Þjóðviljinn - 05.01.1952, Side 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 5. janúar 1952
BátagjaHeyririnn
Framhald af 1. síðu.
inga var eklu spurt hvort það
teldi ríkisstjórnlna haía laga-
heimild til ]>essara ráðstáfana.
Það er samið við útlenda stofn-
un. Ríkisstjórnin fær skilaboð
utan úr löndum. Svo fær Al-
þingi tilkynningu! Þannig starf
ar ríkisstjórnin að þessum
málum.
Einar sýndi fram á að með
þessum ráðstöfunum væri ver-
ið að hlaða nýjum byrðum á
almenning og gefa allt öðrum
aðiium en útveginum óhemju
gróða- Með þessu væri verið
að framkvæma gengislækkun
smátt og smátt. Og jafnframt
þvi að þessar ólöglegu ráístaf-
anir væru framkvæmdar lýsti
blað forsætisráðherrans yfir
þvi, að þessar álögur á al-
menning væru óþarfar, ef
stjórnarflokkarnir gætu komið
sér saman um að gefa út-
flutningsverzlunina frjálsa!
ÓLAFUR HÆTTIR SÉR
t!T I LÖGIN!
1 seinni ræðu reyndi Ólaf-
ur að draga fjöður yfir hina
fcerorðu lýsingu í framsögu-
ræðu sinni um þýlyndi stjórn-
arinnar gagnvart erlendu hús-
bændunum og mannaði sig upp
í að segja að bátagjaldeyris-
kerfið væri sett á samkvæmt
11. og 12. gr. f járhagslaganna!
Einar Olgeirsson las upp
þær lagagreinar og sýndi fram
á að langt er frá að í þeim
felist nokkur heimild til slíkra
ráðstafana.
Skoraði Einar á ríkisstjórn-
ina að leggja málið á þinglegan
hátt fyrir Alþingi, eins ug
henni bæri skylda til.
LEXÍA FRA FRANCO!
Ólafur lýsti yfir að málið
yrði ekki lagt fyrir þingið
á þinglegan hátt. „Þessi samn-
ingnr er gerður“, þá athuga-
semd taldi þessi dáandi þing-
ræðisins nægja alþingismönn-
um. Gylfi Þ. Gíslason benti á
að fyrirmynd bátagjaldeyris-
kerfisins myndi hvergi finnast
í Evrópu nema á Spáni, en
þangað hafa foringjar Sjálf-
stæíisflokksins mjög sótt und-
anfarið.
Þankar um friðinn
Framhald á 3. síðu.
krefjast friðar, af því að sósí-
alistar vilja frið og Rússar og
Kínverjar, þá myndu þeir
hrista höfuðið vantrúaðir og
segja eins og Sveinki vinur
minn á Raufarhöfn: Nei, nú
Jýgurðu, heillin.
Þegar Halldór Kiljan Lax-
ness sleit norræna friíarþing-
inu sem einn af forsetum þess,
sagði hann m.a.:
„Við hverfutn heim með
aukið traust á okkur sjálf-
um í þessari baráttu og
sannfærð um, að enda þótt
stríðsöflin vinni ötullega, er
lífsvilji þjócanna þó ennþá
sterkara afl, ekki sízt á
tímum eins og þessum, þeg-
ar mikil] hluti hins kúgaða
heims er að vakna og hefja
skipulega, einbeitta baráttu
gegn óvinum mannkynsins.
Friðarhreyfingin heyr
sams konar einbeitta, skipu-
lagða baráttu gegn gereyð-
ingaröfiunum. Iiún nær til
alls mannkynsins og er
runnin af lífsþrá þjóðanna".
Hvorum ætla íslendingar að
Jeggja lið: Stríðsöfiunum, sem
hafa hrifsað til sín land okk-
ar, eöá friðarhreyfingunni sem
berst gegn gereyðingaröflun-
um ?
Þet.ta er samvizkuspurning
mannkynsins ti] íslenzku þjóð-
arinnar..
67. DAGUR
er ekkert um að vera við Greenwood vatn lengur, finnst mér.
Eintóm gömul hænsni.“
„Þetta þætti móður þinni gaman að heyra.“
0,Og þú lepur það auðvitað í hana.“
„Nei, það geri ég ekki. En ég býst ekki við að við förum að
elta Finchley eða Cranstonfólkið upp að Tólfta 'vatni. Þú getur
farið þangað ef þig langar til og pabbi leyfir þér það.“
Um leið var gengið um útidymar; Bella gleymdi rifildinu við
bróður sinn og hljóp niður til að heilsa föður sínum.
