Þjóðviljinn - 12.03.1953, Blaðsíða 1
Naguib heímtar
herinn á brott
Naguib hershöfðingj, forsætis-
ráðherra Egyptalands, sagði við
bfaðamenn í fyrradag, að brezka
íslendin^a
Sósíalistaflokkurinn skorar á alla þjóðholla Islendinga að mynda
frjáls stjórnmálasamtök til að leysa aftur af Islandi nýlendufjötraná
binda endi á það niðurlægingartímabil sem nú stendur yfir
stjórnin hefði rofið samkomulag-
ið sem nýlega varð milli Egypta
og Breta um framtíð Súdans.
Hann bætti því við, að það væri
skilyrðislaus krafa Egypta, að
Bretar héldu burt með allan her-
afla sinn frá Súezeiði.
Selwyn Lloyd, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Breta, vísaði þess-
um ásökunum Naguibs á bug í
brezka þinginu í gær og lýsti
jafnframt yfir, að það yrði ekki
.til að bæta sambúð landanna, é£
egypzkir ráðamenn héldu upp-
teknum hætti með að gefa út
„hlutdrægar og torráðnar yfir-
lýsingar“. Lloyd var hylltur al
í SLENDINGAR!
SlÐASTA flokksþing Sameiningarflokks alþýðu —
Sósíalistaflokksins samþykkti ávarp til íslenzku
þjóðarinnar, sem lauk með þessum orðum:
„VERKAMENN, sjómenn, bændur, menntamenn,
millistéttir og sá hluti borgarasté'ttarinnar, sem
er þjóðhollur og framfarasinnaður og ekki hefur
gengið á mála hjá óvini íslands, auðdrottnunar-
valdi Bandaríkjanna, allir þeir, sem imna frelsi
lands og lýðs og kjósa velmegun og framfarir
þjóðarinnar, verða nú að taka höndum saman,
slíta af sér herfjötra hinna sviksamlegu borgara-
flokka og skapa nýjan grundvöll að frjálsri
stjórnmálastefnu á íslandi.
HÖFUÐMARKMIÐ slíkra frjálsra stjómmálasam-
ta'ka, þjóðfylkingar íslendinga, yrði að leysa. ís-
land aftur úr þeim nýlendufjötrum, sem nú er
Jsifellt verið að hneppa það í, og hnekkja þannig
yfirdrottnun hins ameríska herveldis og erind-
reka þess og bjarga þjóðinni úr þeim voða, sem
hemám landsins hefur búið henni.
MYNDUN slíkrar þjóðfylkingar og sigur hennar í
frjálsum kosningum ér það mikla takmark, sem
hver góður íslendingur verður nú að keppa heils
hugar að. Það er eina leiðin — leið íslands út úr
því niðurlægingartímabili í sögu þess, sem nú
stendur yfir og verður að binda endi á.“
NÚ ER ENN Á NÝ vá fyrir dyrum. Fyrirhugað er
að stofna íslénzkan her undir bandarískri yfir-
stjóm. Fyrirhugaðar em miklar hemaðarfram-
kvæmdir, bygging herskipahafna og hemaðar-
flugvalla víðsvegar um landið. Stefnt er að því
að gera ísland að einni mestu árásarstöð Banda-
ríkjanna og samfelldum vígvelli, ef til styrjald-
ar kemur. íslenzkt viðskip'talíf er hneppt í fjötra,
samtímis því, sem stórveldi þau, sem ísland hef-
ur verið ofurselt efnahagslega, neita að kaupa
framleiðsluvörur þess. Fyrirhugað er að afhenda
erlendu auðvaldi dýrmætustu auðlindir lands-
ins, samtímis því sem íslenzk framleiðsla er tak-
mörkuð. íslenzka þjóðin er í mikilli hættu stödd.
OG NÚ ER TÆKIFÆRIÐ fyrir íslenzku þjóðina
til að snúa af þeirri braut, sem stefnir í sjálfan
voðann, af braut niðurlægingarinnar yfir á braut
þjóðlegrar reisnar og framfara. Það standa kosn-
Ingar fyrir dyrum. Ef öll alþýða landsins og allir
þjóðhollir íslendingar taka höndum saman í
þessum kosningum, er hægt að bjarga þjóðinni.
FYRIR ÞVÍ skorar Sameiningarflokkur alþýðu —
Sósíalistaflokkurinn á alla góða .íslendinga sem
heilshugar vilja vinna að því að endurheimta|
sjálfstæði landsins og að efnahagslegri framsókn
á þjóðlegum grundvelli, svo og á öll samtök
þeirra, hagsmunaleg, stjórnmálaleg og menning-
arleg að taka höndum saman í kosningum þeim
til Alþingjs, sem í hönd fara, á eftirfarandi
grundvelli:
1. AÐ herverndarsamningnum verði sagt upp og
allur erlendur her fluttur burt af íslandi.
