þessa mundi hafa
geysileg áhrif til atvinnuaukn-
ingar og skapa stóraukið ör-
yggi fyrir rekstur togaranna,
því enda þótt samvinna þeirra
og Krossanesverksmiðjunnar
hafi gefið ágætan árangur s. 1.
2 ár, vir^ist auðsætt, þegar
aflamagn hefur minnkað svo
sem raun er á, að rekstur karfa
veiða til bræðslu geti tæplega
átt framtíð, þar sem verksmiðj
ur geta ekki greitt 2/3 hluta
þess verðs sem frystihúsin
greiða. Um leið og möguleik-
ar á rekstri togaranna til
karfaveiða eru úr sögunni
stöðvast Krossanesverksmiðjan
af sjálfu sér nema yfir síldar-
tímann.
Hægt að gjörbreyta
atvimiuástandinu.
— Voru ekki atvinnumálin á
Norðurlandi á dagskrá hins ný-
afstaðna þings Alþýðusam-
bands Norðurlands?
— Jú, þau voru aðalmál
þingsins og lágu öllum fulltrú-
unum, er þingið sóttu, þyngst
á hjarta. Verlcalýðsstéttin á
Norðurlandi hefur orðið fyrir
þungum búsifjum af völdum
aflabrestsins á síldveiðunum s.
1. 7 ár, en síldveiðarnar hafa
verið undirstáðan undir lífsaf-
komu almennings við sjávar-
síðuna á öllu Norðurlandi. Þegs
um stórfelldu áföllum hefur
ekki verið veitt sú athj'gli sem
hefði mátt vænta. En þrátt
fyrir þetta eru ekki allar bjarg-
ir bannaðar með þeim atvinnn-
tækjum sem Norðlendingar
ráða nú yfir. Þar eru t. d. 6
nýir togarar, 4 á Akureyri, og
2 á Siglufirði. Og auk þess hafa
Skagstrendingar nú nýlega
keypt sjöimda togarann. Ef
tekst að fá rekstri þessara á-
gætu atvinnutækja hagað með
hagsmuni almennings fyrir
augum eru miklir möguleikar
til að gjörbreyta ástandinu í
kaupstöðum og sjóþorpum Norð
urlands.
Karfaveiði Norðurlands-
togaranna, um 16 þús. smá-
lestir s. 1. ár, var öll unnin
i bræðsln. Ef þessi afli hefði
verið fiakaður og hraðfryst-
ur hefðu togararnir fengið
225 kr. meira fyrir hvert
fisktonn eða 3,6 millj. kr
meira en í bræðslu. Það
hefði veitt m.jög mikla at-
vinnu og gefið a. m. k. 8
milíj. kr. meiri- gjaldeyri
þjýðarbúið en raun varð á.
Saltfiskframleiðsla Norð-
urlands-togaranna varð 2200
smálestir, og affeins helm-
ingur af bessum f;ski var
verkaður, hitt var selt út ó-
verkað. Með því að verka
allan saltfiskinn hefði hann
geúð b.jóðinni a. m. k, 21/,
milli. kr. meiri gjaldeyri.
ísfiskafli Norðurlands-
togaranna 6 verður varla
minni en 10 þús. tonn
vælageymsla bæjarbúa. Sósíal-L . þessu ári. Ef t. d. þrjú þess
ara skipa veiddu fyrir inn-
lendan marliað til frysting-
ar, mundi það skapa mikla
atvinnu og auknar gjaldeyr-
istekjur er næmi um 3—4
millj. króna.
Auknar gjaldeyris-
tekjur um 25—30
millj. kr.
— Telur þú að hagnýtingu
síldaraflans sé ekki einnig veru
lega ábótavant?