ANNAR KAFLI
Aðalmáttarstólpi Griffithsfjölskyldunnar í Lycurgus var at-
hyglisverð persóna. Hann var alger andstæða hins litla, ráð-
leysislega bróður sáns í Kansas City, rúmlega meðalmaður á
hæð, vel byggður og ekki of feitur, með skarplegt augnaráð
og röska og ákveðna framkomu. Hann hafði ikomizt áfram af
eigin rammleik ,og smám saman hafði hann gert sér ljóst að
haijn var öðrum fremri að skarpskyggni og útsjónarsemi í við-
skiptamálum, og af þeim sökum. var hann stundum dálítið ó-
þolinmóður við þá sem voru honum síðri í þeim efnum. Hann
var engan veginn fráhrindandi í framkomu, en hann gerði sér
far um að vera rólegur og virðulegur í fasi. Og hann réttlætti
sig fyrir sjálfum sér með því, að hann mæti sjálfan sig mikils,
af því að aðrir gerðu það.
Fyrir tuttugu og fimm árum hafði hann komið til Lycurgus
með dálítið fé handa á milli, sem hann lagði í flibbaframleiðslu,
og honum hafði gengið betur en hann hafði nokkru sinni þor-
að að vona. Og vitanlega var hann hreykinn af því. Að þessum
tuttugu og fimm árum liðnum bjó fjölskylda hans í einu glæsi-
legasta og smekklegasta húsinu í Lycurgus. Fjölskyldan var
einnig talin ein hinna fremstu þar um slóðir — virðuleg, íhalds-
söm og lánsöm. Böm hans, að því elzta undanskildu, voru í
miklum metum í samkvæmislífi yngra fólksins, og hingað til
hafði enginn skuggi fallið á álit faans.
Þegar hann kom heim frá Chicago þennan dag, hafði hann
gert ýmsa hagkvæma samninga, sem virtust boða áframhald-
andi velgengni, og hann var í ágætu skapi og ánægður með
lífið og tilveruna. Allt hafði gengið að óskum í ferðalaginu.
í fjarveru hans hafði allt gengið sinn vanagang í verksmiðju
hans. Pantanirnar streymdu inn.
Þegar hann kom inn um dymar á húsi sínu, lagði hann frá
sér þunga ferðatösku og glæsilegan yfirfrakka, leit við og sá
einmitt það sem hann hafði vonazt eftir — Bellu á hlaupum
í áttina til hans. Hún var eftirlætið hans — hið yndislegasta
og bezta sem lífið hafði veitt honum — æska, hreysti, fjör,
greind og ástúð — allt þetta í liki fagurrar dóttur.
„Ó, pabbi,“ kallaði hún mjúkri og ástúðlegri röddu, þegar
hún kom auga á hann. „Ert það þú?“
„Já. Það tel ég víst. Og hvernig líður telpukominu hans
pabba?“ og hann breiddi út faðminn og yngsta afkvæmið flaug
upp um hálsinn á honum. „Þú ert sannarlega hraust og táp-
mikil stúlka," sagði hann um leið og hann lauk við að kyssa
hana ástúðlega. „Og hvernig hefur litli svarti sauðurinn í fjöl-
skyldunni hegðað sér síðan ég fór? Ekkert klandur núna.“
„Ég hef hegðað mér lifandis ósköp vel. Spurðu hvern sem er.
Ég faefði ekki getað hegðað mér betur.“
„Hvað er að frétta af mömmu þinni?“
„Henni líður ágætlega, pabbi. Hún er uppi hjá sér. Hún
hefur víst ekki heyrt þegar þú komst.“
„Og Myra? Er hún komin frá Albany?“
„Já. Hún er upp; á herberginu sínu. Ég heyrði að hún var
að spila rétt áðan. Ég er nýkomin heim.“
„Já, auðvitað. Á þeytingi eins og fyrri daginn. Láttu mig
bekkja þig.“ Hann lyftj. vísifingrinum aðvarandi,'en Bella hékk
? öðrum handlegg hans og þau gengu saman upp stigann.
„Nei, ég var ekki á neinum þeytingi,“ maldaði hún biíðlega
1 móinn. „Alltaf tortryggir þú mig, pabbi. Ég var bara hjá
Sondru dálitla stund. Og hvað heldurðu pabbi? Þau ætla að
ílytja úr sumarbústaðnum við Greenwood vatn og byggja
glæsilegt hús upp við Tólfta vatn. Og herra Finchley ætlar að
kaupa rafknúinn bát handa Etuart og þau ætla að búa þar
allt næsta sumar, kannski frá því í maí og fram í október. Og
Cranston fólkið ef til vill líka.“
Herra Griffiths var orðinn vanur brögðum dóttur sinnar,
en þó höfðu orð hennar önnur áhrif á hann en hún hafði ætl-
azt til: 1 stáð þess að fara að hugsa um að Tólftd vatn væri
ákjósanlegri staður en Greenwood vatn, fór hann að hugsa
um að Finchley fjölskyldan væri. ekki á heljarþröminni fyrgt
hún gæti staðið í öðriun eins útgjöldum.