2. AÐ þjóðin endurheimti sjálfsforræði sitt að
fullu í stjómarháttum og efnahagsmálum.
3. AÐ staðið verði fast gegn öllum tilraunum til
að koma upp íslenzkum her í hvaða mynd sem
er. - «
4. AÐ staðið verði gegn öllum tilraunum erlends
auðvalds til að sölsa undir sig íslenzkar auð-
lindir.
5. AÐ þjóðin einbeiti orku sinni að því að koma
upp stóriðju á grundvelli auðlinda sinna af eig-
in rammleik.
6. AÐ nýtt verði til fulls atvinnutæki þjóðarinn-
ar í sjávarútvegi, landbúnaði og iðnaði og haf-
in að nýju stefna nýsköpunar og framfara í
þessum greinum.
7. AÐ stefnt sé að því, að öllum íslendingum, sem
vilja vinna, sé tryggð atvinna.
8. AÐ unnið sé markvisst að bættum launakjörum
og auknu félagslegu öryggi í náinni samvinnu
við verkalýðssamtökin.;
9. AÐ ekki sé hvikað í landhelgismálunum.
10. AÐ íslendingar kappkosti að lifa í friði og vin-
áttu við allar þjóðir, lýsi yfir ævarandi hlutleysi
í ófriði og leggi fram sinn skerf til þess að stuðla
að sáttum og friði í heiminum.
SÓSÍALISTAFLOKKURINN mun að sínu leyti
gæta þess vel, að ekkert, sem skilur og engar
fyrri erjur standi í veginum fyrir sameiningu
um hinn sameiginlega málstað yfirgnæfandi
meirihluta þjóðarinnar, allra góðra íslendinga.
Hann væntir hins sama af öllum öðrum aðilum.
Hann treystir því, að enginn, sem heilshugar vill
berjast fyrir málstað þjóðar sinnar, geri þann
óvinafagnað að stofna til sundrungar í fylking-
um þjóðhollra íslendinga á örlagastund. Hann
óskar að eiga hið allra fyrsta viðræður við alla
þá aðila, sem vilja vinna að því að koma á fót
þessari fylkingu á þann hátt, sem heppilegast
þykir. Hann er fús til.að ræða og ’taka tillit til
allra sjónarmiða í þeim efnurn og hann er stað-
ráðinn í að láta öll þrengri flokkssjónarmið víkja
fyrir sameiginlegum málstað.
Miðstjóm Sameiningarflokks alþýðu —
Sósíalistaflokksins.
þingmönnum úr öllum þingflokk-
am að ræðu sinni lokinni.
Frú Pandit
adalritari SÞ?
Öryggisráðið kom saman á
fuhd í gær fyrir luktum dyr-
um og var rætt um skipuni
nýs manns í sæti Ti-ygve Lie,
aðalritara SÞ. — Sövétríkim
hafa lagt til að utanríkis-
ráðherra Póllands, Stanislaw
Skrzesewski, verði látinn taka-
við, en talið er að Vesturveld-
in muni annaðhvort stinga upp
á Lester Pearson, utanríkisráð-
herra Kanada, Carlos Romulo,
fulltrúa Filippseyja hjá SÞ, eða
Nasrullak Entezam, aðalfull-
trúa írans hjá SÞ. Ólíklegt er
talið að nokkur þessara fjög-
urra muni hljóta löglega kosn-
ingu. Hins vegar eru taldar
líkur á, að samkomulag geti
orðið um formann indversku
sendinefndarinnar, frú Vijaya
Lakhsmi Pandit, sem er systir
Nehrús, en hún liefur lýst sig
fúsa að taka við stöðunni, ef
meirihluti stendur að kosnkigu
hennar.
Gromikó harðorður
Gromikó, aðalfulltrúi Sovét-
ríkjanna á þingi SÞ \ fjarveru
Vishinskis, ásakaði Bandaríkin
í ræðu í gær fyrir að hafa spillb
öllum samkomulagstilraunum í
Kóreu, og ákærði þau jafnframtí
fyrir hryðjuverkin á varnarlaus-
um föngum.
Fimmfo birgðaskipið tii hersins er komið
FYRIB aðelns nokkrum dögum lét fíá bryggju hérbirgðaskip það til Bandaríkjahers sem myndin hér
að ofan sýnir. Flutti það hernum enn viðbót af vörubílum, byggingarefnl, vinnuvéliun ofl. — t ga«r
lagðist. svo að bryggju fimmta skipið í lotu með birgðir til hei'sins. Fiytur það eun vörubíla og rúm-
lega hálft annað þásund tonna af asfaltefni, auk annars.