Viðtal við Tryggva^
Helgason, forseta
Alþýðusambands
Norðurlands
— Vegna vanstjórnar í þeim
málum fara stórkostleg verð-
mæti forgörðum, þar sem ekki
er saltað meira af hinni eftir-
sóttu en tregfengnu Norður-
lands-síld en raun er á, en
hún er af öllum talin lang
bezta matarsíld sem nokkurs
staðar er fáanleg.
í sumar var t. d. saltaður
aðeins 1/5 hluti eða rúm-
lega 100 þúsund tunnur af
veiðinni, en hitt allt sett í
bræðslu. Tryggð var fyrir
fram sala á 220 þúsund tunn
um fyrir gott verð. Hefði
verið saltað 100 þúsund
tunnum meira hefði það
skapað hundruðum iieimila
miklar atvinnutekjur frám
yrir það f,em raun varð á
og um leið fært þjóðinni
stórlega auknar gjaldeyris-
tekjur, að ég ætla a. m. k.
12—13 millj. króna fram
yfir það, sem sá hluti veið-
innar gefur ineð bræðsiu afl-
ans.
Með slíkri hagnýtingu Norð-
urlands-síldarinnar og annars
afla þeirra skipa er þaðan
ganga til fiskveiða myndi at-
vinnuástandið gjörbreytast í
bæjunum og f’estum sjóþoi'p-
unum og samtímis auka gjald-
evristekjur Jandsmanna um
hvorki meira effa minna en 25-
30 milij. króna, að því er mér
telst til. Með slíkri aukningu
gjaldeyristeknanna sköpuðust
m. a. möguleikar til stórauk-
inna kaupa á byggingarefni
og með beirri atvinnuaukningu
bættri afkomu almennings, yk-
ist kaupgetan og möguleikar
alþýðu manna til að koma sér
upp mannsæmandi húsakynn-
um, sem fjölda manns vanhag-
ar tilfinnanlega um. Enda er
ekkert sem ber greinilegar vott
um hnignandi þjóðarhag en
það, ef sú kynslóð sem tók við
landinu húsalitlu verður að
hætta í hálfnuðu verki við að
byggja sér varanleg húsakynni
í okkar kalda landi, og unga
kynslóðin um leið algjörlega
hindruð í að stofna heimili við
mannsæmandi aðstæður.
Vanrækt að frysta
beitusíld.
— Hvað er hæft í því að
engin Norðurlands-síld hafi ver
ið fryst til beitu?
— Það er rétt, og er það
eitt átakanlegasta dæmið, sem
ég veit um, um óstjórnina í
atvinnulífi okkar. Þegar síld-
veiðunum lauk fyrir Norður-
landi í haust var engin beitu-
síld til svo hægt væri að byrja
róðra í nokkrum sjóþorpum og
varð því strax í september að
sækja beitusíld á bifreiðum
suður að Faxaflóa. Og mér er
tjáð af kunnugum mönnum, að
nú þegar síldveiðum er lokið
hér sunnanlands muni vanta all
mikið á það beitusíldarmagn,
sem þarf til vertíðarinnar, —
jafnvel 10—15 þúsund tunnur,
— og er eltkert líklegra en ó-
hjákvæmilegt verði að flytja
það inn frá útlöndum, verði
gæftasamt á komandi vetri.
Laxárvirkjunin.
— Hvernig miðar Laxárvirkj
uninni áfram?
— Eins og ég gat um áðan
hefur verið unnið í sumar að
virkjuninni og lagningu há-
spennulínunnar frá Laxá til Ak
ureyrar. Byggingarfélagið Stoð
tók að sér byggingu stöðvarinn-
ar. við Laxá en lagning há-
sperinulínunnar er unnin á veg-
um rafveitna ríkisins. Lokið
er að reisa staurana og hefur
það verk gengið mjög vel í
suniar. Gert er ráð fyrir því í
samningum við Stoð að virkj-
unarframkvæmdum verði ]|okið
næsta haust. Talið er að virkj
unai’framkvæmdirnar gangi
fremur hægt, en haustið hefur
notast vel þar sem tíð hefur
verið mjög hagstæð. Við Akur-
éyringar bíðum eftir virkjun-
inni með mikilli óþreyju, því
jf Ein helzta skeinmtun Reyk-
vikinga í gær var að leggja út
hvað skammstöfunin AB merkti.