1 sta.ð þess að svara Bellu hélt hann áfram upp á loft og fór
inn í herbergi konu sinnar. Hann kyssti frú Griffitbs, leit inn
til Myru, sem kom á móti honum til að faðma hann og talaði
um ferðina og hvað allt hefði gengið að óskum. Það sást
bezt á því, hvernig hann faðmaði konu sína, að sambandið milli
þeirra var með ágætum — ekkert ósamlyndi -r— og þegar hann
heilsaði Myru, kom í ljós, að þótt hann væri ekki fyllilega á-
nægður með skapgerð hennar og skoðanir, þá átti hún þó sinn
hluta af hinni miklu ást hans.
Meðan þau töluðu saman, tilkynnti frú Truesdale, að kvöld-
verðurinn væri framreiddur, og nú kom Gilbert inn í sam-
kvæmisfötum.
„Heyrðu, pabbi,“ hrópaðj hann. „Ég þarf að tala við þig
um mikilvægt mál á morgun. Má ég það?“
„Já, já. Komdu um hádegisleytið.“
„Komið þið nú, annars kólnar maturinn,“ sagði frú Griffiths
alvarlega, og Gilbert sneri sér strax við og gekk niður og
Griffiths á eftir honum, og Bella hékk enn á handlegg hans.
Og á eftir honum gengu frú Griffiths og Myra, sem var nú
♦□•o#o#o®o#o*o#o#o*oi
ss
.*
5a
••
%
.•
s?
i
1
$8-
ss
s?
ss
o*
•o
§
s§
o*
•o
o»
ss
•o
ss
1
TILKYNMNG
frá Landssambandi íslenzkra
útvegsmanna
Með því að samkomulag hefur náðst við ríkis-
stjórnina um að framlengja bátagjaldeyrisfyrir-
komulagið fyrir árið 1952, mælir stjórn og Verð-
lagsráö L.Í.Ú. með því við útvegsmenn, aö þeir
láti skip sín hefja veiðar og kaupi aflann á eftir-
töldu verði miðað við vel meöfarinn og ógallaðan
fisk og skráí skipverja samkvæmt því:
*« Þorskur:
Iislægöur með haus....................... kr. 1.05 pr. kg.
slægður og hausaður............. — 1.37------
óslægður ....................... — 0.88------ss
g§ flattur ......................... — 1.55------§s
| . 1
s? Ysa: enda sé henni haldið ss
íj sérskildri í bátunum p
slægð með haus.................. — 1.15------Í
slægð og hausuö ................ — 1.48------s§
I T 1
§§ Langa: t,
slægð með haus.................. — 0.93------§s
s§ slægð og hausuð .............. — 1.20------
óslægð ......................... — 0.74--------
s? flött .......................... — 1.37------
•c 2o
o* “2
| Keila:
islægð með haus ................ — 0.38-------
§§ slægð og hausuð .............. — 0.55---------»
§• ú
§§ Ufsi: ®
slægður með haus............. — 0.55--------
slægður og hausaður ............ — 0.71-------
s§
•; Steinbitur í nothæfu astandi: s?
ss
ss slægður með haus................. — 0.77---------ss
?S 52.
2» Skötubörð: jjs
P stór ............................ — 0.82 — — jjs
s§ smá ............................. — 0.57---------;•
•1 .*
*• Skarkoli: ss
•: I. IVa lbs. og yfir .......... — 3.17--------->
•: • II. % lbs. til iy4 lbs......... — 2.65-------I
| III. 250 g. til % ibs........... — 1.80----------|
Meðalverð .................. — 2.73--------§s
| s|
25 Þykkvalúra: ?•
I. iy4 lbs. og yfir .......... — 2.52----------Í
II. % lbs. til iy4 lbs. ....... — 2.08— — f
III. 250 g. til % lbs.......... — 1.53úw—r s§
ís Meðalvsrð ................. —"'2.19' — •!
2? i ' 2S‘:
*•: Lúða: ' -aaivölteR |
|§7 2—20 lbs........................ _ 3.50 — — s§
W - •' *2’
.*5 Hrogn: til 1. april 1952 s§
•l, " i. fi.............................. - '2«ní _ !
I 2. fl............................ _ 1.00----------i
§2 . Meðaiyerö (óflokkað) .......... — 1.50 —' — §s
t*SS2ÓSS252SSóSS2?SS2óSnSSSSSS2ó2SSS2S2S2SSS282SSS2S2SSS2SSS2SSS2o25SS252?2?SS2t2S25252?SSSS25252S