BiaðsöJustrákur á Lækjartorgi
heyrðist lirópa í gær: ABablaðið.
Aðrir halda því fram að þetta só
sænsk skammstöfun fyrir hluta-
félag: Aktie-Bolaget Aiþýðublaðið.
Og Vilmundur Jónsson landlækn-
ir les úr því: Ameriean Bulletin.
•
jc Tíminn skýrðl frá því í
fyrradag að Austurevrópuríkin
létu nú ófriðlega við landamæri
Júgóslavíu og „heföi lier þessara
ríkja vaxið úr 14 mÚIjónum síð-
ustu tvö árin í 25 milljónir nú,
sem stæðu gráar fyrir járnum við
landamærin". Samkvæmt því hafa
ekki aðeins aliir karlmenn þess-
ara landa tekið sér stöðu við
landamærin, heldur álitlegur hóp-
ur kvenna, barna og gamalmenna
með alvæpni. Hins er ekki getið
á hverju þessar 25 milljónir iifa,
því varla geta þær nærst á hin-
um gráu járnum, þótt margt ger-
ist kynlegt fyrir austan tjald.
rafmagnsskortur er tilfinnan-
legur t. d. til iðnaðar, og hafa
miklar skemmdir orðið á raf-
mótorum undanfarna vetur og
tafir á framleiðslu vegna of lít-
illar spennu. Þá eru mörg heim
ili illa sett þegar verulega kóln-
ar í veðri, því fast að helmingi
íbúa Akureyrar notar rafmagn
til upphitunar húsa sinna. Hin
nýja virkjun á að færa okkur
11—12 þúsund hestöfl til við-
bótar þeim 6 þúsund hestöflum
sem fyrir voru. Fljótlega má
reikna með að nauðsynlegt
verði að hef jast handa um nýja
viðbótarvirkjun og er þá gert
ráð fyrir að fyrri virkjunin
verði tvöfölduð.
Hafnarframkvæmdir
* aðkallandi.
— Eru ekki nýjar hafnar-
framkvæmdir á döfinni hjá
ykkur ?
— Mjög aðkallandi er að
halda áfram hafnarframkvæmd-
um á Akureyri. Hafnarmann-
virkin eru byggð úr tré, orðin
30—50 ára gömul, úr sér geng-
in og maðkétin og því brýn
þörf endurbygginga á þeim.
Hefur það mál mjög verið á
dagskrá. Fyrir f jórum árum
var keypt inn efni til endur-
byggingar hafnarmannvirkj-
anna. Var þá önnur aðalhafnar-
bryggjan endurbyggð að
nokkru leyti, en fullur helm-
ingur af efninu liggur enn ó-
notaður, vegna þess að lán
hafa ekki fengizt til að byggja
úr því togarabryggju, sem orð-
in er mjög aðkallandi til að
bæta afgreiðsluskilyrði togar-
anna, sem eru nú ein helzta
lyftistöng atvinnulífsins í hæn-
um og óskabörn allra Almr-
eynnga.
G. V.
Samþykktir 8. þings Sósíalistaflokksins:
8. þing Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalista-
flokksins skorar á Alþingi að samþykkja frumvarp
það um atvinnuleysistryggingar, sem Sigurður
Guðnason flytur nú á Alþingi. Þingið skorar á all-
an verkalýð og samtök hans að fylgja þessu nauð-
synjamáli fast eftir. Hið mikla atvinnuleysi, sem
nú þjáir alþýðuheimilin, um allt land gerir það að
brýnustu nauðsyn, að þetta réttindamál verka-
lýðsins nái fram að ganga.
sem af þessu leiddi og þar méð